Morgunblaðið - 31.07.1999, Síða 51

Morgunblaðið - 31.07.1999, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ MARGMIÐLUN LAUGARDAGUR 31. JÚLÍ 1999 51 Öryggisstaðall fyrir DVD ÚTSALAN HEFST Á ÞRIÐJUDAGINN KL. 7.00 Póstsendum samdægurs J leðursóli ÞRÁTT fyrir deilur um gagna- snið á DVD-hljómdiskum eru menn sem óðast að vinna að staðli sem tryggir að ekki sé hægt, að afrita siíka diska ólög- lega. IBM er í fararbroddi þeirra fyrirtækja sem unnið hafa að mótun slíks staðals og kynnti með samstarfsaðilum sinum fyrir skemmstu högun sem fyrirtækið leggur til. IBM, Intel, Matsushita og Tos- hiba tóku höndum saman um að móta öryggisstaðal fyrir DVD- hljóindiska og kynntu á dögunum lausn sína. Staðallinn nýi byggist á stafrænu vatnsmerki og dulrit- un og fyrir vikið á að vera ókleift að afrita diska sem eru þannig merktir. Slíkt vatnsmerki væri eðlilega bara að finna á diskum sem seldir eru með tónlist á, en aðeins verður hægt að spila disk- ana á geislaspilurum sem styðja staðalinn. Eigandi getur gert eitt staf- rænt afrit af viðkomandi diski með fullum gæðum, en næsta afrit verður með lakari hljóm, þar næst með enn lakari hljóm og svo koll af kolli. Með þessu móti á kaupandi að geta gert eitt stafrænt afrit, til að mynda fyrir MiniDisk eða stafræna snældu. Helstu útgáfufyrirtæki heims, EMI, Sony, Bertelsmann / BMG, Seagram’s Universal Music og Time Warner hafa öll lýst ánægju sinni með staðalinn Okkar menn, félag fréttaritara Morgunblaðsins, og Morgunblaðið efndu til samkeppni um bestu Ijósmyndir fréttaritara frá árunum 1997 og 1998. I útibúi Landsbanka íslands í Ólafsvík hefur verið komið upp sýningu á þeim myndum sem dómnefnd taldi bestar. Myndefnið er fjölbreytt og gefst því kostur á að sjá brot af viðfangsefnum fréttaritara Morgunblaðsins sem eru um 100 talsins og gegna mikilvægu hlutverki í fréttaöflun blaðsins á landsbyggðinni. Sýningin stendur til fimmtudagsins 12. ágúst og eru myndirnar á sýningunni til sölu. og hyggjast gefa út alla sína DVD-tónlistardiska eftir hon- um. Ekki er búist við að DVD-tón- listardiskar komi á markað fyrr en seinna á þessu ári í fyrsta lagi, en slfldr diskar bjóða upp á talsvert betri hljóm, aukinheldur sem á þeim má fjölga rásum og setja með alls kyns aukreitis efni, hreyfimyndir, texta og þar fram eftir götunum. • • Orsmáar rafhlöður T oppskórinn VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212 RAFHLÖÐUR fara sífellt minnk- andi en tæknin sem þær byggja á takmarkar þó stærðina verulega. Rannsóknarmenn hafa því leitað í aðrar orkuuppsprettur og kjarn- orka virðist þeim vænlegur kost- ur. I þeirri viðleitni sinni að smíða æ minni rafhlöður, meðal annars til að nota í örsmá mælitæki eða í heilsumæla, hafa menn snúið sér að kjarnorku. Ekki eru þeir þó að nýta sér kjarnakljúfa, heldur nota þeir helmingunartíma ýmissa geislavirkra efna sem orkuupp- sprettu. Á helmingunartímanum, sem getur verið frá nokkrum mín- útum upp í mörg ár, gefur geisla- virkt efni frá sér nokkuð af orku og vísindamenn hyggjast nýta þá orku til að framleiða rafmagn. Slíkar rafhlöður hafa áður verið smíðaðar en þá miklu stærri en menn stefna nú að, því þeir telja ekki ólíklegt að takast megi að setja saman rafhlöðu sem sé mjórri en mannshár. Slíkar rafhlöður mætti nota í raftæki sem nýtt eru í mannslíkama til að létta sjúkling- um lffið eða til að knýja örsmáa skynjara í vélum. Geislavirknin frá slíkri rafhlöðu yrði sáralítil og tals- vert minni en geislunin er úr venjulegum steinsteyptum vegg. Þó vísindamenn telji sig geta sýnt frumgerð slíkrar rafhlöðu þegar á næsta ári líða nokkur ár áður en kemur að því að fara að framleiða þær í einhverju magni. Verð áðuí-lcrr6T995,- nú kr. 2.995,- Litir svartur. Stærðir 41-46. Nýir Intel- örgjörvar EFTIR rólega daga á ör- gjörvamarkaði undanfarnar vik- ur er heldur en ekki að hitna í kolunum. AMD hefur glímt við taprekstur og ekki verður til að bæta stöðu fyrirtækisins að á næstunni sendir Intel frá sér tvo nýja öfluga örgjörva. AMD kynnti fyrir nokkru K7/Athlon örgjöva sinn, sem var ódýrasti örgjörvi á markaði miðað við reiknigetu. Intel var ekki lengi að svara því, kynnti í vikunni nýja gerð af Pentium III örgjöiva sínum og við sama tækifæri nýjan Celeron-ör- gjörva sem ætlað er að slá At- hlon AMD við. Nýi Pentium III örgjörvinn er 600 MHz og því sá öflugasti þeirrar gerðar sem In- tel hefur sett á markað sem komið er. Hann nýtir 100 MHz kerfisbraut, en getur nýtt sér 133 MHz kerfisbraut sem kem- ur á markað í september. Celer- on örgjörvinn nýi er síðan 500 MHz, en öflugasti Pentium Cel- eron örgjörvinn til þessa var 466 MHz. Fyrir skemmstu lækkaði Intel verð á Pentium III og Celeron örgjöivum sín- um til að búa í haginn fyrir nýju örgjörvana en önnur verðlækk- un er væntanleg í lok ágúst. Athlon örgjörvi AMD er 600 MHz en margir draga í efa að fyrirtækið geti framleitt hann í nægjanlegu magni til að svara eftirspurn. Fréttir á Netinu ^mbl.is ALLTAF= eiTTHVAÐ NÝTl
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.