Morgunblaðið - 17.12.1998, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 17.12.1998, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 MORGUNB LAÐIÐ + MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SH OGIS ÞÓTT óformlegum viðræðum um samstarf eða sameiningu tveggja af þremur stórum sölufyrirtækjum í sjávarútvegi, þ.e. Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hf. og fslenzkra sjávarafurða hf., hafi verið hætt er ljóst, að rökin fyrir sameiningu þessara fyrirtækja eru enn fyrir hendi og raunar augljós. Þess vegna er ekki ólíklegt að þráðurinn verði tekinn upp á ný eftir einhvern tíma, þegar aðilar málsins hafa haft tíma til þess að ná áttum. Sameining er hagkvæm fyrir hluthafa í báðum fyrirtækjunum og hún er hagstæð fyrir sjávarútveginn. Þar að auki er ekki fráleitt að ætla, að í henni felist nauðsynleg viðbrögð af beggja hálfu vegna gjörbreyttra aðstæðna í sjávarútvegi hér heima fyrir en ekki síður erlendis. Hugmyndir um slíka sameiningu hafa verið settar fram áður, þótt þær hafi ekki leitt til formlegra eða óformlegra viðræðna fyrr en nú. Þannig gerði Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, sameiningu fyrirtækjanna að umtalsefni fyrir nokkrum árum og hvatti til hennar. Það blasir við, að hægt er að spara mikla fjármuni í rekstri þessara tveggja fyrirtækja með því að sameina söluskrifstofur þeirra víða um heim. Líkurnar á því, að einnig sé hægt að spara mikla fjármuni með sameiningu og samstarfi í verksmiðjurekstri beggja vegna Atlantshafsins eru yfirgnæfandi. Aðstæður í rekstri sölufyrirtækjanna, sem hlut eiga að máli, hafa einnig breytzt verulega. Þessi fyrirtæki eru nú bæði rekin í hlutafélagsformi og umtalsverðar breytingar hafa orðið á eignaraðild að þeim. Tryggð framleiðenda við fyrirtækin er ekki hin sama og áður og að því leyti til hafa viðhorf gjörbreytzt í rekstri þeirra. Þetta stafar ekki af því, að fyrirtækin hafi ekki staðið sig, heldur vegna nýrra viðhorfa í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja og sölu sjávarafurða. Sum stóru útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækin horfa nú til þess að stunda sjálf sölustarfsemi að svo miklu leyti, sem það hentar hagsmunum þeirra, eða selja afurðir með milligöngu annarra aðila, jafnvel erlendra fyrirtækja, ef það reynist hagkvæmasti kosturinn. Þrátt fyrir þessi breyttu viðhorf, sem eru eðlileg afleiðing af þeim breytingum, sem orðið hafa í viðskiptalífi landsmanna á þessum áratug er ljóst, að það eru hagsmunir þjóðarheildarinnar, að við eigum öflug sölufyrirtæki í sjávarútvegi á borð við SH og IS og SÍF, en síðastnefnda fyrirtækið var ekki aðili að hinum óformlegu viðræðum. Það skiptir máli, að við íslendingar eigum sterk sölu- og dreifingarfyrirtæki, sem byggja upp öflug viðskiptanet um allan heim og halda uppi framleiðslustarfsemi á ákveðnum markaðssvæðum, þar sem það á við. Einn helzti vaxtarbroddurinn í sjávarútvegi okkar á næstu árum og áratugum getur einmitt verið sá, að ná í ríkara mæli í okkar hendur dreifingarkerfi á sjávarafurðum um allan heim og nýta það til þess að dreifa bæði okkar eigin framleiðslu og annarra eins og íslenzku fisksölufyrirtækin hafa gert í vaxandi mæli. Þá má ekki gleyma því mikilvæga starfi, sem sölufyrirtækin hafa unnið á vettvangi vöruþróunar, eins og skýrt kom í ljós á markaðskynningu, sem SH stóð fyrir nú í haust. Þar var sýnt með skemmtilegum hætti, hvernig fyrirtækið hefur þróað vinnslu sjávarafurða á þann veg, sem hentar kröfum neytenda á ólíkum mörkuðum. Slík vöruþróun fer ekki fram nema sölufyrirtækin hafi umtalsverða fjárhagslega burði. Þegar málið er skoðað í þessu ljósi fer ekki á milli mála, að það voru framsýnir menn, sem höfðu yfirsýn yfir heildarhagsmuni bæði sjávarútvegsins og þjóðarinnar, sem stuðluðu að því að samtöl færu fram á milli forystumanna þessara tveggja fyrirtækja, SH og IS. Sú ákvörðun að slíta viðræðunum byggist áreiðanlega á þrengri sýn á því hverjir hagsmunir hluthafa, framleiðenda og þjóðarinnar í heild eru. Þess vegna er þess að vænta að fyrr en síðar hefjist þessar viðræður á ný og gengið verði til þess verks, að sameina a.m.k. þessi tvö stóru sölufyrirtæki, ef ekki fleiri. Rökin fyrir því eru augljós og helztu hluthafar eiga ekki að láta þrönga hagsmuni standa í vegi fyrir þessari sjálfsögðu sameiningu. Auðvitað getur verið erfitt fyrir þann, sem minni er, að sjá rökin fyrir sameiningu frá sínu sjónarmiði. En fyrir því eru fordæmi, að slík ákvörðun gefst vel. Þannig má bæði nefna sameiningu Loftleiða hf. og Flugfélags Islands hf. í Flugleiðum hf. og sameiningu Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Isbjarnarins hf. í Granda hf. sem dæmi um, að minni aðilar í slíku sameiningarferli standa með pálmann í höndunum þegar upp er staðið, vegna þess, að verðmæti eignarhlutar þeirra eykst mjög. I því tilviki, sem hér um ræðir, eru möguleikar á hagræðingu sennilega margfalt meiri og yfirgnæfandi líkur á því að verðmæti eignarhlutar hluthafa í IS mundi aukast mjög frá því sem nú er. Rannsóknir á hveraörverum hafa enn ekki skilað þeim hagnaði sem vonast var eftir JAKOB Kristinsson, sem um áratugi hefur rannsakað hveraörverur á íslandi, beitti sér fyrir stofnun Genís árið 1989. Jakob var þá starfsmaður líf- tæknisviðs Iðntæknistofnunar og taldi að miklir möguleikar væru á að nýta hitakærar örverur. Stofnendur Genís voru Phai-maco, Delta, ís- lenska járnblendifélagið, Iðntækni- stofnun og Háskóli Islands. Hug- myndin með stofnun fyrirtækisins var að þróa markaðsvöru úr rann- sóknum Jakobs. f upphafi voru engir starfsmenn á vegum Genís. Jakob starfaði áfram hjá Iðntæknistofnun og rannsóknar- verkefnin voru fjármögnuð með styrkjum frá Rannsóknarráði ríkis- ins, Norræna iðnaðarsjóðnum og Evrópusambandinu. Miklir fjármun- ir hafa farið í þessar rannsóknir á liðnum árum og eru tölur á bilinu 300-500 milljónir nefndar í því sam- bandi. Hlutverk Genís var fyrst og fremst að sinna markaðsmálum og ná samn- ingum um þau rannsóknarverkefni sem Jakob og aðrir starfsmenn líf- tæknisviðis Iðntæknistofnunar sinntu. Gerður var sérstakur samn- ingur í janúar 1993 milli Genís og Iðntæknistofnunar um að Genís fengi einkarétt til viðskiptalegrar hagnýt- ingar á sameiginlegum verkefnum á þessu sviðum. Þegar Genís var stofnað ríkti mikil bjartsýni um möguleika íslendinga í líftækniiðnaði. Reist var sérstakt líf- tæknihús á Keldnaholti fyrir atbeipa Reykjavíkurborgar og Háskóla ís- lands. Genís var þar til húsa fyrstu árin. Þó margt gengi ágætlega hjá Genís við markaðsöflun þá náði það ekki þeim árangri sem að var stefnt. I stuttu máli máli má segja að fyrir- tækið hafi orðið undir í alþjóðlegri samkeppni á sviði rannsókna á hita- kærum örverum og ensímum. Samningnr við Diversa Þeir samningar sem Genís tókst að gera gáfu flestir lítið í aðra hönd. Ár- ið 1994 bauðst Genís að gera samning við bandaríska fyiártækið Diversa, sem þá var að hasla sér völl á sviði hagnýtra rannsókna á hitakærum ör- verum og ensímum. Jakob segir að Genís hafi átt frumkvæði að þeim samningi, enda hafi það sinnt mark- aðsmálum en ekki hann sjálfur. Hann segir að staða Genís hafí verið þannig að fyi’ii’tækið hafi ekki verið í stöðu til að hafna þeim tekjum sem þessi samningur gaf. Samningurinn hafi fyrst og fremst falið í sér öflun sýna úr íslenskum hverum og að flytja þau lítið unnin eða óunnin úr landi. Hann segist hafa sinnt þessu verkefni fyrir Genís. Sindri Sindrason, stjórnarformað- ur Genís, segist ekki hafa á hreinu hver hafi átt frumkvæði að samningn- um við Diversa, en það sé allavega ljóst að Jakob hafi allan tímann verið potturinn og pannan í þessu sam- starfi við Diversa. Hann hafi verið í tengslum við sérfræðinga Diversa og séð um að taka þessi sýni fyrir fyrir- tækið. Jakob segir að eftir á að hyggja hafi samningurinn við Diversa verið mistök. Á þeim tíma hafi það sjónar- mið ráðið að Genís gæti ekki keppt við Diversa og því væri eins gott að vinna með fyrirtækinu. Upphaflegi samningur Genís og Diversa gaf Genís mikið í aðra hönd, en Di- versa sagði hins vegar samningnum upp eftir eitt ár og í framhaldinu var gerður nýr samningur sem var ekki eins hagstæður fyrir Genís. Diversa þurfti á þessum tíma að afla áhættu- fjármagns og notaði samninginn við Genís og samning við prófessor Karl Ditter, sem er einn fremsti vísinda- maður á þessu sviði í heiminum, við þá vinnu. í samningaviðræðum Di- versa og Genís á sínum tíma óskaði Diversa eindregið eftir formlegu sérleyfi. Á þeim tíma voru engar lagalegar forsendur til að veita fyrir- tækinu slíkt leyfi. Engu að síður auglýsti Diversa m.a. á heimasíðu sinni að fyrirtækið hefði sérleyfi frá íslenskum stjórnvöldum til sýnatöku úr íslenskum hverum. Fyrirtækið taldi sig geta þetta á þeirri forsendu að meðal hluthafa í Genís voru opin- Barist við hvera- örverur I meira en áratug hafa menn leitað leiða til að hagnast á rannsóknum á íslenskum hveraörverum. Fyrirtækið Genís var lengi í forystu um að afla markaða fyrir rannsóknir vísindamanna á þessu sviði. Ahugi þess hef- ur minnkað á síðustu árum og nú vonast Is- lenskar hveraörverur eftir að ná árangri á þessu sviði. Egill Olafsson skoðaði sögu rannsókna á íslenskum hveraörverum. Vonir bundnar við samning við Diversa berar stofnanir eins og Iðntækni- stofnun og Háskóli íslands. í reynd var þó ekki um neitt sérleyfi að ræða. Leiða má líkur að því að samn- ingurinn hafi hins vegar hjálpað Di- versa við að afla sér áhættufjár- magns. Genís snéri sér að öðru Genís hafði sett allt traust sitt á samninginn við Diversa, en þegar --------- honum var sagt upp og hann endurnýjaður með lægri greiðslum fór áhugi stjórnenda Genís á rann- sóknum á hveraörverum að minnka. Samhliða jókst áhugi á að þróa ensímferla til bragð- efnaframleiðslu úr sjávarfangi. Genís tók aldrei formlega ákvörðun um að hætta þróun ensíma úr hvera- örverum, en segja má að fyrir tveim- ur árum hafi fyrirtækið ákveðið að leggja þetta svið til hliðar og snúa sér að öðru sem það taldi meiri hagnaðaiTon í. Genís hefur síðustu ár einbeitt sér að því að koma á fót verksmiðju á Siglufirði sem fram- leiðir kítín úr rækjuskel. Verksmiðj- an mun hefja framleiðslu um næstu áramót. Eigendur hennar eru SR- mjöl, Þormóður rammi og Genís, sem á 15% hlut. Genís vinnur einnig að því að koma á fót verksmiðju í samvinnu við Granda sem vinnur bragðefni úr rækjumjöli. Þegar þessi stefna Genís lá fyrir sagði Iðntæknistofnun upp samn- ingnum við Genís. I bréfi forstjóra Iðntæknistofnunar, sem skrifað var 4. apríl 1997 er því lýst að Genís telji ekki líklegt að verkefni á sviði ein- angrunar hitakærra örvera og skimunar fyrir hitaþolin emsím „standi undir miklum framtíðar- vexti“ fyrirtækisins. Jafnframt kem- ur fram að Iðntæknistofnun telji áfram að markaður sé fyr- ------- ir slíka þjónustu og telji sig geta hagnast á slíku verkefni án Genís. Genís gerði engar athugasemdir við þessa uppsögn á samn- ingnum, sem átti sér stað í fullu sam- komulagi allra aðila. Jakob tekur upp samstarf við Islenska erfðagreiningu Þessi ákvörðun Genís hlaut að hafa áhrif á starfsemi líftæknisviðs Iðntæknistofnunar. Möguleikar þess til að fá styrki rýrnuðu og sú von að hægt yrði að finna markað fyrir þær vörur sem stofnunin var að reyna að þróa minnkuðu. Jakob fór í fram- haldi af þessu að leita samstarfsaðila erlendis og innanlands sem gæti tryggt framhald rannsóknanna. Meðal fyrirtækja^ sem Jakob hafði samband við var Islensk erfðagrein- ing, sem sýndi verkefninu áhuga. Fjárhagsstaða líftæknissviðs Iðn- Morgunblaðið/RAX tæknistofnunar var slæm í upphafi þessa árs og bauðst Islensk erfða- greining til að ábyrgjast reksturinn út þetta ár. í framhaldinu var ákveð- ið að stofna sérstakt fyrirtæki um reksturinn, Islenskar hveraörverur ehf. í sumar sótti fyrirtækið síðan um sérleyfi til hverarannsókna til iðnaðarráðuneytisins. Að mati Jakobs er sérleyfið algjör forsenda fyrir því að það sé hægt að fá fjármagn inn í fyrirtækið. Hann segir að þessi líftækniiðnaður byggist allur upp á sérleyfum og íyrirtæki sem hafi sérleyfi standi mun sterkar að vígi við öflun fjármagns frá útlönd- um. Jakob segir að ÍH þurfi ekki sér- leyfið til að geta útilokað fyrirtæki eins og Genís. Islenskum hveraörver- um ehf. standi engin ógn af Genís. Ógnunin sé fyrst og fremst frá er- lendum keppinautum eins og t.d. Di- versa. Að þessu leyti sé samningur Genís og Diversa víti til varnaðar. Hann hafi falið í sér hráefnisútflutn- ing frá Islandi sem ekki hafi leitt af sér neina uppbyggingu á þekkingu hér innanlands. Jakob segir að Islenskar hveraör- verur áformi að nálgast rannsóknir á hveraörverum með nýjum hætti, þ.e.a.s.s með því að nota erfðatækn- ina. Hann segist sannfærður um að miklir möguleikar séu fyrir hendi á þessu sviði, en tekur jafnframt fram að samkeppnin á þessum markaði sé hörð og hlutirnir gerist hratt. Andstaða við sérleyfið Það þarf ekki að ræða við marga sérfræðinga á þessu sviði til að kom- ast að því að veruleg andstaða er við að íslenskum hveraörverum sé veitt sérleyfi til rannsókna á þessu sviði. Andstaða er við þetta meðal vísinda- manna, Rannsóknarráðs ríkisins og meira^ að segja Vinnuveitendasam- band íslands hefur séð ástæðu til að senda frá sér sérstaka ályktun um málið. Jakob segir að andstaða þess- ara aðila byggist að hluta til á því að þeir hafi ekki kynnt sér málið. Hann ------------------ bendir á að í dag séu ís- Genís átti að lenskar hveraörverur eina afla markaða fyrirtækið sem sinni rann- fyrir Jakob sóknum hér á landi á þessu sviði. Verði komið í veg fyrir uppbyggingu fyrir- tækisins verði þessum rannsóknum ekki sinnt hérlendis. Sindri segir að þó að Genís hafi einbeitt sér að öðrum verkefnum um sinn hafi fyrirtækið ekki yfirgefið þetta svið. Rannsóknir og nýting á hveraörverum sé enn á verkefnaskrá fyrirtækisins. Það hafi hins vegar ekki bolmagn til að sinna öllu í einu. Sindri viðurkennir hins vegar að einkaleyfi til IH stöðvi ekki Genís í þeim verkefnum sem það sinnir í dag. Samskipti Islenskra hveraörvera og Genís tóku óvænta stefnu síðdeg- is í gær þegar fyrirtækin tóku upp viðræður um ágreiningsmál sín. Svo virðist sem báðir aðilar hafi talið sér hag í því að leysa þennan ágreining. FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998 41 Kostum neytenda hvað varðar millilandasamtöl fer fjölgandi Deilur um aðgang að dreifi- kerfí Landssíma standa í vegi almennrar samkeppni íslendingum standa nú til boða nokkrir kostir varðandi millilandasímtöl. Pétur Gunnarsson kynnti sér samkeppnisrekstur í talsímaþjónustu hérlendis. Morgunblaðið/Kristinn VEGNA samkeppni um millilandasímtöl, sem hafin er milli Tals, Landssímans og Skímu, dótturfyrirtæk- is Landssímans, stendur almennum símnotendum nú til boða að greiða lægra verð fyrir minni gæði í talsam- bandi í gegnum net-síma, þ.e. símtöl sem berast um Netið. Að öðru leyti miðast sú samkeppni, sem nú er ým- ist hafin eða boðað er að hefjist á næstunni, annars vegar við síma- þjónustu við fyrirtæki og hins vegar við notendur GSM-síma. Helsti þröskuldurinn í vegi þess að samkeppni hefjist í almennri símaþjónustu, er sá, að sögn keppi- nauta Landssímans, að ríkisfyrir- tækið fer fram á of hátt verð fyrir aðgang að dreifikerfi sínu. Tal hf kynnti fyrr í vikunni þá nýj- ung, að nú gefst viðskiptavinum íyrir- tækisins, þ.e. GSM-notendum í kei'fi Tals, kostur á ódýrari millilandasam- tölum um allan heim en hingað til. Samtölin fara um sæstreng eins og í venjulega talsímakei+mu. Ódýrara úr GSM til Tælands Lykillinn að þessu er samningur, sem Tal hefur gert við bandaríska símafyrirtækið Passport Telecom. Símtölin fara frá símstöð Tals eftir ljósleiðara í sæstrenginn Cantat-3 og þaðan í símstöð bandaríska fyrir- tækisins í New Jersey. Þaðan fá við- skiptavinir samband um allan heim eftir venjulegri símalínu, rétt eins og úr almennum síma. Verðlækkunin nemur 14-20% frá fyrri taxta fyrir millilandasamtöl úr GSM-síma hjá Tali. Með þessu er verðskrá fyrirtækisins, að þessu leyti, orðin ódýrari en gjaldskrá Sírnans GSM. Fyrir þá, sem þurfa að hringja til Austurlanda fjær er þessi kostur einnig ódýrari en almennt símtal, samkvæmt samanburði frá Tali. Kostnaðurinn við að hringja úr GSM-síma hjá Tali til Bandaríkj- anna er 2,60 kr. lægri á mínútu en samkvæmt grunngjaldi almenns símtals hjá Landssímanum. Skýring- in á samkeppnishæfni verðsins í þessum heimshluta er, að sögn Þór- ólfs Árnasonar, forstjóra Tals, sú að tengingin fer vestur um haf til Bandaríkjanna og dreifist þaðan um heiminn. Millilandasímtal úr GSM-síma er hins vegar talsvert dýrari kostur en almennt millilandasímtal þegar um er að ræða lönd í Evrópu en þangað liggur mesti straumurinn í milli- landasímtölum héðan. Tal er eingöngu í rekstri GSM- símkerfís en hefur áform um rekstur almenns símkei-fis í framtíðinni. Þórólfur segir að í gangi sé ákveðið ferli til þess að semja um aðgang fyrirtækisins að dreifikerfi Lands- símans, þ.e. símalínunum sem liggja inn á heimili og fyrirtæki í landinu. Þórólfur segir að ágreiningur sé milli Tals og Landssímans um hve mikið sá aðgangur eigi að kosta. Málið er þó á viðræðustigi milli fyr- irtækjanna tveggja og ekki hefur verið leitað til samkeppnisyfíi-valda. Sams konar ágreining gera for- svarsmenn nýjasta símafyrirtækis- ins, Islandssíma, um verðlagningar- stefnu Landssímans. 280.000 krónur eða 3.500 krónur? Arnar Sigurðsson, markaðsstjóri Íslandssíma, segir að samkvæmt 13. grein fjarskiptalaga beri Landssíma að veita aðgang að dreifikerfinu á kostnaðarverði að viðbættum hófleg- um hagnaði sem sé skilgreindur í sams konar tilviki 12% í Danmörku. Síminn geri hins vegar fráleitar kröfur, að mati Islandssíma, og ber himin og haf á milli hugmynda ís- landssíma og Landssíma um hvað þessi aðgangur eigi að kosta. Landssíminn býður svokallaða stofntengingu á 280 þúsund krónur, að sögn Arnar, þegar Islandssími telur að eðlilegt verð sé um 3.500 krónur. Munurinn skýrist af því að Landssíminn rukki misjafnt gjald eftir því hve mikil umferð fer um línu en Arnar segir að enginn hafi getað sýnt fram á að dýrara sé að reka símalínu sem straumur er á en straumlausa línu. Vegna þessa breiða bils fer Is- landssími ekki út í samkeppni um al- mennan símrekstur fyrst um sinn. Fyrirtækið hyggst hins vegar á fyrsta fjórðungi næsta árs, sennilega í mars, hefja rekstur, sem mun miðast við að veita fyrirtækjum almenna símaþjónustu. Ai-nar segir að þótt það geti borg- að sig að ráðast í nýjan stofnkostnað fyrir fyrirtæki, sem hefur 2-4 millj- óna króna símkostnað, sé þetta óyf- irstíganleg samkeppnishindrun gagnvart venjulegum, almennum notendum. Önnur samkeppnishindr- un sé sú að Landssíminn tregist við að gefa viðskiptavinum kost á að færa símanúmer óbreytt yfir til ann- arra fyrirtækja. Islandssimi á fyrirtækjamarkað í mars „Við munum bjóða fyrirtækjum sams konar þjónustu og Landssím- inn. Við munum setja upp hefð- bundna símstöð til að miðla símtöl- um innanlands en samtöl milli landa munu fara sæstreng," segir Arnar Sigurðsson. Hann segir að íslands- sími sé í samstarfi við fyrirtæki að nafni Globall, sem er í eigu Deutsche Telecom og fleiri aðila. Ai-nar segir að í mörgum tilvikum muni Islandssími setja upp eigin ör- bylgjusamband við fyrirtæki í stað þess að nota dreifikerfi Landssím- ans eins og verðlagning sé nú. Aðspurður um gjaldski'á íslands- síma sagðist Arnar reikna með að innanbæjarsímtöl verði boðin á svip- uðu verði og Landssíminn býður, nema tveir viðskiptavinir Islands- síma muni geta talast við innanbæj- ar á lægra verði. „í millilandasímtölum munum við hins vegar bjóða mun lægra verð en nú er í boði,“ segir Arnar. Hann segist ekki tilbúinn að nefna tölur um gjald- ski’á fyrirtækisins í mars, að svo stöddu. „Við munum keppa við Landssímann og okkar gjaldski'á mun verða undir gjaldski-á netsímans, sem verið er að bjóða í nafni Landssímans og Skímu, auk þess sem gæði netsímans eru mun verri en þau gæði sem við munum bjóða.“ Skíma, dótturfyrirtæki Landssím- ans, kynnti í upphafi þessa mánaðar að almennir símnotendur ættu þess kost að hringja millilandasímtöl um Netið fyrir milligöngu Skímu. Verð netsíma Skímu er 20-30% lægra en almennt verð frá Landsímanum. Dótturfyrirtæki og móður- fyrirtæki ná samningum Þrátt fyrir að samningar um að- gang að dreifíkerfinu hafi ekki tekist milli Landssímans annars vegar og Tals og Islandssíma hins vegar hafa samningar tekist milli Landssímans og Skímu, sem er að öllu leyti í eigu Landssímans, eins og fyrr sagði. Þess vegna geta allir almennir sím- notendur, sem það vilja, notfært sér þann möguleika að skrá sig hjá Skímu og greiða ákveðna upphæð fyrirfram. Síðan hringja menn úr landi úr venjulegum talsíma og í stað þess að velja 00 til að fá línu úr landi er hringt í 1100. Keppinautar Landssímans og Skímu gera lítið úr tilkomu þessar- ar samkeppni á markaðnum. Arnar Sigurðsson, segir að vegna mismun- andi gæða sé eftir sem áður engin raunveruleg samkeppni, auk þess sem Landssíminn eigi allt hlutafé í Skímu. Þórólfur Arnason hjá Tali tekur í sama streng. Hann segir að sér komi þetta þannig fyrir sjónir að tilgangurinn sé að „að skapa há- vaða og skjóta nógu mörgum löpp- um undir einokunarbúkinn". Þannig vilji Landssíminn skapa rugling á markaðnum og gefa ranglega til kynna að á almennum markaði séu margir valkostir í boði. Netsími Landssima um eða eftir áramót Ólafur Þ. Stephensen, forstöðu- maður upplýsinga- og kynningar- mála hjá Landssímanum, aftekur óeðlileg tengsl milli Skímu og Landssímans og segir reksturinn að öllu leyti aðskilinn. Ólafur segir að um eða eftir áramót muni Lands- síminn hefja starfrækslu eigin net- síma. Nauðsynlegur búnaður er all- ur kominn til landsins og tæknipróf- unum er að ljúka. Almennir notend- ur munu komast í samband við net- síma Landssímans með því að velja 1001 í stað 00 eða 11. Gjaldfært verður sjálfkrafa á almennan sím- reþkning. I netsíma er hægt að hringja úr tölvu í tölvu; úr tölvu í síma eða úr einum síma í annan. Talið fer um tölvu, sem þjappar því saman og sendir síðan yfir Netið, á sama hátt og gagnapakka. I móttökulandi tek- ur tölva við boðunum og snýr þeim aftur yfir í tal og miðlar því til þess sem hringt er í. Netsímaaðgangur Landssímans byggist á því að fyrirtækið hefur nú gert samning við fyi’irtækið Delta Three, sem er eitt stærsta netsíma- fyrirtæki í heimi og hefur komið slíku sambandi á við 34 lönd, auk Islands. Þar á meðal Evrópulönd, Bandaríkin, og fjarlæg ríki eins og Argentínu, Bangladesh og Ástralíu. 20 lönd munu bætast við Delta Three kerfið fyrir árslok, að sögn. Eins og fyrr sagði eru gæði net- síma talin verri en almenns síma. Skýringin er sú, að sögn Ólafs Þ. Stephensen, að gæðin fara eftir því hve mikil umferð er um netið. Því meira álag, sem er um Netið, því minna rými fær hvert og eitt símtal. Því minna rými sem símtal fær, því verra er hljóðið. Arnar Sigurðsson segir að í netsíma sé bergmál vegna þeirrar seinkunar (delay) sem er á sendingu um netið. Ólafur segir að Landssímamenn telji að fyrirtækið muni geta boðið sambærileg gæði í net-síma milli landa og í GSM-síma. Hann boðar að gjaldskrá fyrir netsíma Lands- símans verði 25-30% lægri en verð almennra millilandasímtala. Vegna þess að gæðin eru ekki sambærileg, segist Ólafur búast við að netsíminn höfði frekar til almennra símnot- enda en til fyrirtækja. Segja aðgang að dreifikerfi of dýran
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.