Morgunblaðið - 18.09.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsókn stóra fíkniefnamálsins heldur áfram
Tveggja Islendinga
leitað í Danmörku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fíkniefnin sem lagt var hald á voru sýnd fréttamönnum í gær og gat þar
að líta þau ókjör af efnum sem komin eru í leitimar. Lögreglan er þó
ekki hætt leit að meira magni efna og er rannsókn enn í fullum gangi.
DANSKA lögreglan leitar nú
tveggja íslendinga á þrítugsaldri í
Danmörku vegna málsins og að
auki hafa tveir lögreglumenn frá
Lögreglunni í Reykjavík verið
sendir út í sama skyni. Handtöku-
skipun á hendur mönnunum hefur
verið komið á framfæri við alþjóða-
deild ríkislögreglustjóra sem hefur
lýst eftir mönnunum í allri Evrópu í
gegnum Interpol. Ennfremur hefur
lögreglan rætt við efnahagsbrota-
deild ríkislögreglustjóra um að
efnahagsbrotadeildin aðstoði við
rannsóknina að því er viðkemur
eignafærslum þeirra manna sem
handteknir hafa verið. Að sögn lög-
reglu hafa dönsk yfirvöld sýnt
áhuga á rannsókn málsins vegna
stærðar sem þykir talsverð, jafnvel
á danskan mælikvarða.
Yfirmenn lögreglunnar létu það
uppi í gær að annar þeirra manna,
sem leitað er að í Danmörku, sé
staifsmaður Samskipa þar ytra. Þá
staðfesti lögreglan að einn þeirra
sem nú sitja í gæsluvarðhaldi sé
einnig starfsmaður Samskipa.
Hald lagt á fleiri dýrar bifreiðir
Lögreglan í Reykjavík og toll-
gæslan sýndu fréttamönnum hið
mikla magn fíkniefna, sem lagt var
hald á fyrir réttri viku, á frétta-
mannafundi í höfuðstöðvum lögregl-
unnar í gær og gerðu grein fyrir
stöðu mála í rannsókninni.
Eins og fram hefur komið lagði
lögreglan hald á þrjár glæsibif-
reiðir í upphafi málsins en á síð-
ustu dögum hefur verið lagt hald á
fleiri slíkar bifreiðir þ.á m. Benz-
bifreiðir og ameríska jeppa. Alls
eru nú átta bifreiðir í vörslu lög-
reglunnar. Að sögn lögreglunnar
eru allar bifreiðirnar á vegum
þeirra fjögurra sem nú sitja í
gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar
málsins. Einn þeirra fjögurra
manna sem sitja í gæsluvarðhaldi
hefur kært gæsluvarðhaldsúr-
skurðinn til Hæstaréttar, en hinir
una úrskurðinum.
Margháttaður ávinningur lög-
reglu og tollgæslunnar
Þótt lögreglan telji það mikinn
árangur að leggja hald á svo mikið
magn fíkniefna, sem hér um ræðir,
þ.e. 24 kg af hassi, 6 þúsund e-töfl-
ur, 4 kg af amfetamíni óg 1 kg af
kókaíni og loka með því aðflutn-
ingsleiðinni sem notuð var telur
hún þann ávinning ekki minni að
koma í veg fyrir að efnin komist í
hendur neytenda, bæði þeim sem
eru í neyslu fyrir og ekki síður að
koma í veg fyrir að nýir neytendur
bætist í hópinn. Þá telur lögreglan
það mikinn ávinning að koma í veg
fyrir aðrar afleiðingar sem slík
efni í notkun geta haft, þ.e. annars
konar afbrot sem fylgja fíkniefn-
um.
Ánægja ríkir meðal lögreglu og
tollgæslu með samstarf það sem
ieitt hefur af sér þann árangur sem
náðst hefur nú þegar málinu. Telur
tollgæslan að í málinu hafi reynt á
samstarfssamning í fíkniefnamál-
um, sem gerður var milli embættis
ríkislögreglustjóra og toligæslunn-
ar í vetur. Þá hefur mannafli beggja
aðila verið samnýttur og tollgæslan
tekið aukinn þátt í rannsókninni
sem slíkri, m.a. farið í húsleitir
ásamt lögreglu sem telst nýlunda í
starfsemi tollgæslunnar.
Blönduós
Timburhtís
brann illa
EITT elsta timburhúsið á
Blönduósi skemmdist mikið í
eldi í gærkvöldi. Ibúar hússins
voru ekki heima svo engan sak-
aði en eignatjón er að öllum
líkindum verulegt.
Húsið var tvílyft timburhús
og stóð í elsta hluta bæjarins.
Tilkynnt var um eldinn um
klukkan 21.30 í gærkvöld og
gekk slökkvistarf vel en það
stóð í um tvær klukkustundir.
Ekki er vitað um eldsupptök,
að sögn lögreglunnar á
Blönduósi.
Bill út af veg-
inum við
Gljúfurá
LAND ROVER bflaleigubQl,
sem í voru níu skiptinemar, fór
út af veginum við Gljúfurá í
Borgarfirði í gær. Engin alvar-
leg slys urðu á fólkinu sem var
á norðurleið, en tvennt var þó
flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur
til frekari athugunar vegna
bakmeiðsla.
Mikil mildi er að ekki fór
verr, en bfllinn staðnæmdist
skammt frá gljúfrinu, sem er
mjög djúpt. Töluverðar
skemmdir urðu á bflnum og
eru tildrög slyssins talin þau að
ökumaður hafi misst bflinn út í
vegkant.
Morgunblaðið/Ingvar
Einn fluttur á slysadeild
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar var
fluttur á slysadeild með sjúkrabif-
reið eftir árekstur tveggja bifreiða á
Bæjarháisi á fimmta tímanum í
gær. Aðrir sem voru í bifreiðunum
fundu tfl eymsla að sögn lögreglu en
ekki þurfti að flytja þá með sjúkra-
bifreið á slysadeild. Slökkvilið
Reykjavíkur var kvatt á vettvang til
að ná hinum slasaða út með klippum
þar sem bifreiðin klesstist mikið.
Hin bifreiðin skemmdist einnig og
voru báðar dregnar af vettvangi
með kranabifreið.
Aðalfundur Samtaka fískvinnslustöðva
Þenslan neikvæð fyrir
samkeppnisstöðuna
AUKIN þensla í þjóðfélaginu, með
tilheyrandi kostnaðarhækkunum,
hefur neikvæð áhrif á samkeppnis-
stöðu útflutningsgreina og þann
stöðugleika sem hefur haft áhrif á af-
komu atvinnurekstrar og verið
grundvöllur bættra lífskjara hér á
landi á undanförnum árum. Þetta
kemur fram í ályktun aðalfundar
Samtaka fiskvinnslustöðva sem hald-
inn var í gær.
Fundurinn ítrekaði ennfremur
fyrri áskoranir til stjórnenda ríkis og
sveitarfélaga að gæta aðhalds í
rekstri og framkvæmdum og nýta
þann mikla tekjuauka sem skapast
hefur í stórauknum hagvexti hér á
landi til að greiða niður skuldir. Nú
sé orðið ljóst að skuldasöfnun sveit-
arfélaga hafi haldið áfram og ekki
hafi tekist að draga nægilega úr um-
svifum ríkisins í því góðæri sem ríkt
hafi.
Kvótaþing verði lagt
niður hið fyrsta
Þá er í ályktuninni skorað á sjáv-
arútvegsráðherra að flýta endur-
skoðun laga um starfsemi Kvóta-
þings íslands með það fyrir augum
að starfsemi þess verði lögð niður
hið fyrsta. Áhyggjur um að starfsemi
þingsins myndi raska starfsumhverfi
fiskvinnslunnar hafi reynst réttar.
Fundurinn taldi að opinbert eftirlit
með skiptaverði verði fyllilega
tryggt með starfsemi Verðlagsstofu
skiptaverðs og það sé með öllu ólíð-
andi íyrir íslenskan sjávarútveg að
starfsemi Kvótaþings hefti eðlileg
viðskipti fyrirtækja og trufli með
þeim hætti hráefnisöflun fiskvinnsl-
unnar.
I ályktuninni segir ennfremur að
uppiýsingar um þróun afurðaverðs,
hráefiiiskostnaðar og helstu rekstrar-
þátta í fiskvinnslu, staðfesti þá rekstr-
arstöðu sem við er að glíma í afkomu
sjávarútvegsfyrirtækja. Þessar tölur
sýni ennfremur að afkoma í rækjuiðn-
aði er erfið vegna mikils samdráttar í
rækjuveiðum. Góð afkoma í mjöl- og
lýsisvinnslu undanfarin ár hafi einnig
breyst til hins verra á undaníornum
mánuðum vegna mikilla verðlækkana.
Fiskimjölsframleiðendur geri sér þó
vonir um að botninum sé náð í verð-
þróun á mjöli og lýsi.
■ Mikill kraftur/26
NEVWC
i.isriii
WÖOHH-OI
Serbloð i dag
ALAUGARDOGUM
¥ ¥7C¥¥¥^*^
LCöDU
MOR(>UNBLAÐSINS
Fimm lið hafa sýnt Tryggva
Guðmundssyni áhuga / B1
Stjarnan fylgir Fylki upp í
efstu deild / B2