Morgunblaðið - 31.07.1999, Síða 39

Morgunblaðið - 31.07.1999, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 39 LISTIR Kammerkór Suðurlands á Sumartónleikum f Skálholtskirkju Islensk kirkjutónlist í þúsund ár Islensk kirkjutónlist í þúsund ár er við- fangsefni Kammerkórs Suðurlands á Sumartónleikum í Skálholtskirkju í dag. Margrét Sveinbjörnsdóttir leit inn á æf- ingu hjá kórnum og átti spjall við stjóm- andann, Hilmar Orn Agnarsson. Morgunblaðið/Ásdís FELAGAR í Kammerkdr Suðurlands ásamt stjdrnandanum, Hilmari Erni Agnarssyni. KAMMERKÓR Suður- lands er enginn venju- legur kór sem kemur saman á æfingu einu sinni í viku. Það skýrist að nokkru leyti af dreifðri búsetu kórfélaga, en þeir koma allt frá Hornafirði að Akranesi. „Það er gamla Skál- holtsstiftið," segir stjórnandinn, Hilmar Örn Agnarsson í Skálholti. Til þess að halda kórfélögum við efnið sendir hann þeim nótur í pósti, þeir læra og æfa sig heima og svo kemur kórinn saman og tekur æfingaskorpu, gjarnan þrjár til fjórar æfingar, áður en tónleik- ar eru haldnir. Oft eru æfingarnar teknar upp á segulband, sem kór- félagar geta hlustað á og stuðst við þegar þeir æfa sig einir heima. Kórinn er einnig óvenjulegur að því leyti að í honum eru allmargir kórstjórar. Hilmar er þó sá eini sem stjórnar þessum kór og segir kollega sína láta bærilega að stjórn. „Inntökuskilyrðin eru eig- inlega þau að vera tónlistarmaður eða að hafa átt eitthvað verulega mikið við tónlist, en svo erum við líka með prest og bónda, sem er al- gjör undrabassi. Presturinn trygg- ir að heilagur andi sé með okkur,“ segir Hilmar. Ný lög ungra tónskálda við gamla sálma Upphaf Kammerkórs Suður- lands má rekja til þess er nokkrir söngfélagar komu saman og sungu messu eftir Haydn á Skálholtshá- tíð sumarið 1997. Á ári hverju er markmiðið að ráðast í tvö til þrjú verkefni, þar sem fengist er við ákveðið þema eða tímabil í tónlist- arsögunni. Þannig söng kórinn t.d. hákirkjuleg verk á þrennum tón- leikum vorið 1998 og veraldlega ástarsöngva á fernum tónleikum á haustmánuðum. Á tónleikunum í Skálholtskirkju í dag er aftur kom- ið að trúarlegri tónlist, en þá verð- ur stiklað á stóru í íslenskri kirkju- tónlist í þúsund ára sögu kristni í landinu. Kórinn hefur látið útsetja fyrir sig nokkur gömul og nýleg lög og einnig hafa tónskáld af yngri kynslóðinni samið fyrir kór- inn ný lög við gamla sálma. Fyrst á efnisskránni er sekvens- ía Ólafs helga, sem varðveitt er á skinnhandriti í Þjóðminjasafni-og Smári Ólason hefur útsett fyrir kórinn. Nánar er fjallað um sekvensíuna hér á opnunni, en að sögn Hilmars hljómaði hún síðast í Skálholti á 12. öld. Eftir Smára verður einnig flutt útsetning á sálminum Horæ Canonicæ, úr söngkveri Skálholtssveina, Hymni scholares, og útsetning á Reisusálmi Hallgríms Pétursson- ar, Ég byrja reisu mína. Messa eftir Gunnar Reyni Sveinsson Eftir þær Elínu Gunnlaugsdótt- ur og Báru Grímsdóttur verða fluttir sálmar og sálmaútsetning- ar. Eftir Elínu er m.a. nýtt lag við texta úr Sólarljóðum, Á Guð skal heita. Einnig verða flutt lög eftir Þorkel Sigurbjörnsson, alþýðutón- skáldið Ingibjörgu Bergþórsdóttur og Jakob Hallgrímsson, sem er ný- látinn en tónleikarnir eru tileink- aðir minningu hans. Þá verða flutt verk eftir þrjú ung tónskáld, þá Harald V. Sveinbjörnsson, Gunnar Andreas Kristinsson og Örlyg Benediktsson, en þeir eru allir nemendur í tónfræðideild Tónlist- arskólans í Reykjavík. „Stærsta verkið á efnisskránni er messan Missa Piccola eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Þar not- ar hann nokkur erindi úr Passíu- sálmum Hallgríms Péturssonar og blandar saman öllum stíltegund- um. Hann semur verkið í kringum 1980 og sem gamall pönkari verð ég að segja að ég finn í því mikil áhrif frá þeirri tónlistarstefnu, til dæmis þessar stækkuðu ferundir sem verkið byggist svolítið á,“ seg- ir Hilmar. Auk þess segir hann að greina megi í verkinu djasshljóma og þjóðlagastef, Gregorssöng og austurlenska tónstiga, svo eitthvað sé nefnt. í messunni leikur Kol- beinn Bjarnason einleik á flautu og Kári Þormar á orgel og félagar úr kórnum syngja einsöng. Tónleikarnir hefjast kl. 15 í dag í Skálholtskirkju og verður hluti dagskrárinnar endurfluttur í tón- listarstund kl. 16.40 á morgun, áð- ur en messa hefst. Lux Illuxit - Sekvensía Olafs helga I tilefni af Olafsmessu 29. júlí verður um helgina sunffln í Skálholtskirkju sekvensía Olafs helffa Haraldssonar. Njáll Sigurðsson hefur unnið að athugun á kirkjusöng í íslenskum miðaldahandritum og skrifar hér um sekvensíu heilags Olafs. OLAFUR Haraldsson Noregskonungur féll í frægri orustu sem háð var sumarið 1030 á Stiklarstöðum í Verdal í Þrændalögum. Skömmu síðar tóku að myndast um hann helgisögur og rúmlega einu ári eftir fa.ll konungs var líkami hans grafinn úrjörðu og lagður í skrín. Heilagur Olafur varð brátt þjóðardýrlingur Norðmanna og breiddist helgi hans fljótlega til annarra landa í Norðurálfii, meðal annars til íslands. Messudagar Ólafs helga eru tveir, Ólafsmessa hin fyrri 29. júlí (dánardagur) og Ólafsmessa hin siðari 3. ágúst (upptökudagur). Virðing hans mun hafa aukist mjög eftir að erkibiskupsstóll var settur í Niðarósi um miðja 12. öld og í dómkirkjunni þar var helgur dómur hans varðveittur. Helgi Ólafs var mikil hér á landi. Honum voru helgaðar rúmlega 60 kirkjur í öllum landshlutum og Ólafsmessa, cinkum sú fyrri, var meðal helstu hátíðisdaga kirkjuársins allt fram á 13. öld. Eftir það fór helgihald á þessum degi minnkandi vegna tilkomu innlendra dýrlinga. Eftir siðaskipti lagðist niður helgihald á Ólafsmessu hér á landi. Hins vegar héldu Færeyingar áfram hátíðahöldum á Ólafsmessu og hefúr hún með tímanum orðið eins konar þjóðhátíð í Færeyjum. Helgisöngvar til söngs á Ólafsmessu hafa varðveist í skinnhandritum sem skrifuð voru á miðöldum í Noregi, Svíþjóð, á Bretlandseyjum og á íslandi. Elst af þeim eru tvö handrit frá miðri 11. öld með helgitextum án nótna og er annað nú í British Library í London en hitt í Cambridge. Tíðasöngur Ólafs helga er varðveittur í heilu lagi í tveimur sænskum handritum, öðru 1 Stokkhólmi og hinu í Skara. Brot af tíðasöngnum er einnig að finna í norskum handritum og tveimur íslenskum sem eru þessi: AM 241 b HI a fol. Eitt skinnblað úr íslenskri tíðasöngsbók skrifaðri um 1300 eða nokkru síðar, nú í handritasafni Árna Magnússonar. Á blaðinu er brot af síðari hluta tiðasöngsins (ad vesperas, ad laudes). AM 241 b III /3 fol. Eitt skinnblað úr tiðasöngsbók skrifaðri á síðari hluta 15. aldar af íslenskum listaskrifara, Jóni Þorlákssyni að nafni, blaðið er nú varðveitt í handritasafni Árna Magnússonar. Jón þessi Þorláksson kom mjög við sögu ritunar kirkjusöngsbóka, m.a. skrifaði hann handrit þar sem varðveittir eru messusöngvar á Magnúsmessu Eyjajarls (sjá grein í Lesbók Morgunblaðsins 10. júlí s.l.). Á skinnblaðinu er brot af fyrri hluta Ólafstíða (ad matutinas). Texti tfðasöngsins var prentaður án nótna í Breviarium Nidrosiense 1519. Messusöngur á Ólafsmessu, einkum sekvensían „Lux illuxit", til söngs á undan guðspjalli, er varðveitt brotakennd í fimm handritum, þremur norskum og tveimur íslenskum. Með samanburði handrita og athugun á endurtekningum laglinunnar er unnt að ná saman allri sekvensiunni frá upphafi til enda með texta og nótum, og er hún alls níu erindi. Textinn án nótna er jafnframt prentaður í Missale Nidrosiense 1519. fslensk handrit sekvensíunnar eru þessi: AM 98 II 8vo. Yngri hluti af tvískiptu handriti messusöngsbókar, frá síðasta fiórðungi 15. aldar, nú í handritasafni Árna Magnússonar. fþessu handriti er að finna alla sekvensíu Ólafs helga, hins vegar eru viðkomandi skinnblöð mjög illa farin, einkum síðustu blöðin, og því vantar í bæði nótur og texta. Þjms 3411. Eitt skinnblað úr messusöngsbók skrifaðri á síðari hluta 15. aldar af fyrrnefndum Jóni Þoriákssyni. Blaðið er nú varðveitt í Þjóðminjasafni íslands. Þar er að finna upphaf sekvensíunnar, allt fyrsta erindið og annað erindið að mestum hluta. Efst á blaðinu, í upphafsstaf textans „Gaudeamus ornnes", er mynd af dýrlingnum, Ólafi helga. Um uppruna sekvensíunnar er ekki vitað. Talið er sennilegt að textinn sé ortur af ókunnum höfundi í Noregi á 12. öld eða um 1200. Laglínan er ekki þekkt við aðra sekvensíutexta og gæti hún einnig átt uppruna sinn að rekja til Noregs á svipuðum tíma. títgáfur söngva á Ólafsmessu og ritsmíðar um rannsóknir á þeim er einkum að finna í bókum eftir Georg Reiss, Erik Eggen og Lilly Gjerlow. Eftir siðaskipti á miðri 16. öld lagðist niður kirkjusöngur kaþólsku kirkjunnar sem iðkaður hafði verið í kirkjum og klaustrum á Islandi á miðöldum, nema sá latínusöngur sem prentaður var í fyrstu útgáfum grallara Guðbrands biskups Þorlákssonar og ætlaður var til söngs á helstu hátíðum kirkjuársins. Auk þess var sunginn latínusöngur við tíðagjörð skólapilta í Hólaskóla og Skálholtsskóla ailt fram á 18. öld. Allur annar kirkjusöngur frá kaþólskum tíma lá í þagnargildi hér á landi eftir siðaskipti og mikill bókakostur messusöngs- og tiðasöngsbóka á skinni var að mestum hluta eyðilagður miskunnarlaust. Slíkur söngur var ekki tekinn upp að nýju fyrr en kaþólskir prestar komu hingað til lands upp úr miðri síðustu öld og einkum þó eftir að kaþólskur söfnuður myndaðist og kaþólsk kirkja var byggð á Landakotshæð í Reykjavík. Starfsemi þeirrar kirkjudeildar hefur síðan breiðst út þaðan til fleiri staða á landinu. Ekki er vitað til þess að sekvensía Ólafs j helga hafi verið sungin hér á landi frá siðaskiptum fyrr en nú undir lok aldarinnar. Eina undantekningu er þó rétt að nefna. Sumarið 1979 var sett upp sýning í Þjóðminjasafni Islands í tilefni af því að 800 ár voru þá liðin frá fæðingu Snorra Sturlusonar (1179-1241). Þótti við hæfi að sýningargestir gætu hlýtt á einhvern kirkjusöng sem sunginn hefði verið hér á landi á dögum Snorra. Til þess var valin sekvensía Ólafs helga. Var hún búin til flutnings af Helgu Jóhannsdóttur þjóðlagasafnara og voru nokkrir féiagar úr Karlakórnum Fóstbræðrum fengnir til að syngja sekvensíuna inn á segulband í víxlsöng tveggja söngflokka undir stjórn undirritaðs. Hljóðritunin fór fram í Háteigskirkju. Með flutningnum nú um helgina, sem er helgin næst á eftir Ólafsmessu hinni fyrri 29. júlí, verður sekvensían „Lux illuxit...“ j sungin öðru sinni á þessari öld. Höfundur er tónlistarmaður og starfar í menntamálaráðuneyti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.