Morgunblaðið - 15.05.1999, Page 38
38 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
HLUTI Stúlknakórs Keflavíkur ásamt sendiherranum Jóni Baldvini
Hannibalssyni.
Stúlknaraddir
í Keflavík
STÚLKNAKÓR Tónlistarskólans
í Keflavík heldur tónleika í
Frumuleikhúsinu við Vesturbraut
í Keflavík í dag, laugardag, kl. 17.
Þetta eru jafnframt vortónleikar
Tónlistarskólans í Keflavík.
Kórinn er nýkominn heim úr
tónleikaferð til Bandaríkjanna
þar sem hann tók þátt í kóramót-
inu American Sings í Washington
D.C. 1. maí sl. ásamt 10.000 ung-
mennum frá Ameríku. Kórinn er
sá fyrsti frá Evrópu til að taka
þátt í þessu móti, sem haldið var
nú í 10. sinn. Einn kór var frá Ba-
hama-eyjum.
Stúlkurnar sungu dagskrá sína
á útisviði, ásamt því að syngja
með öllum hinum kórunum fimrn
lög með „kóreógrafíu“.
Kórinn söng einnig í skemmti-
garðinum Kings Dominion, sem
er í eigu Paramount-kvikmynda-
samsteypunnar. Kórinn heimsótti
alþjóðlegan skóla í borginni, Was-
hington International School, og
söng og kynnti tónlist og náttúru
Islands. Þá voru sendiherrahjónin
heimsótt og sungu stúlkurnar
bæði utan- og innandyra í sendi-
herrabústaðnum. Einnig söng
kórinn í Sligo-grunnskólanum
sem Aðventistar reka og fengu
stúlkurnar m.a. heimboð til
Kanada á næsta ári.
Stjórnandi kórsins er Gróa
Hreinsdóttir, tónlistarstjóri Selja-
kirkju, og undirleikari er Karen
Sturlaugsson, skólastjóri Tónlist-
arskólans í Keflavík.
Maraþontónleikar í
Félagsheimili Kópavogs
250 NEMENDUR úr Kársnes- og
Þinghólsskóla syngja á maraþontón-
leikum í Félagsheimili Kópavogs
laugardaginn 15. maí. Sungið verður
frá kl. 9 að morgni til kl. 19 að kveldi.
Fram koma fimm kórar, Litli kór
Kársnesskóla, Stúlknakór og
Drengjakór Kársnesskóla, Bamakór
Kársness og Skólakór Kársness.
Yngstu kórsöngvararnir eru 8 ára og
þeir elstu 16.
Á efnisskránni eru 120 lög frá fimm
heimsálfum, íslenskar söngperlur,
klassísk kórverk, þekktir karlakórs-
söngvai- og vinsælar dægurflugur.
Skólakór Kársness ríður á vaðið kl.
9 og gefst áheyrendum kostur á að
ráða efnisskránni og geta þeir valið
sér óskalög. Hljóðfæraleikarar úr
röðum kórfélaga leika undir í
nokkrum lögum.
Stjómandi kóranna er Þórunn
Bjömsdóttir en undirleikari er Mar-
teinn H. Friðriksson.
Sami aðgöngumiði gildir allan dag-
inn.
Síðasta útskrift MHÍ
MYNDLIST
MHÍ Laugarnesi
MYNDVERK
ÚTSKRIFTARNEMAR
Opið frá kl. 14-18 til sunnudagkvölds
16 maí. Aðgangur ókeypis. Sýningar-
skrá 600 krónur.
ÞAÐ ERU mikil tímahvörf í sögu
íslenzkrar myndmenntar er Mynd-
lista- og handíðaskólinn, sem starfað
hefur óslitið í 60 ár er lagður niður,
en verður þess í stað deild í Listahá-
skóla Islands. Allt er í þá veru ómót-
að og í lausu lofti enn sem komið er,
þrátt fyrir ótal fundahöld á síðustu
árum, að ekki er með nokkru móti
hægt að leggja hlutlægt mat á þær
breytingar sem í vændum eru. Bíður
betri tíma er línur skýrast, en þó er
ýmislegt undarlegt við þessar breyt-
ingar, því Ijóst má vera að húsnæðið
á Laugarnesi hentar alls ekki fyrir
sumar listgreinamar. Þannig væri
vafalítið einfaldasta og ódýrasta
lausnin til lengri tíma litið að byggja
sérhönnuð hús yfir einstakar list-
greinar og þá einkum myndlistina.
Er hér svæði Strætisvagna við
Kirkjusand kjörið, og gæti lífrænt
hönnuð bygging/byggingar á auga-
bragði breytt því fyrir sjónhimnurn-
ar vélræna vandræðahverfi í stolt
borgarinnar... En þetta á ekki að
vera orðræða um þau viðkvæmu mál
heldur skal strax vikið að árlegri út-
skriftarsýningu MHI í sláturhús-
byggingunni á Laugarnesinu, þó
öðru fremur rétt vakin athygli á
framkvæmd sem kemur aldrei fram-
ar í þessari mynd. En þá er líka
brennandi spurning, hví ekki var lit-
ið til baka og saga skólans rifjuð upp
í hnotskum, en fortíðin virðist víst
ekki til í hugum sumra, einungis núið
naflinn og ögurstundin. Mætti þó
ætla að með allri þeirri hátækni sem
við blasir hefði það verið metnaðar-
fullt verkefni fyrir hugmyndaríka
hönnuði. Minna má enn einu sinni á
þau sannindi, að nútímalist ber hæst
í vinnu þeirra sem em meðvitaðir
um sitt nánasta umhverfi, núið og
fortíðina en ekkert eitt af þessu
þrennu.
Þegar inn er komið blasir afrakst-
ur fatahönnunar við, og er það
hreint út sagt eitt athyglisverðasta
framlagið, í öllu falli þokkafyllsta.
Hér em faldir miklir möguleikar,
því veigurinn felst ekki í sjálfri
blessaðri ullinni, efniviðinum og
UPPKAST að stól í formi handar; útskriftarverkefni Guðmundar Lúð-
víks Grétarssonar, skúlptúrdeild.
FATAHÖNNUN eftir Bergþóru
Guðnadóttur, útskriftarverk-
efni úr textíldeild.
magninu, heldur hönnuninni og hug-
arfluginu, að ógleymdri mai'kaðs-
setningunni.
Gott að fá svona notalegar mót-
tökur, en sannast sagna sker sýn-
ingin í heild sig lítið úr þeim fyrri á
þessum stað, nema að hátæknin er
til muna áþreifanlegri og hún er til
muna snyrtilegri í uppsetningu, en
þó stundum langt á milli mynda. En
hér kom það neyðarlega fram í
annami heimsókn, að hátæknin er til
lítils ef tækin eru úr sambandi, eng-
inn í nágrenninu, og engar leiðbein-
ingar á tækjunum. Þá eru merking-
ar ekki nógu góðar né upplýsingar
um tilorðningu verka, til að mynda
ekki í sérviskulegri sýningar-
skránni, en hins vegar allar upplýs-
ingar um höfunda ásamt hugleiðing-
um um eigin verk, sem er besta mál.
Skilvirkni er þó öllu æðra í slíkum
gjörningi og öll ónákvæmni kemur
gestinum í opna skjöldu og ruglar
hann í ríminu. Þá saknar maður
handgerðra hluta og býsna er þjóð-
arsálin og landið langt í burtu í
flestu sem fyrir augu ber. Hins veg-
ar skortir ekki hæfileikana, ungir
eru gegnheilir en ekki hálfir á landi
hér og því margt er vel gert og ann-
að í suðupotti heilbrigðrar gerjunar.
Skrifari skoðaði sýningar útskriftar-
nema í tveim listaskólum í Berlín í
desember, Akademie der Kúnste og
Hochschule der Kúnste og sér satt
að segja ekki mikinn mun á þeim öll-
um þrem, en tilraunirnar voru þó
einhvern veginn í réttara umhverfi
ytra og í meiri samhljómi við firr-
ingu heimsborgarinnar. Við höfum
af nógu að taka í okkar eigin um-
hverfi og meira að segja svo miklu
að við megum vera öfundsverðir,
eins og fram kemur í verkum út-
lendra núlistamanna sem heimsótt
hafa landið undanfarna áratugi og
þurfum því síður að leita langt yfir
skammt.
Sýningin ætti þó engan að svíkja
sem sækir hana heim með opnum
huga og þá er að drífa sig á staðinn
áður en hurð fellur að stöfum fyrir
fullt og allt.
Bragi Ásgeirsson
1
;
;
k
í
Morgunblaðið/Golli
DANTE við verk sín í Galleríi
Geysi.
Indjánalist
í Galleríi
Geysi
í GALLERÍI Geysi, Hinu Húsinu
v/Ingólfstorg, mun Dante opna mál-
verkasýningu í dag, laugardag, kl.
16.
Dante á uppruna sinn að rekja til
Osage-ættbálksins í Oklahoma,
Bandaríkjunum. Verk Dante endur-
spegla ólíka menningarheima, hinn
vestræna heim og heim frumbyggja
N orður-Ameríku.
Sýningin í Galleríi Geysi stendur
til 30. maí og er opin mánud.-
fimmtud. frá kl. 8-22. Föstudaga frá
kl. 8-19 og um helgar frá kl. 13-18.
Söngskemmtun í
Egilsstaðakirkju
SÖNGSKEMMTUN KÓRS fé-
lagsstarfs aldraðra í Reykjavík
(KFAR) og kóra aldraðra á Héraði
verður í Egilsstaðakirkju sunnu-
daginn 16. maí kl. 15. KFAR verð-
ur á söngferðalag helgina 14.-16.
maí og mun syngja fyrir Héraðs-
búa og nágrenni ásamt kórum
aldraðra á Héraði.
KFAR skipa 48 konur og karlar
og kemur fram sem blandaður kór,
kvennakór (Hvannir) og karlakór
(KKK). Stjórnandi kórsins er Sig-
urbjörg Petra Hólmgrímsdóttir.
Undirleikari er Arnhildur Val-
garðsdóttir. Söngstjóri fyrir kór
eldri borgara á Héraði er Kristján
Gissurarson.
--------------
Myndlistar-
sýning í
Kirkjuhvoli
MYNDLISTARSÝNING á vegum
Félagsstarfs aldraðra í Garðabæ,
verður opnuð í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ í dag, laug-
ardag, kl. 13. Á sýningunni eru
málverk, glerlist, leirlist og keram-
ik.
Sýningin verður opin frá kl.
13-17 til og með fimmtudeginum
20. maí.
Eyjólfur Eyjólfsson
Burtfarar-
próf Eyjólfs
Eyjólfssonar
EYJÓLFUR Eyjólfsson heldur
flaututónleika í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar, Hásölum, í dag,
laugardag kl. 17. Tónleikarnir eru
lokaáfangi burtfararprófs í þver-
flautuleik. Ingunn Hildur Hauks-
dóttir leikur með Eyjólfi á píanó.
Á efnisskránni eru Sónata í h-
moll eftir J.S. Bach, Grande Sonate
concertante eftir Friedrich Kuhlau,
Sónatína eftir O. Taktakishvilli og
ný samið einleiksverk eftir Hildi-
gunni Rúnarsdóttur.
Eyjóflur hefur stundað flautunám
við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og
hefur aðalkennari hans verið Gunn-
ar Gunnarsson ílautuleikari.
Síðustu
sýningar á
Sex í sveit
SÍÐUSTU sýningar á Sex í sveit í
Borgarleikhúsinu verða í dag ,21.
og 29. maí nk.
I fréttatilkynningu segir að Sex
í sveit sé dæmigerður flækjufarsi
þar sem margfaldur misskilningur
vindur upp á sig.
Leikendur eru: Bjöm Ingi
Hilmarsson, Edda Björgvinsdótt-
ir, Ellert A. Ingimundarson, Gísli
Rúnar Jónsson, Halldóra Geir-
harðsdóttir og Rósa Guðný Þórs-
dóttir.
----------------
Tónleikar
í Stykkis-
hólmskirkju
TÓNLEIKAR verða haldnir í
Stykkishólmskirkju sunnudaginn
16. maí kl. 16. Þar verða flutt verk
eftir Allessandro Scarlatti, Johann
Sebastian Bach, Georg Friedrich
Handel, Henry Purceil og
Aldrovandini.
Flytjendur á tónleikunum eru
þau Kristín R. Sigurðardóttir,
sópran, Jóhann Stefánsson,
trompett og Brynhildur Ásgeirs-
dóttir, píanó.
JÖKULL, olía á striga, verk
Önnu Jóa.
Anna Jóa sýnir
í Listvangi
NÚ stendur yfir málverkasýning
Önnu Jóa í galleríi Listvangi, Lauga-
vegi 170, 3. hæð, en það er gallerí
verðbréfafyrirtækisins Fjárvangs.
Til sýnis eru 12 ný verk auk mynd-
raðar sem hún sýndi nýlega í
Slunkaríki á ísafirði.
Anna Jóa hefur lokið sex ára list-
námi í Reykjavík og París. Hún er
nú á leið til St. Pétursborgar í Rúss-
landi þar sem henni bauðst þátttaka
í samsýningu í Ríkislistaakademí-
unni sem opnuð verður 27. maí nk.
Sýningin í húsakynnum Fjárvangs
stendur fram á sumar og er opin á
skrifstofutíma.