Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 27
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 2 7
ERLENT
Langt og dýrt verkfall
Á níunda verkfallsdegi í Danmörku eru
áhrifín að verða áþreifanleg í ýmsum
greinum atvinnulífsins, þó almenningur
fínni lítt fyrir þeim í daglega lífínu eins og
Sigrún Davíðsdóttir rekur.
Reuters
GRETE Jessen, sem rekur bensínstöð í Kruse á Jótlandi, lokar
bensíntönkunum vegna verkfallsins.
„ÉG ER EKKI trúaður á að samn-
ingar takist í nótt,“ sagði Hans Jen-
sen forseti danska Alþýðusambands-
ins í gær eftir langa samningatörn
samningsaðila. Nærri var slitnað
upp úr samningum á sunnudag, er
launþegar höfnuðu tilboði um tvo
viðbótarfrídaga gegn lægri greiðsl-
um í eftirlaunasjóði. Eins og sjá
mátti fyrir hafa áhrif verkfallsins nú
breiðst út til stórs hluta dansks at-
vinnulífs, áhrif í útflutningsgreinum
gerast sársaukafull og landbúnaður-
inn á í erfiðleikum. f dag efnir verka-
lýðshreyfingin til mótmæla víða um
land. A fundi fyrir viku söfnuðust
tuttugu þúsund manns saman á
fundi í Kaupmannahöfn og búist er
við að mun fleiri mæti í dag, þegar
verkbann á verslunarfólk gengur í
gildi. Ef verkfallið dregst á langinn
eru vaxandi áhyggjur í stjórninni yf-
ir hugsanlegum áhrifum á þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um Amsterdam-
sáttmálann 28. maí.
„Frekar frí en fimmaura“
Fulltrúar samningsaðila vilja sem
minnst láta hafa eftir sér, svo mikið
af fréttum danskra fjölmiðla eru
byggðar á getgátum og óstaðfestum
orðrómi. Aðilamir leggja áherslu á
að samið verði utan sviðsljóssins og
hugsanlega samningar kynntir í fé-
lögunum, áður en þeir verða greindir
og túlkaðir af fjölmiðlum. Það virðist
þó liggja fyrir að launþegar hafi
hafnað áþreifanlegu tilboði á sunnu-
dag um tvo viðbótarfrídaga, þar sem
þeir hafi álitið sig þurfa að gefa of
mikið eftir og þá líklega helst af
greiðslum atvinnurekenda í lífeyris-
sjóði.
Það eru eftir sem áður frídagar,
sem eru efst á blaði. A mótmæla-
fundum í dag eru slagorðin víða „6.
frívikan“ og „Frekar frí en
fimmaura“. Þó Hans Jensen hafi
dregið úr væntingum launþega með
því að segja að óraunsætt sé að álíta
að heil vika náist í einum rykk, þá er
greinilegt að það em viðbótarfrídag-
ar, sem verkalýðsforystan álítur
mikilvægast að ná samningum um.
Landbúnaðurinn tapar
230 milljónum á dag
Þýskaland og Svíþjóð em helstu
viðskiptalönd Dana og þar er því
áhrifanna farið að gæta. I gær lagð-
ist niður framleiðsla hjá sænska
Saab í Södertálje og Trollháttan, þar
sem ekki fást hlutar, sem framleidd-
ir eru í Danmörku. Saab metur tapið
vegna lokunar á 120 milljónir
sænskra króna á dag. Volvo er
einnig í vandræðum, en getur þó
haldið framleiðslunni gangandi fram
í vikuna. Margir danskir framleið-
endur, sem flytja út vömr sínar, sjá
ekki aðeins fram á tap á meðan á
verkfallinu stendur, heldur óttast
einnig að missa markaði. Forsvars-
menn landbúnaðarins hafa þungar
áhyggjur af ástandinu, bæði af tapi
bænda og eins af því að hollenskir
svínabændur hafa verið snöggir að
fylla upp í tómarúmið, sem dönsku
útflutningsstöðvun hefur orsakað.
Tækifærið kemur sér vel fyrir þá
hollensku, sem nýlega voru úr leik
vegna svlnapestar og em rétt að
koma inn á markaðina aftur.
Vandinn í landbúnaðinum lýsir sér
meðal annars í því að bændur losna
hvorki við sláturdýr né fá nægilegt
fóður. Þeir sitja því uppi með grísi,
sem verða of stórir til slátranar og
eins verður æ þrengra um svínin,
þegar ekki er hægt að rýma fyrir
yngri grísum. Kjúklingabændur búa
við sömu aðstæður, þar sem
kjúklingunum fjölgar, þeir stækka
og dafna og eru að lokum farnir að
troða hver annan í hel í alltof þröng-
um húsum. Fjölmiðlar draga ekki af
sér við að mála skrattann á vegginn
og dýravemdunarsamtök kvarta há-
stöfum undan því að dýrin þurfi að
þjást fyrir verkfallið.
Þegar til lengdar lætur munu
stærri sláturdýr leiða til offramboðs
og verðlækkunar. Sláturhúsin fá því
nóg að starfa, en reiknað er með að
það taki fimm vikur að ná upp einnar
viku verkfalli. Nú þegar verkfallið er
komið á aðra viku og ekki séð fyrir
endann á því er ekki útséð um hver
vandi sláturhúsanna verði. Reiknað
er með að tap landbúnaðarins sé um
230 milljónir danskra króna á dag,
rúmlega 2,3 milljarðar íslenskra
króna.
Þó sjávarútvegur hossi ekki jafn
hátt í dönskum þjóðhagsreikningum
og landbúnaðurinn hefur athyglin
einnig beinst að vanda sjávarútvegs-
ins vegna verkfallsins. Sjómenn geta
ekki veitt, þar sem þeir losna ekki
við fiskinn og þurfa því að vera að-
gerðarlausir. Þar sem sjávarútvegur
er ráðandi atvinnuvegur á vestur-
strönd Jótlands er það helst þar,
sem áhrifanna gætir, en víða á Sjá-
landi er stundaður útvegur í smáum
stíL
Ahrifin á daglega lífið
„Svei mér þá ef þetta er ekki ger!“
sagði ungur maður við kælinn í Irmu
á Austurbrú í gær, eftir að hafa orðið
starsýnt á litla gula pakka með
blárri áletrun. Venjulega er gerið í
hvítum pökkum, en nú er flutt inn
sænskt ger pakkað inn í sænsku
fánalitina. I kælinum var einnig
mjólk og í hillunum gat að líta hveiti,
sem annars hefur ekki sést, auk ým-
issa annarra vara, sem urðu hömstr-
urum að bráð fyrstu verkfallsdag-
ana. Klósettpappír hefur þó enn ekki
sést. í dag þegar verkbann á búða-
fólk hefst munu verkfallsáhrifin enn
verða greinilegri, þar sem margar
búðir munu eiga erfitt með að hafa
opið. Viðmælendum Morgunblaðsins
undanfarna daga ber flestum saman
um að þeir viti af verkfallinu, en finni
samt ekki beint fyrir því í daglega
lífinu, utan hvað það sé ekki alltaf
hægt að ganga að vörum. En þeir
sem vinna í iðnfyrirtækjum verða
auðvitað vai’ir við verkfallið, póstur-
inn erlendis frá er lengur á ieiðinni
og mun færri strætisvagnar ganga.
Meðal stjórnmálamanna munu ef-
laust verða miklar umræður um
áhrifin til lengdar en sem stendur
beinast áhyggjurnar að þjóðarat-
kvæðagreiðslunni. Þó Niels Helveg
Petersen utanríkisráðherra taki því
fjarri að fresta þurfi henni, enda séu
atkvæðagreiðslan og verkfailið tvö
óskild mál.
Enginn efast þó um að verði nýir
samningar samþykktir með naumum
meirihluta eða ófyrirsjáanlegar upp-
ákomur verði, muni það ýta undir að
kjósendur lýsi óánægju sinni með
því að ganga gegn stefnu stjórnar-
innar í atkvæðagreiðslunni. En með-
an samningar nást ekki mun nægur
tími gefast til að reyna frekar áhrif
þess að búa í landi með um hálfa
milljón í verkfalli eða verkbanni.
VARAHLUTIR
AUKAHLUTIR
Hjálmar, barnastólar, grlfflur,
blikkljós, bjöllur, hraöamælar,
brúsar, töskur, slöngur, skít-
bretti, Ijós, bögglaberar, stand-
arar, demparagafflar, stýris-
endar, dekk, hjólafestingar á
bíla og margt fleira.
FULL BÚÐ AF HJÓLUM
Á FRÁBÆRU VERÐI
BRONCO TRACK 20“ 6 gíra meö Shima-
no gírum og Grip-Shift. Átaks-bremsur,
álgjarðir, standari, brúsi, glit, gírahlíf og
tvöfaldri keöjuhlíf.
Bæöi stráka og stelpu stell.
Verð kr. 17.900, stgr. 17.005
DIAM0ND SAHARA 24“ 18 gíra fjalla-
hjól meö skítbrettum og bögglabera á
frábæru verði. Shimano gírar, álgjarðir,
átaksbremsur, brúsi, standari, glit, gíra-
hlíf og keöjuhlíf.
24“ Verö kr. 24.900, stgr. 23.655
BRONCO WILD TRACK 16“ og 20“
fjallahjól barna meö fótbremsu, skít-
brettum, standara, keöjuhlíf og gliti.
Stráka og stelpu stell.
Frá 5 ára 16“ kr. 11.500, stgr. 10.925
Frá 6 ára 20“ kr. 12.500, stgr. 11.875
DIAM0ND R0CKY 16“ og 20“ fjallahjól
barna meö fótbremsu, skítbrettum,
standara, keöjuhlíf og gliti. Stráka og
stelpu stell.
Frá 5 ára 16“ kr. 11.900, stgr. 11.305
Frá 6 ára 20“ kr. 12.900, stgr. 12.255
ITALTRIKE þríhjól, vönduö og endingar-
góö, margar geröir meö og án skúffu.
Lucy 10“ kr. 4.600, stgr. 4.370
Lucy 12“ kr. 5.100, stgr. 4.845
ITALTRIKE þríhjól meö skúffu.
Verö frá kr. 4.400, stgr. 4.180
Transporter kr. 5.100, stgr. 4.845
Safari kr. 5.100, stgr. 4.845
VIVI barnahjól, meö hjálpardekkjum og
fótbremsu. Létt, sterk og meðfeerileg
barnahjól.
Frá 3 ára 12,5“ kr. 9.600, stgr. 9.120
Frá 4 ára 14“ kr. 9.900, stgr. 9.405
BRONCO PR0 TRACK 24“ og 26“ 21 gíra
fjallahjól á mjög góðu veröi. Shimano
gírar, Grip-shift, átaksbremsur, álgjarðir,
brúsi, standari, glit, gírahlíf og keðjuhlíf.
24“ Verö kr. 22.900, stgr. 21.755
26“ Verð kr. 23.900, stgr. 22.705
BRONCO PRO TRACK 24“ og 26“ 21
gíra fjallahjól á mjög góöu veröi. Shima-
no gírar, Grip-shift, átaksbremsur,
álgjarðir, brúsi, standari, glit, gírahlíf og
keðjuhlíf. 24“ fjólublátt og 26“ grænt.
24“ Verö kr. 22.900, stgr. 21.755
26“ Verö kr. 23.900, stgr. 22.705
<0 Ars ábyrgð og fri upphersla eftir einn manuð. Vandið valið og verslið i serverslun.
BRONCO TRACK 26“ 18 gíra fjallahjól á
ótrúlegu góöu veröi. Shimano gírar,
átaksbremsur, álgjaröir, brúsafesting,
standari, glit, gírahlíf og keðjuhlíf. Bæöi
herra og dömu stell. Verð áður kr.
22.900 Tilboö kr. 19.500, stgr. 18.525
DIAM0ND EXPEDITION 26“ 21 gíra
fjallahjól meö skítbrettum og bögglabera
á frábæru verði. Shimano gírar, EZ-fire,
átaksbremsur, álgjarðir, brúsi, standari,
glit, gírahlíf og keöjuhlíf. Herra svart og
dömu dökkrautt. Meö Grip-shift, herra
dökkblátt og dömu milli blátt.
Verð aðeins kr. 26.900, stgr. 25.555
BRONCO TERMINATOR Freestyle BMX.
Cr-Mo stell, rotor á stýri, styrktar
álgjaröir, V-bremsur, pinnar og annar
öryggisbúnaöur. Ótrúlegt verö miðaö
viö útbúnaö kr. 24.900, stgr. 23.655.
Viðurkenndir reiðhjólahjálmar frá HAM-
AX og Brancale. Auðvelt aö stilla stærð
með stillanlegu bandi aftur fyrir hnakka.
Mjög léttir og meðfærilegir. Hamax verö
með skygni kr. 2.990, stgr. 2.840.
Brancale, barna frá kr. 2.300 og full-
orðins frá kr. 2.,600
Símar 553 5320
Barnastólar frá HAMAX Noregi, viöur-
kenndir stólar meö öruggri tvöfaldri fest-
ingu á hjól. Örugg festing fyrir barnið
með axlaólum og fótstigi og teinavörn.
Bike Rider Lux verð kr. 4.700, stgr. 4.465
KISS verö frá kr. 5.500, stgr. 5.225
5%
staðgreiðsluafsláttur
Upplýsingar um raögreiösl-
ur veittar í versluninni
568 8860
Ármúla 40
Hjólin eru afhent tilbúin til notkunar,
samsett og stilit á tullkomnu reiðhjólaverkstæði.
Ein stærsta sportvöruverslun landsins
l^ersSungnH[H
/k!4RKlD