Morgunblaðið - 17.12.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HandbrGcÍLir
feykirófa
Skólavörðustíg 1a
Benvenuto.
fiertu
GARÐURINN
-klæðirþigvel
ekta jólagjöf
frnrn
GARÐURINN
-klæðirþigvel
Ekta grískir
íkonar
frá Irr. 1.990
Ný sending
/itfíft
-Blofnoö 197+ itiuitít
Klapparstíg 40, sími 552 7977.
ERLENT
Kóreumenn
einrækta
mannsfóstur
Seoul. Reuters.
SUÐUR-KÓRESKIR vísindamenn
sögðu í gær að þeim hefði tekist að
einrækta mannlegan fósturvísi með
því að fjarlægja kjarnann úr egg-
frumu konu og sprauta í staðinn
kjarna úr annarri líkamsfrumu
hennar inn í eggið.
Lee Bo-yon, prófessor við frjó-
semisrannsóknastofnun Kyonghee-
háskólasjúki-ahússins í Seoul, sagði
að eggið hefði skipst í fjórar fóstur-
frumur áður en fósturvísinum var
eytt. „Við getum gert ráð fyrir að ef
[fósturvísinum] hefði verið komið
fyi-ir í legi konu hefði barn orðið til,
og að það hefði haft sömu genabygg-
ingu og egggjafinn," sagði Lee í
samtali við Reuters-fréttastofuna.
Hvetur til einræktunar
mannsfóstra
Egginu var eytt eftir þrjár frumu-
skiptingar, í samræmi við ályktun
sem suður-kóreskir vísindamenn
samþykktu árið 1998. Lee sagði að
hvetja ætti til einræktunar manns-
fóstra í þeim tilgangi að rækta líf-
færi. „Pað mun með tímanum hjálpa
manneskjum,“ sagði hann, en tók
fram að hópurinn myndi ekki gera
frekari tilraunir með einræktun fyrr
en náðst hefði félagsleg, lagaleg og
siðferðileg samstaða um málið.
Embættismaður í vísindaráðu-
neyti Suður-Kóreu sagði í gær að
fyrir þingi landsins lægi frumvarp
um bann við tilraunum til að ein-
rækta frumur úr mönnum, nema til
rannsókna á krabbameini og öðrum
sjúkdómum. Nokkrir þingmenn
hafa lýst því yfir að þeir muni styðja
takmörkun á fjái'veitingum til ríkis-
styrktra rannsóknastöðva, haldi þær
áfram að gera tilraunir með ein-
ræktun.
Beittu Honolulu-aðferð
Lee sagði að tilraunin væri með
þeim fyrstu þar sem eingöngu hefðu
verið notaðar frumur úr mönnum til
einræktunar. Hann sagði að hópur-
inn hefði beitt svokallaðri Honolulu-
aðferð, sem vísindamenn á Hawaii
notuðu fyrr á þessu ári til að ein-
rækta mýs. Þá var DNA-erfðaefni
fjarlægt úr kjarna eggfrumu músar
og frumukjarna úr annarri mús var
sprautað inn í eggið í staðinn. Efna-
fræðilegum aðferðum var síðan beitt
til að fá eggið til að þróast eins og
það hefði verið frjóvgað. Fósturvís-
inum var komið fyrir í legi músar,
sem fæddi af sér einræktaða músar-
unga. Þeir voru síðan sjálfir ein-
ræktaðir, sem og klónar þeirra.
Lee sagði að þessi aðferð væri ár-
angursríkari en sú sem notuð var til
að einrækta kindina Dollý árið 1996.
Þá var rafstraumur notaður til að
sameina frumu úr mjólkurkirtli
kindar við kjarnalausa eggfrumu
annarrar kindar.
Dr. Harry Griffin, vísindamaður
við Roslin-rannsóknastöðina í
Skotlandi þar sem Dollý varð til,
lýsti í gær yfir efasemdum um að
suður-kóresku vísindamönnunum
hefði tekist að einrækta mannsfóst-
ur. Hann sagði að ekki lægju fyrir
nægar sannanir, þar sem þeir stöðv-
uðu tilraunina þegar þrjár frumu-
skiptingar höfðu átt sér stað.
Reuters
Dularfullt húshrun
ITALSKIR björgunarmenn leita
fórnarlamba í rústum fiinm hæða
íbúðarhúss í Róm, sem jafnaðist
skyndilega við jörðu aðfaranótt
miðvikudags. Að minnsta kosti
átján létu lífið og um fimmtán var
saknað þegar um tólf tímar voru
liðnir frá því húsið hrundi. Þá
fannst tvennt á h'fi, hjón um sex-
tugt.
Yfirmaður slökkviliðsins, sem
stjórnaði aðgerðum, sagði litla
von til að fleiri fyndust á lífi og
því mætti reikna með að um þijá-
tíu manns hefðu farizt.
Óljóst var hvað hafði valdið svo
algeru hruni hússins, sem var
byggt á sjötta áratugnum. I fyrstu
var talið að gassprenging hlyti að
hafa valdið því, en að sögn vitna
heyrðist engin sprenging. Var
getum Ieitt að því að skyndilegt
landsig hefði orðið undir húsinu
eða að alvarlegur byggingargalli
hefði hugsanlega valdið því. Haft
var eftir fólki sem hefur búið
Iengi í hverfinu að eitt sinn hefði
námagröftur farið fram á svæð-
inu eftir eldfjallaösku sem þar var
að finna í jörðu, en mun hafa ver-
ið notuð til sementsgerðar.
Gert er ráð fyrir að björgunar-
menn þurfi að halda áfram greftri
í rústunum í tvo daga að minnsta
kosti til að finna örugglega alla
sem grófust undir.
Rigoberta Menchu friðarverðlaunahafí sökuð um grófar falsanir
Sjálfsævisaga sögð miklar ýkjur
London. The Daily Telegrapli.
FRIÐARVERÐLAUN Nóbels
fyrir árið 1992 voru veitt Rigo-
bertu Menchu fyrir ötula baráttu
hennar fyrir réttindum indíána í
heimalandi sínu, Guatemala. Var
það ekki síst sjálfsævisaga henn-
ar, „Eg, Rigoberta Menchu“, sem
ruddi brautina fyrir verðlauna-
veitingunni en nú er því haldið
fram, að saga hennar sé í besta
falli miklar ýkjur og oft uppspuni
frá rótum.
I bókinni sinni segir hún mikl-
ar skelfingarsögur um grimmdar-
verk stjórnarhersins í Guatemala
og lýsir því m.a. þegar bróðir
hennar var brenndur lifandi. Sjálf
segist hún hafa tekið þátt í bar-
áttunni gegn herstjórninni.
I nýrri bók eftir bandaríska
mannfræðinginn David Stoll er
því haldið fram, að reynslusögur
Rigobertu Menchu séu flestar til-
búningur. Fyrir það fyrsta hafi
hún ekki tekið þátt í stríðinu
gegn stjórnvöldum á sínum tíma
því að þá hafi hún verið barn að
aldri. Þá sé sagan um sigur henn-
ar yfir ólæsinu sem bai-n einnig
röng. Menchu segist ekki hafa
notið neinnar skólagöngu en
sannleikurinn sé sá, að hún hafi
verið í kaþólskum heimavistar-
skóla.
Stoll segir, að vissulega hafi
bróðir Menchu látið lífið í óöldinni
en hann hafi líklega orðið fyrir
byssukúlu en ekki verið brenndur
lifandi. Menchu segir um annan
bróður sinn, að hann hafi soltið til
bana en Stoll segir, að hann sé
enn sprellifandi og gildur bóndi.
„I bókinni rekur hver lygin
aðra og hún veit það vel“ er haft
eftir Alfonso Rivera, bæjarstarfs-
manni í San Miguel Uspantan,
heimabæ Menchu.
í september sl., þegar drögin
að bók Stolls lágu fyrir, spurði
blaðamaður á The New York
Times, Menchu hvemig á þessu
misræmi stæði. Svaraði hún þá,
að sjálfsævisaga hennar væri „að
hluta sögulegar minningar og að
hluta hinn guatemalíski arfur“.
Þetta mál var borið undir Geir
Lundestad, forstöðumann norsku
Nóbelsstofnunarinnar og ritara
Nóbelnefndarinnar, og hann
sagði, að ekki væri um það að
ræða að innkalla friðarverðlaun-
in. Þau hefðu ekki verið veitt
„eingöngu“ vegna sjálfsævisögu
Rigobertu Menchu.
Leiðtogafundur ASEAN-ríkja
Fjárfestar
Skrifstofu- og verslunarhúsnæði - traustir leigusamningar
Höfum fengið til sölumeðferðar u.þ.b. 1600 fm skrifstofu- og
verslunarhúsnæði á besta stað í Reykjavík. Tveir traustir leigutakar
eru í húsnæðinu og eru leigutekjur mjög góðar.
Þetta er frábært tækifæri fyrir fjárfesta sem vilja kaupa stóra og góða
fasteign sem gefur góða afkomu.
Upplýsingar veitir Brynjar Harðarson á skrifstofu
Eignasölunnar - Húsakaupa.
FÉlagJ^steignasala 1530 1300
EIGNASALAN Éífe HUSAKAUP
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Fax 530 1501 • www.husakaup.is
Sammála um
„djarfar aðgerðir“
Iianoi. Reuters.
LEIÐTOGAR ASEAN-ríkjanna,
Suðaustur-Asíu-bandalagsins,
samþykktu í gær „djarfar aðgerð-
ir“ í því skyni að auka atvinnustarf-
semi og hagvöxt. Er meðal annars
gert ráð fyrir, að tilkomu AFTA,
fríverslunarsvæðis ASEAN-ríkj-
anna, verði flýtt lítillega. Lágu
þessar tillögur fyrir í drögum sl.
mánudag og þótti þá flestum hag-
fræðingum ekki mikið til koma.
Samkvæmt samkomulaginu
munu „gömlu“ ASEAN-ríkin sex,
Brunei, Indónesía, Malasía, Filips-
eyjar, Singapore og Tæland, koma
á fríverslun sín í milli árið 2002, ári
fyrr en ætlað var, en þó var sett
inn í textann, að þau hefðu nokkurt
„svigrúm" hvað dagsetningar varð-
aði. Hin ríkin, Víetnam, Laos og
Myanmar, stefna einnig að frí-
verslun en síðar.
Samþykkt var einnig að auð-
velda fjárfestingar í framleiðslu-
iðnaði í ríkjunum með því að leyfa
100% erlenda eignaraðild; að ný
fyrirtæki verði undanþegin skatti í
þrjú ár hið minnsta; að innflutning-
ur á fjárfestingarvörum verði toll-
frjáls og leigusamningar vegna
rekstrarins verði til 30 ára. Fjár-
festar fá aðgang að heimamarkaði
ríkjanna, fljóta tollafgreiðslu og
heimild til að ráða erlenda menn í
stjórnunar- og tæknistörf.