Morgunblaðið - 18.09.1999, Side 77
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK I FRETTUM
L
LAUGARDAGUR 18 SEPTEMBER 1999 77
Breski poppsöngvarinn Robbie Williams
hélt tónleika í Höllinni í gærkvöldi. Hann
ámiklum vinsældum að fagnaí Bretlandi
og verður fróðlegt að sjá hvernig hann
fellur í kramið hjá íslenskum ungmennum.
Pétur Blöndal átti símaviðtal við hann sem
Ein vinsælasta
lækningajurt heims
eilsuhúsið
SkólavörBustíg, Kringlunni, Smöratorgi
fékk óvæntan endi.
OLINMÆÐI er ekki
sterkasta hlið söngvarans
Robbie Williams. Hann
gekk út úr viðtali við NME eftir
aðeins fimm mínútna spjall og það
var ekki út af neinu sem blaða-
maðurinn sagði. Hann áttaði sig
bara á því að hann hefði aldrei átt
að leyfa viðtalið; hann var ekki
upplagður. Það er því enginn
hægðarleikur að búa sig undir
viðtal við þennan vinsælasta
söngvara Bretlandseyja. Blaða-
maður náði tali af Williams þar
sem hann var á hraðbraut í Berlín
og eftir að hafa farið í gegnum
nokkra aðstoðarmenn var goðið
sjálft á línunni. Einhvem veginn
atvikaðist viðtalið svona.
Hvar ertu staddur íheiminum?
„Eg er svo sannarlega í heimin-
um núna,“ svarar Williams og
virðist í góðu skapi. „Ég er í
Berlín, aftan við vörubíl á leið á
hótelið.“
Hefurðu gert þér einhverja
mynd af íslandi íhugarlund fyrir
komuna hingað?
Alls ekki,“ svarar hann. „Ég
var einmitt að velta þessu
viðtali fyrir mér áðan því
þetta er eitt af fáum löndum í
heiminum sem ég hef ekki komið
til. Ég veit að Björk er frá ís-
landi og að þarna eru hverir; eru
þeir ennþá heitir?"
Þeir eru heitir árið um kring.
„Það er gott,“ svarar hann og
virðist ánægður - ennþá. „Eru
einhverjir þeirra í Reykjavík?"
Ekki í borginni sjálfri en í
grennd við Reykjavík.
„Hvað er það langur akstur?“
Ætli það sé ekki hálftími ...
Mér skilst að þú sért að fara í
ævintýraferð upp á Langjökul.
„Það er þá í fyrsta skipti sem
ég heyri af því,“ svarar hann og
hefur ekki fleiri orð um það.
ú er þetta síðasti liður
tónleikaferðar um Evr-
ópu; við hverju megum
við búast á tónleikunum,? spyr
blaðamaður.
„Tónlist,“ svarar Robbie Willi-
ams þykkjuþungur.
Og það á eftir að þykkna meira
yfir höfuðborg Þýskalands. Eftir
að þú hættir í Take That og náðir
vinsældum upp á eigin spýtur;
hefur þú tekið öðmvísi á frægð-
inni og því sem henni fylgir?
„Hvað heldur þú,“ svarar
Williams.
S
g myndi halda að þú værir
þroskaðri og reynslumeiri,
svarar blaðamaður og
reynir að setja sig í spor viðmæl-
andans.
„Frægðin er sú sama og þeg-
ar ég var með Take That,“ svar-
ar hann þá. „En að þessu sinni geri
ég allt á mínum hraða. Ég sem
lögin með Guy Cham-
bers. Ég hef síðasta orð-
ið í allri ákvarðanatöku.“
Afhverju tókstu þá ákvörð-
un að hætta í Take That og hefja
sólóferil?
„Þú getur fundið svarið við
þessu í einhverju gömlu viðtali,“
svarar Williams stuttlega.
„Ég veit ekki til þess að það
hafi birst við þig viðtöl í íslensk-
um fjölmiðlum og þetta er því nýtt
fyrir íslenskum lesendum,“ svarar
blaðamaður en Williams bregst
þolinmæðin til að halda viðtalinu
áfram og slítur símtalinu.
Fólk, viðtöl, dagskrá
Dagskrárblað Morgunblaðsins inniheldur dagskrá sjónvarps- og
útvarpsstöðva í hálfan mánuð.
í blaðinu er einnig að finna viðtöl, greinar, kvikmyndadóma,
fræga fólkið og stjörnurnar, krossgátu, yfirlit yfir beinar útsend-
ingar frá íþróttavióburðum og fjölmargt annaó skemmtilegt efni.
Hafðu Dagskrárblað Morgunblaðsins alltaf til taks nálægt
sjónvarpinu!
XWct
ib f *
skm