Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 2

Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 2
2 LAUGAKDAGUR 31. JÚLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Dæmt að veikur Islendingur njóti sjúkratryggingar í Taflandi Formgalli á synjun tryggingaráðs .. Morgunblaðið/Ámi Sæberg LOGREGLAN á Akureyri notaði hund til að leita fíkniefna á flug- veliinum. Lögreglumenn annars staðar á landinu eru einnig á varðbergi vegna fíkniefna samhliða öðru eftirliti. Fjölmenni er á Halló Akureyri HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur vegna formgalla ógilt úrskurð tryggingaráðs um synjun sjúkra- tryggingar íslensks eftirlaunaþega sem liggur alvarlega veikur á sjúkra- húsi í Taílandi og dæmt að hann njóti sjúkratryggingar þar til lög- mæt ákvörðun um annað hefur verið tekin. Tryggingastofnun ber að greiða málskostnað. Umræddur maður, 73 ára eftir- launaþegi og hjartasjúklingur, hefur í vetur dvalið sér til heilsubótar í Taí- Morgunblaðið selt í 54.389 eintökum VIÐ skoðun á upplagi Morgun- blaðsins fyrri helming þessa árs, janúar til júní 1999, í samræmi við reglur Upplagseftirlits VÍ, var staðfest að meðaltalssala blaðsins á dag var 54.389 eintök. Á sama tíma árið 1998 var meðaltalssala 53.198 eintök á dag. Söluaukning milli ára er 1191 eintak á dag að meðaltali. Upplagseftirlit Verslunar- ráðsins annast einnig eftirlit og staðfestingu upplags prentmiðla fyrir útgefendur sem óska eftir því og gangast undir eftirlitsskil- mála. Trúnaðarmaður eftirlits- ins er löggiltur endurskoðandi. Morgunblaðið er eina dag- blaðið sem nýtir sér þessa þjón- ustu nú. landi, eins og hann hefur gert tvisvar áður. Veturinn áður fékk hann stað- festingu Tryggingastofnunar á því að hann nyti sjúkratrygginga héðan og var greitt fyrir sjúkrahúsvist hans þá. Síðastliðið haust hafnaði trygginga- ráð hins vegar sams konar beiðni. Þar var meðal annars vitnað til laga nr. 59 frá 1998 um lögheimilisskilyrði gagn- vart almannatryggingum, lögum sem þá voru ekki gengin í gildi. En þar sem lögin tækju ekki á því hvernig fara ætti með endurtekna dvöl er- lendis þætti „ekki ósanngjarnt að gera þá kröfu að viðkomandi einstakl- ingur dvelji a.m.k. 6 mánuði á ári á ís- landi. Þegar einstaklingur hefur dval- ið erlendis lengur en 6 mánuði á ári, tvö eða fleiri undanfarin ár, teljist hann hins vegar ekki sjúktratryggð- ur.“ Með hliðsjón af þessu ákvað tryggingaráð að framlengja sjúkra- tryggingaábyrgð sína til áramóta en synja beiðninni að öðru leyti. Alvarlega veikur Maðurinn hugðist dvelja í Taílandi í níu mánuði og hafði því ekki stað- festingu á sjúkratryggingu þegar hann í lok maí mun hafa lent í ein- hvers konar slysi og í kjölfar þess veikst hastarlega, eins og fram kom í málinu. Hefur hann síðan dvalið á sjúkrahúsum í Taflandi. „Vegna veik- inda er líkamlegt ástand stefnanda mjög alvarlegt og telst vera í bráðri lífshættu, fái hann ekki skjóta og af- dráttarlausa læknismeðferð á sjúkra- húsi í Taflandi." Tryggingaráð hafn- aði í júní á ný kröfu um staðfestingu á sjúkratryggingu mannsins með vísan til fyrri úrskurðar. Hins vegar ábyrgðist utanríkisráðuneytið greiðslu á sjúkrakostnaði hans frá 17. júlí. Að svo búnu var höfðað mál fyrir hönd mannsins til ógildingar úrskurði tryggingaráðs og til staðfestingar á sjúkratryggingu hans. Málið fékk flýtimeðferð. Aðilar málsins deildu aðallega um lögheimili stefnda. Komst Friðgeir Björnsson héraðsdómari að þeirri niðurstöðu að Tryggingastofnun hafi verið heimilt að taka sjálfstæða ákvörðun um lögheimili, án þess að bera það undir dómstóla eins og kraf- ist var af hálfu stefnanda. Hins vegar sé úrskurðurinn haldinn formgöllum og því óhjákvæmilegt að ógilda hann. I niðurstöðu dómsins segir að synjun tryggingaráðs á því að stefnandi væri sjúkratryggður sé mjpg íþyngjandi ákvörðun fýrir hann. í úrskurðinum skorti á skýrleika svo og rökstuðning og lögmæti. Þá hafi ekki komið fram að stefnanda hafi verið gefinn kostur á andmælum í samræmi við stjóm- sýslulög og ekki ljóst hvort farið hef- ur verið eftir rannsóknarreglunni í sömu lögum, en því var haldið fram af hálfu stefnanda að hvort tveggja hafi skort og úrskurðurinn gangi gegn grunnreglum stjómsýslulaga. í framhaldi af ákvörðun dómar- ans, að fella úr gildi úrskurð trygg- ingaráðs, telur hann að byggja beri á því að lögheimili stefnda sé enn hér á landi, eins og skráð er í þjóðskrá, og njóti hann því áfram sjúkratrygging- ar, þar til lögmæt ákvörðun hafi ver- ið tekið um annað af þar til bæram aðilum. FJÖLDI gesta var þegar farinn að streyma til Akureyrar um miðjan daginn í gær og sumir höfðu komið strax á fimmtudegi, en þá var hátíðin sett og dans- leikir fóru fram um kvöldið. Að sögn Vals Hilmarssonar hjá Skátafélaginu Klakki, sem sér um tjaldsvæðið í Kjarnaskógi, var eitthvað á annað þúsund manns mætt í skóginn um þrjúleytið í gær og er það meira en á sama tfma í fyrra. Hann sagði að allt hefði gengið vel, umferðin inn í skóginn hefði ver- ið jöfn og þétt og umgengni fólks til fyrirmyndar. Umferðin tók að þyngjast er leið á kvöldið en þéttskipuð dagskrá er framund- an um helgina með Qölskyldu- skemmtunum á daginn og dans- leikjum á kvöldin. Veðrið hefúr leikið við Akureyringa og gesti þeirra til þessa og á það án efa eftir að skila sér í enn meiri að- sókn. Matsnefnd hafnar gagn- rýni samkeppnisráðs Raðuneytið hafnar kröfu Neytendasamtakanna Ekki ástæða til að innkalla vörur Umhverfisráðuneytið telur ekki ástæðu til að innkalla úr verslunum vörar frá kjúklingabúinu á Ás- mundarstöðum og að láta fara fram opinbera rannsókn á málinu í heild. Kemur það fram í bréfi til Neytendasamtakanna sem gerðu þessar kröfur í fyrradag og byggist niðurstaðan á ráðgjöf sem ráðu- neytið leitaði eftir hjá landlækni og Hollustuvernd ríkisins. í ráðgjöf landlæknisembættis- ins og Hollustuverndar ríkisins er farið yfir þær athuganir sem gerð- ar hafa verið á tíðni kampýlóbakt- ersýkinga hér á landi, meðal ann- ars í september síðastliðnum. Þar hafi 27 kjúklingasýni af 47 reynst innihalda sýkilinn en vegna lítils sýnafjölda sé ómögulegt að full- yrða um tíðni hans hjá einstökum sláturleyfíshöfum og ennþá síður um tíðni hjá einstaka innleggj- anda. Hollustuvernd og landlæknir telja ekki rétt að grípa til innköll- unar eða sölustöðvunar á vörum frá Ásmundarstaðabúinu en telja rétt að ítreka lögboðnar leiðbein- ingar um meðhöndlun og mat- reiðslu alifuglakjöts. Rannsóknir að hefjast „Markmiðið er að draga úr kampýlóbakter-mengun í alifugla- afurðum. Þetta verður einkum gert með rannsóknar- og þróunarvinnu sem HoUustuvemd ríkisins og landlæknir hafa nú þegar hrint af stað í samvinnu við yfirdýralækni, Tilraunastöð Háskóla Islands í meinafræði að Keldum, sýklafræði- deUd Landspítala og Rannsóknar- stofnun fiskiðnaðarins." Landlæknir og Hollustuvernd telja einnig að opinber rannsókn sé ástæðulaus á þessu stigi og vísa til þess að faraldsfræðileg rann- sókn á uppruna sýkinganna sé að hefjast. STURLA Böðvarsson, samgöngu- málaráðherra, hefur skipað starfs- hóp tfl að afla upplýsinga um álit samkeppnisráðs sem það skUaði í júní sl. vegna kæra Tals á GSM- þjónustu Landssímans. I starfs- hópnum sitja þeir Baldur Guðlaugs- son hrl., Árni Kolbeinsson ráðu- neytisstjóri og Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að hann gerði ráð fyrir að hópurinn skUaði niðurstöðum sínum í lok ágúst. Ráðherra lagði skipan starfs- hópsins fyrir ríkisstjóm í gær auk athugasemda matsnefndar Pósts og síma hf. en samkeppnisráð gerði al- varlegar athugasemdir við niður- stöður nefndarinnar. Eignir vanmetnar Samkeppnisráð sagði í áliti sínu að eignir Póst- og símamálastofnun- ar hefðu verið vanmetnar og fyrir- tækinu því í raun verið veitt ríkisað- stoð upp á 10 mUljarða kr. Auk þess hefðu lífeyrisskuldbindingar fyrir- tækisins verið lækkaðar um 1,5 milljarð kr. og taldi ráðið það ekki samræmast lögum. Samkeppnisráð komst að þeirri niðurstöðu að Landssími íslands hf. nyti þannig ólögmæts forskots í samkeppni á fjarskiptamarkaði. Samkeppnisráð beindi þeim tUmæl- um tU samgönguráðherra að fram- kvæma yrði endurmat á fastafjár- munum Landssímans, skuldbind- ingum og viðskiptavild hans. Að því loknu yrði ríkisaðstoð dregin til baka. Matsskýrslur rangtúlkaðar í athugasemdum matsnefndar- innar er gagnrýni samkeppnisráðs hafnað og þeirri ásökun að nefnd- inni hafi gengið annað tU en að framkvæma rétt mat á eignum Póst- og símamálastofnunar. Einnig segir að samkeppnisráð rangtúlki matsskýrslumar og geri nefndinni upp skoðanir er ráðið komist að þeirri niðurstöðu að „þeim mark- miðum, sem ráðið les út úr skýrslu matsnefndar, verði einungis náð með vUhöllu mati eða með stuðningi ríkisins að öðra leyti“. Einnig er undirbúningur og rök- stuðningur samkeppnisráðs gagn- rýndur harðlega, og telur nefndin að hann sé „meingallaður og ófag- legur“. Ráðið hafi ekki sinnt rann- sóknarskyldu sinni, m.a. aldrei spurt nefndina út í vinnu og álykt- anir, aðferðafræði og gagnaöflun. Efast er um þá meginniðurstöðu samkeppnisráðs að efnahagur Landssímans hafi verið ákveðinn þannig að hann skaðaði samkeppni. Nefndin bendir í því samhengi á fréttir af velgengni Tals hf. í far- símaþjónustu og af fyrirhugaðri uPPbyggingu fjarskiptakerfis ís- landssíma hf. Matsnefndin segir engan rök- stuðning liggja fyrir fullyrðingu samkeppnisráðs um 10 milljarða kr. rfldsstuðning. Ekki sé tilgreint hvernig fjárhæðin sé fundin. Nefnd- in hafnar því einnig að ekki hafi ver- ið tekið tillit til viðskiptavildar. Sérblöð í dag m sbuR •••••••••••••••••••••••••••••••••••• ÁLAUGARDÖGUM Með Morgun- blaðinu í dag er dreift blaði frá Heíms- ferðum. #•••••••••••••••••••••••••••••••• Úlfar Jónsson spáir í spilin fyrir Landsmótið / B1 »••••••••••••••••••••••••••••••• Ludmila Engquist keppti eftir 13 mánaða fjarveru / B4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.