Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 1
STOFNAÐ 1913
170. TBL. 87. ÁRG. LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
(íeorge
Robertson
Embætti framkvæmda-
stjóra NATO
Tony Blair
tilnefnir
Robertson
London. AP.
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, kvaðst í gær hafa tilnefnt
breska vamarmálaráðherrann
George Robert-
son sem næsta
framkvæmda-
stjóra Atlants-
hafsbandalags-
ins.
„George hefur
hárrétta blöndu
sérfræðiþekking-
ar á vamarmál-
um og pólitískrar
og diplómatískrar
hæfni,“ sagði Bla-
ir við blaðamenn sem fylgdust með
leiðtogafundinum í Sarajevo. „Hann
myndi standa sig frábærlega og við
ætlum að sækja þetta mál mjög
fast.“
Fékk ,jákvæð svör“
Robertson, sem er 53 ára, var
skipaður varaarmálaráðherra eftir
kosningasigur breska Verkamanna-
flokksins árið 1997. Talsmaður Bla-
irs sagði hann hafa fengið ,jákvæð
svör“ við tilnefningunni frá mörgum
leiðtogum á fundinum í Sarajevo,
meðal annars Bill Clinton Banda-
ríkjaforseta, Jacques Chirac Frakk-
landsforseta, Massimo D’Alema, for-
sætisráðherra Italíu, og Jose Maria
Aznar, forsætisráðherra Spánar.
Öll aðildarríki NATO þurfa að
samþykkja skipun framkvæmda-
stjóra bandalagsins. Samkvæmt
heimildum Reuters í höfuðstöðvum
NATO í Brussel er líklegt að útnefn-
ing Robertsons verði samþykkt
strax á fundi sendiherra NATO-ríkj-
anna á mánudag.
Javier Solana var skipaður fram-
kvæmdastjóri NATO fram í desem-
ber en búist er við að hann láti af
embætti nokkrum mánuðum fyrr til
að hefja störf fyrir Evrópusamband-
ið sem æðsti talsmaður þess í utan-
ríkis- og öryggismálum.
Fundur þjóðarleiðtoga í Sarajevo um stöðugleikasáttmála á Balkanskaga
Lönd Balkanskaga fái að
njóta friðar og velsældar
Sar^jevo. Reutersv
STJORNMALALEIÐTOGAR um fjörutíu ríkja sameinuðust í
gær um metnaðarfulla áætlun sem hefur að markmiði að binda
enda á vítahring stríðsátaka á Balkanskaga með því að skapa skil-
yrði fyrii’ frið, velsæld og öryggi á svæðinu. Stjómvöld í Moskvu
vöruðu hins vegar við því að það, að útiloka Júgóslavíu frá þátttöku
í hinum nýja stöðugleikasáttmála Balkanskagans unz Slobodan
Milosevic hefur látið af völdum, gæti haft alvarlegar afleiðingar.
í lokayfirlýsingu fundarins hétu
leiðtogamir að færa lönd
Balkanskagans „nær Evrópu“ í þeim
skilningi að þau fái hlutdeild í því ör-
yggi, stöðugleika og velsæld sem tek-
izt hefur að byggja upp í álfunni á
liðnum áratugum, ekki sízt eftir lok
kalda stríðsins. En leiðtogamir lögðu
áherzlu á að þetta gæti ekki gerzt
nema að þessi lönd tækju sig á og
lærðu að lifa í sátt við nágranna sína.
„Við staðfestum að það er einarð-
ur ásetningur vor, að vinna bug á
þeim hörmungum sem riðið hafa yf-
ir Suðaustur-Evrópu á þessum ára-
tug,“ sagði í yfirlýsingu sem gefin
var út að loknum þriggja stunda
löngum viðræðum leiðtoganna, en
fundarstaður þeirra, Sarajevo, höf-
uðborg Bosníu-Herzegovínu, er
sjálfur hvort tveggja tákn þess
hryllings sem fylgir borgarastríði
og fyrir uppbyggingu að slíkum
hildarleik loknum.
Upphafsskref
Halldór Ásgrímsson utanríkisráð-
herra sat ráðstefnuna sem sitjandi
forseti ráðherranefndar Evrópuráðs-
ins. í samtali við Morgunblaðið sagði
Halldór fundinn vera afar táknrænan
og vísa veginn til þess uppbyggingar-
starfs sem alþjóðasamfélagið eigi eft-
ir að vinna þessum heimshluta á
komandi árum, þótt fundurinn hafi
aðeins verið upphafsskrefið.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að sáttmálinn væri
tækifæri fyrir alþjóðasamfélagið að
tryggja að ellefu vikna flugherför
Atlantshafsbandalagsins, (NATO)
sem háð var til að stöðva aðíör
Serba að Kosovo-AIbönum, yrði síð-
asta stríðið á Balkanskaganum.
„Bindum enda á þetta og sjáum
til þess að við vinnum raunveruleg-
an frið eftir að hafa unnið þetta
stríð,“ sagði Blair.
Martti Ahtisaari, forseti Finn-
lands sem nú er í forsæti Evrópu-
sambandsins (ESB), bætti við: „Með
stöðugleikasáttmálanum er stefnt að
Evrópu sem loksins er óskipt, efna-
hagslega blómstrandi og frjáls. Evr-
ópa þar sem stríð er óhugsandi.“
Samstaða um að sýna
Serbum hörku
A fundinum var samstaða um að
hart skyldi tekið á Serbíu, megin-
ríki júgóslavneska sambandsríkis-
ins. Því var heitið að Serbía hlyti
enga aðstoð til uppbyggingar svo
lengi sem Milosevic yrði við völd.
„Milosevic forseti hefur í heilan
áratug reynt með yfirgangi að búa
til Stór-Serbíu, sem kostað hefur yf-
ir 250.000 manns lífið, slitið milljón-
ir frá heimahögum sínum og grafið
undan stöðugleika í öllum þessum
heimshluta," sagði Bill Clinton, for-
seti Bandaríkjanna.
í skriflegri yfirlýsingu til Sara-
jevo-fundarins tilkynnti Clinton að
Bandaríkin byðu hjálp, „örlátlega,
strax og einhliða", til að ýta undir
útflutningsviðskipti frá löndum
Balkanskagans með því að fella nið-
Reuters
TONY Blair, forsætisráðherra Bretlands, fór rakleiðis af leiðtoga-
fundinum í Sarajevo í óvænta heimsókn til Kosovo, þar sem hann
ræddi við brezka liðsmenn friðargæzlusveitanna þar, KFOR.
ur tolla af ýmsum vörum og stofna
fjárfestingarsjóði sem ættu að
hjálpa til við að beina erlendum fjár-
festingum til þessara landa. Hvatti
Clinton Evrópusambandsríkin til að
fylgja dæmi Bandaríkjamanna og
veita þessu fátækasta svæði Evrópu
aðgang að mörkuðum sínum.
■ Vonir kveiktar/33
Reuters
Teflt við Kasparov
Ný skýrsla Efnahagssamvinnu- og
þróunarstofnunarinnar, OECD
Umferðarslysin
eru þungur baggi
París. AP.
Dýrkeypt-
ur tesopi
London. The Daily Telegraph.
SEX ára dómsmáli, sem kost-
aði breska skattgreiðendur
andvirði 29 milljóna króna, lauk
með því að manni voru dæmdar
bætur, jafnvirði tæpra 12.000
króna, vegna þess að tveir lög-
reglumenn tóku sér bessaleyfi
til að laga te í eldhúsi hans.
Ian Anderson, sálfræðidokt-
or um fimmtugt, hafði sakað
lögregluna í Dorset um ólög-
lega handtöku og þjófnað og
krafist andvirði 58 milljóna
króna í skaðabætur. Kviðdóm-
ur komst hins vegar að þeirri
niðurstöðu að einu sakargift-
irnar, sem ættu við rök að
styðjast, væru þær að lögreglu-
mennimir hefðu notað tvo
tepoka, uppþvottalög og bolla-
þurrku án heimildar. Ander-
son lýsti dómnum sem „sið-
ferðilegum sigri“ en lögreglan
sagði dómsmálið mikla sóun á
opinberu fé.
SKÁKSNILLINGURINN Steph-
anie Hale er aðeins íjögurra ára
og í gær tefldi hún netskák við
heimsmeistarann, Garry Kasp-
arov. Hale er frá Essex á Eng-
landi, en hafði heilt útitafl í
London til að átta sig betur á
stöðunni. Kasparov „tefldi við
heiminn" á Netinu í gær, en ekki
hafa borist fregnir af úrslitum.
UMFE RÐARSLYS geta haft al-
varlegar afleiðingar fyrir þá, sem í
þeim lenda, valdið miklum þján-
ingum, meiðslum og dauða, og þar
að auki eru þau þungur, fjárhags-
legur baggi í flestum ríkjum. í
nýrri skýrslu frá OECD, Efna-
hagssamvinnu- og þróunarstofn-
uninni, segir, að kostnaður samfé-
lagsins vegna umferðarslysa í að-
ildarríkjunum 30 sé 32.850 millj-
arðar ísl. kr. árlega. Það svarar
hvorki meira né minna en til 2% af
vergri þjóðarframleiðslu ríkjanna.
í skýrslunni segir, að þessi út-
gjöld séu óviðunandi í öllum skiln-
ingi en góðu fréttimar eru þó þær,
að dauðaslysum í umferðinni
fækkaði almennt um 6% milli ár-
anna 1997 og ‘98.
Mest aukning dauða-
slysa á íslandi
í sumum ríkjum fjölgaði dauða-
slysunum á þessu tímabili og
hvergi meira en á íslandi eða um
80%. Fóru þau úr 15 í 27. í Noregi
fjölgaði dauðsföllum í umferðinni
um 16,2% og um 5,6% í Frakk-
landi. I Suður-Kóreu fækkaði þeim
aftur um 21,9%, um 14,8% í Tékkj
landi og um 12,9% í Austurríki. í
Bandaríkjunum, sem eru fjöl-
mennasta aðildarríki OECD,
týndu 41.967 manns lífi í umferð-
arslysum 1997.