Morgunblaðið - 15.05.1999, Qupperneq 74
74 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
-i MANN EIZ/Í&
I ReYNA AÐ I
I ÞeóAS-rj i
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
LILLU-kórinn
Frá Guðmundi Norðdahl:
ÞEGAR kvennakórar eða bama-
kórar syngja tandurhreint og túlka
lög sín vel, þá dettur mér alltaf í
hug englasöngur. Eg hefi fylgst
með kórsöng á Islandi í meira en
hálfa öld: kirkjukórum, samkórum,
karlakórum, bamakórum og ein-
staka uppákomum t.d. flutningi á
ýmsum stórverkum tónbókmennt-
anna fyrr á öldinni sem er að líða.
Yfirleitt vora blönduðu kóramir
ekki sérlega áheyrilegir héma áður
fyrr og var það blessuðu kvenfólk-
inu „að kenna“ (og svo að sjálfsögðu
stjómendunum, sem líklegast
vegna reynsluleysis leyfðu „gliss“ á
milli tóna og björtu kven-raddirnar
vora oft á tíðum of lágar á háu tón-
unum. Við stráka-gárangarnir köll-
uðum þetta ,,kvenna-hví“).
En þetta era liðnir tímar, nú er
öldin önnur. Kirkjukórarnir era
orðnir hver öðram betri. Blandaðir
kórar syngja hvert stórverkið af
öðra og era ekki eftirbátar stórkór-
anna erlendis.
Bamakóramir syngja sinn engla-
söng og þegar kvenfólkið tekur sig
til, þá þarf ekki um að spyrja; þær
taka þátt í fagursöngnum.
Lillu-kórinn, kenndur við Ingi-
björgu Pálsdóttur (Lillu)kórstjóra
var stofnaður 1992 á Hvammstanga
V-Hún.
Undirritaður var viðstaddur tón-
leika þeirra 2. maí síðastliðinn. Kór-
inn var á söng- og skemmtiferðalagi
um Suðurland. Samsöngurinn fór
fram í prýðilegu „tónleikahúsi“, það
er nýju fallegu kirkjunni í Þorláks-
höfn. Þessar 30-40 konur sungu
ásamt „kirjukór“ staðarins (kvenna-
kór), tandurhreint og yndislega með
dyggri aðstoð og undirleik Guðjóns
Pálssonar píanóleikara. Guðjón hef-
ur unnið með þessum konum um
árabil.
Söngskráin var fjölbreytileg og
hvert lagið öðra betra. Sungin vora
létt sumarlög, innlend og erlend.
Þetta var góður og mannbætandi
samsöngur.
Heimakonur, kirjukórinn, sungu
nokkur lög undir stjóm Önnu Sig-
urbjömsdóttur og var það í fyrsta
sinn sem sá flokkur kom fram á sér-
stakri söngskemmtun.
Einnig sungu kórarnir saman og
var það vissulega áhrifamikið.
Þökk fyrir ánægjulegan og góðan
söng.
GUÐMUNDUR NORÐDAHL,
Hverfisgötu 90 A, R.
I KNOWTHE
AMöWERÍ I KNÖU)
THE AN5WER'
50RRy,
MA‘AM..I
WA5 JU5T
0LUFFIN6..
"6LUFFIN6."..
YOU KNOU)..
"6AME5MAN5HIP
'Zr
THAT‘5 KI6HT...
L00KIN6 F0KTHAT
LITTLE ED6E..
YE5,MA'AM..I
KN0U) EVERYTHIN6
BUTTHE AN5WERS..
Ég veit svarið!
Ég veit svarið!
Afsakaðu, „Plata“ Þú veist...
kennari, ég var „leikni f að nota leik-
bara að plata.. reglumar sér f hag“
Rétt er það..
leita að þessum
litla broddi..
Já, kennari,
ég veit allt
nema svarið..
Eftir kosning’ar
Frá Guðmundi Sigvaldasyni:
ÞAÐ var sannarlega dapurlegt að
sjá Halldór Ásgrímsson á sunnu-
dagskvöldið 9. maí sl. ráðast á
fréttamenn Sjónvarpsins fyrir að
hafa spurt hann um gjafakvótaeign
fjölskyldu hans í umræðuþætti
nokkram dögum fyrr. Að sjálfsögðu
var það skylda fréttamannanna að
gera slíkt í þessum þætti og fram-
koma Halldórs á sunnudagskvöldið
era hreinir ritskoðunartilburðir,
sem ekki er hægt að sætta sig yið.
Hagsmunatengsl Halldórs Ás-
grímssonar og fleiri alþingismanna
við gjafakvótakerfið era meiri en
svo að réttlætiskennd venjulegs
fólks geti sætt sig við setu þeirra á
Alþingi, hvað þá í ríldsstjórn. Kraf-
an er því sú að Halldór Ásgrímsson
segi af sér þingmennsku, eða að
minnsta kosti taki ekki þátt í ríkis-
stjóm framar.
í nýafstöðnum kosningum fór
mikinn stjómmálaflokkur sem heit-
ir Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð. Hugsanlega nær hann ein-
hvem tíma að standa undir stóra
nafninu sínu, en það gerir hann ekki
meðan hann háir enga baráttu gegn
mesta ójöfnuði og óréttlæti síðari
ára í þjóðfélaginu, gjafakvótakerf-
inu. I hugum margra stendur orðið
„vinstri" fyrir jöfnuð og réttlæti, er
það ekki?
Þá skal tekið undir þau orð
margra á undanfómum dögum að
kosningabaráttan var ennþá slapp-
ari en nokkru sinni fyrr. Þama var í
gangi 2-3 vikna sjónarspil nokkurra
atvinnustjómmálamanna og auglýs-
ingastofa með persónur og ímyndir.
Málefnin voru í bakgranninum og
út af fyrir sig skipti ósköp litlu
hvemig talningin upp úr kössunum
endaði. Útkoman gat ekki orðið
meiri en minniháttar áherslubreyt-
ing.
GUÐMUNDUR SIGVALDASON,
Vestursíðu 6c, Akureyri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að iútandi.