Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
American Automar, systurfyrirtæki Atlantsskipa
A 51 prdsent hlutafjár í
Transatlantic Lines LLC
AMERICAN Automar Inc. skipafé-
lagið í Bandaríkjunum er eigandi
51% hlutafjár í Transatlantic Lines
LLC (TLL), sem séð hefur um hinn
bandaríska hluta varnarliðsflutn-
inga frá því á seinasta ári. Transatl-
antic Lines er systurfyrirtæki Atl-
antsskipa ehf sem sér nú um hinn
íslenska hluta flutninganna en var
nýlega hafnað í forvali forvalsnefnd-
ar utanríkisráðuneytisins vegna
væntanlegs útboðs hins íslenska
hluta varnarliðsflutninga.
Aðrir eigendur Transatlantic
Lines eru Guðmundur Kjærnested
og Brandon C. Rose, og er Americ-
an Automar ekki með meirihluta í
stjórn TLL heldur fer American
Automar með helming atkvæða-
vægis í stjóm á móti Guðmundi og
Brandon Rose, að sögn Stefáns
Kjæmested, framkvæmdastjóra
Atlantsskipa ehf.
American Automar hefur verið
starfrækt í 16 ár og rekur 6 skip.
Fyrirtækið flytur bæði verslunar-
vöm fyrir herinn og samkvæmt
samningum við bandaríska ríkið.
Fyrirtækið var í 81. sæti yfir þau
fyrirtæki sem unnið höfðu stærstu
verkefnin fyrir bandaríska herinn á
árinu 1997, samkvæmt vefsíðu
Defense Daily Network á Netinu,
www.defensedaily.com/reports/alp-
hatable.htm.
25 manns vinna á skrifstofu fyrir-
tækisins og nam velta þess um 15
milljónum dollara eða rösklega ein-
um milljarði króna á seinasta ári, en
eigur þess um 100 milljónum doll-
ara eða rúmum 7 milljörðum króna.
Nútímaleg stofnun
fyrirtækis
Stefán Kjæmested vildi benda á í
samtali við Morgunblaðið að til Atl-
antsskipa ehf. hefði verið stofnað
með þeim nútímalega hætti sem nú
væri að ryðja sér til rúms í við-
skiptalífinu, og það væri fjarri því
að reynsluleysi háði fyrirtækinu.
„Þetta er leið sem mun verða far-
in í æ meiri mæli í framtíðinni. Þú
stofnar fyrirtæki utan um ákveðna
viðskiptahugmynd eða vegna ákveð-
inna samninga sem þú getur náð, og
ræður undirverktaka til þeirra
starfa sem vinna þarf.
Þetta leiðir af sér að fyrirtæki
sem koma að þessu verða sérhæfð-
ari og betri á sínu sviði. Til dæmis
má nefna að vöruhúsið sem við
skiptum við lifir á því að meðhöndla
vöru, svo að þeir eru mjög færir á
því afmarkaða sviði. Ef það stendur
sig ekki í því skiptum við einfald-
lega við einhverja aðra. Þetta er það
sem gerir Atlantsskip að mínu mati
að mjög spennandi og sérstæðu fyr-
irtæki,“ segir Stefán Kjæmested.
„Fyrirtækið sem við leigðum skip
af sérhæfír sig í að reka skip og
manna þau, og sér um þennan hluta
rekstrarins. Því fyrirtæki svipar því
til Atlanta flugfélagsins sem leigir
og rekur flugvélar fyrir önnur flug-
félög. Þannig að þó að fyrirtækið
Atlantsskip sé ungt er mikil reynsla
sem býr að baki rekstrinum," segir
Stefán.
Stefán segir að ákveðið hafi verið
Morgunblaóió/Ásdís
Stefan Kjærnested: Mikil reynsla
býr að baki Atlantsskipum þrátt
fyrir ungan aldur fyrirtækisins.
að fara í samstarf við American'Au-
tomai’ þar sem fyrirtækið hefur
reynslu af að reka skip af því tagi
sem þeir notuðu í flutningum milli
Islands og Bandaríkjanna. Að sögn
Stefáns eru tvö skip í rekstri á veg-
um félaganna tveggja, TLL og Atl-
antsskipa. Panaviota sé þeirra
flaggskip og sigli fyrir Atlantsskip
og Sly Fox sé á vegum TLL, en Atl-
antsskip sjá um að selja fraktpláss
fvrir verslunarvöru í bæði skipin.
STUTTFRÉTTIR
Microsoft eykur
ítök I Bretlandi
• Microsoft reynir að auka áhrif sín
á sviði áskriftarsjónvarps í Bretlandi
með því aö semja um kaup á 30%
hlut í kap-
alsjón-
varpsdeild
brezka fjar-
skiptafyrirtækisins Cable & Wirel-
ess fyrir 4 milljarða dollara, sam-
kvæmt blaöafréttum.
Fjármálastjóri Microsofts, Greg
Maffei, hefur rætt við forstjóra
C&W, Graham Wallace, aö því er
Wall Street Journal hermir.
Heimildarmenn segja að sam-
komulag sé ekki f nánd, en fréttin
leiddi til 4% hækkunar á veröi bréfa
í kapalsjónvarpsdeildinni, C&W
Communications.
Viku áður hafði Microsoft eignazt
30% hlut í Telewest, næststærsta
kapalsjónvarpsfyrirtæki Bretlands.
Microsoft á 5% í þriöja stærsta kap-
alfyrirtækinu, NTL.
Að sögn Wall Street Journal reynir
Microsoft að verja fjármunum til að
eignast mikilvæga viðskiptavini og
koma í veg fyrir að þeir skipti viö
keppinautinn Network Computer
Inc. Aöahluthafar Network Computer
eru Oracle og America Online.
TWAog
Continental
vinsælust
FARÞEGAR helztu flugfélaga
Bandaríkjanna voru ánægðastir með
þjónustu TWA-flugfélagsins og
Continental Air-
lines í fyrra
samkvæmt
nýrri skýrslu.
TWA nýtur
mestra vinsælda
á styttri leiðum en 500 mflur, en
Continental á lengri leiðum að því er
fram kom í könnun ráðgjafarfyrir-
tækisins J.D. Power & Associates og
tímaritsins Frequent Flyer.
Skýrslan er niðurstaða mats á
6.520 ferðum bandarískra farþega
sem fljúga venjulega 27 sinnum fram
og til baka á hverju ári í Bandaríkj-
unum og utan þeirra. „Hafa ber í
huga að tæpur helmingur flugfar-
þega, sem ferðast oft, kvarta, borið
saman við aðeins 25% notenda bíla-
leigubfla og 15% hótelgesta," sagði
talsmaður J.D. Power.
Continental í Houston fékk hrós
fyrir stundvisi, góða afgreiðslu, góð-
an mat og kurteisi flugfreyja og
þjóna.
TWA í St. Louis var hrósað fyrir
starfshætti, framboð á ferðum, þæg-
indi og vildarkjör farþega sem fljúga
oft.
Nýtt skipulag á flug-
rekstrarsviði Flugleiða
SIGÞÓR Einarsson tekur við
nýrri stöðu forstöðumanns við-
skiptadeildar á flugrekstrar-
sviði Flugleiða 1. júlí næstkom-
andi. Viðskiptadeild mun bera
ábyrgð á viðskiptaþáttum flug-
reksturs félagsins, svo sem af-
greiðslusamningum, stöðva-
stjém erlendis, innkaupum
tengdum flugrekstri og nýtingu
framleiðsluþátta. Þá mun deild-
in sinna samningsgerð vegna
inn- og útleigu flugvéla, við-
haldssamningum og áhafna-
leigusamningum. Eitt helsta
verkefni deildarinnar mun felast
í eftirliti með öllum flugrekstr-
arkostnaði, frammistöðumæling-
um, markmiðasetningu og um-
sjón með upplýsingakerfum.
Þessar breytingar koma í
beinu framhaldi af þeim skipu-
lagsbreytingum sem kynntar
voru hjá félaginu í byrjun maí.
Þá var móðurfélaginu skipt í 6
afkomueiningar. Sú stærsta,
sem veltir um 18 milljörðum
króna, er millilandafarþegaflug.
Guðmundur Pálsson stýrir flug-
rekstrarsviði félagsins, gerð og
framkvæmd fram-
leiðsluáætlana fyrir
flugreksturinn.
Starfsemi flug-
rekstrarsviðs felur
í sér hina faglegu
og tæknilegu
stjórnun í samræmi
við íslensk lög og
alþjóðlega staðla
evrópskra flug-
málasljórna. Nýr
þáttur í starfi sviðs-
ins er heildará-
byrgð á einum stað
á flugrekstrar-
kostnaði, sem nem-
ur rúmlega 16
milljörðum króna
árlega. Meginá-
herslurnar í þessu
starfí verða á kostnaðareftirlit
og nýtingu allra framleiðslu-
þátta flugrekstrarins.
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Flugleiðum hefur flugrekst-
ur félagsins vaxið mjög ört und-
anfarin ár. Framleiðsla félags-
ins í millilandaflugi mæld í
tonnkílómetrum hefur hér um
bil tvöfaldast á sex
ára tímabili. Sam-
keppni í alþjóðafar-
þegaflugi eykst
stöðugt og meðalfar-
gjald lækkar ár frá
ári. Flugleiðir líkt og
önnur flugfélög leita
því allra leiða til
aukinnar hag-
kvæmni í rekstrin-
um, sem byggist m.a.
á öflugu kostnað-
araðhaldi og há-
mörkun á nýtingu
framleiðsluþátta, að
því er fram kemur í
tilkynningunni.
Sigþór Einarsson
er hagverkfræðing-
ur að mennt og réðst
til félagsins vorið 1996. Hann
var deildarsljóri gæðastjórnun-
ardeildar 1996-1998, en hefur
frá maí 1998 gegnt stöðu deild-
arstjóra stefnumótunareildar á
stefnumótunar- og stjórnunar-
sviði. Hann er kvæntur Sigrúnu
Guðmundsdóttur arkitekt, og
eiga þau einn son.
Sigþór Einarsson, nýr
forstöðumaður
viðskiptadeildar
flugrekstrarsviðs.
Alríkið i mál
gegn American
Airlines
• Bandaríkjastjórn hefur farið í mál
við flugfélagiö American Airlines
sem er sakað um að brjóta lög um
hringamyndun meö meintum einok-
unarháttum.
American
Airlines er
næststærsta flugfélag Bandaríkj-
anna. Því er gefið að sök að reyna
að einoka flugþjónustu til og frá
Dallas-Fort Worth alþjóðaflugvellin-
um í Texas.
Amercan-flugfélagið er sakaö um
að hafa margoft reynt að flæma
minni og ný flugfélög frá flugvellin-
um í Dallas með því aö bæta við
ferðum og lækka fargjöld til að
metta markaöinn.
Því er haldið fram að þegar minni
félögin hafi gefizt upp hafi fargjöld
verið snarhækkuð á ný, stundum
um allt að 50%.
Joe Klein, sem fer með yfirstjórn
hringamyndunarmála í bandaríska
dómsmálaráðuneytinu, sagði að
American Airlines hefði haft „hörmu-
leg“ áhrif með framferði sínu, bæði
á neytendur og keppinauta.
Klein sakaöi American-félagið um
yfirgang til að geta haldið einokunar-
háttum sínum áfram. Þetta er fyrsta
mál af þessu tagi, sem höföað hef-
ur veriö gegn bandarísku flugfélagi
síðan höft í greininni voru afnumin
1978.
Furuhúsgögn
Stólar
Skrifstofuhúsgogn
Dýnur
Rúm
Sófasett
Sýningarsalur
TM - HUSGOGN
SIOUMULA 30 • SIMI 5S8 6822
Opið: Mán-fös 10-18 • Fim 10-20 • tau 11-16 • Sun 13-16
30 ára reynsla
Hitaþolið gler
Hert gler
Eldvarnargler
GLERVERKSMIÐJAN
Samvcrk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
® 487 5888 • Fax 487 5907