Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 6
6 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsókn vegna meintra svika í Austurríki
Allir eigendur íslenskra
hesta yfirheyrðir
ALLIR, eða nánast allir kaupendur íslenskra
hesta í Austurríki, hafa verið yfirheyrðir af lög-
reglu- og tollayfirvöldum vegna gruns um að
verð hrossanna hafi verið of lágt skráð í toll-
skýrslum. Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir að semja þurfi við Evrópusambandið
og Noreg um breytingar á tollareglum.
Bjöm Steinbjömsson dýralæknir, sem starfað
hefur fyrir eigendur íslenskra hesta í Þýskalandi
síðustu tvö árin, segir að rannsókn Evrópusam-
bandsins muni fyrr eða síðar beinast að milli-
göngumönnum um útflutning hestanna og selj-
endunum, hrossabændunum á Islandi.
„Tollayfírvöldin em yfirþjóðleg, þau geta
starfað í hvaða landi sem er sem er aðili að samn-
ingum við Evrópusambandið um þessi málefni,
meðal annars á Islandi. Menn verða að gera sér
grein fyrir því að tollamir sem verið er að leggja
á em ekki þýskir tollar, þetta em Evrópusam-
bandstollar. Þýsk yfirvöld eru ekki að innheimta
þá fyrir sig, þau verða að standa skil á þeim til
Evrópusambandsins."
Bjöm segir að ef svo fari, sem ráð sé gert fyrir
í tollareglum, að greiða þurfi tolla tíu ár aftur í
tímann fari margir hestainnflytjendur á hausinn.
„Það em líka aðrar aðstæður þama úti heldur en
hér heima, að menn geta ekki farið á hausinn og
byrjað síðan aftur undir öðm nafni og kennitölu.
Ef menn borga ekki er þeim bara stungið inn.
Aðiia á íslandi sem fá á sig dóm í þessu sambandi
verður ekki hægt að fangelsa, en þeir verða eftir-
lýstir í Evrópusambandinu og verður stungið inn
ef þeir koma þangað."
Semja þarf við Noreg
og Evrópusambandið um tollamál
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir
að vandamálið hafi farið vaxandi, en segist engar
vísbendingar hafa um að staðið hafi verið í
skattsvikum vegna útflutnings íslenskra hesta.
„Auðvitað er er rétt sem hestamenn segja, að
Þjóðverjar geri oft og tíðum þá kröfu að þetta
verð sé gefið upp þótt þeir borgi kannski hærra.
Þetta vandamál er til staðar og svo kannski hitt
sem ýtir kannski á þetta, að það em miklir
hrossaræktendur í Þýskalandi til dæmis sem
viija þrengja að íslenskum útflutningi."
Guðni segir mikinn vanda kominn upp í út-
flutningi á íslenskum hestum og telur nauðsyn-
legt að sest verði að samningaborði við Evrópu-
sambandið og Noreg til að marka framtíðar-
stefnu í tollamálum tengdum hrossaútflutningi
og segist hafa skrifað utanríkisráðuneytinu bréf
þessa efnis fyrir nokkm.
Nauðsynlegt er, að mati Guðna, að bmgðist
verði við þeim vanda sem nú sé kominn upp.
Kveðst hann hafa ritað utanríkisráðherra bréf
fyrir nokkm og beðið um samstarf ráðuneytanna
um hvemig hægt væri að standa að útflutningi
hrossa og við að koma á samningaviðræðum við
Evrópusambandið og Noreg um tollamál og finna
þeim farsælan gmndvöll. Telur Guðni nauðsyn-
legt að mörkuð sé framtíðarstefna í þessum efn-
um og vonast til að hægt verði að semja um tolla-
lækkanir.
Guðni vildi ekki tjá sig um hvernig tekið yrði á
hugsanlegum skattsvikum íslenskra aðila. Sagði
hann að fyrst yrði að koma í ljós hvort um svik
væri að ræða. Síðan yrði ákveðið til hvaða að-
gerða þyrfti að grípa.
Hringdu og vöruðu
við yfirheyrslum
Höskuldur Aðalsteinsson, hrossabóndi í Aust-
urríki, segir að rannsóknarmenn yfirvalda hafi
komið til þeirra fyrir rúmlega ári. Á sama tíma
hafi aðrir eigendur íslenskra hesta í landinu
fengið sams konar heimsóknir. „Þeir fyrstu sem
þeir heimsóttu hringdu og vömðu hina við,“ segir
Höskuldur.
Hann segist ekki vita til þess að neinn eigend-
anna hafi teldð það ráð sem sumir hafa gert í
Þýskalandi, að leggja fram kæm gegn sjálfum
sér til að tollar séu aðeins reiknaðir þrjú ár aftur
í tímann, en ekki tíu ár, eins og gert er að öðmm
kosti.
Höskuldur segir að þær skýringar sem hann
hafi gefið á sínum tollamálum hafi verið teknar
gildar af rannsóknarmönnunum og hann hafi
ekki heyrt frá yfirvöldum síðan í þessu máli.
Hann segir að mismunandi sé hversu ítarlegar
rannsóknir yfirvalda gegn einstökum hestaeig-
endum hafi verið.
Barnabætur lækka
Um 900
millj. lækk-
un á 3 árum
ENDURGREIÐSLA ríkis-
sjóðs vegna barnabóta og
bamabótaauka hefur farið
minnkandi undanfarin ár og
nemur hún nú tæpum 3,8
milljörðum en var í fyrra 4,1
milljarður. Lætur nærri að
þessi upphæð hafi lækkað um
900 milljónir síðustu þrjú ár-
in.
Árið 1995 vom greiddar
bamabætur og bamabótaauki
að upphæð 4,6 miiljarðar
króna^ og 4,7 milijarðar árið
eftir. í fyrra var upphæðin 4,1
milljarður eins og áður sagði
og 3,8 milljarðar í ár. Hefur
hún lækkað um 900 milljónir
króna þessi ár sem stafar af
því að bæturnar em nú tekju-
tengdar og fara með öðmm
orðum lækkandi eftir því sem
tekjur aukast.
ÞRÍR menn á þrítugsaldri, sem
villtust á gúmmíbáti í þoku á
Breiðafirðinum í fyrrinótt, komu
fram heilir á húfi í Hvallátmm á
Breiðafirði í gærmorgun. Leit
björgunarsveitarmanna og sjó-
manna að þeim hafði staðið yfir að-
faranótt föstudags. Ekkert amaði
að mönnunum utan þess að þeir
vom þreyttir. Þeim tókst að gera
vart við sig með því að hringja úr
farsíma sem þeir fengu lánaðan hjá
fólki sem var í Hvallátmm og var
leit þá hætt. Á milli 20 og 30 manns
á átta bátum leituðu mannanna á
Breiðafírðinum og annar eins fjöldi
var í viðbragðsstöðu.
Mennimir fóm frá Flatey á 10
manna Zodiac-gúmmíbáti með ut-
anborðsmótor út í Skjaldmeyjar-
eyjar á lundaveiðar í fyrradag og
ætluðu sér að vera komnir til baka
um kvöldmatarleytið sama dag.
Þegar þeir skiluðu sér ekki á til-
skildum tíma tilkynnti faðir eins
þeirra að þeirra væri saknað og var
þá hafin leit.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Leit gerð að þremur mönnum á Breiðafírði
Komu fram heilir á
húfi í Hvallátrum
Breiðafirðinum og vanir lunda-
veiðimenn, en hins vegar reyndist
þokan þeim of erfið viðfangs. Þeg-
ar þeir höfðu siglt í um fimm mín-
útur frá Flatey áleiðis til Skjald-
meyjareyja, sem er í 6-8 sjómflna
fjarlægð, hvarf skyggnið að baki
þeim vegna þoku á skömmum tíma,
en þeir komust hins vegar tfl
Skjaídmeyjareyja vandræðalaust
og stunduðu sína veiði þar í þrjár
klukkustundir. Aðstandendur í
Flatey vissu um tíma- og staðará-
kvörðun mannanna og sagði
tt—:— tía------- n..ai___i____
skipstjóri, einn mannanna þriggja,
að þeir hefðu átt að láta fyrirberast
í Skjaldmeyjareyjum, þ.e. á þeim
stað sem fólk vissi að þeir ætluðu
til. Sé það sá lærdómur sem draga
megi af atburðunum.
Sigldu milli eyja
á Breiðafirðinum
Þeir sigldu hins vegar frá
Skjaldmeyjareyjum í fremur lygn-
um sjó en afleitu skyggni á
fimmtudagskvöld.
„Við komum fyrst að landi í
TT 1.1..1-1- OA C'------------
á milli eyja,“ sagði Hreinn. „Við
fórum í land í Sandeyjarhólma um
klukkan 21 og vorum þar nokkum
tíma. Við heyrðum í ferjunni Baldri
og heyrðum að þeir flautuðu til að
gera vart við sig og ætluðum að
keyra á hljóðið, en þegar við vorum
komnir út fyrir misstum við það.
Þá ákváðum við að taka stefnu og
tókum að því er ég taldi rétta
stefnu og römbuðum á Skeley.“
Þaðan átti að vera fimm mínútna
sigling til næstu eyjar en þegar
mennimir höfðu siglt í hálftíma,
j-.'.-.. u~:.. .< ..ai:—: ~~ iai... —
Nýr fram-
kvæmda-
stjóri
Neytenda-
samtakanna
MARGRÉT María Sigurðardóttir,
bæjarfulltrúi á Húsavík, tekur við
stöðu fram-
kvæmdastjóra
Neytendasamtak-
anna í haust af Jó-
hannesi Gunnars-
syni. Margrét,
sem er lögfræð-
ingur að mennt,
hefur setið í bæj-
arstjóm Húsavík-
ur fyrir hönd
Sjálfstæðisflokks-
ins. Sæti hennar
tekiu- Sigurjón Benediktsson tann-
læknir og fyrrverandi bæjarfulltrúi.
Verður formaður áfram
Jóhannes Gunnarsson er jafhframt
formaður Neytendasamtakanna og
verður það áfram þótt hann láti af
störfum sem framkvæmdastjórí „Ég
verð starfandi formaður áfram en
það kemur inn nýr liðsmaður sem
framkvæmdastjóri. Ég ætlaði mér
aldrei að verða framkvæmdastjóri
hér á nýjan leik. Mál þróuðust bara
með þeim hætti fyrir síðasta þing
Neytendasamtakanna að þetta end-
aði svona. Með þessari ráðstöfun er
einfaldlega verið að styrkja skrifstof-
una,“ sagði Jóhannes.
Ferðamenn
í stað eld-
flauga
VÉLSLEÐAFERÐIR á jökla ís-
lands njóta sívaxandi vinsælda og
þykja allt að því ómissandi hluti
af ferð um landið. Ekki leggja þó
allir í slíka ævintýramennsku og
þá getur verið gott að vita af
þessum bíl sem fyrirtækið Geysir-
vélsleðaferðir hefur nú tekið í
notkun til ferða á Langjökul.
Að sögn Garðars K. Vilhjálms-
sonar, firamkvæmdastjóra Geysis-
vélsleðaferða, er hér um 8 hjóla
MAN-bfl að ræða, sem mun hafa
verið notaður sem eldflaugaskot-
pallur í Þýskalandi á síðustu dög-
um kalda striðsins. Þeir Geysis-
menn hafa hins vegar skipt eld-
flaugapallinum út fyrir sérstakt
búr fyrir farþega, en alls komast
50 í hveija ferð. Þá er bfllinn út-
búinn sérstökum dekkjum sem
auðvelda honum för um jökulinn
og segir Garðar minni sprungur
ekki vera honum nokkur fyrir-
staða. Telur hann raunar að hér
sé um hreina byltingu í jöklaferð-
um að ræða.
reka í tvo tíma til að spara bensín.
„Það fór kannski ekki vel um
okkur í bátnum og við ákváðum að
taka stefnu inn og komum að
Göngukletti, sem er lítill hólmi suð-
vestur af Hvallátrum. Þangað vor-
um við komnir á miðnætti og létum
fyrirberast þar í nótt [í fyrrinótt]
og vorum þar til klukkan sex í
morgun [í gærmorgun].“
í gærmorgun rofaði síðan til og
þá sáu mennirnir hús í Hvallátrum
og fóru þangað yfir og ræstu
heimamenn, sem gáfu þeim morg-
unmat og kaffi. Mennirnir hringdu
úr Hvallátrum og gerðu vart við
sig ogjum klukkan hálfeitt lögðu
þeir af stað til Flateyjar, sem er
um tuttugu mínútna sigling á góð-
um hraðbát.
Mennirnir verða í Flatey út vik-
una við lundaveiðar á Breiðafirðin-
um. í fyrrinótt höfðu mennirnir
engin fjarskiptatæki meðferðis og
segir Hreinn aðspurður hvort fjar-
skiptatæki verði með í fór í næsta
skipti, að hafður verði NMT-far-
—: UÞ s;„