Morgunblaðið - 31.07.1999, Page 18

Morgunblaðið - 31.07.1999, Page 18
 18 LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 LANDIÐ f MORGUNBLAÐIÐ Húsfyllir á fyrirlestri Guðrúnar Sveinbjarnardóttur um fornleifarannsóknir í Reykholti Morgunblaðið/Sigríður EFTIR fyrirlesturinn var uppgröfturinn í Reykholti skoðaður undir leiðsögn fornleifafræðinga. Fyrirsj áanlegt að stækka þarf upp- graftarsvæðið Reykholti - MIKIL aðsókn var á fyrirlestur Guðrúnar Sveinbjarn- ardóttur fornleifafræðings sem haldinn var á vegum Snorrastofu í Reykholti í fyrrakvöld. Um 75 manns mættu til að hlýða á hana greina frá gangi uppgraftarins á gamla bæjarstæðinu í Reykholti. Eins og fram kom í fjölmiðlum í síðustu viku hafa komið í ljós hleðslur nyrst í uppgraftarsvæð- inu, sem m.a. vekja upp spurning- ar um meint virki umhverfís bæ Snorra Sturlusonar, sem greint er frá í Sturlungu. Komið hefur verið niður á hellur norðan við þessar hleðslur og ganga þær inn í svörð- inn við enda uppgraftarsvæðisins. Pá hefur einnig fundist hvera- hrúður á steinum á þessu svæði sem vekja upp stórar spurningar. Guðrún gat þess að 1964 fannst gufustokkur sem liggur frá hvern- um Skriflu með stefnu í átt að bæjarstæðinu, og var hann rann- sakaður lítillega það ár og aftur 1984. Ekki er þó tímabært að draga ályktanir út frá þessu. Við- arleifar hafa einnig komið í ljós á þessu svæði og verða frekari sýna- tökur og rannsóknir gerðar á þeim. Guðrún útskýrði hvernig leitast hefur verið við að grafa svæðið í stóru samhengi til að fá heildar- mynd, en framhald vantar til norð- urs af uppgraftarsvæðinu til að sjá hvort meint virki er útveggur eða innveggur. Saga bygginga og rannsókna á staðnum var rakin og sú þróun sem orðið hefur við uppgröftinn í sumar. Eftir fyrirlesturinn var gengið að svæðinu og notið leið- sagnar þeirra fornleifafræðinga sem við uppgröftinn starfa. Að lokum var skoðuð sýning í safnað- arsal Reykholtskirkju, en hún er unnin í samvinnu Snorrastofu og Þjóðminjasafns og er þar gefin mynd af fornleifarannsóknum í Reykholti í máli og myndum. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Vinnuskólinn á Blönduósi Þau gera bæinn fallegan lönduósi - Krakkarnir í vinnuskólanum á Blönduósi gerðu sér glaðan dag í blíð- unni fyrir skömmu og grilluðu sér pyls- ur og fóru í hverskonar leiki. Hér var um nokkurskonar skólaslit að ræða þar sem yngri hluti hópsins var að ljúka störfum en eldri krakkarnir halda áfram því þakkláta starfi að gera bæinn fagran. Hátíð sína héldu krakkarnir að sjálf- sögðu í samræmi við hlutverk sitt í Fa- grahvammi niður við Biöndu. Blanda lokkaði til sín í Ieik nokkra krakka og voru stelpurnar þar fremstar í fiokki og böðuðu þær sig í ánni við mikinn fögn- uð viðstaddra. Þótt gáskafuliur leikur lífsglaðra barna undir eftirliti í lygnri vík í jökulánni Blöndu sé hin besta skemmtun þá hefur margur krakkinn fengið skell á rassinn fyrir að umgang- ast ána á ónærgætinn hátt. Það má segja að það hafi til skamms tíma verið liður f uppeldi barna á Blönduósi að kenna þeim að virða þetta straumþunga fljót og skilja. Hvassaleiti 15 - raðhús Opið hús Voaim að fá í sölu mjög gott raðhús í þessu vinsæla hverfi. Húsið er 238,1 fm á þremur hæðum og með innbyggðum bílskúr sem er 20 fm. Verð 17,9 millj. Húsið verður til sýnis í dag, laugardag, frá kl. 14 og 17. Lundur fasteignasala, Suðurlandsbraut 10, Reykjavík, sími 533 1616, fax 533 1617 Morgunblaðið/Arnór Ný brú yfír Flóku NÚ ER Iokið við að reisa nýja brú yfir Flóku og tengja veg og brú. Bygging brúarinnar er hluti af framkvæmdum við Borgarfjarðarbrautina, frá Kleppjárnsreykjum að Bæjar- sveitarvegi. Að sögn Birgis Guðmundsson- ar hjá Vegagerðinni í Borgar- nesi er gert ráð fyrir að fram- kvæmdin kosti 150 milljónir króna og verði lokið í haust. Sjálf vegargerðin kostar 100 milljónir, en lagning brúarinnar yfir Flóku 50 milljónir. Hér sést nýja brúin og eins og sjá má er hún myndarlegt mannvirki f samanburði við þá gömlu. Morgunblaðið/Egill Egilsson Gróðursett í minning- arreit á Flateyri Flateyri - Fyrsti áfangi gróðursetn- ingar í Minningargarðinum á Flat- eyri var haldinn laugardaginn 24. júlí. Gróðursettar voru á þriðja hundrað þriggja ára plöntur af ýms- um tegundum. Fáir voru mættir til starfa í fyrstu en þegar leið á daginn var kominn álitlegur hópur sem fór létt með að gróðursetja 400 plöntur í eindæma veðurblíðu. Heildarstærð reitsins verður 7- 8000 fm og verður göngustígur upp að kirkjugarðinum og þar að auki tveir göngustígar inni í reitnum. Reiturinn er skipulagður sem úti- vistarsvæði og seinna meir verður komið fyrir tjörn og leiktækjum. Ekki verður meira gert í sumar, að- eins er eftir að gróðursetja 100 plöntur. Stefnt er að því að ljúka reitnum á næstu þrem sumrum og að þeim tíma loknum verði búið að gróðursetja 10.000 plöntur. Garðar Páll GRÖFUPRAMMI við dýpkun Grindavíkurhafnar. Dýpkað inn- an Grinda- víkurhafnar Grindavík - Þessa dagana er verið að dýpka innan Grindavíkurhafnar. Það er fyrirtækið „Skanska Dredging“ sem sér um þessar dýpk- unarframkvæmdir. Formaður hafnarnefndar er Sig- urður Gunnarsson og hann hafði þetta að segja um framkvæmdirnar. „Þeir voru að dýpka við Svíragarð- inn og tóku kerið í burtu og grófu vel meðfram þannig að nú ættu stærri loðnuskipin að komast þarna að. Möguleiki er orðinn á því að útskip- un á mjöli fari fram þarna líka því Samherji ætlar að setja upp útskip- unargræjur með haustinu. Þá hefur verið samið við „Skanska Dredging" um frekari dýpkanir innan hafnar- innar. Verið er að endurbyggja Kvía- bryggjuna en tímabært var að laga hana og svo kemur þriðja flotbryggj- an en við hana eru 12 ný legupláss. Það er því að lagast aðstaðan fyrir allar stærðir báta og stefnt er að því að þessi höfn verði í fremstu röð hvað varðar alla þjónustu,“ sagði Sigurður. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.