Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Norðmenn óttast
stjórnlausar veiðar
»rgen, Morgunblaðið.
Bergen, Morgunl
TALSMENN sjómanna og útgerð-
armanna í Noregi hafa gagnrýnt
Smugusamninginn harkalega. Með-
al annars hafa þeir bent á að hvergi
sé minnst á hugsanlegar rækjuveið-
ar Islendinga í samningnum.
Rækjustofnar hafi minnkað hratt
við Island á undanfömum árum, á
sama tíma og aflabrögð rækju glæð-
ist mjög í Barentshafi. Telja megi
öruggt að Islendingar reyni að
hasla sér völl í rækjuveiðum á haf-
svæðinu með stjórnlausum veiðum í
Smugunni og samvinnu um útgerð
íslenskra togara sem verði skráðir
undir rússneskum fána og stundi
rækjuveiðar á rússneskum sóknar-
dögum á Svalbarðasvæðinu.
Efast um arðsemi
Petter Angelsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, segir að það hafi
ekki verið hægt að setja ákvæði um
íslenskar rækjuveiðar í samninginn.
„Veiðum á rækju er ekki stýrt með
aflamarki eins og gert er þegar um
er að ræða stofna á borð við þorsk
og ýsu. Þjóðum er úthlutað ákveðn-
um fjölda sóknardaga til rækjuveiða
á Svalbarðasvæðinu í hlutfalli við
veiðireynslu þeirra. Markmiðið með
gerð samningsins um Smuguna var
fyrst og fremst að koma böndum á
óheftar veiðar Islendinga á stofnum
sem þegar eru nýttir eftir kvóta-
kerfí. Rækjuveiðar Islendinga nú
hefðu verið stundaðar hvort heldur
samningurinn væri fýrir hendi eða
ekki. Sú staðreynd að náðst hefur
samningur um fiskveiðar gerir það
að verkum að Islendingar geta nú
ekki veitt þorsk og ýsu hömlulaust
undir því yfirskyni að þeir stundi
rækjuveiðar. Þeir verða að fylgja
norskum reglum um gerð og búnað
veiðarfæra við rækjuveiðar í Smug-
unni. Ég á reyndar ekki von á að Is-
lendingum takist að þróa sérlega
arðbærar rækjuveiðar í Smugunni.
í besta falli tekst þeim að halda
nokkrum skipum á þessum slóðum í
nokkrar vikur yfir sumarmánuð-
ina,“ segir Angelsen.
Rússar ráða sjálfir
Norskir útgerðarmenn óttast að
íslendingar reyni nú að skrá rækju-
togara sína undir rússneskum fán-
um til að veiða innan sóknardaga
Rússa á Svalbarðasvæðinu. Angel-
sen segir að norsk stjómvöld geti
ekki haft nein afskipti af því hvem-
ig Rússar hyggist nýta sínar rækju-
veiðiheimildir. „Það má vel vera að
Rússa skorti skip og búnað til að
nýta sín rækjuréttindi í Barents-
hafi. Vilji þeir leita eftir fiskveiði-
samvinnu við erlenda aðila til að
nýta þessi réttindi getum við að
sjálfsögðu ekki sagt neitt við því. Ef
þetta er staðreyndin fæ ég ekki bet-
ur séð en að norskir útgerðarmenn
ættu jafngóða möguleika til að
starfa með Rússum og Islendingar
eða aðrir,“ segir Angelsen.
íslensk rányrkja
Gagnrýnendur Smugusamnings-
ins telja rækjuveiðar Húsvíkings í
Smugunni merki um það sem koma
HEILSUVIKAN HEFST SUNNUDAGINN 16. MAI:
13.00 Heilsuvikan sett með ávarpi Sveins Guðmundssonar yfirlaeknis.
13.30 TaeKwonDo sýning
14.00 -16.00 Ratleikur um nágrenni Blóðbankans - góðir vinningar.
FRÍÐA RÚN ÞÓRÐARDÓTTIR NÆRINGARRÁÐGJAFI
í ELDHÚSI LANDSPI'TALANS VERÐURMEÐ RÁÐGJÖF:
Sunnudaginn 16. maí kl. 13.30-16.00
Mánudaginn 17. maí kl. 10.00-11.00
Þriðjudaginn 18. maí kl. 13.00-14.00
Miðvikudaginn 19. maí kl. 12.00-13.00
Fimmtudaginn 20.maí kl. 15.00-16.00
Föstudaginn 21. maí kl. 11.00-12.00
ÞOLMÆLING:
Fimmtudaginn 20.maí
kl. 16.00-18.00
Blóðgjafar geta gefið blóð • Skráning nýrra blóðgjafa
Blóðþrýstings- og blóðrauðamæling • Uppskriftabæklingar
Ymis tilboð til blóðgjafa • Ráðgjöf • Þolmæling
4? QDblóðbankinm X ík
EILSU£FUNC íþlfillll FÍRIR RLLII
skal. „Þetta er dæmigert fyrir ís-
lendinga. Þeir notfæra sér alltaf
allar þær smugur sem þeir geta
fundið þegar fiskveiðar eru annars
vegar. Þeim hefur tekist að ofbjóða
rækjustofnunum við ísland með
gegndarlausri ofveiði. Á sínum
tíma tókst þeim næstum að rústa
rækjustofninum á Flæmingja-
grunni eftir að þeir skelltu skolla-
eyrum við alþjóðlegri fiskveiði-
stjórnun á svæðinu og hófu hömlu-
lausar veiðar. Nú er röðin komin að
Barentshafi," segir Audun Marák
aðalritari samtaka útgerðarmanna
í Noregi. Marák telur að það hefði
verið auðvelt fyrir norsk og rúss-
nesk stjórnvöld að taka með
ákvæði um rækjuveiðar í Smugu-
samningnum. „Þetta var bara
spuming um styrk og vilja í við-
ræðunum. Allt bendir til að norsk-
um stjómvöldum hafi legið mikið á
að ná samkomulagi. Þess vegna em
alvarlegar gloppur í samningnum."
Audun Marák segir að norskir út-
gerðarmenn hafi ekki sóst eftir
samvinnu við Rússa í rækjuveiðum
þar sem þeir hafi í nógu að snúast
við að veiða innan marka norskra
sóknardaga. „Norskir útgerðar-
menn kæra sig ekki um að ofbjóða
rækjustofninum með ofveiði eins og
Islendingar hafa gert. Nú sjáum
við að viss nálgun virðist eiga sér
stað á milli Rússa og íslendinga í
Barentshafi. Það má því spyrja
hvort við Norðmenn séum ekki i
þann mund að missa mikilvæga
bandamenn."
NETIN GEFA VEL
Morgunblaðið/Garðar Páll
• SKIPVERJARNIR á Þorsteini Gísla GK voru nokkuð ánægð-
ir með sig enda ekki ástæða til annars með 6-7 tonn af þorski eft-
ir daginn. Svipaða sögu er að segja af öðrum netabátum og Grinda-
víkurhöfn iðaði af lífi.
Rækjuveiði
í Smugunni
VEL hefur gengið hjá rækjutogar-
anum Húsvíkingi ÞH í Smugunni í
Barentshafi að undanfömu eftir
dræma veiði fyrstu dagana, að sögn
Einars Svanssonar, framkvæmda-
stjóra Fiskiðjusamlags Húsavíkur
hf. „Þetta hefur verið að glæðast
dag frá degi,“ sagði hann.
Húsvíkingur fór á svæðið á liðnu
hausti og sagði Einar að með hlið-
sjón af gangi mála þá hefði verið
rökrétt ákvörðun að fara aftur núna.
„Við fengum mjög góðan afla þama
á stuttum tíma auk þess sem við höf-
um kortlagt veiðarnar, verið með
fregnir frá Rússum og fleirum, sem
hafa verið þarna á liðnum árum. Ei-
ríkur Sigurðsson skipstjóri hefur
líka verið þarna áður á veiðum.“
Einar sagði að þegar íslensku tog-
OPIÐ
LAUGARDAG 10-18
SUNNUDAG 12-18
TILBOÐ í MÍRU
Indversk harðviðarborð
SÓFABORÐ
110-60-40 12.900
120-75-40 13.900
135-75-40 15.900
145-90-46 21.000
160-90-46 19.900
100-100-40 15.900
HORNBORÐ
60-60-40 8.900
80-80-40 12.900
Ný sending
SÓFABORÐ
110-75-40 25.000
120-75-40 27.000
135-75-40 29.000
100-100-40 27.000
4í7UE»
Húsvíkings
að glæðast
ararnir vora á þorskveiðum í Smug-
unni í fyrrasummar hefðu þeir orðið
varir við rækju, en einn þeirra hefði
verið með rækjutroll, og því hefði
Húsvíkingur farið á svæðið í kjölfar-
ið. „Við fengum rúmlega 200 tonn á
nokkram vikum, veiddum um 10 til
12 tonn á dag. Það er ekki slæmt en
veturinn var að skella á og birtuskil-
yrðin því að versna. Við höfum líka
skoðað rækjuna í Barentshafinu og
þar er mikill uppgangur í stofninum
því þorskstofninn er að hrynja. Þeg-
ar þorskstofninn hrynur, eins og nú
í Barentshafi, er eðlilegt að draga þá
ályktun að rækjustofninn eflist. Það
getur alveg eins verið rækja í Smug-
unni eins og á Svalbarðasvæðinu
sem er aðeins 180 mílur í burtu.“
Norskir útgerðarmenn era ekkd
ánægðir með veiðar Húsvíkings á
svæðinu, þó hann sé þar í fullum
rétti. „Viðhorf Norðmanna gagnvart
okkur í þessu máli er furðulegt því
stærsti hluti veiðinnar er á Sval-
barðasvæðinu sem er alþjóðlegt haf-
svæði. Islendingum var úthlutað 100
dögum á öllu svæðinu S ár en Rússar
fá meira en 3.000 daga sem reyndar
er byggt á veiðireynslu. En þetta er
alþjóðlegt hafsvæði að stærstum
hluta.“
I þessu sambandi sagði Einar að
Húsvíkingur hefði ekki fengið þessa
sóknardaga. Sótt hefði verið um þá
en Sveinn Rafn, áður Hrannar, hefði
fengið. „Norðmenn úthluta þessum
dögum og era sjálfir með um 60%,
Rússar um 30% og önnur ríki með
afganginn, þar á meðal ríki sem hafa
aldrei difið hendi í sjó en era með
fleiri daga en við.“
Einar sagði ennfremur að á ráð-
stefnu í London í haust hefði verið
farið vandlega yfir Barentshafið og í
máli norsks fiskifræðings hefði kom-
ið fram að þorskurinn æti 400.000
tonn af rækju á ári og því skiptu
veiðarnar engu máli í sambandi við
áhrif á stærð stofnsins. „Það er mjög
mikið hagsmunamál fyrir okkur að
tryggja rétt okkar á Svalbarðasvæð-
inu og eitt stærsta mál nýs sjávarút-
vegsráðherra á næstu misserum er
að tryggja okkur meiri rétt 1 rækj-
unni þama. Gífurlegir hagsmunir
era í húfi og mikil verðmæti."
Að sögn Einars fór Húsvíkingur í
Smuguna fyrr en til stóð. „Við
ákváðum samt að láta á þetta reyna
og mér sýnist að það hafi verið rétt
ákvörðun. Þetta er í góðu lagi og við
ætlum ekki að hætta þessum veiðum
en ekki hefur ákveðið hvar verður
landað."
Bæjarlind 6-Sími 554 6300-www.mira.is
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
^jraæða flísar
_
Cjpæða parket
^jiyóð verð
^jraóð þjónusta