Morgunblaðið - 05.05.1998, Side 56

Morgunblaðið - 05.05.1998, Side 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ PALINA K. NORÐDAHL + Pálína K. Norð- dahl fæddist í Vestmannaeyjum 18. maí 1915. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Eir hinn 20. apríl siðastliðinn. Foreld- ar hennar voru Elín Stephensen hús- freyja og Karl Ein- arsson sýslumaður. Hin 26. september 1936 giftist Pálína Kjartani Norðdahl, f. 4.7. 1905, og eign- uðust þau þrjú börn: Elínu, f. 24.1. 1939; Kjartan, f. 20.5. 1940; og Önnu, f. 29.4. 1952. Útför Pálínu fer fram frá Há- teigskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Pálína Margrét Norðdahl var fædd í Vestmannaeyjum, en fluttist til Reykjavíkur með foreldrum sín- um, Elínu Stephensen og Karli Ein- arssyni, og systkinum sínum, Jónasi, Stefáni og Önnu. Annað veit ég ekki um hennar æsku. Hún bjó allan sinn ^►•aldur í Reykjavík. En hún Pálína er dáin og minningarnar hrannast upp, minningar um ánægjustundir þegar ég var bam, uppörvun þegar illa ' gekk og ég unglingur og ekki alltaf jafn sátt við tilveruna. Þá hafði hún Pálína alltaf einhver ráð með glað- værð sinni og jafnvægi að sýna manni jákvæðu hliðina. Og það hélt áfram fram á mín fullorðinsár, þvi var eins og hún hefði sagnaranda því svo ótrúlega oft birtist hún óvænt þegar á móti blés og mér fannst ver- öldin vond. Þá kom Pálína og með ^henni sólskinið sem fylgdi henni alltaf, og alltaf tókst henni að hugga án þess að vera með væmni, og nú verð ég að passa mig að vera ekki með væmni í þessu pári mínu því það hefði henni ekki Iíkað. En hún var meira en venjulegur Krossar á (eiði Ryðfrítt stáí - varaníegt efni Krossamir eruframkiddir úr hvíthúðuðu, ryðfríu stáíi. Minnisvarði sem endist urn ókomna tíð. Sóíkross (táknar eiííft iíf) Hœð 100 smfrájörðu. Hefðhundinn kross m/munstruðum endum. Hæð 100 sm jfá jörðu. Hringið í síma 431-1075 og fáið litabækllng. BLEKKVERKt Dalbraut 2, 300 Akranesi. Sími 431-1075, fax 431-3076 heimilisvinur. Hún var systir hans stjúpa míns og vjnkona móður minn- ar. Á hverju vori í mörg ár sameinuðust þessar tvær fjölskyldur í eina þegar farið var í sumar- bústað þar sem þessar tvær konur dvöldu sum- arlangt með okkur börnin. Þetta var ógleymanlegur tími. Og seinna kom ég þar með mín börn og Pálína varð einnig vinur þeirra. Mér var sögð sú saga að þegar átti að fara að skíra Pálínu hafi stjúpi minn mótmælt, hann bara grét og vildi ekki láta skíra litlu systur, var hræddur um að presturinn meiddi hana. „Það þarf ekkert að skíra hana, hún heitir bara Elska og er bara Elska,“ og síðan hefur hún bor- ið þetta óvenjulega gælunafn og hún hefur borið það með sóma, og í mín- um huga og bamanna minna og margra annarra mun hún alltaf vera bara Elska með stórum staf. Og nú þegar hún hefur lokið sinni lífsgöngu bið ég góðan Guð að styðja fjölskyldu hennar gegn um söknuð- inn. Aldraðan eiginmann, Kjartan Norðdahl, bömin hennar, Elínu, Kjartan og Önnu Katrínu, bama- bömin, bamabamabömin, tengda- bömin og okkur hin. I dag fylgjum við henni til grafar, en minningamar lifa, vertu blessuð Elska mín, megir þú hvfla í friði. Við þökkum öll fyrir að hafa átt þig. Þórdís S. Guðjónsdóttir. Ástkær amma og langamma. Við kveðjum þig með söknuði í hjarta. Við vildum gjarnan hafa þig hjá okk- ur örlítið lengur. En eins og við vit- um öll gerir kallið ekki boð á undan sér. Þeir vom ófáir göngutúramir sem við fómm í, bara til þess að koma til þín. Það em svo margar og góðar minningar sem við eigum með þér að ekki er hægt að gera upp á milli. í raun er ekki hægt að skrifa löng og mörg orð um hug okkar til þín, því við vitum eins og þú, að í hjarta þínu veist þú það allt. MINNINGAR OG TÆKIFÆRJSKORT m Segðu hug þinn um leið og þú lætur gott af þér ® 5614400 iei8a <SlT filÁLMBSTOFNUN \QTj KnWJUW*“‘ Persónuteg, alhliða útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Sverrir Einarsson, útfararstjóri Sverrir Olsen, útfararstjóri Utfararstofa Islands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Atlan sólarhringinn. Eitt er víst, að ef erfiðleikar steðja að, þá vitum við hvert skal leita. Vertu nú sæl að sinni, við sjáumst síðar. Kærar stundir áttum við í hlýjum faðmi þínum. Gæt þú okkar, við gæt- um þín, elsku kæra amma mín. Eva og Atli Ben. Amma var eins og hin mamma mín, mín fyrstu ár er við bjuggum hjá henni og afa í Stangarholtinu. Þar söng hún mig oft í svefn og finnst mér ég enn heyra Gekk ég yfír sjó og land sem var mitt uppáhald. Svo fluttust þau í Kópavoginn þar sem ég fékk stundum að gista. Hins vegar varð ég daglegur gestur þegar þau fluttust í nágrenni við skólann minn. Eg kom í hádeginu, eftir skóla og í öllum mínum hléum. Þar gátum við spilað endalaust. Aldrei varð hún þreytt á að spila við mig eða hlusta á mínar óreyndu skoðanir. Alltaf man ég eftir ömmu í eldhús- inu, ekki af því hún væri alltaf að baka, heldur vegna þess að þar sat hún og hlustaði á allra vandamál og leysti. Hún var sannkallaður sáli allra sem hana þekktu. Þetta var hennar líf og yndi að sitja og hlusta og tala. Og nú er hún farin þessi einstaka kona og er hennar sárt saknað. Elsku amma, Guð blessi þig og geymi og setji þig á þann stað sem þú átt allan skilið, paradís. Katrín. Nýr staður hefur tekáð við ömmu minni Pálínu K. Norðdahl frá Vest- mannaeyjum. Eg vil trúa því að hann sé betri en sá sem við fæðumst í. Amma var sú stoð og stytta sem allir sem henni stóðu næst gátu treyst á og leituðu hjálpar hjá á hvaða sviði sem var, ekki síst við barnabömin. Hún var sá klettur sem allir hölluðu sér upp að. Mér er minnisstætt atvik er átti sér stað er ég var unglingur og sífellt í erjum við strákana í næsta hverfi. Við vorum að fljúgast á og ég varð undir enda við ofurefli að etja. Þá birtist amma óvænt og sneri forsprakkann einfaldlega niður. Brast þá flótti á liðið. Hún naut ómældrar virðingar í hverfinu eftir þetta. Þó að ég eltist dró ekki úr heim- sóknum mínum til ömmu og afa, þau voru einfaldlega svo stór hluti af mínu lífi. Amma var viljasterk kona sem hafði ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni. Ef hún hafði tekið ákvörðun varð henni ekki haggað. Hún var vel að sér í flestum málefn- um sama hvort um var rætt stjórn- mál eða íþróttir. Talandi um íþróttir þá var hún mikil áhugamanneskja um þær, sérstaklega handbolta. Hún fylgdist vel með gangi mála í fýrstu deildinni. Þegar undirritaður hóf sitt íþróttabrölt á unga aldri var amma sú eina í fjölskyldunni sem kom að horfa á. Þegar í meistaraflokk var komið og leikirnir voru sýndir í sjón- varpinu sat amma límd við skjáinn að sjá hvemig barnabarnið stæði sig. Alla leiki tók hún upp á vídeó þegar ég var við nám erlendis og sendi út. Hún sá til þess að ekkert færi fram hjá mér hvað íþróttimar varðaði. Þó að ég heimsæki þig ekki í Ból- staðarhlíðina framar muntu alltaf vera mér nálæg, svo mikið er víst. Amma, ég kveð þig að sinni á sama hátt og ég gerði þegar ég fór til Belgíu. Rachid. í rúmgóðum sýningarsölum okkar eigum við ávallt fyrirliggjandi margar gerðir legsteina og minnisvarða úr íslenskum og erlendum steintegundum. Verið velkomin til okkar eða hafið samband og fáið myndalista. Í| S.HELGASON HF ISTEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48, 200 KÓP.,SÍMI:557-6677/FAX:557-8410 KRISTINN JÓNSSON + Kristinn Jónsson frá Sval- barði fæddist í Katadal á Vatnsnesi í V-Húnavatnssýslu 1. febrúar 1908. Hann lést í Sjúkrahúsinu á Hvammstanga 30. mars síðastliðinn og fór út- för hans fram frá Hvamms- tangakirkju 8. apríl. Þegar aldnir vinir og ættingjar kveðja dofnar smátt og smátt sú mynd sem við getum gert okkur af lífskjörum og lifnaðarháttum þeirr- ar kynslóðar sem fæddist með öld- inni. Þótt sumt geymist í skráðum sögnum skortir þær ávallt lifandi frásagnameista þess er sjálfur hef- ur lifað atburði. Kristinn Jónsson frá Svalbarði, sem hér er minnst, var einn þeirra sem gat sagt frá lífinu í afskekktum dalabyggðum Vatnsness. Að honum gengnum harmar maður að hafa ekki hlustað betur á frásagnir hans og annarra honum jafnaldra. Af frændsystkinunum á Þorgrímsstöð- um og í Tungukoti er nú Ingibjörg, systir Kristins, ein á lífi. Þeir voru systrasynir Kristinn og faðir okkar, Guðmundur B. Jóhannesson, Þor- grímsstöðum, og tengsl milli fjöl- skyldnanna hafa alltaf verið sterk og margþætt. Foreldrar Kristins, Ósk Bjarnadóttir og Jón Kristó- fersson, bjuggu lengi í Tungukoti í Hlíðardal og þar liðu hans bemsku- ár. Fyrir tæpri öld voru aðstæður allar með svo ólíkum hætti að erfitt er að gera sér í hugarlund. Um Þorgrímsstaða- og Hlíðardal var þá fjölfarnara en síðar varð. Þeir sem áttu erindi til Hvammstanga, á hestum eða fótgangandi, lögðu gjama leið sína um dalina. Á liðnu sumri rifjaði Kristinn það upp að afi okkar og amma á Þorgrímsstöð- um gistu jafnan hjá foreldmm hans í Tungukoti þegar þau fóra með ull- ina í kaupstað. Það var aðal versl- unarferð ársins. Á heimleiðinni kom amma okkar alltaf með sams konar gjöf til systur sinnar; sykur- topp. Við létum hann lýsa þessu fyrirbæri, sem hann gerði og rifjaði þá jafnframt upp hvemig sykurinn var skafinn yfir lummur og hvað þetta hefði verið óskaplega gott. Lífið var fábreytt á þessum áram og sykur munaður sem fátækt bændafólk veitti sér ekki í óhófi. Þess vegna var bernskuminningin svo lifandi í huga aldraðs manns. Engu að síður gerðu þeir sem ungir vora á þessum árum sér margt til gamans. Stundum voru samkomur á þeim bæjum sem best vora hýst- ir. Þá vora settar upp leiksýningar og flutt frumsamið efni í lausu og bundnu máli. Svo var dansað þar til mál var að halda gangandi heim svo að morgunmjaltir yrðu ekki allt of seinar. Hjá Kristni skipaði tónlistin önd- vegi. Hann eignaðist ungur orgel og lærði að spila hjá ísólfi Sumar- liðasyni og Birni Björnssyni. Ekki mun tímasóknin hafa verið mikil en dugði honum þó vel og veitti mikið yndi. Hann var ekki nema fimmtán ára þegar hann fór að spila við guðsþjónustur í Tjarnarkirkju og æfði síðar fyrsta blandaða kórinn í sókninni. Þegar Isólfur lét af störf- um sem organisti við Kirkju- hvammskirkju bauð hann Kristni að taka við af sér. Ekki varð þó af því, en auðfundið var að Kristni þótti mjög vænt um það traust sem honum hafði verið sýnt. Einnig kenndi Kristinn unglingum af ná- grannabæjum undirstöðuatriði í orgelleik og var á orði haft hve vel hann hefði til þess vandað, enda var samviskusemi, natni og vandvirkni honum eðlislæg. Hann var næmur á fegurð og mat meira mýkt sam- hljóms en styrk hávaða. Þeir sem til þekktu töldu að hann hefði haft sérlega næmt tóneyra. Tónlistar- gáfuna erfði Kristinn frá fóður sín- um sem tókst, þrátt fyrir lítil efni, að eignast orgel og leika á það; al- gjörlega sjálftnenntaður. Um tvítugsaldur kvæntist Krist- inn Halldóra Bjarnadóttur. Þau áttu ekki langa samleið. Halldóra lést í ársbyrjun 1930, aðeins níu dögum eftir að hún hafði fætt einkadóttur þeirra Kristins. Lík konu sinnar flutti hann á sleða frá Helguhvammi norðm- hjami lagðan Hlíðardalinn og síðan út Nesið til greftranar í Tjarnarkirkjugarði. Áður en lagt var af stað var litla stúlkan skírð Halldóra við kistu móður sinnar. Nú var Kristinn ein- stæður faðfr og treysti sér ekki til að hafa bamið hjá sér. Halldóra varð uppeldisdóttir hjónanna í Helguhvammi, Þorbjargar og Jó- hannesar, en ekki þarf getum að því að leiða að allt hefur þetta verið þung raun tuttugu og tveggja ára tilfinningaríkum manni. Þegar Halldóra Kristinsdóttir fæddist í Helguhvammi árið 1930 var móðir okkar, Þorbjörg Valdi- marsdóttir, tæpra fjórtán ára. Hún ólst einnig upp í Helguhvammi og milli hennar og Halldóra voru nán- ast systratengsl. Eftir lát konu sinnar bjó Kristinn með foreldram sínum og systur í Garðsvík og síðar á Svalbarði en eftir lát Jóns bragðu þau fljótlega búi og fluttust til Reykjavíkur, um 1950. Osk var hjá Ingibjörgu dóttur sinni þar til hún lést 1959. Kristinn leigði sér hús- næði og stundaði ýmis störf, en hafði alltaf mikið samband við Ingi- björgu og fjölskylduna hennar. Árið 1966 kvæntist Kristinn öðra sinni; Jakobínu Annasdóttur frá Engjabrekku. Það varð þeim báð- um til gæfu og farsældar. Átta ár- um síðar keyptu þau Laufás, lítið býli íýrir ofan Hvammstanga, flutt- ust norður og stunduðu þar búskap með gamla laginu. Hirtu vel um sínar skepnur og fengu af þeim góðan arð, höfðu nóg fyrir sig að leggja og undu glöð við sitt í heima- byggðinni þar sem þau voru í ná- grenni við Halldóra og hennar fjöl- skyldu. Öllum ber saman um að áratugimir þrír sem þau áttu sam- an hafi verið þeim báðum ham- ingjutími. Jakobína andaðist 1995 og þá var ekki um annað að ræða en bregða búi. Kristinn fór á deild aldraðra á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga og þar andaðist hann 30. mars sl. Með Kristni er genginn vandaður og góður maður sem ekki mátti vamm sitt vita. Hann las mikið og átti gott safn bóka, skarpur og stálminnugur og engin tilviljun að meðal afkomenda hans er námsfólk langt umfram meðallag. Ekki var hann allra viðhlæjandi og átti lítil samskipti við þá sem voru honum ekki að skapi. En þeim sem hann bast vináttuböndum var hann eins heill og tryggur og nokkur maður getur verið. - Hann var nákominn fjölskyldunni okkar og eigum við honum margt að þakka. Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur sendi hann fjölskyldunni jólagjafir í fjöldamörg ár; bækur, og alltaf vandað til valsins. Við systkinin fengum skáldsögur, pabbi oftast ljóðabók og mamma ævinlega nýút- komið hefti Ljóðs og laga, hins ágæta safns Þórðar Kristleifssonar. Þessi hefti stautuðum við systkinin okkur í gegn um á orgelið hennar mömmu og eigum þar með Kidda að þakka ýmis ljóð og lög sem við kunnum frá barnæsku. Þetta var kærkomin viðbót við lögin sem venjulega vora sungin þegar grannar hittust á góðum stundum. Eftir að Addi hóf búskap á Þor- grímsstöðum að nýju bar Kristinn hag þess heimilis mjög fyrir brjósti og ekki fylgdist hann síður með mömmu síðustu árin hennar á Hvammstanga. Þá hringdi hann á hverju kvöldi til að vita hvort ekki væri allt í lagi hjá henni. Við þökkum honum að leiðarlok- um allt gott okkur gert, fyrr og síð- ar, og vottum fjölskyldunni samúð okkar. Þorgrímsstaðasystkinin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.