Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 31

Morgunblaðið - 31.07.1999, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 31 Hryðjuverkamaðurinn Osama Bin Laden á förum ur fylgsni sínu í Afganistan Óttast árásir af hálfu Bandaríkj anna HRYÐJUVERKAMAÐURINN Osama bin Laden hefur ákveðið að fara frá Afganistan af ótta við árásir Bandaríkjanna, að því er dagblaðið Afgan Islamic Press, (AIP) skýrði frá í gær. Hafði það eftir nánum starfsmönnum bin Ladens að hann hefði í hyggju að leita hælis í öðru íslömsku ríki, en hann hefur búið sem „gestur" Talebana í Afganistan sl. mánuði. Ennfremur var skýrt frá því í blaðinu að stjórn Talebana myndi ekki neyða bin Laden til að yfirgefa landið. Færi hann hins vegar frá Afganistan af fúsum og frjálsum vilja myndi stjómin sýna hverju því íslamska ríki samvinnu er byði Sádi-Arabanum hæli. Bandaríkin skutu stýriflaugum á meint aðsetur bin Ladens í suður- hluta Afganistans í ágúst sl. vegna sprengjutilræðanna á bandarísku sendiráðin í Kenýa og Tansaníu 7. ágúst í fyrra, sem kostuðu 224 menn lífið, en Bandaríkjastjóm sak- ar bin Laden um að hafa staðið að baki þeim. I júní setti bandaríska alríkislögreglan, FBI, fimm milljón- ir dollara, eða 370 milljónir króna, til höfuðs honum og viðskiptabann á stjóm Talebana í byrjun júlí vegna þess að hún hafði skotið skjólshúsi yfir bin Laden. Bandaríkjastjóm hefur farið þess á leit við stjóm Talebana, að hún framselji bin Laden svo hægt verði að koma yfir hann lögum sé hann sekur, en Talebanar hafa borið fyrir sig að enginn sáttmáli sé milli ríkj- anna, þar sem Bandaríkjastjóm hefur ekki viðurkennt stjóm Tale- bana. Öryggisgæsla efld Eftir sprengjutilræðin í Kenýa og Tansaníu hefur Bandaríkjastjóm haft varann á gagnvart hryðjuverk- um í sendiráðum erlendis. Sl. fimmtudag fundust ummerki plast- sprengiefna í opinberri bifreið fyrir utan bandaríska sendiráðið á Ma- dagaskar. Efnið fannst við hefðbundna ör- yggisskoðun við vegartálma sem komið var upp í júní sl. til að skoða sérstaklega bíla sem erindi ættu til sendiráðsins. Bandarísk stjómvöld granar að hópur undir stjóm bin Ladens hafi verið að verki. Sendiráðunum á Madagaskar, Gambíu, Líberíu, Togo, Namibíu og Senegal var tímabundið lokað í júní vegna öryggisráðstafana af ótta við frekari ódæðisverk fylgismanna bin Ladens. „Borinn til grafar“ á tunglinu London. The Daily Telegraph. BANDARÍSKUR vísinda- maður verður „borinn til graf- ar“ á tunglinu í dag þegar lítil geimflaug skellur ofan í gíg nærri suðurpóli tunglsins. Dr. Eugenes Shoemakers, sem lést í bílslysi fyrir tveim- ur árum, verður fyrstur allra til að hljóta greftran á tungl- inu en aska hans er með í fór Lunar Prospector-geimflaug- arinnar sem ætlað er að að- stoða við rannsóknir á hvort vatn sé að finna á tunglinu. Til að komast að raun um þetta verður geimflauginni brotlent á því svæði tunglsins, sem snýr frá jörðu, en við áreksturinn ætti að fljúga út í himingeiminn mikið magn efna sem gefa ætti vísbend- ingar um hvort þar sé að finna vatn. Mun áreksturinn eiga sér stað með svo miklum krafti að efni þeytist langt út í geim, og að hægt verði að greina þau frá jörðu, eða frá geimathugunarstöðvum. Með árekstrinum rætist helsta ósk Shoemakers, sem var sérfróður um jarðfræði plánetna, en hann hafði von- ast til að verða fyrsti jarð- fræðingurinn á tunglinu. Heilsuþrestur kom hins vegar í veg fyrir að draumurinn rættist og aðstoðaði Shoema- kers í staðinn við þjálfun ann- arra geimfara. „Ég held ekki að Gene hafi nokkurn tíma látið sig dreyma um að ösku hans yrði dreift á tunglinu," sagði eiginkona hans, Carolyn. „Hann hefði orðið afar ánægður. Og við munum alltaf vita, þegar við horfum til tunglsins, að Gene er þar.“ GÓLFEFNABÚÐIN Mikið urval fallegra flísa Borgartún 33 • RVK Laufásgata 9 • AK ÖNDUNARSÝNAMÆLAR ný tœki lögreglu gegn ölvunarakstri Eftir einn ei aki neinn! FERÐAR Stgr.uerð Stgtverð Stgr.verð Stgr.verð Stgtverð Stgr.verð Stgr.verð Stgr.verð REYtlAVltURSVÍfllÐ: Higkaog. Smialoigi. Heimskrinolan. tringlunni.Tgnborg. Kópavogi. VESTURIAND: Hljómsýa Akranesi. kauplélag BoipMnga, Boiganesi. Blómstunrellii. Hellissamli. Moi Hailgiímssoa Giundailiiti.VESTFIRÐIR: Rafbúð Jónasai Hóit PatieksH. Póllina IsaliiðL NORÐUREANO: II Sleingrimsfjarðar. Hólmavik. IF V- Hónvelninga. Hvammslanoa. (f Hónveininga. Blðnduósi SkagfirflingabúH Sauðárkióki KEA. Dalvik. Ejðsgjalina Akuieyri. IE Þingeyinga, Hósavil. Urð. Raulaihðfn. AUSTUfllAND: IF Héiaðsbóa. íoilsstóðum. Verslunin Vík, leskaupsstað. lauptúa Vopnafírði. IF Vopnfírðinga. Vopnafírði. (F Héraðsbúa. SeyðisH Tumbisðui. Seyðisfírði.KF fáskróðsfiarðar. Fáskrúflsfirði. IASK. Ojúpavugi. KASK. Hóln Homafiiði. SUOURLAND: Rafmagnsverkstsði (H. Hvnlsvelli. Mosfell. Hellu. Heimstsknl Selfossi (A. Selfossi. Rás. Mákslinfn. Brimnes. Vesimannaeyjum. HEYKJANES: Hafbnrg. Giindavik. Rallagnavinnusl. Sig. Ingvarssonar. Garii. Ralmælti. Hafnarfirði. Síálfleitari Aðgerðrá skjá Scart tengi 2ia hausa Mono Upptokuminni Hægspilun yj Index leitun NTSC afspilun Tvö Scart- og RCA tengi að framan og á baki Fjarstýring 6hausa Long Plav Nitam Stereó Intelligent myndkerfi Upptökuminni Sjálfleitari Aðgerðir á skjá UNITED UTV9033 • 33" Blatk Matrix myndlampi • islenskt textavarp • 2 Scart tengi uiumNc ■ - * g. " ... . 1 - •• / r -í LQj Tíl ITij i f / * 1 7jj \7q Tíl iTil L J í • 1 |i| i k i i i i t j j I r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.