Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 61
UMRÆÐAN
Athugasemd við grein
kaupmanns í kortastríði
SIGURÐUR Lárusson kaupmað-
ur hefur um árabil barist gegn notk-
un gi’eiðslukorta hér á landi. Hann
hefur einnig barist gegn þeim eðli-
legu viðskiptaháttum að greiðsluvið-
takendur (kaupmenn og aðrir sölu-
aðilar) borgi greiðslukortafyrirtækj-
unum fyrir þá þjónustu, hagi’æði og
greiðsluábyrgð sem þeir njóta.
Hann hefur ávallt kosið að líta fram-
hjá þeirri staðreynd að meðhöndlun
peningaseðla, myntar og ávísana er
kaupmönnum kostnaðarsöm. Þess-
ara sjónarmiða gætir enn einu sinni
bankastofnana þegar kostnaður er
gi-eiddur af óskyldum aðila (þriðja
aðila). Mér er ekki fullljóst hvað Sig-
urður á við. Hins vegar fullyrði ég
að milli greiðslukortaíyi-irtækjanna
Europay íslands og Visa íslands,
sem bæði eru í eigu banka og spari-
sjóða, ríkir mikil samkeppni. Um
það geta bæði korthafar og greiðslu-
viðtakendur borið vitni. Hið sama
má segja um samkeppni milli ein-
stakra banka og sparisjóða. Þeir
keppa af krafti um innlán, þeir
keppa um útlán, þeir keppa á sviði
greiðslumiðlunar og á fjölmörgum
sviðum öðrum. Um það geta við-
skiptavinir þeirra borið vitni.
Verðbólguvaldur
í gi-ein sinni bendir Sigurður á að
hér á landi sé undirliggjandi verð-
bólga og að hún sé heimatilbúin af
bankakerfinu. Þetta er firra. Bank-
amir hafa verið ötulir talsmenn þess
að allt kapp verði lagt á að varðveita
þann dýrmæta stöðugleika í efna-
hagsmálum sem ríkt hefur hér á
landi um nokkurra ára skeið. Þessi
stöðugleiki hefur skilað
þjóðinni umtalsverðum
lífskjarabata. Banka-
menn minnast verð-
bólguáranna með hryll-
ingi og ekki síður eftia-
hagslægðarinnar á ár-
unum 1988-1993 sem
lék afkomu bankanna
grátt. Staðreyndin er
sú að síðustu ár hafa
verið þjóðinni gjöful.
Það ríkir bjartsýni
meðal fyrirtækja og al-
mennings og ótrúlegur
uppgangur hefur verið
á mörgum sviðum efna-
hagslífsins. Það er ekki
bönkunum að kenna að
skortur er á vinnuafli í ýmsum
greinum og launaskrið, svo nefnt sé
eitt dæmigert þenslueinkenni. Það
er ekki bönkunum að kenna að mörg
fyrirtæki vilja ráðast í
ýmiss konar fram-
kvæmdir sem hafa set-
ið á hakanum á liðnum
árum eða eru viðbrögð
þeirra við nýjum að-
stæðum á markaði. Það
er ekki bönkunum að
kenna að margir ein-
staklingar telja tíma-
bært að endurnýja bfl-
inn sinn, skipta um hús-
næði, fara til útlanda
eða að fasteignaverð
hækkar, svo fleiri
dæmigerð þensluein-
kenni séu nefnd. Það er
því út í hött að kenna
bönkunum um verð-
bólgu hér á Iandi.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Sambands fslenskra viðskiptabanka.
Finnur
Sveinbjörnsson
Greiðslukort
Bankarnir hafa verið
ötulir talsmenn þess,
segir Finnur Svein-
björnsson, að allt kapp
verði lagt á að varð-
veita þann dýrmæta
stöðugleika í efnahags-
málum sem ríkt hefur
hér á landi um nokk-
urra ára skeið.
í grein Sigurðar í Morgunblaðinu 28.
apríl sl. Megintilgangur greinarinn-
ar er reyndar ábending til Geirs H.
Haarde, fjármálaráðherra. Geir er
auðvitað fullfær um að svara fyrir
Ísig telji hann ástæðu til. Ég tel hins
vegar nauðsynlegt að koma á fram-
færi afstöðu bankanna til þriggja at-
riða í grein Sigurðar.
Sérlög um greiðslukort
ISigurður fullyrðir að bankakerfið
óttist ekkert meira en sérlög um
greiðslukort. Þetta er ekki rétt.
Hins vegar heldur bankakerfið því
fram að sérstök lög um greiðslukort
séu óþörf. Slík sérlög finnast hvergi
í Bandaríkjunum eða Evrópu nema í
Danmörku eftir því sem næst verð-
ur komist. Það getur ekki verið til-
viljun að ekkert annað vestrænt ríki
hefur talið ástæðu til að setja sérlög
á þessu sviði.
I dönsku lögunum er ákvæði sem
| bannar kortafyrirtækjum að krefja
! greiðsluviðtakendur um þjónustu-
I gjald vegna kortaviðskipta. Þetta
» gildir þó ekki um viðskipti þar sem
Inotuð eru erlend kort. I slíkum við-
skiptum mun þjónustugjaldið vera
3,25% sem kaupmönnum hér á landi
þætti væntanlega ansi hátt. Ákvæð-
ið um greiðsluskiptingu í dönsku
lögunum hefur reynst meingallað.
Það hefur valdið sífelldum deilum og
tafið eðlilega þróun í kortaviðskipt-
um í Danmörku, sérstaklega notkun
korta í viðskiptum á Netinu og í
fjarsölu. Því kom ekki á óvart að
þessu lagaákvæði skyldi vera breytt
fyrir stuttu. í tengslum við þá laga-
breytingu kom fram að til athugun-
ar er að nema ákvæðið að fullu úr
gildi innan nokkurra ára.
Bankamenn hér á landi telja að
ýmislegt megi læra af þessum
hremmingum Dana. I fyrsta lagi er
varhugavert að setja sérstök lög um
tiltekið svið viðskipta sem er í örri
þróun. Almennar lagareglur duga í
langflestum tilvikum. Sé þess talin
brýn þörf má breyta þeim í einstök-
um atriðum. I öðra lagi geta illa
samin sérlög, sem ætlað er að þvinga
fram tiltekna viðskiptahætti áður en
markaðurinn hefur fengið ráðrúm til
að þróa og prófa mismunandi leiðir,
tafið íramþróun í viðskiptum. Því
hafa bankarnir ávallt lagst gegn
hugmyndum um sérlög um greiðslu-
kortastarfsemi hér á landi.
Samkeppni í bankakerfinu
Sigurður heldur því fram að sam-
keppnislög séu þverbrotin, enda sé
ómögulegt að koma á eðlilegri sam-
keppni milli einstakra banka eða
Fóðu glœsilegan
uppskriftabœkling
í bakaríinu þínu
Reykjavík
Bakarameistarinn
Bakarí Sandholf
Bakariið Austurveri
Björnsbakarí Vesturbœ
Breiðholtsbakarf
Hjó Jóa Fel
Sveinsbakarí
Kópavogur
Kornið
Reynir bakari
Þórsbakarí / Þrír fólkar
Ömmubakstur
Sveinsbakarí
Hafnarfjörður
Bœjarbakarí
Kökumeistarinn
Njarðvík
Valgeirsbakarí
Keflavík
Nýja bakaríið
Sigurjónsbakarí
Grindavík
Hérastubbur
Mosfellsbœr
Mosfellsbakarí
Akranes
Harðarbakarí
Borgarnes
Geirabakarí
Ólafsvík
Brauðgerð Ólafsvíkur
Pafreksfjörður
Nýja bakaríið
ísafjörður
Gamla bakaríið
Hvammstangi
Brauð- og kökugerðin
Sauðórkrókur
Sauðórkróksbakarí
Dalvík
Bakaríið Axið
Akureyri
Kristjónsbakarí
Húsavík
KÞ - Brauðgerð
Neskaupstaður
Fjarðarbrauð
Hella
Kökuval
Selfoss
Guðnabakarí
Hveragerði
Hverabakarí
LandiMmbjw)
búitimnwi
iwtm'
CIP SAMTÖK
-5- IÐNAÐARINS