Morgunblaðið - 16.11.1999, Side 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Skattgreiöendur greiddu 350.000 krónur fyrir knattspymuferö þingmanna til Færeyja:
Hvern varðar um
- segir Ámi Johnsen. Dvalarkostnaður greiddur af umdeildum starfskostnaði
r/~
Hvað, skuldar félagið ekki nema 350 þúsund? Ég kaupi það á stundinni.
Þrír íslenzkir stórmeistarar í brids
í MÓTSLOK íslandsmótsins í
tvímenningi sl. sunnudag til-
kynnti forseti Bridssambands
Islands, Guðmundur Ágústsson,
að sambandinu hefðu borizt við-
urkenningar frá Evrópusam-
bandi bridsspilara á því að þrír
íslenzkir bridsspilarar hefðu
náð þeim árangri að hljóta titil-
inn stórmeistari.
Þeir sem náðu þessum ár-
angri nú eru Aðalsteinn Jörg-
ensen, Jón Baldursson og Þor-
lákur Jónsson en þeir hafa allir
náð 500 stiga markinu sem gef-
ur þeim titilinn stórmeistari.
Þessir spilarar hafa unnið alla
titla sem hægt er að vinna hér-
lendis auk þess sem þeir voru í
hinu frækna landsliði sem
vann heimsmeistaratitilinn fyr-
ir 8 árum.
Bridssamband íslands hefír
einnig staðið fyrir skráningu
meistarastiga hérlendis frá
1976 og hafa 66 spilarar náð
æðsta stigi eða stórmeistara-
stiginu.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
Frá afhendingu stórmeistaratitilsins sl. sunnudag. Talið frá vinstri:
Aðalsteinn Jörgensen, Þorlákur Jónsson og Jón Baldursson. Það var
Guðmundur Ágústsson, forseti Bridssambandsins, sem afhenti þeim
félögum skjalið frá Evrópusambandinu.
Tré-
rimlaglugsa
25mm og 50mm
meö og án boröa
Margir litir
Frábært verö
Samhjálp kvenna tuttugu ára
Sívaxandi
starfsemi
Kristbjörg Þórhallsdóttir
SAMHJÁLP kvenna
til stuðnings konum
sem greinast með
brjóstakrabbamein
starfar af miklum krafti
að sögn Kristbjargar
Þórhallsdóttur sem er í
forsvari fyrir þessum
samtökum. Þau voru
stofnuð haustið 1979 og
höfðu að fyrirmynd sam-
svarandi samtök sem þá
voru farin að starfa í
Bandaríkjunum og í Nor-
egi. I dag á tuttugu ára
afmæli samtakanna eru
samkvæmt upplýsingum
Kristbjargar um tuttugu
sjálfboðaliðar starfandi í
Samhjálp kvenna í
Reykjavík og aðrar tutt-
ugu konur úti um land.
„Það voru tvær konur
sem hófu þessa starfsemi, þær
Elín Finnbogadóttir og Erla Ein-
ársdóttir. Þær nutu frá upphafi
aðstoðar Krabbameinsfélagsins
og lækna sem greiddu fyrir sam-
skiptum við sjúki-ahúsin. Árið
1979 var ekki sjálfgefið að fag-
fólk kallaði til leikmenn til að-
stoðar við sjúklinga á sjúkrahús-
um. Það er í raun sú starfsemi
sem samtökin hafa með höndum
enn í dag.
-Hvernig er þeirri aðstoð
hátta?
„Þetta byggist á að læknar og
annað hjúkrunarfólk upplýsi þær
konur sem greinast með
brjóstakrabbamein um tilvist
samtakanna og hvetji þær til að
þiggja heimsókn frá okkur. Stór
hluti þeirra kvenna, sem greinast
með brjóstakrabbamein, þiggur
heimsókn frá okkur eða allt að
hundrað á ári.
-Hefur konum sem greinast
með brjóstakrabbamein farið
fjölgandi?
„Já, um þessar mundir grein-
ast um og yfir hundrað og þrjátíu
konur með brjóstakrabbamein á
ári hverju. Þegar samtökin voru
stofnuð voru liðlega sextíu konur
greindar með brjóstakrabbamein
það ár. Þess má geta að þrátt
fyrir þessa fjölgun hefur dánar-
tíðni af völdum brjóstaki-abba-
meins ekki hækkað í sama hlut-
falli.
- Hvernig veljast sjálfboðalið-
ar til starfa hjá samtökunum?
„Það eru í raun aðeins þrjú
skilyrði sem sjálfboðaliði þarf að
uppfylla; hann þarf að hafa
greinst með brjóstakrabbamein
og hafa farið í aðgerð í framhaldi
af því og vera búinn að ná and-
legu og líkamlegu jafnvægi. Lág-
markstími frá lokum meðferðar
og þar til konur geta tekið starfa
hjá samtökunum eru
tvö ár. Krabbameins-
læknarnir hafa að-
stoðað okkur við að
finna konur til að
starfa sem sjálfboða-
liðar og þeir hafa samband við
konurnar og leita eftir þátttöku
þeiira við þetta starf. I framhaldi
af því fara þær sem vilja starfa á
námskeið sem við höldum og fá-
um við bæði fagfólk og leikmenn
til leiðbeiningar.
-Ert þú lengi búin að starfa
sem sjálfboðaliði hjá Samhjálp
kvenna?
„Síðan 1983. Ég greindist árið
1980. Starfsemi samtakanna hef-
ur þróast á þessum árum sem ég
hef starfað við þetta. Meginuppi-
staðan, heimsóknirnar á sjúkra-
húsin, er óbreytt. Heimsóknirnai-
fara þannig fram að fyrir milli-
göngu hjúkrunarfræðings er
ákveðinn heimsóknartími til við-
komandi konu og í framhaldi af
► Kristbjörg Þórhallsdóttir
fæddist í Ketildölum í Arnar-
fírði 22. október 1938. Hún
lauk prófí frá Héraðsskólan-
um á Laugarvatni og stúdents-
prófí frá Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ lauk hún 1984.
Einnig lauk hún leiðsögunámi
1971 og hefur starfað sem
Ieiðsögumaður síðan. Krist-
björg er gift Oskari Maríus-
syni efnafræðingi og eiga þau
þrjá uppkomna syni.
því er komið á fundi með sjálf-
boðaliða og konunni þar sem
hægt er að ræðast við einslega.
Konan sem heimsótt er ræður
ferðinni í umræðunum. Hún get-
ur spurt sjálfboðaliðann eins per-
sónulegra spuminga og henni
dettur í hug því það vakna oft
margar spurningar í sambandi
við þessa greiningu og það ferli
sem við tekur í framhaldi af
henni. Spumingar geta varðað
eigin afdrif eða samskipti við
maka eða böm, þessari grein-
ingu fylgir yfirleitt töluverður
ótti og öryggisleysi. Við erum í
þeirri stöðu að þó að við vitum
ekki nákvæmlega hvernig hverri
og einni konu líður þá höfum við
allar verið í þessum sporum ein-
hvern tímann og getum dregið
ályktanir út frá eigin reynslu og
miðlað henni ef eftir er óskað -
fyllsta trúnaðar er gætt.
- Veitiðþið aðra þjónustu?
„Já, við föram með í heim-
sóknina sýnishom af gervibrjóst-
um og brjóstahöldum fyrir konur
með gervibrjóst, þetta era
reyndar orðnar einkar fallegar
vörar. Við veitum líka upplýsing-
ar um tryggingar og aðra
praktíska hluti, svo sem hárkoll-
ur ef þörf er á þeim, sundboli og
fleira, einnig segjum við frá leik-
fimi sem Lovísa Ein-
arsdóttir stjómar.
- Eruð þið með fé-
lagslega starfsemi
einnig?
„Já, við erum með
opið hús ‘einu sinni í mánuði yfir
vetrartímann. Það er í húsi
Krabbameinsfélagsins í Skógar-
hlíð 8. Þar fáum við bæði fagfólk
og leikmenn til þess að halda er-
indi um efni sem varðar á ein-
hvern hátt brjóstakrabbamein
og afleiðingar þess. Samkomur
okkar era mjög vel sóttar, koma
frá 80 og upp í 120 manns á
hverja þeirra. Eftir umræður
eru kaffiveitingar og létt spjall. I
tdefni af tuttugu ára afmæli
Samhjálpar kvenna verður opið
hús í Húsi Rafveitunnar við El-
liðaár klukkan 20 í kvöld og þar
verða flutt erindi, kvennakórinn
syngur og aðrir listamenn koma
fram. Allir era velkomir á þessa
samkomu.
Fyllsta
trúnaðar
er gætt