Morgunblaðið - 15.05.1999, Síða 80
80 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Litháinn Vytautas Narbutas er höfundur
sviðsmyndarinnar í Rent sem vakti
mikla athygli frumsýningargesta. Þegar
undirbúningurinn stóð sem hæst hitti
Hildur Loftsdóttir listamanninn.
Sköpunar-
ferlið er para-
dísarmissir
VYTAUTAS nam við lista-
akademíuna í Vilnius, og
þegar á námsárunum var
hann byrjaður að vinna við Þjóð-
leikhúsið og önnur atvinnuleikhús í
landinu.
Söngleikurinn Rent er fimmta
verkefni Vytautasar fyrir Þjóðleik-
húsið, en áður hannaði hann sviðs-
mynd og búninga í Mávinum, Don
Juan, Þremur systrum og Hamlet,
og nú seinast í Músum og mönnum
fyrir Loftkastalann.
Rent byggir á sögu óperunnar
La Boheme eftir Puccini, þar sem
segir frá vinahópi listamanna í
París 1830. Sagan hefur nú verið
færð til nútímans í Nýju Jórvík
„bjórvík, hórvík“, eins og segir í
söngtextanum, þar sem eyðni hefur
tekið við af berklum gamla tímans.
Listaverk verða umhverfi
„Rent er saga um listamenn, en
hinn almenni áhorfandi á að geta
skynjað sínar eigin þrár í ást
þeirra, lífsþorsta og löngun til
sköpunar. Lífskraftur þessa fólks
er gríðarlegur, en því má heldur
ekki gleyma að þau bjóða dauðann
velkominn inn í líf sitt. Fyrir per-
sónurnar í Rent er listin trúar-
brögð, vopn og lausnari," segir
Vytautas.
„Baltasar er að gera áhugaverða
hluti, hann vinnur þetta meira út
frá forsendum leikhúss en söng-
leiks, sem ég er mjög sáttur við,
það gefur mér meira svigrúm.
Sviðsmyndin er blanda ólíkra
stflbrigða. Þar má sjá Síðustu
kvöldmáltíð Da Vincis, hreyfanleg-
ar höggmyndir og innsetningar.
Hliðið er t.d. gert úr flöskum og
veggurinn í popplistarstfl."
- En hvers vegna Síðasta kvöld-
máltíðin?
„Kannski er það fulllangt gengið
að tengja Síðustu kvöldmáltíðina
þessu bóhemalífi. Þó eru krakkarn-
ir í verkinu mjög viðkunnanlegir og
þegar Benni leigusali lokar þau úti
úr íbúðinni þar sem þau þúa, er
málverkið í bakgrunninum. Atriðið
er einskonar jarðarfór, táknræn
fyrir endalok bóhemalífsins.“
- Hvað er þessi einkennilegi
hjólaskúlptúr?
„Hann er reyndar ekki tilbúinn.
A verkið vantar regnhlíf og úr
henni hanga tæki og tól til eitur-
lyfjaneyslu. Hann verður hluti af
svartamarkaðinum, en er einnig
eitt af listaverkunum sem krakk-
arnir hafa gert. Flest listaverkin
eru gerð úr rusli og alls konar hlut-
um sem fólk hefur fleygt og unga
fólkið sankað að sér. Aðrir hlutir
sviðsmyndarinnar hafa einnig tvö-
falt notagildi. Tvö stór borð eru á
sviðinu mestallan tímann og vísa
líka í Síðustu kvöldmáltíðina. Þau
breytast í líkhús þegar þeim er
staflað, í nektarbúUudanssvið með
stöng eða hurðir og fataskápa þeg-
ar þau eru reist upp á endann.
Sviðið í Loftkastalanum er lítið
og það takmarkar alla úrvinnslu á
hugmyndum. En það er alltaf
þannig, á einn eða annan hátt,“ seg-
ir Vytautas.
Kraftaverkið felst
í framsetningunni
- Hvað er mest heillandi við leik-
húsheiminn?
„Það kraftaverk sem fólk getur
orðið vitni að í leikhúsi. Þar getur
allt milli himins og jarðar gerst; allt
sem við sjáum í umhverfi okkar;
allt sem við lesum um í blöðunum.
Fólk lifir og deyr. I lífi þess eru
drama og átök. En kraftaverkið
felst fyrst og fremst í því hvernig
þessi umheimur er settur fram.“
- Hvort fínnst þér áhugaverðara
að vinna við kiassískt verk eins og
Mávinn eða nútíma söngieik eins og
Rent?
„Þetta eru mjög ólík verk og
bjóða því upp á mjög ólíka mögu-
leika í úrvinnslu. Mitt er að greina
verkið og koma því fram á tákn-
rænan hátt. Mávurinn hefur meiri
sálfræðilega dýpt. Sviðsmyndin í
báðum þessum leikritum er heimili.
Austin Powers gert að
halda sig á mottunni
KVIKMYNDAEFTIRLITIÐ í
Singapore hefur gert athuga-
semd við „dónalegt" orðalag í
myndinni Austin Powers. I kjöl-
far þess hafa breytingar verið
gerðar og í stað undirtitilsins
„The Spy Who Shagged Me“ er
nú „The Spy Who Shioked Me“,
samkvæmt dagblaðinu Straits
Times. Ken Low, sem sér um
dreifingu myndarinnar þar í
landi, sagði að eftirlitið hefði
hafnað upphaflega titlinum en
valið orðið „shioked" í staðinn.
Það þýðir „góður“ eða „vinaleg-
ur“ á vissri mállýsku í Singapore.
„Shagged" er hinsvegar breskt
slangur og merkir „kynmök".
' Samkvæmt dagblaðinu taldi
nefndin upprunalega
orðið bæði móðgandi og
dónalegt. „Auglýsinga-
herferð myndarinnar
hefst í Singapore í
júní og þá verða
breytingar gengnar í
gegn,“ sagði Low.
Myndin sem um ræð-
ir er framhald mynd-
arinnar „Austin
Powers:
International
Man of Mystery" frá 1997. Sú
mynd varð geysivinsæl um all-
an heim, en í henni er gert
góðlátlegt grín að leynilög-
reglumyndum sjöunda áratug-
arins.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
VYTAUTAS Narbutas skreytir vegg í New York með Síðustu kvöldmáltíðinni hans Leonardo Da Vinci.
það auðvitað alltaf útkoman sem
skiptir máli. Glíman við að finna réttu
sviðsmyndina reynir alltaf á þolrifin,
og oft er ég svefiflaus dögum saman
þegar ég tek að mér nýtt verkerfni.
Sköpunarferlið er alltaf á einn eða
annan veg paradísarmissir."
Nýr Hamlet
Umfangs-
mikil
fegurð
►EF þú hrífst af leikkonunni
Andy MacDowell og fyrirsætunni
Claudiu Schiffer ættir þú að gera
þér ferð til Berlínar þar sem risa-
stór auglýsing með myndum af
þeim blasir við hjá Kaiser-Wil-
helm-minningarkirkjunni. Kirkj-
an eyðilagðist í heimsstyijöldinni
sfðari og má sín þvf lítils við hlið
fegurðardísanna tveggja sem
margir telja fegurstu konur
heims. L’oréal-fyrirtækið sem á
heiðurinn af auglýsinguimi gaf
rúmar níu milljónir króna til end-
urbóta á kirkjunni sem mun því
væntanlega innan skamms öðlast
fyrri reisn.
Vytautas er giftur Filippíu Elís-
dóttur fatahönnuði, en þau kynnst-
ust við uppfærsluna á Hamlet í
Þjóðleikhúsinu árið 1997. Þau hjón-
in eru nú bæði á fórum með
Baltasar Kormáki til Oðinsvéa þar
sem þau munu setja upp Hamlet
með dönskum leikurum. Uppfærsl-
unni hefur einnig verið boðið í Kon-
unglega leikhúsið í Kaupmanna-
höfn.
- Hvemig fínnst þér að vinna aft-
ur að sama verkefni?
„Það er mjög áhugavert. Upp-
færslan verður öll byggð á nýjum
hugmyndum. Það hefði ekki verið
spennandi að endurtaka sömu sýn-
inguna."
- Ertu ekki að bæta um betur?
„Eg get raunar ekkert sagt um
það þar sem ég veit ekki hvernig
útkoman verður. En hún verður
öðruvísi."
- Hvað fínnst þér best við að
vinna með Baltasar?
„Þessi ákafa og heiðarlega þörf
hans til að skapa, og það er auðvelt
að vinna með honum. Vinnan við
Rent var hálfgert brjálæði, í já-
kvæðum skilningi þess orðs, því við
höfðum mjög takmarkaðan tíma.“
- Svo framtíð þín er á Islandi íís-
iensku leikhúslífí?
„Já, ég vona það.“
- Er eitthvað líkt með íslending-
um og Litháum?
„Já, virðuleiki þjóðanna og
hvernig þær kunna að meta menn-
ingargersemar sínar. Ég kann vel
við þessa þjóð.“
MIKE
Myers í
góðri
sveiflu.
L'ORÉAL
PARIS
é.eii ich es niir wen bin.
DAGBJARTUR Dagbjartsson hefur unnið með Vytautasi að sviðmynd-
inni fyrir Rent.
SVARTIMARKAÐURINN að taka á sig mynd.
í Mávinum brenndi ég innviði
heimilisins til að lýsa sálarlífi fjöl-
skyldunnar, en einstaklingarnir
vilja allir flýja burt. í Rent lýsi ég
listamanna-
heimili, þar
sem persónumar leitast við að
halda sínu heimili og berjast fyrir
því með kjafti og klóm.“
- Pví meiri dýpt, því meirí áskor-
un fyrir þig?
„Já, þannig er það eðlilega. Þó er
Söngleikurinn Rent frumsýndur í gærkvöldi