Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Eitt þúsund ný
krabbameinstilfelli
skráð á síðasta ári
UM EITT þúsund krabbameinstil-
felli voru greind hér á landi á síð-
asta ári, samkvæmt bráðabirgðatöl-
um frá krabbameinsskrá Krabba-
meinsfélags íslands. Alls greindust
138 karlar með krabbamein í
blöðruhálskirtli, 67 með lungna-
krabbamein, 45 með ristilkrabba-
mein, 39 með magakrabbamein og
30 með krabbamein í þvagblöðru
svo fímm algengustu meinin séu
talin.
Meðal kvenna var brjóstakrabba-
mein langalgengast, að því er segir í
fréttatilkynningu. A síðasta ári
greindust 146 slík mein, 35 lungna-
krabbamein hjá konum, 34 ristO-
krabbamein, 22 legbolskrabbamein
og 20 krabbamein í eggjastokkum.
Skipuleg skráning krabbameina á
vegum krabbameinsskrárinnar
hófst árið 1954 þannig að hægt er
að skoða breytingar á tíðni krabba-
meina í meira en fjóra áratugi. Á
þessu tímabili hefur tíðni krabba-
meina í heild aukist um rúmlega 1%
á ári, að teknu tilliti til fjölgunar
íbúa og breyttrar aldurssamsetn-
ingar þjóðarinnar. Miklar breyting-
ar hafa orðið á tíðni einstakra
meina. Tíðni krabbameins í blöðru-
hálskirtli hefur nær fjórfaldast og
er þetta mein fyrir nokkru orðið al-
gengasta krabbamein karla. Alla
þessa fjóra áratugi hefur
brjóstakrabbamein verið algeng-
asta krabbamein kvenna, en það er
nú helmingi algengara en við upp-
haf skráningar. Tíðni lungna-
krabbameins hjá körlum hefur nær
þrefaldast og meira en fjórfaldast
hjá konum, en svo virðist sein held-
ur sé farið að draga úr aukningunni.
Tíðni magakrabbameins er nú að-
eins þriðjungur af því sem áður var
og er það m.a. þakkað breyttum
neysluvenjum. Þá er tíðni leg-
hálskrabbameins aðeins þriðjungur
af því sem var um skeið en það
skýrist af leit að sjúkdómnum á for-
stigi.
Samkvæmt upplýsingum frá
krabbameinsskránni getur þriðji til
fjórði hver Islendingur búist við að
greinast með krabbamein einhvern
tímann fyrir áttrætt. Lífshorfur
sjúklinga hafa batnað á undanföm-
um áratugum og nú eru á lífi á sjö-
unda þúsund Islendingar sem feng-
ið hafa krabbamein.
Netleikur vegna frum-
sýningar U.S. Marshals
MORGUNBLAÐIÐ á Netinu og
Sambíóin standa fyrir netleik í til-
efni af frumsýningu stórmyndarinn-
ar U.S. Marshals með þeim Tommy
Lee Jones og Wesley Snipes í aðal-
hlutverkum.
Þátttakendur þurfa að svara
þremur laufléttum spurningum á
slóð Morgunblaðsins www.mbl.is og
þá fer nafn þeirra í pott. Vinning-
amir eru Ericsson GA 628 GSM-
sími frá BT-tölvum, Ray Ban-sól-
gleraugu frá Gleraugnaversluninni
Mjódd, Casio-úr frá Heimilistækj-
um og U.S. Marshals-bolir, -húfur
og -jakkar. Þátttakendur geta skoð-
að myndir af vinningunum um leið
og þeir taka þátt í leiknum.
Tökum á
tækin vantar
ÁTAKSFUNDUR
Landssamtaka hjartasjúklinga
í Perlunni þriðjudaginn
5. maí 1998 kl. 17.00-18.30
Landssamtök hjartasjúklinga (LHS) hafa ákveðið
að standa fyrir merkjasölu (landssöfnun)
dagana 8.- 9. maí n.k. undir kjörorðinu
„Tökum á tækin vantar".
Tilgangur söfnunarinnar er að afla fjár
til eftirfarandi verkefna:
1. Kaup á leysigeislatæki til hjartaaðgerða
fyrir Landspítalann og landið allt.
2. Kaup á hjartagæslutækjum
fyrir Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
3. Önnur brýn verkefni.
DAGSKRÁ FUNDARINS:
Fundarstjóri Jón Þór Jóhannsson,
varaformaður LHS, setur fundinn.
Ávarp
Gísli J. Eyland, formaður LHS.
Nýjungar í hjartalækningum
Axel F. Sigurðsson hjartalæknir.
Árangur í barnalækningum á íslandi
Hróðmar Helgason barnalæknir.
Kór hjartveikra barna syngur
Kynning á nýju gjafatæki
Karl Andersen hjartalæknir.
Karlakór Reykjavíkur
Eldri kórfélagar flytja nokkur lög.
.. ALLIR VELKOMNIR
LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA
^ Suðurgötu 10. Sími 562 5744 & 552 5744
FRETTIR
FRÁ vinstri: Ágúst Sindri Karlsson, forseti Skáksambands íslands, Sigríð-
ur Vilhjálmsdóttir og Sverrir Hauksson, framkvæmdastjóri Grafíkur hf.
Gáfu útgáfuréttinn
að tímaritinu Skák
TÍMAMÓT urðu í starfsemi Skák-
sambands íslands þegar hjónin Jó-
hann Þórir Jónsson og Sigríður
Vilhjálmsdóttir og prentsmiðjan
Grafík hf. afhentu Skáksamband-
inu til eignar útgáfuréttinn að
tímaritinu Skák. Með gjöfínni
fylgdi einnig mikið af skákbókum
sem tímaritið hefur gefið út á und-
anförnum árum.
I fréttatilkynningu segir: „Tíma-
ritið Skák hefur verið gefið út í rúm
50 ár. Jóhann Þórir Jónsson yfirtók
útgáfuna á árinu 1962 og hefur
Kynning á
starfí gegn
STADDIR eru hér á landi í boði
Samstarfsnefndar Reykjavíkur-
borgar um afbrota- og fíknivarn-
ir, Svíarnir Anders Wedelin,
framkvæmdastjóri hverfamið-
stöðvarinnar í Skárholmen,
Stokkhólmi, og Tómas Selin,
framkvæmdastjóri Hassela
Solidaritet.
Þeir munu kynna stuðnings-
starf innan grunnskólans sem
reynst hefur mjög vel í sænskum
skólum og byggist fyrst og
fremst á starfi sk. „kammerat-
stödjare". Verkefnið felst í starfi
sérstakra stuðningsaðila eða
skólavina við unglingadeildir
grunnskólanna sem starfa með
og meðal nemenda gegn einelti,
skrópi, ofbeldi, reykingum,
vímuefnaneyslu o.fl. f starfinu er
gert ráð fyrir virkri þátttöku
nemenda. Starfsemin tengist
einnig tómstundastarfi ungling-
anna og annarri félagsþjónustu í
viðkomandi hverfi og fer starf
„kammeratstöc(jarna“ því einnig
Sumarbúðir
skáta
tilfljótsvatni
I SUMAR verða að venju sumar-
búðir að Úlfljótsvatni fýrir 8-12 ára
krakka. Sumarbúðirnar eru reknar
sem stórt heimili og þar læra börnin
að taka tillit hvert til annars, njóta
sín sem einstaklingar og gangast
undir sameiginlegar reglur, segir í
fréttatilkynningu.
Eins og áður hafa fötluð börn
tækifæri til að dveljast í sumarbúð-
unum. Áhersla er lögð á útiveru,
jafnt gönguferðir og náttúruskoðun
sem íþróttir og leiki.
Dvalartímirl. 3.-9. júní, 2.10.-16.
júní, 3. 19.-25. júní, 4. 26. júní til 2.
júlí, 5. 7.-13. júlí, 6. 14.-20. júh', 7.
23.-29. júlí, 8. 5.-11. ágúst.
Einnig er boðið upp á unglinga-
námskeið fyrir krakka 12-16 ára: 1.
5.-11. ágúst og 2.12.-18. ágúst.
Innritun hefst 5. maí í Skátahús-
inu við Snorrabraut 60. Innritað er
alla virka daga frá kl. 10-14. Tölvu-
póstur skata-ulfljots@islandia.is
haldið ritinu úti óslitið frá þeim
tíma. í ritstjómartíð Jóhanns hefur
tímaritið verið homsteinn íslensks
skáklífs auk þess sem á vegum
blaðsins var gefinn út fjöldi skák-
bóka. Þá stóð tímaritið að fjölda
skákviðburða, þ.á m. alþjóðegum
skákmótum og hinum vinsælu helg-
arskákmótum tímaritsins Skákar.
Skáksamband íslands mun gefa
tímaritið Skák út með óbreyttu
sniði og stuðla að því áfram að
miðla upplýsingum um íslenskt og
erlent skáklíf.“
stuðnings-
fíkniefnum
fram utan skólatíma. Fræðslu-
þátturinn, þ.e. bæði fræðsla til
„kammeratstödjarna" og nem-
enda, er umfangsmikill þáttur
starfsins og annast Hassela
soledaritet þann þátt starfsins í
Svíþjóð.
Tveir skólar, Austurbæjarskóli
og Árbæjarskóli, og félagsmið-
stöðvarnar Ársel og Tónabær
hafa ákveðið að heija tveggja ára
tilraunastarfsemi af þessu tagi
frá hausti komanda. Tengsl
verða við forvarnasvið félags-
málastofnunar og samráðshópa í
hverfum. Heimsókn Tómasar og
Anders er liður í undirbúningi
þessa starfs.
Til að veita fleiri möguleika á
að kynnast þessari starfsemi
munu Anders Wedelin og Tomas
Selin vera með fræðslu og kynn-
ingu á hugmyndum og fyrir-
komulagi þessa forvamastarfs á
fundi í Gerðubergi þriðjudaginn
5. maí nk. kl. 14-16.30. Fundur-
inn er öllum opinn.
Reyklaus
McDonald’s
VEITINGASTOFUR McDon-
ald’s verða reyklausar frá og
með deginum í dag.
McDonald’s leggur mikla
áherslu á snyrtilegt, hreinlegt
umhverfi og hreinlæti í hví-
vetna. McDonald’s er veitinga-
stofa fjölskyldunnar með sér-
staka áherslu á að gera vel við
börnin og láta þeim líða vel.
Tóbaksreykur og matur fara
ekki vel saman og því hefur
ákvörðun þessi verið tekin til
þess að börn og aðrir geti snætt
á veitingastofum McDonald’s í
heilnæmu reyklausu umhverfi.
Ákvörðun þessi er ekki tekin
gegn reykingamönnum heldur
fyrst og fremst að tryggja það
að andrúmsloftið á veitingastof-
unum sé í samræmi við allt
annað, þ.e. hreint og gott.
Forráðamenn McDonald’s
vona að reykingafólk taki þessu
með skilningi og þeir sem ekki
reykja fagnandi.
Bygg-ingar-
áform fyrir
aldraða
FÉLAGASAMTÖKIN Markarholt
standa að kynningarfundi um bygg-
ingaráform fyrh- eldra fólk með
mismunandi búsetumöguleikum og
aðgangi að þjónustu í kvöld, þriðju-
dagskvöldið 5. maí, klukkan 20.00, í
félagsmiðstöð aldraðra í Hæðar-
garði 31 í Reykjavík.
I fréttatilkynningu segir að
Eygló Stefánsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur muni fjalla um sjálfseignar-
stofnunina Markarholt, tilgang og
áform, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri flytji ávarp, Sigríður
Jónsdóttir félagsfræðingur fjalli um
könnun um viðhorf fólks sem býr nú
í þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk og
Pálmi V. Jónsson, forstöðulæknir
öldrunarsviðs SHR, geri grein fyrir
framtíðarsýn öldrunarlæknis.
Einnig fari fram almenn kynning á
fjármögnun og ráðgjöf fyrir ein-
staklinga við búsetuskipti á fram-
kvæmdatíma. Þá flytur Pálmi
Matthíasson, sóknarprestur Bú-
staðasóknar, ávarp.
-------♦_«-«-----
Fyrirlestur um
franska smá-
sölumarkaði
FRANSKUR sérfræðingur,
Frangois Cazals, heldur á morgun,
miðvikudag, fyrirlestur á vegum
viðskiptaþjónustu utanríkisráðu-
neytisins (VUR) um smásölumark-
aði í Frakklandi. Fyrirlesturinn fer
fram á Hótel Sögu í þingsal A frá kl.
13-17. Frangois Cazals flytur fyrir-
lesturinn á ensku og nefnist hann
„A comprehensive overview of the
French super- and hypermarket“.
Tilgangurinn með fyrirlestrinum
er að veita íslenskum útflytjendum
tækifæri til að kynnast frönskum
stórmörkuðum og þeim möguleik-
um sem þar liggja að því er fram
kemur í fréttatilkynningu.
Verð fyrir fyrirlesturinn er 7.500
kr. á þátttakanda. Þátttökugjald
greiðist fyrirfram. Upplýsingar og
skráning er hjá utanríkisráðuneyt-
inu.
-----------------
Er unnt að beita
mælskulist?
SYLVI Penne, lektor við kennara-
deild Hogskolens í Osló, heldur
málstofu á vegum Rannsóknar-
stofnunar Kennaraháskóla fslands
miðvikudaginn 6. maí kl. 15.15. Efni
málstofunnar verður: Er unnt að
beita mælskulist í kennslu grunn-
skólabarna?
Sylvi kennir einkum bókmenntir
og hefur hún m.a. samið norska
bókmenntasögu og vinnur nú að
samningu kennslubókar handa
nemendum í framhaldsskólum þar
sem hún styðst við frásagnir í bók-
umog kvikmyndum.
Á málstofunni mun Sylvi Penne
einkum leggja áherslu á munnlega
frásagnarlist og hvernig unnt er að
þjálfa nemendur sem sögumenn.
Málstofan verður haldin í stofu
M-301 í Kennaraháskóla íslands.
-------♦“♦-♦-----
LEIÐRÉTT
Ásljörn
í frétt í sunnudagsblaðinu um
innritun í sumarbúðirnar við Ás-
tjörn var talað um nýtt íþróttahús
og féll þá niður, að Ástimingar hafa
aðgang að íþróttahúsinu í Lundi í
Öxarfirði. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
400 Musso
f grein um Daewoo bíla í sunnu-
dagsblaðinu sagði að Bílabúð Benna
hefði selt yfir 200 Musso frá því hún
tók við umboðinu sumarið 1996. Hið
rétta er að bílarnir eru yfir 400.
Beðist er velvirðingar á rangherm-
inu.