Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 72

Morgunblaðið - 31.07.1999, Qupperneq 72
72 LAUGARDAGUR 31. JIJLÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ KAREN Björk Björgrinsdóttir og Adam unnusti hennar gera það gott í stórsýningunni Burn the Floor. MATHEW og Nicole Cutler eru um þessar mundir í öðru sæti á heimslista dansara. Þetta er glæsilegt par með mikla útgeislun. Tignarleg, hröð og spennandi ÞAÐ er vaiinn maður á hveijum stað í glæsisýningunni Burn the Floor sem er allt í senn metnaðarfuli, hröð, falleg og erótísk danssýning. DANS Danssýningin Burn the Floor Fimmtudaginn 15. júlí síðastliðinn var frumsýnd í Englandi glæsidans- sýningin Burn the Floor, sýning sem er ailt í senn tignarleg, spennandi, full af hraða og kynþokkafull. Burn the Floor er talin dýrasta dansupp- færsla sem nokkurntíma hefur verið sett upp og er kostnaðurinn talinn hlaupa á milljónum enskra punda. HUGMYNDIN að þessari sýningu kviknaði í fímmtugsafmæli hins sí- unga rokkara Elton John, sem hann hélt uppá í mars árið 1997. Þar var tæplega hálftímalöng samkvæmis- dansasýning sem heillaði svo einn gesta Eltons Johns að hann gat ekki hætt að hugsa um þessa sýningu. Hugmynd hans að Burn the Floor þróaðist áfram í huga hans og varð að þeirri stórsýningu sem nú hefur litið dagsins Ijós. Þessi maður er Ástralinn Harley Medcalf sem er tal- inn einn færasti og bezti framleið- Skólavörðustíg 21 • sími 551 4050 • Reykjavík andi í Ástralíu. Hann hefur sett upp fjöldann allan af sýningum sem farið hafa sigurfór um heiminn. Harley Medcalf hefur- einnig séð um ótal tónleikaferðir heimsþekktra lista- manna eins og t.d. Elton John, Billy Joel, Kenny G, Queen og Boyz II Men og svo mætti lengi telja. Smærri tónleika hefur hann einnig skipulagt og haft veg og vanda af og þá með fólki eins og Frank Sinatra, Marlene Deitrich, Bob Dylan, Alanis Morrisette og The Cranberries. Af þessari upptalningu má sjá að hér er á ferðinni einn vinsælasti hönnuður og tónleikaframleiðandi í heiminum í dag. Heimsþekktir listamenn Harley Medcalf hefur fengið til liðs við sig fjöldann allan að heims- þekktum listamönnum, dansahöf- undum, dönsurum, ljósamönnum og hljómlistarmönnum til að gera draum sinn að veruleika. Ber þar fyrstan að nefna leikstjórann Ánt- hony Van Laast en hann hefur sett upp og samið dansa íyrir ótal marg- ar sýningar og tónleika út um allan heim og m.a. starfað við hið merka óperuhús Covent Garden í London. Fyrir sjónvarp hefur hann starfað mikið og þá helzt í sambandi við kon- unglegar uppfærslur; konungleg af- mæli og svo framvegis. Aðstoðarleik- stjóri og einn aðaldansahöfundurinn í Bum the Floor er hin heimsþekkta og virta Lindsey Hillier-Tate, en hún er margfaldur Evrópu-og heims- meistari í sígildum samkvæmisdöns- um, bæði sem áhugamaður og at- vinnumaður. Lindsey er mjög eftir- sóttur þjálfari og dómari út um allan heim og kennir mikið í Þýzkalandi, Danmörku Japan, Hong Kong, Bandaríkjunum og Rússlandi. Tón- listarstjóri sýningarinnar er Stephen Brooker og er hann talinn fremstur meðal jafningja sinna á Bretlandi og hefur hann stjórnað fjölda heims- þekktra hljómsveita s.s. Konunglegu fílharmoníusveitinni og mörgum fleiri. Búningahönnuður er Bonita Bryg en hún hóf ótrúlegan dansferil sinn er hún vann 5 ára námsstyrk í Konunglegu dansakademíunni. Þar hlaut hún kennslu hjá þekktustu kennurum ballettsins m.a. Dame Marie Rambert, Dame Margot Fonteyn, Phyllis Baddels og Irinu Baronovu. Hún stundaði seinna klassískan ballet að mestu, ásamt því að stunda rússneska og pólska þjóð- dansa við Konunglega ballettháskól- ann undir leiðsögn margra frábærra kennara s.s. Sir Fredrick Ashton og Dame Ninette De Valois. Hún varð meðlimur konunglega ballettflokks- ins og dansaði þar m.a. með hinum heimsfrægu dönsurum Fonteyn og Nureyev en varð að hætta í flokkn- um sökum hryggmeiðsla sem hún hlaut. Síðan þá hefur hún komið að alls kyns hönnun og samið dansa fyr- ir margskonar sýningar og þá einna helzt í sjónvarpi. Islendingur í Manchester United dansaranna! í sýningunni taka þátt 44 dansar- ar, sem eru í fremstu röð í heimin- um. Dansararnir eru frá 12 löndum og m.a. einn dansari frá íslandi. Það er Karen Björk Björgvinsdóttir, en hún dansar í sýningunni ásamt unnusta sínum Adam Reeve. Karen hefur verið búsett í Englandi undan- farin ár, þótt ung sé að árum, en hún er einungis nýorðin 18 ára. í Englandi hefur hún stundað dans- nám og hefur henni gengið mjög vel. Karen Björk hefur unnið til nokk- urra íslandsmeistaratitla og keppt fyrir íslands hönd á heimsmeistara- mótum. I samtali við Morgunblaðið sagði hún þessa sýningu vera ein- staklega glæsilega og hvergi til sparað. „Æfmgatímabilið hefur ver- ið geysilega erfítt, en jafnframt ákaflega spennandi og skemmtilegt, við æfðum 12-14 klukkutíma á dag. Þetta er allt öðruvísi en að vera í danskeppni, því hér eru pörin að vinna saman en ekki sífellt að keppa við hvert annað. Hér er líka allt nýtt fyrir okkur og þetta er tækifæri sem manni gefst einungis einu sinni á lífsleiðinni svo það var eins gott að grípa það. Anthony, leikstjórinn okkar, sagði á fyrstu æfíngunni að við værum nokkurskonar Manchest- er United dansaranna og í stað þess að keppa við hvert annað ættum við að vinna saman sem eitt lið til að skapa einstaka sýningu sem myndi ekki aðeins sýna okkar eigin dans og hæfileika heldur í raun heim dans- ins! Svo fáum við líka tækifæri til að tjá okkur öðruvísi og vera með öðru- vísi dansa en við erum vön og það er líka rosalega skemmtilegt!“ Karen sagði að þessi sýning væri einstak- lega íburðarmikil og glæsileg í alla staði og hefðu gestir á frumsýning- unni tekið henni ákaflega vel með löngu klappi og húrrahrópum. „Ég hef aldrei séð önnur eins fagnaðar- læti ... þetta var æðislegt!“ sagði Karen Björk Björgvinsdóttir. Karen sagði að mikið af frægu fólki hefði verið á frumsýningunni t.d. Barry Humphrey (sá sem leikur Dame Edna), hann sagði að sýningin væri hin leikræna útgáfa af VIAGRA! Eins var Harry Connick Jr. á svæð- inu og hreifst ákaflega af sýning- unni. Karen var nýkomin til Ástral- íu, eftir 18 tíma flug, þegar Morgun- blaðið náði tali af henni og framund- an var sýning í Perth, þar sem yfír sex þúsund miðar voru löngu upp- seldir. Margt heimsfrægra samkvæmis- dansara er í sýningunni, eins og fyrr er sagt og ber þar hæst Jason Gilk- inson og Peta Roby frá Ástralíu, en þau hafa unnið til fjölda verðlauna, urðu m.a. heimsmeistarar í 10 döns- um, hafa unnið heimsbikarinn o.s.frv. Mathew og Nicole Cutler eru búin að vera í fremstu röð síðan þau byrjuðu að dansa saman árið 1994 og eru í öðru sæti á heimslistanum í dag í suður-amerískum dönsum í flokki áhugamanna. Eins er þarna fjöldi annarra heimsþekktra dansara. Heimshornaflakk Einungis voru nokkrar sýningar á Englandi til að byrja með því hópur- inn hélt allur til Ástralíu s.l. sunnu- dag þar sem fjölmargar sýningar eru fyrirhugaðar og er mikill áhugi fýrir þessari sýningu þar, segir Kar- on Maskill, fjölmiðlafulltrúi Burn the Floor. Hópurinn ferðast um Ástralíu í rúman mánuð. Til Evrópu kemur sýningin ekki fyrr en í lok október og verður þá sýnt í Manchester, Kaupmannahöfn og víðar. í janúar á næsta ári fer sýn- ingin til Bandaríkjanna og þaðan til Japan, svo þetta verður sannkölluð heimsreisa. Telja menn víst að þessi sýning komi til með að vekja gífur- legan áhuga á samkvæmisdönsum um allan heim og er nokkuð ljóst að hún kemur til með að hljóta mikla athygli hvar sem hún kemur. Fyrir þá sem vilja afla sér frekari upplýs- inga um þessa sýningu, þá vil ég benda þeim á slóðina sem er: www.burnthefloor.com. Burn the Floor í Manchester Ferðaskrifstofan - Úrval Útsýn ætlar að sjá til þess að íslendingar geti komist á þessa stórsýningu með því að efna til hópferðar til Manchester 5.-8. nóvember n.k. Margrét Óskarsdóttir, hjá Úrval - Útsýn sagði í samtali við Morgun- blaðið að þessi ferð væri hugsuð fyr- ir þá sem vildu sameina innkaupa- og skemmtiferð fyrir jólin og sjá þessa glæsilega danssýningu sem Burn the Floor er. „Hvar er heppi- legra að sjá Manchester United dansaranna en í Manchester borg sjálfri?" sagði Margrét að lokum. Jóhann Gunnar Arnarsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.