Morgunblaðið - 31.07.1999, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Hjálparþjón-
usta FÍB um
verslunar-
mannahelgi
í SAMVINNU við Ingvar Helga-
son umboðsaðila Nissan á Islandi,
Krók dráttarbíla og Íslandssíma
verða vegaþjónustubílar FÍB á
fjölfornustu leiðum um helgina.
Aðstoðarbílar FIB munu einnig
miðla til vegfarenda upplýsingum í
samvinnu við Umferðarráð.
Hjálparþjónusta FÍB miðast við
að aðstoða bíleigendur á ferðalagi
sem þurfa á þjónustu bílverkstæðis
að halda eða vantar varahlut.
Víða um land eru verkstæði opin
fyrir neyðarþjónustu og flest bíla-
umboðin og stærri varahlutasalar
hafa góðfúslega skipulagt bakvakt-
ir vegna varahlutaafgreiðslu fyrir
milligöngu FÍB.
FIB vill minna bfleigendur á að
gæta þess að hafa bíla sína vel
búna fyrir ferðalagið og gæta þess
að nauðsynleg verkfæri, varahlutir
og sjúkrakassi séu til staðar áður
en lagt er af stað.
Skrifstofa FÍB, sími 5629999,
hefur milligöngu varðandi aðstoð-
arbeiðnir um verslunarmannahelg-
ina og þar verður vakt frá föstu-
degi til mánudags.
Islenskunámskeið
fyrir erlenda stúd-
enta í ágúst
UM 45 erlendir stúdentar sem
hyggja á háskólanám á Islandi
næsta vetur sækja undirbúnings-
námskeið í íslensku í ágúst.
Flestir stúdentarnir munu
stunda nám sem skiptinemar við
skóla á háskólastigi hér á landi
næsta vetur. Flestir koma frá lönd-
um Evrópusambandsins og Norð-
urlöndunum.
Námskeiðin eru að hluta til
styrkt af Evrópusambandinu og
norrænu ráðherranefndinni. Nám-
skeiðin eru haldin að tilstuðlan Al-
þjóðaskrifstofu háskólastigsins í
samvinnu við skor í íslensku fyrir
erlenda stúdenta við Háskóla ís-
lands.
Námskeiðin standa í 5 vikur og
enda á menningardagskrá og skoð-
unarferðum.
Þess má jafnframt geta að um
150 erlendir skiptistúdentar munu
stunda nám við Háskóla íslands á
haustönn 1999 og munu þeir
stunda nám við flestar deildir Há-
skólans.
Skoðunarferð
um Grímsnes
LAUGARDAGINN 31. júlí og
sunnudaginn 1. ágúst verður boðið
upp á ferð um Grímsnesið með við-
komu á nokkrum stöðum.
Kaffíveitingar verða að Gömlu
Borg í lok ferðarinnar. Fararstjóri
verður Böðvar Pálsson
Lagt verður af stað frá Gömlu
Borg kl. 14:00 báða dagana. Áætl-
aður tími er 2-3 stundir. Verð er
kr. 1.800.- með kaffi. Lágmarks-
fjöldi í ferð er 20 manns
Skráning fer fram í afgreiðsl-
unni í Gömlu Borg.
Sýningum lýkur
í Fold
SÝNINGU Guðrúnar Öyahals í
sameiginlegu sýningarrými Galler-
ís Foldar og Kringlunnar á annarri
hæð Kringlunnar lýkur í dag, laug-
ardag. Sýningin verður áfram að-
gengileg á heimasíðum Gallerís
Foldar til loka ágústs.
I einka-
stúku á Old
Trafford
NAFN Sigurðar Þorvaldssonar
frá Hvammstanga var dregið úr
potti í Stðrleik Simoniz og Olís
á Bylgjunni þann 15. júlí. Sig-
urður hafði keypt Simoniz bfla-
bón á þjónustustöð OIís í Mjódd
og var um leið orðinn þátttak-
andi í leiknum. Vinningur Sig-
urðar er ferð fyrir tvo á heima-
leik Manchester United gegn
Jóhanni B. Guðmundssyni og
félögum í Watford í október.
Það mun ekki væsa um Sig-
urð og ferðafélaga hans því auk
ferða og hótelgistingar er inni-
falið í ferðinni sæti í einkastúku
Simoniz á Old Trafford þar sem
fulltrúi Simoniz mun sjá um að
vel fari um þá meðan fylgst er
með leiknum. Sigurður sjálfur
er einlægur aðdáandi
Manchester United og var að
vonum kampakátur er Sigurður
K. Pálsson (til hægri) forstöðu-
maður heildsöludeildar Olís af-
henti honum gjafabréf til stað-
festingar á happi hans.
Fyrr í sumar hlaut Ásdís
Jensdóttir frá Akureyri sams-
konar vinning og verður Sig-
urði samferða í október. Olís
óskar þeim og ferðafélögum
þeirra til hamingju og þakkar
jafnframt þeim þúsundum sem
þátt tóku í leiknum.
Urval fallegra sófasetta
Raðereiðslur |jS3
J°9n
Armúla 44
sfml 553 2035
LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 73 , .
—Gallerí Bardúsa^—
og Versl u na rm i njasaf n á Hvammstanga
Pakkhúsinu við Brekkugötu ‘
Húnvetnskt handverk og verslunarsaga í sérstæðu umhverfi
Opið alla daga - sími 451 2405
iiskuu i /.' a
I 3.0 S . £ 0 0 0
Eskimo models kynnir : Futurice / tískuvike
Vilt þú taka þátt í að setja Reykjavík á kort
tískuheimsins?
Við leitum að frumlegum og framúnstefnulegum
fatahönnuðum til að taka þátt í staenstu tísku-
sýningu á íslandi
Sendu inn möppu til Eskimo Models fyrir 15.ágúst
Ingólfsstrsetil a, 101 RVK
engin þátttökuskilynði
Úrslit verða kynnt 25/OS 1 9SS
Nánani upplýsingar hjá Eekimo models í
s. 552-BÓ12 S. á vefnum: www.reykjavik2000.is
Sýningin er samstarfsverkefni meö menningar
borgunum RVK - Helsinki - Bergen
humntJ?
e s k i m o
model mqnoflim»nt
orajwHnMÍifcMMMi
) Nordisk Kulturfond
EKKI FELA ÞAÐ SEM AÐRA LANGAR TIL AB SJÁ!
Fasteignir á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= GITTH\SAÐ AÍÝTI
®l FUJIFILM
VEIDU BESTU FRAMKÖUUNINA
^JFUJIFILMFRAMKÖLLUN
Ljósmyndavörur Reykjavík, Framköllunarþjónustan Borgarnesi, Myndastofan Sauðarkróki, Ljósmyndavörur Akureyri, Myndsmiðjan Egilsstöðum, Ljósey Höfn, Filmverk Selfossi,
Fótó Vestmannaeyjum, Geirseyrarbúðin Patreksfirði, Framköllun Mosfellsbæjar, Ljósmyndastofa Grafarvogs, Úlfarsfell Hagamel.
www.fujifilm.is
FU1IFIIM CRYSTAL ARCHIVE
ENDINGARBESTI
UÖSMYNDAPAPPÍR SEM Tll ER