Morgunblaðið - 05.05.1998, Page 24

Morgunblaðið - 05.05.1998, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ NYTT Álegg og kryddpylsur GOÐI hefur sent frá sér tvenns konar nýjungar. Annars vegar er um álegg úr reyktum nautavöðva að ræða. Nautavöðvinn er fítu- hreinsaður, sérvalinn lærvöðvi. Hins vegar er um að ræða tvær tegundir af kryddpylsum. Tegundunum hefur verið gefið nafnið Cabanossy og Chorisso- pylsur og innihalda pylsurnar ítalska kryddblöndu. Pylsurnar henta jafnt á grillið sem steiktar eða soðnar. Morgunblaðið/Golli Lúxus kara- mellu- íspinnar KARAMELLU Lúxus íspinnarnir sem seldir hafa verið í söluturn- um um skeið fást nú í heimilis- pakkningum. I fréttatilkynningu frá Kjörís kemur fram að fjórir íspinnar séu í hverri pakkningu og að þeir séu framleiddir úr mjólkurís með mjúkri karamellu og hjúpaðir með súkkulaðidýfu. fierra GARÐURINN -klæðirþigvel KRINGLUNNl OG LAUGAVEGI Nýr bœklingur er kominn í allar helstu matvöruverslanir Vinsamlegast athugið eftirfarandi: Marsípanhjúpuð veisluterta. Sérrifyllin? - í henni eiga að vera 3 dl rjómi, en þvi miður féll það niður í upptalningunni. ~ Þeyttur rjóminn fer síðan saman við eggjahræruna o um leið og ávextirnir. 2 Við vonum að þetta hafi ekki valdið óþægindum * og að þið eigið eftir að njóta þess sem bæklingurinn býður upp á. Hafið samband ef spurningar vakna við Upplýsingaþjónustu Tilraunaeldhúss MS sími 569 2200. mr með Tilraunaeldhúsi Mjólkursamsölunnar Könnun á verði drykkjarfanga í veitingahúsum Allt að 135% verð- munur á írsku kaffí VERÐMUNUR á drykkjarföngum í veitingahúsum er mikill, það mun- ar allt að 135% á írsku kaffi milli staða og verðmunurinn nemur 120% þegar flaska af Beek’s bjór er annars vegar. Þetta kemur fram í nýlegri könn- un starfsfólks Samkeppnisstofnun- ar á verði áfengis, gosdrykkja og bjórs í 131 veitingahúsi á höfuð- borgarsvæðinu. Sambærileg könn- un var gerð í apríl á sl. ári. Vodki á 500 eða 900 krónur í fréttabréfi Samkeppnisstofnun- ar koma fram ýmis dæmi um mis- munandi hátt verð. Dýrastur var tvöfaldur vodki í gosdrykk hjá Kaffi Reykjavík og á Skólabrú á 900 krón- ur en hann var ódýrastur hjá Nellyks á 500 krónur. Einfaldur Martini Bi- anco var dýrastur á 400 krónur hjá Kaffi Reykjavík, Fjörukránni, Sir Oliver, Fantasíu, Mirabelle, Samurai, The Dubliner og hjá Vega- mótum en hann var ódýrast- ur hjá Kínahofinu, Pizza 67 á Reykjavíkurvegi og Pizzahúsinu Grensásvegi á 230 krón- ur. Einfaldur Grand Mamier var ódýrastur á 250 krónur hjá Ca- fé Jensen en dýrast- ur hjá Óðali á 500 krónur. Einfalt írskt kaffi kostaði mest 750 krónur á veitingahúsunum, Gauki á Stöng, Grand Hóteli, Hótel Reykjavík, Humarhús- inu, Jónatan Livingstone Mávi, Leikhúskjallaranum, Naustinu og Óðali en var ódýrast á 400 krónur hjá Vitabar. Þegar kemur að bjór- tegundum var 33 cl flaska af Tu- borg ódýrust á 350 krónur hjá Grand hóteli, Vitabar og í Ölveri en dýrust á 550 krónur hjá Skóla- brú. Sama er uppi á teningnum með 33 cl flösku af Egils gullbjór. Dýrust var hún á 550 krónur hjá Skólabrú en ódýrust í Ölveri og á Grand hóteli á 350 krónur. 33 cl flaska af Beck’s bjór var ódýrust hjá Pizza 67 í Engihjalla, á 250 kr., en dýrust í Rive • Gauche á 550 krón- ur. Þá var 33 cl Drykkjarföng á veitingahúsum Niðurstöður úr könnun Samkeppnisstofnunar í apríl 1998 Drykkur »§8.7 Fjöldi veitinga- húsa Lægsta verð Hæsta verð Hlutf.- legur mism. Meðal- verð I apríl '98 Tvöfaldur vodki i gosi 115 500 kr. 900 kr. 80% 748 kr. Tvöfaldur gin í gosi 115 500 kr. 900 kr. 80% 748 kr. Bristol Cream sérrý, 6 cl 98 250 kr. 450 kr. 80% 335 kr. Martini Bianco, 6 cl 105 230 kr. 400 kr. 74% 319 kr. Bailey's Irish Cream, einf. 117 170 kr. 400 kr. 135% 294 kr. Grand Marnier, einf. 109 250 kr. 500 kr. 100% 375 kr. Remy Martin VSOP, einf. 99 350 kr. 600 kr. 71% 493 kr. Irish Coffee, einf. 115 400 kr. 750 kr. 88% 617 kr. Beck's, 33 cl flaska 70 250 kr. 550 kr. 120% 445 kr. Heineken, 33 cl flaska 60 290 kr. 550 kr. 90% 461 kr. Tuborg, 33 cl flaska 52 350 kr. 550 kr. 57% 451 kr. Egils gull, 33 cl flaska 46 350 kr. 550 kr. 57% 460 kr. Viking, 33 cl flaska 36 300 kr. 520 kr. 73% 444 kr. Viking kranabjór, 0,31 23 280 kr. 500 kr. 79% 382 kr. Viking kranabjór, 0,51 25 380 kr. 600 kr. 58% 491 kr. Tuborg kranabjór, 0,31 23 250 kr. 450 kr. 80% 368 kr. Tuborg kranabjór, 0,51 23 350 kr. 595 kr. 70% 490 kr. flaska af Heineken bjór ódýrust hjá Wunder- bar á 290 krón- ur en dýrust á Ri- ve Gauche á 550 krónur. Að lokum má nefna 33 cl flösku af Víking bjór. Hún kostaði minnst 300 krónur á Skippemum en kostar 520 krónur þar sem hún var dýr- ust, hjá Humarhúsinu. Kristín Færseth deildarstjóri hjá Samkeppnisstofnun segir að verð á því sem kallast vín húss- ins sé mjög mismunandi. „Glasið er selt á allt frá 290 krónum og upp í 750 krónur þar sem það er að dýrast og þá er um sama magn af víni að ræða. Á að gefa upp magn víns Að sögn Kristínar era litlar verðbreytingar á þessu eins árs tímabili frá því sambærileg könnun var gerð og fylgja þær nokkurn veg- inn verðbreyting- um hjá ÁTVR. ,Á árinu 1996 komu út breyttar reglur um verðupplýsingar veit- ingahúsa en þær komu í stað reglna Samkeppnisstofnunar frá 1994. Að- albreytingin er sú að nú þurfa þeir sem stunda veitingarekstur að gefa upp magn á drykkjarföngum, hvort heldur er í flösku eða glasi, auk verðs. Það er fyrst og fremst gert til að viðskiptavinir geti áttað sig á og borið saman verð. Flest veitinga- húsin bjóða glas af víni hússins til sölu. Það getur verið erfitt að átta sig á verðinu og hvað í boði er ef magns er ekki getið.“ Kristín segir að í þessari könnun hafi magnið í hverju glasi verið frá 12-33 cl eftir veitingahúsum. Þá segir hún að 42% veitingahúsanna tilgreini magn drykkjarfanga og einungis 40% hafi verðskrá á áberandi stað fyrir fram- an inngöngudyr. „Auðvitað er eðli- legt að verð sé mismunandi á veit- ingastöðum en það er nauðsynlegt að neytendur geti gert sér grein fyrir verðlagi. Samkvæmt fýrr- greindum reglum ber þeim sem stunda veitingahúsarekstur að hafa uppi slíka verðskrá þar sem fram kemur verð algengustu vöru og þjónustu sem í boði er.“ NÝTT Tilbúnir fiskréttir Vatn stillt með varmaskipti í 40-60° ÍSLENSKT franskt eldhús hf. á Akranesi hefur sett á markað frosn- ar ýsusteikur með laxamúsfyllingu, fjórar steikur í pakka, ætlaðar fyrir tvo. Réttur- inn er tilbúinn til eldunar beint úr frysti. Steikum- ar er hægt að steikja á pönnu, setja í örbylgju- ofn, í bakaraofn eða á grillið. Ýsusteikumar era boðnar á sérstöku kynningarverði í verslunum Hagkaups. Ýsusteikumar eru ein af fjöl- mörgum nýjum framleiðsluvöram sem þróaðar hafa verið og fram- leiddar í samstarfi íslensks fransks eldhúss hf. og Haralds Böðvarsonar hf. á Akranesi. Útflutningur þess- ara tilbúnu rétta fer nú þrátt vax- andi að því er fram kemur í frétta- tilkynningu. Áðumefndir réttir era hluti af nýrri framleiðslulínu ÍFE og HB hf. þar sem ferskur fiskur er fullunninn fyrir neytendur áður en hann er seldur erlendis. VARMASKIPTAR eða forhitarar svokallaðir hafa lengi verið notaðir til upphitunar á vatni, til dæmis á Seltjarnamesi. Með notkun þeirra er hægt að stilla hitastig á heitu neysluvatni á bilinu 40-60° C. Kjartan Ó. Kjartansson bygging- artæknifræðingur og sölumaður hjá Héðni-verslun segir varma- skipta misafkastamikla en þeir kosta um 70.000 krónur með stjóm- búnaði fyrir rað- og einbýlishús og um 100.000 krónur uppsettir. „Varmaskiptar hafa aðallega verið notaðir á neysluvatn þar sem það er ekki nógu gott. Fyrir utan það eru ýmsir kostir sem fylgja því að vera með varmahitara. Þrýstingur- inn á vatninu er lægri en ef um hitaveituvatn er að ræða. Oft er þrýstingurinn á hitaveituvatni mik- ill til að koma vatni í alla bæjar- hluta. Mörg blöndunartæki þola ekki þennan þrýsting og það eru dæmi um að þau hafi sprangið þess vegna. Þá hefur þetta oft orsakað þann vanda t.d. í blokkum ef þrýst- ingur er misjafn milli kalda og heita vatnsins að vatnið kemur í gusum. Með forhitara er sami þrýstingur á upphitaða heita vatninu og því kalda.“ Einn stærsta kostinn segir Kjart- an vera, að með varmaskipti koma ekki kísilútfellingar á sturtur eða böð sem eiga annars til að setjast á flísar eða leirtau. Þegar hann er spurður hvemig hægt sé að stjórna hitastigi á heita vatninu með varmaskipti segir hann að hægt sé að stilla stjómbúnaðinn sem tengdur er við varmaskiptinn svo að hann hiti vatnið aldrei meira en á bilinu 40-60° C. - Hvað dugar svona búnaður lengi? „Það fer allt eftir aðstæðum og vatnið sjálft hefur mikil áhrif á end- ingartímann. Yfirléitt er vatnið mjög gott á Reykjavíkursvæðinu, það er helst að vatnið á Seltjamar- nesinu sé ekki upp á það besta en þar nota flestir varmaskipta." Þegar hann er spurður um við- hald á þessum forhiturum eða varmaskiptum segir hann ráðlegt að láta yfirfara búnaðinn reglulega eins og allan annan búnað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.