Morgunblaðið - 18.09.1999, Síða 34

Morgunblaðið - 18.09.1999, Síða 34
34 LAUGARDAGUR 18. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Daði Guðbjörnsson sýnir olíumálverk í Listasafni ASI Ljóðræn lýs- ing hins flókna nútíma Daði Guðbjörnsson listmálari segist reyna að lýsa hinum flókna nútíma á Ijóðrænan og persónulegan hátt án þess að _____reyna að einfalda myndmálið._ Margrét Sveinbjörnsdóttir ræddi við Daða í tilefni af sýningu hans sem opnuð verður í ------------7--------------------- Listasafni ASI við Freyjugötu í dag. Morgunblaðið/Kristinn Daði Guðbjömsson með Gullkálfinn, í bakgrunni. Á SÝNINGUNNI eru tuttugu olíu- málverk unnin á síðastliðnum tveimur árum. Daði segir að myndlist hans sé þannig að það verði einfaldlega að skoða hana. „Myndin er þama á striganum og þú getur lesið hana þar. Það væri hægt að skrifa helling í kringum hana, það er viðbót sem er af hinu góða en hún er ekki bráðnauðsyn- leg. Besta myndlistin sem ég veit um er mynd sem ég horfi á og dregst að, ég veit ekkert um hana en sé að hún er athyglisverð," segir hann. „Þegar ég bytjaði var ég mjög hrár í framsetningu og expressjón- ískari en ég er núna. Síðan hef ég smám saman verið að endurvinna myndheiminn og er meira að spekúlera í ljósi, litum og stemmn- ingum í kringum það. En þessi myndlist mín byggist mikið á hug- myndum og er unnin mjög meðvit- að,“ heldur Daði áfram. Hann segir það áberandi í mál- verkinu nú að fólk leggi meira upp úr vönduðum vinnubrögðum en áð- ur. „Málarafagið er á mikilli upp- leið, mér finnst margt af þessu unga fólki sem hefur verið að koma fram á síðustu árum vera mjög fag- legt og vinna vel.“ Merkingarleysi orðsins myndlist í kynningu á sýningunni hefur Daði skrifað að hann reyni að „lýsa hinum flókna nútíma á ljóðrænan og persónulegan hátt, án þess að reyna að einfalda myndmálið og kveðja þannig öldina á tímum þar sem orðið myndlist hefur ekki neina sérstaka merkingu". Hvað á hann við með þessu? „Nútímalista- menn hafa sumir hverjir farið út í það að reyna að búa til mjög ein- falda hluti; einn hlut, einfaldan flöt eða eitthvað slíkt, og svo búa þeir til fílósófíur í kringum það. Það er hægt að skrifa langar ritgerðir um hvernig það kemur til en það sem ég hef meiri áhuga á er að gera mynd eins og skáldskap, búa til stemmningu kringum hlutina. Eg vil skapa einhvem heim eða raun- veraleika sem er einskonar tál- mynd, en ekki reyna að einfalda og taka út úr,“ segir hann og bætir svo við: „Þegar ég var í Myndlista- og handíðaskólanum var ég í ein- hverju sem hét nýlistadeild. Þá spiluðu menn kannski tónverk og sögðu að það væri myndlist, svo kom sá næsti með performans eða leikrit og þá var það líka myndlist, allt bókstaflega gat verið myndlist. Þess vegna finnst mér orðið myndl- ist ekki hafa neina sérstaka merk- ingu lengur. Þess vegna hef ég titl- að mig listmálara. En ég er hættur því núna vegna þess að úthlutunar- nefndimar vilja af einhverjum ástæðum frekar láta mann hafa pening ef maður kallar sig mynd- listarmann, það er miklu vænna fyrir svona nefndir. Þannig að þeg- ar ég sæki um eitthvað þá titla ég mig alltaf myndlistarmann - en það tók mig tíu, tuttugu ár að sjá í gegnum þetta,“ segir Daði, sem enn er þó skráður listmálari í síma- skránni. Mjög margir komnir inn í fagið en alltaf jafnfáir útvaldir Hann vísar því á bug sem alger- um misskilningi að allir séu á móti málverkinu og málurum, eins og margir hafa viljað vera láta að und- anförnu. „Eg held að málverkið sé síður en svo úti núna, þannig að ég held að þetta sé allt byggt á tómum misskilningi. Málverkið er ennþá það form sem er langmest sýnt og selt. Það eru hins vegar komnir mjög margir inn í fagið en það era alltaf jafnfáir útvaldir. Eg á mjög marga kollega sem eru að mála og vissulega gengur sumum betur en öðram. Þeir, sem gengur ekki jafn vel, taka því margir hverjir af mik- illi karlmennsku, og bíta á jaxlinn og standa með sjálfum sér, vitandi það að þeir eru að gera hluti sem era heiðarlegir og góð myndlist og einhvern tíma verða þeh- metnir, þó að fólk bíti ekki á það í dag. Eg hef sjálfur lent í því að það koma svona tímabil. Fólk var til dæmis ekkert rosalega hrifið af því sem ég var að gera fyrst þegar ég var að byrja.“ Sýningin, sem er í Ásmund- arsal og Gryfju Listasafns ASI við Freyjugötu, verður opnuð kl. 16 í dag og stendur til 3. október nk. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 14-18. Einnig má sjá nokkur af verkum Daða á heimasíðu hans en slóð hennar er www.mmedia.is/he.art.dadi. Trúarleg tónlist úr ýms- um áttum Morgunblaðið/Kristján BJÖRG Þórhallsdóttir sópransöngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari halda Ijóðatónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði á morgun sunnudag. Nýjar plötur • NÚ ljómar vorsins Ijós er með söng Skagfírsku söngsveitarinnar í Reykjavik. Heiti plötunnar er fengið að láni úr ljóði Jóns frá Ljár- skógum sem heitir Stúlkan mín, en lagið er eftir söngstjóra kórsins, Björgvin Þ. Valdimarsson. Skag- firska söngsveitin í Reykjavík hef- ur sungið fjölmörg lög eftir stjóm- anda kórsins, en á plötunni flytur kórinn, ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikuram, sjö lög eftir hann. Auk laga Björgvins era ýmis þekkt lög, m.a. eftir Eyþór Stef- ánsson, Sigurð Þórðarson og Sig- valda Kaldalóns. Helstu ljóðahöf- undar era Tómas Guðmundsson, Davíð Stefánsson, Jónas Hall- grímsson, Jón frá Ljárskógum og Bjarni Stefán Konráðsson. Ein- söngvarar með kórnum eru Óskar Pétursson, Guðmundur Sigurðs- son, Kristín R. Sigurðardóttir og Þorgeir J. Andrésson. Píanóundir- leik annast Sigurður Marteinsson og Vilhelmína Ólafsdóttir. Útgefandi er Skagfirska söngs- veitin en Japis sér um dreifingu. Verð: 1.999 kr. ------4^*------ 50. sýningin ABEL Snorko býr einn eftir Eric- Emmanuel Schmitt verður sýnt í fimmtugasta sinná litla sviði Þjóð- leikhússins í kvöld Leikendur era Arnar Jónsson og Jóhann Sigurð- arson. Kristján Þórður Hrafnsson þýddi, leikmynd og búninga hann- aði Hlín Gunnarsdóttir, lýsingu Ás- mundur Karlsson og leikstjóri Mel- korka Tekla Ólafsdóttir. ♦ ♦ ♦-- Sýningu lýkur Geröarsafn TEXTILFÉLAGIÐ stendur að viðamikilli sýningu í öllum sölum Gerðarsafns í Kópavogi. Sýningin er opin alla daga frá 12-18 og er síð- asti sýningardagur sunndaginn 19. september. BJÖRG Þórhallsdóttir sópran- söngkona og Daníel Þorsteinsson píanóleikari hafa verið á ferð um landið að undanförnu og haldið ljóðatónleika, bæði á Norður- landi, Austurlandi og síðast í gær í Stykkishólmskirkju á Snæfells- nesi. Á morgun sunnudag, sækja þau höfiiðborgarsvæðið heim og halda ljóðatónleika í Víðistaða- kirkju í Hafnarfirði kl. 17.00. Björg og Daníel flytja trúarlega tónlist úr ýmsum áttum en þau fluttu þessa dagskrá fyrst við setningu Kristnitökuhátíðar í Akureyrarkirkju síðastliðið vor. Björg og Daníel hafa komið fram á tónleikum víða um land en þetta er í fyrsta sinn sem Björg kemur fram á tónleikum á höfuð- borgarsvæðinu en víst er að margir bíða spenntir eftir að heyra hana syngja. „Ég hlakka mikið til að syngja fyrir fólkið á höfuðborgarsvæð- inu,“ sagði Björg er Morgunblað- ið hitti þau Daníel að máli. „Það er líka sérstaklega gaman fyrir mig að halda tónleika undir þess- um formerkjum.þar sem það er mér eðlislægt að syngja trúar- lega tónlist, bæði er ég hjúkrun- arfræðingur að mennt og eins vegna rníns uppeldis í kirkjum,“ sagði Björg en faðir hennar heit- inn, Þórhallur Höskuldsson, var prestur á Akureyri. Á efnisskránni er sem fyrr segir eingöngu trúarleg tónlist, sem spannar yfir 300 ár í tónlist- arsögunni. Meðal höfunda eru Árni Thorsteinsson, Sigvaldi Kaldalóns, Jón Leifs, Handel, Schubert, Dvorák, Barber og Copland. Daníel sagði tónskáldin nálg- ast tónlistina á annann hátt þeg- ar hún væri trúarlegs eðlis og eins og þeir skynjuðu einhvern annarskonar þráð. Tónlistin yrði einlægari og opnari og lyfti í hæðir. „Það eru í raun for- réttindi að fá að halda heila tón- Ieika eingöngu með trúarlegri tónlist, því maður nær til áheyra- ndans á allt annan hátt,“ sagði Daníel. Gólaði á kirkjuloftum Björg lauk þriggja ára námi við Konunglega Tónlistarháskól- ann í Manchester á Englandi síð- astliðið vor en áður hafði hún stundað söngnám við Tónlistar- skólann á Akureyri. „Ég byrjaði snemma að syngja en hóf ekki söngnám fyrr en árið 1991. Frá blautu barnsbeini gólaði ég á kirkjuloftum og naut góðs af. Það hefiir reynst mér gott vega- nesti.“ Á námstímanum í Manchester var Björg svo lánsöm að njóta góðs stuðnings að heiman. Ann- ars vegar hlaut hún styrk frá breska sendiráðinu á Islandi til náms við skólann og hinsvegar styrk úr Söngmenntasjóði Mari- nós Péturssonar, sem er einn stærsti styrkur sem veittur er söngvurum á Islandi. Björg er á leiðinni út aftur, þar sem hún hyggst reyna fyrir sér hjá ýmsum umboðsmönnum og óperuhúsum, auk þess sem hún tekur einkatíma í vetur. „Ég ætla að nota tímann til að undirbúa mig fyrir áheyrnarpróf m.a. með því að auka við „reper- toirið“, læra nýjar rullur og sækja mér sem fjölþættasta reynslu.. Mér er sagt að þetta sé harður heimur en það verður spennandi að skoða hann og ég hlakka til að takast á við hið óþekkta." Björg sagði möguleika sína á að komast að hjá óperuhúsi mesta í Þýskalandi en þar væru 120 óperuhús, auk þess sem hún taldi sína rödd henta vel þar í landi. Björg sagði að mun færri óperuhús væru á Englandi, íta- líu, Frakklandi eða Austurríki og markaðurinn því lokaðri í þeim löndum. Hefur líka tíma fyrir sjálfan sig Daníel er búsettur á Akureyri og kennir við Tónslistarskólann og Háskólann á Akureyri, þess á milli hugar hann að list sinni, eins og hann orðar það sjálfur. „Akureyri er minn útgerðarstað- ur og hér hef ég að mestu búið frá því ég lauk píanónámi í Holl- andi árið 1993. Kosturinn við að búa á Akureyri er sá að hér hef- ur maður líka tíma fyrir sjálfan sig og það er afskaplega dýr- mætt - að vera ekki í of miklu ati. Náttúran hér gefur mér líka mikið við mfna sköpun en það var erfiðara að sækja kraftinn í landslagið í Hollandi á námsár- unum.“ Daníel sagði ýmislegt á döfinni í vetur og í raun næg verkefni framundan. „Maður reynir að selja sér pósta með hæfilegu miliibili en ef fyllist upp í götin verður bara að taka því. Þá stefnum við Björg að því að halda okkar samstarfi áfram. Það er haldið upp á kristnitöku- afmælið í tvö ár, fram að páskum 2001 og við ráðgerum að fara víðar um landið á því tímabili og halda fleiri ljóðatónleika," sagði Daníel.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.