Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Saklaust
fórnarlamb
NATO
Teikn eru á loffci um að samningar séu
innan seilingar í Kosovo-deilunni. Ekki
seinna vænna fyrir Búlgaríu, að mati
búlgarska hagfræðingsins Todor Gradev,
sem segir búlgarskan efnahag í hættu og
að stjórn landsins riði til falls.
Project Syndicate.
NY VIÐMIÐ eru nú notuð í Búlgar-
íu þegar tími er annars vegar. Ann-
ars vegar er miðað við ástandið fyr-
ir Kosovo-stríðið og hins vegar eftir
að það hófst. Áður en stríð hófst í
Júgóslavíu gátu Kostov forsætis-
ráðherra og ríkisstjóm hans hreykt
sér af því að hafa hreinsað til eftir
óstjórn fyrrverandi ríkisstjómar
sósíalista í landinu. Nú er hins veg-
ar svo komið að - rétt eins og brým-
ar yfir Dóná hafa verið sprengdar í
loft upp - áætlaður afgangur af tekj-
um ríkissjóðs hefur farið veg allrar
veraldar vegna hmns í ferðamanna-
iðnaðinum.
Aukinheldur er stöðugleiki í
gjaldeyrismálum, sem komst á þeg-
ar stofnað var til myntráðs, í voða
þar sem verulega hefur saxast á
gjaldeyrisforða landsins.
Þar sem allar brýr yfir Dóná hafa
verið eyðilagðar geta Búlgarar nú
aðeins tryggt aðfóng sín til og frá
Evrópu í gegnum Bosporus-sund.
Þar sem áður var hægt að treysta á
sextán hundmð kílómetra langa
vega-, járnbrauta- og ártengingu
gegnum Júgóslavíu og áfram til
Þýskalands, sem Búlgaría á mest
sín viðskipti við, þarf nú að notast
við afar seinfarna sjóleið frá Svarta-
hafinu gegnum Marmarahaf, Eyja-
haf, Miðjarðarhaf, Atlantshafið,
þaðan til Norðursjávar og Eystra-
salts. Þarf engan að undra að út-
flutningur til Evrópulandanna hefur
hrunið.
Rússar seilast til áhrifa
Ónýtar brýr yfir Dóná valda búl-
görskum efnahag hins vegar ekki
mestum skaða. Það er nefnilega ein
brú uppistandandi yfir ósa Dónár,
við búlgörsku hafnarborgina Rous-
se, sem eitt sinn var mannmörg og
lifandi miðstöð flutninga, en rólegra
hefur þar verið um að litast undan-
farin ár. Hér er um að ræða brúna á
þjóðveginum til Moskvu, og hér
hafa umsvif tekið að aukast dag frá
degi.
Þennan þjóðveg hafa Búlgarar
reynt að forðast í um áratug, bæði í
viðskiptalegu tilliti, sem og í málum
sem tengjast utannTdsstefnunni.
Þeir hafa ítrekað horft í vestur en
Evrópa hefur hins vegar aftur og
aftur lokað dyram sínum í andlit
þeirra, í þetta sinn með skell. Því er
það svo að Rússland hefur öðlast
ákveðið aðdráttarafl, ekki síst þar
sem enn á ný virðist mikill efna-
hagsvandi vera yfirvofandi, án þess
að Búlgarar hafi nokkuð til hans
unnið, sem veldur því að nokkur bit-
urleiki hefur tekið að grafa um sig í
brjósti þeirra.
I nýlegri skýrslu Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins (IMF) og Alþjóða-
bankans er því spáð að í öllum lönd-
unum, sem landamæri eiga að Jú-
góslavíu, nema Ungverjalandi og
e.t.v. Rúmeníu, muni stríðið verða
til þess að verg þjóðframleiðsla
hrapi um 5%. Búlgarar óttast hins
vegar að bakslagið verði enn verra.
Burtséð frá þeim skaða sem efna-
hagur Búlgaríu verður fyrir veldur
Kosovo-deilan miklu uppnámi í búl-
görskum stjórnmálum. íbúar
Búlgaríu, sem em eina þjóðin í A-
Evrópu sem tókst að binda enda á
valdatíma kommúnista án blóðsút-
hellinga, em ergilegir yfir því að
eiga allt í einu á hættu á að dragast
inn í annarra manna stríð. Slíkar
áhyggjur em skiljanlegar í Ijósi
þess að herþotur NATO fljúga dag-
lega yfir höfðum íbúa Búlgaríu, eft-
ir að hafa lokið árásarferðum sín-
um, og jafnvel kemur fyrir að ein og
ein afvegaleidd sprengja lendir í út-
hverfum Sófíu. Engin meiðsl hafa
enn orðið á fólki en fregnir hafa
borist um það frá Serbíu að Serbar
neyði fólk af búlgörsku bergi brotið
til að flytjast nær átakalínunni, lík-
lega til þess að grafa skurði eða svo
því megi beita sem mannlegum
varnarskjöldum gegn sprengjum
NATO. Almenningur kennir stjóm-
völdum um að þessu fólki bíði slík
örlög.
Reuters
UNGUR Búlgari veifar búlgarska fánanum og hrópar vígorð gegn Atlantshafsbandalaginu (NATO) í höfuð-
borginni Sofíu. Þúsundir Búlgara héldu í mótmælagöngu er fyrir lá að rikisstjórnin hefði veitt ormstuþotum
NATO leyfi til að fljúga innan lofthelgi Rúmeníu.
Ottast að stríðið breiðist út
Búlgarar hafa hins vegar mestar
áhyggjur af því að Kosovo-sagan
muni endurtaka sig í Makedóníu,
önnur holskefla flóttafólks byrji að
streyma inn í Búlgaríu sem þar með
myndi valda því að stríðið og hörm-
ungar þess færðust yfir á búlgarskt
landsvæði.
Hvað svo sem líður gífuryrðum
fyrrverandi kommúnista í stjómar-
andstöðunni tókst stjómvöldum í
Makedóníu og Búlgaríu nýlega að
leysa fjölda langvinnra ágreinings-
efna. Svo snilldarlega tókst til, við
lausn deilumála ríkjanna, að Banda-
ríkin, Bretland, Þýskaland, Evrópu-
sambandið og jafnvel Grikkland sáu
ástæðu til að lýsa ánægju sinni, og
hafa Grikkir þó jafnan verið tregir
til að hrósa búlgörskum nágrönnum
sínum.
Stríðið í Júgóslavíu hefur hins
vegar hleypt svo miklum eldmóði í
félagsskap fyrrverandi kommúnista
í Búlgaríu að þeir fordæmdu samn-
ingana við Makedóníu sem svik, og
þeir hafa jafnframt sagt stjóminni
til syndanna fyrir að stuðla að því
að Búlgaría drægist inn í stríðið,
með þeirri ákvörðun sinni að leyfa
NATO að fljúga um lofthelgi
Búlgaríu.
Sá ótti sem menn bera í brjósti,
um að stríðið breiðist út, virðist
fyllilega raunhæfur í hugum fólks í
Búlgaríu. Allir búlgarskir karlmenn
hafa gegnt herskyldu, og margir
þeirra muna þá tíð þegar hægt var
að koma skriðdrekasveitum Rússa
flugleiðis til Búlgaríu á einungis ör-
fáum klukkustundum. Þeir vita að
NATO hefði getað lokið því erindi,
sem bandalagið telur sig eiga við
Milosevic, á örfáum dögum, hefði
NATO einfaldlega kært sig um. Af
því að Bandaríkjin og Evrópuríkin
vilja ekki stofna lífum hermanna
sinna í hættu er lífi íbúa landa eins
og Búlgaríu stefnt í voða í staðinn.
Það er ekki hægt að ganga að
stöðugleika á Balkanskaganum vís-
um. Flóttafólk getur ekki eytt
næsta vetri í tjöldum rétt innan
landamæra Makedóníu. Fremur en
deyja úr hungri eða frjósa í hel mun
fólkið færa sig um set og hvert svo
sem það mun taka stefnuna þá mun
pólitísk óreiða fylgja í kjölfarið í við-
komandi landi. Því blasir við að
þetta stríð getur breiðst út með
ýmsum öðram hætti en þeim að Ma-
kedónía og Búlgaría drægjust með
beinum hætti inn í stríðið. Stríð
gæti skollið á einfaldlega með al-
mennri stjórnarkreppu enda löngu
vitað að stjómmálamenn, jafnvel
þeir sem ekkert vilja frekar en að
láta gott af sér leiða, hafa ávallt átt
erfitt með að bregðast við þeirri
holskeflu óánægju sem óhjákvæmi-
lega fylgir mannlegri eymd.
Evrópa opni dyrnar
og hleypi Búlgörum inn
Og hver eru svo viðbrögð Evr-
ópusambandsins við vandamálum
Búlgaríu? Jú, lögspekilegir erind-
rekar þess rannsaka nú málsókn á
hendur Kremikovtsi-stálverksmiðj-
unnar í nágrenni Sófíu vegna ásak-
ana um að verksmiðjan hafi sleppt
ólöglegum spilliefnum út í náttúr-
una. Búlgarska ríkisstjómin á erfitt
með að selja verksmiðjuna, sem
rekin hefur verið með tapi, jafnvel
þótt verðið sé málamyndaverð, einn
búlgarskur Lev.
En jafnvel slíkt gjafverð mun
reynast of hátt komi ESB í veg fyrir
innflutning stáls frá verksmiðjunni
til aðildarlanda ESB. Loforð, sem
Búlgaríustjóm gaf IMF „fyrir
Kosovo“, um að selja eða loka sex
hundrað ríkisfyrirtækjum til viðbót-
ar áður en júlímánuður er allur fel-
ur í sér að fleiri verksmiðjum verð-
ur lokað á dag en NATO hefur tek-
ist að loka með umfangsmiklum
sprengjuherferðum sínum í Serbíu
til þessa. Þessar lokanir gætu, auk
alls annars, valdið pólitískum óróa í
Búlgaríu.
I stað þess að Evrópa opni dyr
sínar á slíkri ögurstundu þurfa
fmmkvöðlar í búlgörsku viðskipta-
lífi nú að bíða í biðröðum svo dögum
skiptir fyrir framan sendiráð ESB-
ríkjanna og grátbiðja um vegabréfs-
áritanir.
Á sama tíma standa rússneskir
stjórnarerindrekar fyrir þeim
orðrómi að stjórnin í Sófíu sé treg
til að samþykkja fyrírliggjandi til-
boð um frjálsa markaðssamninga
milli Búlgaríu og Rússlands, nokk-
uð sem fyrrverandi stjóm sósíalista
hafði farið fram á en sem Rússar
bjóða nú Búlgöram af einstakri
tækifærismennsku.
Undir lok útsendingar útvarps-
stöðvarinnar Radio Sofía nýlega var
upplýst að þau 190 loftvarnarbyrgi,
sem byggð vora á tímum Stalíns í
miðborg Sófíu, eru enn í góðu standi
og gætu hýst almenning landsins.
Fæstir Búlgarar kæra sig um að
dúsa í loftvarnarbirgjum eða þurfa
að skríða aftur í öruggt skjól undir
pilsfaldi rússneska bjarnarins.
Búlgaría þarfnast beins og breiðs
vegar inn í Evrópu. Slíkar sárabæt-
ur eru ekki nema eðlilegar vegna
þeirrar ógnar sem nú steðjar að
stöðugleika og tilveru landsins,
vegna stríðsreksturs NATO í Jú-
góslavíu.
Höfundur er einn af stjórimrmnnn-
um Club 2000, samtökum búlgar-
skra hagfræðinga og menntamanna,
sem aðsetur hafa í Sófiu.
Róttækir andstæðingar loftárása NATO kveðnir f kútinn á átakaflokksþingi
Reuters
POKI fylltur málningu var
sprengdur á höfði Joschka
Fischers utanríkisráðherra á
flokksþinginu á fimmtudag.
Bonn. Reutcrs.
Græningjar sýndu nýja hlið
ÞYZKIR Græningjar, sem standa ásamt jafnað-
armönnum að þýzku ríkisstjóminni, stóð í gær að
flestra mati uppi sem þroskaðri og sterkari
stjómmálaflokkur, eftir hávaðasamt átakaflokks-
þing í Bielefeld á fimmtudag þar sem róttækir
andstæðingar hernaðaraðgerða Atlantshafs-
bandalagsins í Júgóslavíu vora kveðnir í kútinn
og hugsanlegri upplausn ríkisstjórnarsamstarfs-
ins þar með afstýrt.
Þýzkir stjórnmálaleiðtogar, leiðarahöfundar
dagblaða og fréttaskýrendur vora á einu máli um
að Græningjaflokkurinn hefði sýnt þroska með
því að kveða niður háværar kröfur róttækra frið-
arsinna á vinstrivæng hans um að loftárásum
NATO á Júgóslavíu skyldi tafarlaust hætt. Hefði
flokksþingið samþykkt slíka tillögu hefði að öll-
um líkindum verið úti um stjómarsamstarf
Græningja og SPD, þýzka jafnaðarmannafiokks-
ins.
„Græningjar hafa horfzt í augu við raunvera-
leikann, við stríðið og stjómina sem þeir era
þátttakendur í,“ hefur Reuters eftir Joachim
Raschke, stjórnmálafræðingi í Hamborg. „Þeir
hafa sýnt að þeir era færir um að taka nauðsyn-
legar ákvarðanir. Þeir drápu málinu ekki á
dreif.“ Engu að síður er klofningur innan raða
þeirra áberandi, enda rekur flokkurinn rætur
sínar til friðarhreyfingarinnar, sem var mjög
sterk í landinu á dögum kalda stríðsins.
Vegið að Fischer
Joschka Fischer, utanríkisráðherra og einn
helzti leiðtogi Græningja, varði með oddi og egg
stefnu stjómarinnar í ávarpi sínu á flokksþing-
inu, sem hann fékk reyndar ekki frið til að flytja
fyrir hrópum og blístri hins háværa minnihluta
róttæklinga. Hann þurfti reyndar að gera hlé á
ávarpinu og leita sér læknishjálpar á næsta
sjúkrahúsi eftir að hinir róttæku friðarsinnar
sýndu „andúð“ sína á ofbeldi í verki með því að
grýta plastpoka fylltum málningu og smjörsýra í
höfuðið á Fischer, sem varð til þess að önnur
hljóðhimnan sprakk.
En þótt tillaga um tafarlausa stöðvun loft-
árásanna hefði verið felld, samþykkti þingið til-
lögu - sem þó er ekki bindandi - þar sem NATO
er hvatt til að lýsa yfir tímabundnu vopnahléi til
þess að búa til svigrúm til samninga um lausn
Kosovo-deilunnar.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar upplýsti í gær að
Gerhard Schröder kanzlari væri ánægður með
niðurstöðu flokksþingsins „vegna þess að hún
styrkir stöðu utanríkisráðherrans". Sagði tals-
maðurinn ríkisstjórnina telja niðurstöðuna
styrkja viðleitni stjórnarinnar til að ná fram póli-
tískri lausn á Kosovo-deilunni eins fljótt og auðið
væri. Vamarmálaráðherrann Rudolf Scharping
sagðist í gær ekki munu bera tillöguna um tíma-
bundið hlé á loftárásunum áfram til forystu
NATO.