Morgunblaðið - 18.09.1999, Page 16

Morgunblaðið - 18.09.1999, Page 16
16 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Smíði á nýjum stúdentagarði að hefjast 29 íbúða hús á 7 hæðum HAFIST verður handa við bygg- ingu nýs stúdentagarðs Félags- stofnunar stúdenta á Akureyri í næstu viku, en hann verður við Drekagil. Um er að ræða sjö hæða hús með 29 íbúðum alls, 14 þeirra eru þriggja herbergja, jafnmargar tveggja herbergja og ein einstak- lingsíbúð. Þá er einnig kjallari í húsinu. SJS-verktakar reisa húsið og mun Félagsstofnun stúdenta á Akureyri í íyrstu lotu kaupa 10 íbúðir í húsinu og skuldbindur sig til að taka hinar 19 á leigu. Stefnt er að því að sögn Ólafs Búa Ólafs- sonar, framkvædastjóra Háskólans á Akureyri, að kaupa allar íbúðim- ar í húsinu svo fljótt sem auðið er, sennilegast á árunum 2000 til 2001. Hann sagði þetta íyrirkomulag nýmæli hjá Félagsstofnun stúd- enta á Akureyri, þ.e. að kaupa hús í áföngum. Fyrsti stúdentagarður- inn, Útsteinn við Skarðshlíð, var tekinn í notkun árið 1989 en þar eru 10 íbúðir og 14 einstaklings- herbergi. Á árunum 1992 til 1993 voru teknar í notkun íbúðir við Klettastíg 2, 4 og 6, en þar eru 18 íbúðir og 12 einstaklingsherbergi. Frá þeim tíma hafa ekki verið teknar í noktun nýjar stúdentaí- búðir. Gert er ráð fyrir að íbúðirn- ar í húsinu við Drekagil verði til- búnar 1. ágúst árið 2000. Bætir úr brýnni þörf „Það ljóst að ef við hefðum fleiri íbúðir til umráða hefðu komið hing- að fleiri nemendur. Þetta er mjög stórt skref sem við tökum núna og bætir mjög úr brýnni þörf fyrir fleiri námsmannaíbúðir á Akur- eyri,“ sagði Ólafur Búi. Hann sagði að þrátt fyrir skort á íbúðum hefði nemendum skólans fjölgað um 15% milli ára, þeir voru um 500 á síð- asta skólaári en eru nú um 590. Gult og gott KÝRNAR hans Þorláks Aðalsteinssonar í Bald- mjaltir. Sumarrepja er kjarngott fóður sem kýrn- ursheimi í Arnarneshreppi í Eyjafirði eru hrifnar ar kunna vel að meta og ekki skemmir hinn af sumarrepjunni sem þeim er boðið upp á eftir skærguli litur ánægjuna af velheppnaðri máltíð. Kynning á starfsemi þýskrar listastofnunar Morgunblaðiö/Kristján Hita- og vatnsveita Akureyrar Skemmdir urðu á aðveituæð KYNNING á starfsemi Stiftung Kunstlerdorf Schöppingen, sem er listastofnun í bænum Schöppingen í Þýskalandi, verður í Listasafninu á Akureyri næstkomandi mánu- dagskvöld, 20. september, kl. 21. Stofnunin býður myndlistar- mönnum og rithöfundum að dvélja nokkra mánuði og vinna að list sinni í björtum og rúmgóðum vinnustofum í tveimur húsum, annars vegar húsi skálda og hins vegar húsi myndlistar. Listamenn styrktir Dr. Josef Spiegel, forstöðumað- ur stofnunarinnar, mun kynna starfsemina og það sem í boði er fyrir myndlistarmenn og rithöf- unda. Einar Öm Gunnarsson, rit- höfundur, sem verið hefur gestur á Kunstlerdorf mun jafnframt greina frá dvöl sinni þar. Stofnunin býður styrki að upp- hæð 2.000 þýsk mörk auk afnota af íbúð og vinnustofu til sex eða níu mánaða. Hverju sinni dvelja þar sjö myndlistarmenn og sjö rithöf- undar. Sýningaraðstaða er til stað- ar og lítið gallerí. Stofnunin að- stoðar listamenn við að koma list sinni á framfæri við listhús og bókaforlög í Þýskalandi. Kynningin er í boði Myndlistar- skólans á Akureyri í samstarfi við Listasafnið á Akureyri, Sigurhæð- ir - hús skáldsins og Amtsbóka- safnið. SKEMMDIR urðu á aðveituæð Hita- og vatnsveitu Akureyrar í Naustabrekku ofan skautasvells- ins við Krókeyri þegar hjóiaskófla ók á æðina. Magnús Finnsson, tæknifræð- ingur lijá Hita- og vatnsveitu Akureyrar, sagði að aðveituæðin hefði laskast nokkuð og færst til á undirstöðum. Gert var við æðina til bráðabirgða í gær, en viðgerð fer fram á næstunni. Taka þarf æðina í sundur og setja inn nýjan bút þar sem hún skemmdist. Hann sagði þetta töluvert verk og kostnaður gæti numið einhverjum hundruðum þúsunda. Magnús sagði að fáir notendur myndu verða viðgerðarinnar varir, helst þeir sem væru á svæðinu sunnan skautasvellsins og að Kjarna- skógi. Þannig væri líklegt að vatnslaust yrði á Akureyrarflug- velli þann tíma sem viðgerð stæði. Á myndinni eru þeir Hreinn Grétarsson og Sigurður Blöndal, starfsmenn Hita- og vatnsveitu Akureyrar, að vinna að bráða- birgðaviðgerðum á aðveituæð veitunnar. Kirkj’ustarf AKURE YRARKIRK J A: Lesmessa kl. 11 á morgun, sunnudag. Altaris- ganga, sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir messar. Morgunbæn í Akureyrar- kirkju ki. 9 á þriðjudagsmorgun, 21. september. Mömmumorgunn í Safn- aðarheimilinu kl. 10 til 12. Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12 á fimmtu- dag og hefst hún með orgelleik. Bænaefnum má koma til prestanna. GLERÁRKIRKJA: Messa verður í Lögmannshlíðarkirkju kl. 14 á morg- un, sunnudag. Kyrrðar- og til- beiðslustund í kirkjunni kl. 18.10 á þriðjudag. Hádegissamvera kl. 12 til 13 á miðvikudag, 22. september. Orgelleikur, fyrirbænir, altar- issakramenti og léttur hádegisverð- ur á vægu verði. Opið hús íyrir mæð- ur og börn frá 10 til 12 á fimmtudag. Barnakór Glerárkirkju æfir á fimmtudögum frá kl. 17.30 til 18.30. Nýir félagar velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN: Bæn á sunnudag kl. 16.30, almenn sam- koma kl. 17 sama dag og unglinga- samkoma um kvöldið kl. 20. Heimila- samband kl. 15 á mánudag. Hjálpar- flokkur kl. 20 á miðvikudag. ÓLAFSFJARÐARKIRKJA: Kvöld- messa í Ólafsfjarðarkirkju kl. 20.30 á sunnudag, 19. september. Alþjóðlegi Alz- heimer-dagurinn Kynningar- og fræðslu- fundur í TILEFNI af alþjóðlega Alzheimer-deginum á ári aldr- aðra, þriðjudaginn 21. septem- ber, verður haldinn kynningar- og fræðslufundur hjá FAASAN, Félagi áhugafólks og aðstand- enda Alzheimer-sjúklinga og heilabilaðra á Norðurlandi. Fundurinn verður kl. 20.30 í Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri í salnum vestan við aðalinngang- inn. Gestur fundarins verður Arna Rún Óskarsdóttir, sérfræð- ingur í öldrunarlækningum við FSA á Kristnesi. Hún mun fjalla um heilabilun og Alzheimer-sjúk- dóminn. Starfsemi FAASAN, saga fé- lagsins og framtíðaráform verða kynnt og eru allir sem áhuga hafa á málefnum tengdum Alz- heimer-sjúklingum og heilabil- uðum hvattir til að mæta. Fund- urinn er öllum opinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.