Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 33
Kjarnorkunjósnir Kínverja í Bandaríkjun-
um alvarlegri en áður hafði verið talið
Grafið undan
stöðu Bandaríkj-
anna og Bretlands
Reuters
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, skrifar á skrifstofu sinni í Hvíta Húsinu í minningarbók um fórnarlömb
ioftárásar NATO sem fyrir slysni hæfði kínverska sendiráðið í Belgrad. Með honum á myndinni eru Li Zha-
oxing, sendiherra Kína og Liu Xiaoming, sendiráðunautur.
Kínverjar enn æfír vegna árásarinnar á kínverska sendiráðið
Notuð til að auðvelda
aðgang að WTO?
Peking. Reuters.
ÓTTAST er, að verulega hafí verið
grafið undan stöðu og styrk Banda-
ríkjanna og Bretlands sem kjarn-
orkuvelda með þjófn-
aði' á háleynilegum
skjölum í bandarískri
rannsóknastöð. Kom
þetta fram í fréttum
BBC, breska ríkisút-
varpsins, í gær.
Starfsmaður í rann-
sóknastöðinni í Los
Alamos í Bandaríkj-
unum hefur viður-
kennt að hafa fært um
1.000 háleynileg skjöl
yfir á tölvu, sem ekki
þurfti sérstakan að-
gang að, og þar gátu
síðan Kínverjar nálg-
ast þau. Snertu sum
þessara skjala kafbáta
og var í fyrstu talið, að
þau ættu aðeins við
um bandaríska. Nú
hefur hins vegar kom-
ið í ljós, að annar kjarnvísindamað-
ur starfaði fyiir Kínverja og afhenti
þeim gögn, sem geta auðveldað leit
að breskum kafbátum einnig.
Kínverjar smíða flugskeyti
eftir stolnum teikningum?
Bandaríska stórblaðið New York
Times hafði í fyrradag eftir heimild-
um innan bandaríska hermálaráðu-
neytisins, að Kínverjar væru að
leggja lokahönd á smíði flugskeyta
með kjarnaoddum, sem gerðir
hefðu verið eftir stolnu, bandan'sku
teikningunum.
Bandaríkjastjórn hef-
ur hins vegar haldið
öðru fram hingað til.
Þá er einnig talið, að
Kínverjar hafi komist
yfir bresk kjarnorku-
vopnaleyndannál en
upplýsingar um til-
raunir þeirra voru
einnig geymdar í
rannsóknastöðinni í
Los Alamos.
Berskjaldaðir
kafbátar
Breska stjómin hef-
ur samt mestar
áhyggjur af njósnum
bandaríska vísinda-
mannsins Peter Lees
en hann er af kín-
verskum ættum. Hann
vann að tilraunum Breta og Banda-
ríkjamanna til að smíða ratsjá, sem
geti greint kafbáta úr lofti. Kjam-
orkuvamir Breta byggja mikið á
Trident-kafbátunum og á því, að
ekki sé auðvelt að vita hvar þeir era
niðurkomnir.
Talsmaður breskra stjórnvalda
vildi ekkert um þetta mál segja og
Kínverjar neita sem fyrr, að þeir
hafi nokkra stolið.
DAGBLOÐ kínverska kommún-
istaflokksins sögðu í gær, að árás
NATO-ríkjanna á kínverska sendi-
ráðið í Belgrad væri liður í flóknu
og víðtæku samsæri um að sundra
Kína og valda þar upplausn og
eyðileggingu. Þrátt fyrir stóryrðin
bendir margt til, að kínverska
stjómin sé nú tilbúin til að taka aft-
ur viðræður við Bandaríkjastjórn
um ýmis hagsmunamál ríkjanna.
Jiang Zemin, forseti Kína, hefur
fallist á að ræða við Bill Clinton,
forseta Bandaríkjanna, í síma en
Dai Xianglong, seðlabankastjóri
Kína, gefur hins vegar í skyn, að
árásin á sendiráðið verði notuð sem
vopn í viðræðunum við Bandaríkja-
stjóm um aðild Kína að Heimsvið-
skiptastofnuninni, WTO. Harðlínu-
maðurinn Li Peng og forseti kín-
verska þingsins vísaði hins vegar á
bug getgátum um, að WTO-aðildin
væri fyrst og fremst það, sem fyrir
Kínverjum vekti með reiðilegum
yrðirlýsingum um árásina.
Kínverjar hafa unnið að því í 13
ár að fá aðild að Heimsviðskipta-
stofnuninni en það hefur alltaf
staðið í veginum, að þeir krefjast
þess að fá að njóta þar sömu kjara
og vanþróuðu löndin.
Vilja Kína feigt?
Dagblað alþýðunnar sagði í gær,
að ríki fjandsamleg Kína með
Bandaríkin í broddi fylkingar vildu
sundra kínverska ríkinu og steypa
því í glötun. „Kínverjar era hins
vegar búnir að fá nóg af því að láta
erlenda heimsvaldasinna segja sér
fyrir verkum,“ sagði blaðið, sem
hefur óspart slegið á strengi þjóð-
ernisins síðustu daga.
Clinton hefur beðið Kínverja af-
sökunar á árásinni á sendiráðið í
Belgrad og hann ætlar að kynna
þeim niðurstöður rannsóknar á
þeim.
Birting lista með nöfnum breskra leyniþjónustu-
manna veldur miklu uppnámi í Bretlandi
Bresk stjórnvöld
Reuters
Bretar óttast að leyni-
legum upplýsingum
um smíði ratsjár sem
greint getur kafbáta
úr lofti hafi verið lekið
til kínverskra stjórn-
valda.
standa ráðþrota
London. Reuters, The Daily Telegraph.
BRESK stjornvöld stóðu í gær rað-
þrota frammi fyrir þeim vanda sem
skapaðist á miðvikudag þegar í ljós
kom að nöfn eitt hundrað manna,
sem sagðir voru starfsmenn bresku
leyniþjónustunnar, SIS, höfðu verið
gerð opinber á Netinu. Fullyrt er að
lífí mannanna og limum sé stefnt í
hættu með nafnbirtingunni og tókst
að fá síðunni, sem upphaflega birti
nöfnin, lokað. Skömmu síðar var
hins vegar búið að opna aðrar
heimasíður, þar sem nöfnin voru
birt í heild sinni, og jafnframt hafa
stjórnendur bandarísks tímarits
hótað að birta nöfnin.
Ovíst er að hægt sé að koma í veg
fyrir nafnbirtingu mannanna eitt
hundrað, sem margir era starfs-
menn bresku utanríkisþjónustunn-
ar, utan Bretlands, enda ekki ör-
uggt að erlendir fjölmiðlar myndu
verða við óskum breskra stjórn-
valda þar að lútandi. Aukinheldur
hefur yfirhöfuð reynst erfitt að hafa
stjórn á því hvað er birt á Netinu.
Fyrrverandi starfsmaður
sagður ábyrgur
Bresk stjómvöld sögðust engu að
síður í gær vera að skoða hvaða
kostir væru í stöðunni, og jafnframt
staðfesti breska lögreglan að rann-
sókn væri hafín, og að ekki væri úti-
lokað að einhverjir yrðu sóttir til
saka vegna nafnabirtinganna, enda
mætti færa rök fyrir því að leyndar-
lög þess opinbera hefðu verið brot-
in.
Jafnframt var lögð áhersla á að
draga úr skaðanum, sem birting
nafnanna hefur valdið. Líklegt er þó
að færa verði ýmsa til í starfi, til að
tryggja starfsfrið þeirra og öryggi.
Robin Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði á fimmtudag að
maðurinn sem stæði á bak við birt-
ingu nafnanna væri fyrrverandi
starfsmaður bresku leyniþjónust-
unnar, Richard Tomlinson að nafni.
Tomlinson er sagður reiður út í
fýrrverandi vinnuveitendur sína en
hann var rekinn frá leyniþjónust-
unni, SIS, sem eitt sinn var kölluð
MI6, árið 1995.
Sjálfur harðneitar Tomlinson því
að vera valdur að birtingu nafnanna
en heimildarmenn innan bresku
leyniþjónustunnar fullyrtu að jafn-
vel þótt Tomlinson hefði ekki sjálfur
staðið á bak við birtingu væri full-
víst að upplýsingarnar kæmu frá
honum.
Tomlinson býr í Genf í Sviss og
því geta bresk yfirvöld lítið aðhafst
gegn honum, nema þau fari fram á
það við svissnesk yfirvöld að hann
verði handtekinn og framseldur til
Bretlands. Eitt af því sem þykir
skjóta rótum undir þá kenningu að
Tomlinson sé valdur að birtingu
nafnalistans er sú staðreynd að á
honum er að finna nöfn þriggja
manna sem sagðir eru hafa verið
viðriðnir dauða Díönu prinsessu í
bílslysi í París árið 1997. Sjálfur
hafði Tomlinson sakað bresku leyni-
þjónustuna um það í fyrra að hafa
haft eitthvað með andlát Díönu að
gera.
Tomlinson starfaði á sínum tíma
fyrir leyniþjónustuna í Rússlandi,
Bosníu og Mið-Austurlöndum en
eftir að hann var rekinn úr starfi
reyndi hann að fá útgefna í Ástralíu
bók um störf sín. Var hann hand-
tekinn og ákærður fyrir að hafa
brotið opinberu leyndarlögin. Hann
hlaut tólf mánaða fangelsisdóm en
fékk reynslulausn eftir að hafa af-
plánað sex mánuði af dómnum.
Háskólaprófessor og ráðherra-
sonur á listanum
Fullyrt er að meðal nafna, sem
finna má á listanum, sé m.a. nafn
mikilhæfs fræðimanns við
Cambridge-háskóla, sem sagður er
hafa staðið fyrir ráðningu fjölda
manna í leyniþjónustuna. Jafn-
framt mun nafn sonar eins af fyrr-
verandi ráðherrum í ríkisstjórn
breska Ihaldsflokksins vera á list-
anum, að sögn kunnugra. Að vísu
staðhæfði Robin Cook á fimmtudag
að ekki væru allir þeir, sem nefndir
væru á listanum, tengdir leyniþjón-
ustunni.
„Samt sem áður er birting slíks
nafnalista, og skiptir þá engu máli
hversu margar villur er að finna á
listanum, afar óábyrgt voðaverk."
Cook sagði að Tomlinson, sem er 36
ára, þjáðist af „djúpstæðri og órök-
réttri andúð“ á fyrrum vinnuveit-
endum sínum. „En aðgerðir hans
eru óábyrgar, til skaða og stofna
jafnvel lífi fólks, sem starfað hafa í
leyniþjónustunni, í hættu. Og þær
eru einnig ólöglegar."
Foreldrar Lou-
ise Woodward
handteknir
London. The Daily Telegraph.
BRESKA lögreglan handtók á
fimmtudag foreldra bresku
barnfóstrunnar Louise Wood-
ward, sem sakfelld var fyrir að
hafa orðið kornabarni að bana í
Bandaríkjunum, í tengslum við
rannsókn á meintri misnotkun
þeirra á styrktarsjóði sem sett-
ur var á laggirnar til að greiða
fyrir málsvörn Woodward. Var
foreldrunum sleppt að nýju að
loknum yfirheyrslum og hafa
þau í samtölum við breska fjöl-
miðla neitað öllum sakargift-
um.
Lögreglan hóf rannsókn eftir
að eiginmaður Elaine Whitfield
Sharp, fyrrverandi lögfræðings
Woodward, hafði staðhæft að
þau Susan og Gary, foreldrar
Louise Woodward, hefðu lagt
fram falsaða reikninga vegna
hótelkostnaðar í Bandaríkjun-
um, á meðan þau biðu þess að
réttað væri í máli Louise, fram
til endurgreiðslu úr styrktar-
sjóðnum.
Eiginmaður Whitfield Sharp
fullyrti að þau Susan og Gary
Woodward hefðu búið ókeypis
hjá sér og eiginkonu sinni í
Massachusetts einmitt á þeim
tíma sem kvittanir hjónanna
gáfu til kynna að þau hefðu ver-
ið á hóteli.
Samskipti Woodward-fjöl-
skyldunnar við Whitfield Sharp-
hjónin versnuðu er á leið réttar-
höldin og frú Whitfield Sharp
var seinna rekin sem einn af
verjendum Woodward.
Barnfóstran var sakfelld í
október 1997 fyrir að hafa ráðið
hinum átta mánaða gamla Matt-
hew Eappen bana en dómurinn
var umdeildur og skipaði dóm-
ari í málinu svo fyrir að Wood-
ward skyldi sleppt úr haldi og
leyft að halda heim til Eng-
lands. Hún leggur nú stund á
laganám.
Susan og Gary Woodward
hafa slitið hjónabandi sínu en
breska lögreglan staðfesti að
þau hefðu verið handtekin
vegna grans um að þau hefðu
falsað umræddar hótelkvittanir,
reikninga upp á rúmlega eina
milljón ísl. króna. Þeim var síð-
an sleppt úr haldi gegn trygg-
ingu og málið sent ríkissaksókn-
ara.