Morgunblaðið - 05.05.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 23
VIÐSKIPTI
*
Islandsbanki annast
skuldabréfaút-
boð fyrir Eimskip
NYVERIÐ var undirritaður samn-
ingur milli íslandsbanka og Eim-
skips um að bankinn annist sölu á
skuldabréfum félagsins, alls að fjár-
hæð 600 milljónir króna. Skulda-
bréfin eru til átta ára með árlegum
afborgunum. Þar af eru 300 m.kr.
verðtryggðar og 300 milljónir
óverðtryggðar. Kjörin á skuldabréf-
um miðast við 30 punkta álag ofan á
ríkistryggð skuldabréf af sambæri-
legri lengd að því er fram kemur í
fréttatilkynningu.
Talsverður áhugi reyndist vera
hjá fjárfestum íyrir bréfunum, sem
seldust upp. Stefnt er að skráningu
þeirra á Verðbréfaþingi íslands og
mun íslandsbanki annast viðskipta-
vakt á skuldabréfunum.
Á meðfylgjandi mynd má sjá þá
Hörð Sigurgestsson, forstjóra Eim-
skips, og Val Valsson, bankastjóra
Islandsbanka, undirrita samning-
inn. Með þeim á myndinni eru
Tryggvi Pálsson, framkvæmda-
stjóri hjá Islandsbanka, Kristján
Arason, deildarstjóri í verðbréfaút-
gáfu bankans, og Þórður Magnús-
son, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs hjá Eimskip.
Góð afkoma
hjá Spari-
sjóði Þórs-
hafnar
Þdrshöfn. Morgunblaðið.
Á AÐALFUNDI Sparisjóðs Þórs-
hafnar og nágrennis sem haldinn
var 3. apríl sl. kom fram að síðast-
liðið ár var hagstætt hjá sjóðnum,
en 9,7 milljóna króna hagnaður
varð af rekstri hans. Nýtt af-
greiðslukerfi verður sett upp í
sparisjóðnum og hraðbanki opnað-
ur.
Eignir sjóðsins námu í lok síð-
asta árs 566,3 milljónum króna og
skuldir 455,9 milljónum. Eigið fé
var 110,3 milljónir sem er 19,5% af
niðurstöðu efnahagsreiknings. Eig-
infjárhlutfall, svokallað CAD-hlut-
fall, var 25,15% en má samkvæmt
lögum um sparisjóði ekki vera
lægra en 8%. Staða sparisjóðsins
er góð og hækkuðu innlán um 22%
en útlán lækkuðu um 26 milijónir
króna milli ára.
Tillaga stjómar þess efnis að
hagnaði verði varið til hækkunar á
varasjóði var samþykkt, einnig
samþykkti aðalfundur að greiddur
verði 10% arður til stofnbréfaeig-
enda og komi sú upphæð til hækk-
unar á stofnfé.
Breytingar á
peningamarkaði
Sparisjóðsstjóri er Kristján
Hjelm og eru starfsmenn við sjóð-
inn 4,5 stöðugildi.
Stjómarformaður sparisjóðsins
er Kristín Kristjánsdóttir og hefur
hún setið 11 ár samfleytt í stjóm
sjóðsins. I máli hennar á aðalfundi
kom fram að miklar breytingar em
á peningamarkaðnum og sam-
keppni hörð á þessum markaði.
Sparisjóðurinn verði því að vera í
takt við tímann og fylgjast með
nýjungum.
Því eru miklar breytingar á af-
greiðsluháttum framundan hjá
sparisjóðnum hér, líkt og annars
staðar. Pappírsviðskipti minnka en
rafræn viðskipti aukast. Nýtt af-
greiðslukerfi verður tekið í notkun
og hraðbanki, sem opinn verður
allan sólarhringinn árið um kring,
verður settur upp við sparisjóðinn.
Þessar breytingar verða að líkind-
um fullfrágengnar með haustinu
og verða til þæginda fyrir við-
skiptavini sparisjóðsins svo og
starfsfólk.
Við bióðum
hagkvæmustu leiðina
í viðskiptaferðum
til Evrópu
Q Ferðaskrifstofa íslands gefur þér kost á að spara umtalsverðar fjárhæðir í viðskiptaferðum til
Evrópu. Með því að bjóða viðskiptafarþegum að nýta sér kosti þess að fljúga á viðskiptafargjaldi
Flugleiða og SAS gerum við þeim kleift að draga til muna úr ferðakostnaði í viðskiptaferðum á milli
íslands og annarra Evrópulanda.
Q Tíðar áætlunarferðir og sveigjanleiki í tengslum við bókanir og breytingar á þeim lækka ferða-
kostnað þegar allt er saman talið.Auk þess hlýst af því umtalsverður óbeinn sparnaður að stytta
dvalartíma erlendis og þar með fjarvistir frá vinnustað hér heima.
Nýttu þér ótvíræða kosti þess fyrir þig og fyrirtæki þitt að fljúga á viðskiptafargjaldi
í Evrópu með SAS og Fiugleiðum
Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaskrifstofu íslands.
SAS
FERÐASKRIFSTCM
ÍSLANDS
%