Morgunblaðið - 16.11.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999 33
ERLENT
Talebanar í Afganistan mótmæla refsiaðgerðum SÞ
Segja aðgerðirn-
ar óréttlátar
óréttlátar og halda því fram að
Bandarfkin hafi misnotað Samein-
uðu þjóðirnar í því skyni að koma
Afganistan á kné.
Þeir hvetja aðrar múslimaþjóðir
til að virða refsiaðgerðirnar að vett-
ugi, en enginn ráðamaður þeirra
hefur enn tjáð sig opinberlega um
aðgerðimar. Þó hafa stjórnvöld í
Sameinuðu arabísku furstadæmun-
um hvatt forystu talebana til að
hætta áætlanaflugi Ai’iana-flugfé-
lagsins, opinbers flugfélags Tala-
ban-Afganistans, til Dubai, í sam-
ræmi við refsiaðgerðir SÞ.
Hundruð æstra mótmælenda
söfnuðust á sunnudag saman við
skrifstofur SÞ í Kabúl og hið yfir-
gefna sendiráð Bandaríkjanna þar,
og létu steinum rigna yfir bygging-
arnar undir vígorðunum „Niður
með Ameríku“. Vopnaðir hermenn
naiuii, iMdiiiauau. , nrr.
TALSMENN talebanastjórnarinn-
ar í Afganistan sögðu í gær að refsi-
aðgerðir Sameinuðu þjóðanna
myndu koma verst við fátækasta
fólkið í landinu; þær myndu hafa
mjögvíðtæk áhrif, alltfrá póstþjón-
ustu til framboðs á matvælum.
Refsiaðgerðir gegn Afganistan
tóku gildi á miðnætti á sunnudags-
kvöld, í kjölfar þess að talebanar
neituðu að framselja arabann Os-
ama bin Laden, sem grunaður er
um að standa að baki alþjóðlegum
hryðjuverkum, til að hægt verði að
draga hann fyiir rétt.
í refsiaðgerðunum felst að öll að-
ildarríki SÞ eru beðin að frysta all-
ar eignir og innistæður talebana og
banna flug til og frá Afganistan.
Einu undanþágurnar frá flugbann-
inu eru veittar fyrir flutningi mann-
úðargagna og slíki-a nauðsynja, og
pílagrímaflug afganskra múslima
til Mekka.
Bin Laden, útlagi frá Sádí-Ara-
bíu sem hefur aðsetur í Afganistan,
er meðal annars sakaður um að
hafa skipulagt sprengjutilræðin við
sendiráð Bandaríkjanna í Kenýa og
Tanzaníu, sem framin voru í fyrra
og 224 manns létu lífíð í.
Segja hefðir
hindra framsal
Talebanar segja að hefðir og
menning Afgana meini þeim að
framselja gest í hendur óvina sinna.
Þeir benda líka á, sem ástæðu til að
hafna framsalsbeiðninni, að enginn
samningur um framsal meintra
glæpamanna sé í gildi milli Banda-
ríkjanna og Afganistans.
Talsmenn talaban-hreyfingar-
innar hafa kallað refsiaðgerðimar
Reuters
Þúsundir reiðra Afgana, sem mótmæltu refsiaðgerðum Sameinuðu
þjóðanna, gerðu atlögu að byggingu samtakanna í Kabúl á sunnudag.
talebana öftruðu múgnum frá því
að ráðast til inngöngu í húsin.
Skrifstofur SÞ í Kabúl voru lok-
aðar í gær og starfsfólki ráðlagt að
halcla sig innandyra.
A föstudag var sex sprengjum
varpað að skrifstofum SÞ og sendi-
manna Bandaríkjanna í Islamabad,
höfuðborg Pakistans, og eru tilræð-
in sett í beint samhengi við gildis-
töku refsiaðgerða SÞ. Pakistanska
lögreglan greindi frá því í gær, að
hún hefði tekið fjölda Afgana, sem
búsettir era í Pakistan, til yfír-
heyrslu vegna rannsóknar málsins,
en enginn hefði verið handtekinn.
Ukraínuforseti endurkjörinn
Kommún-
isma hafnað
Kiev. AP,JReuters.
LEONID Kútsjma var endur-
kjörinn forseti Ukraínu á sunnu-
dag, en bráðabirgðatölur benda
til þess að hann hafi hlotið 56,3%
atkvæða í síðari umferð kosning-
anna, gegn 37,7% atkvæða Petr-
os Symonenkos,
frambjóðanda
kommúnista.
Kútsjma hlaut því
öruggan meirihluta
atkvæða, þrátt fyrir
að hann hafi notið
óvinsælda vegna
bágs efnahagsá-
stands. Stjómmála-
skýrendm- telja að
sigur Kútsjmas
megi fyrst og
fremst rekja til þess
að helstu andstæð-
ingar hans boðuðu
afturhvarf til
kommúnisma, og
túlka úrslit kosning-
anna á þann veg að
landsmenn hafi með skýrum
hætti látið í ljós andúð sína á
stjórnarháttum Sovéttímans.
Ivan Kuras, kosningastjóri
Kútsjmas, sagði að úrslit kosn-
inganna sýndu að forsetinn hefði
stuðning þjóðarinnar til að hraða
umbótum, og bætti við að nú
væri einnig mögulegt að ráðast í
breytingar á þinginu og stjórn-
kerfi landsins. Þeir viðmælendur
vestrænna fréttastofa, sem kusu
Kútsjma, virtust þó hafa veru-
legar efasemdir um að hann væri
fær um að bjarga efnahag lands-
ins. Hins vegar töldu þeir hann
vænlegasta kostinn til að tryggja
frið og stöðugleika og eina raun-
verulega mótvægið við uppgangi
kommúnista.
Kútsjma sakaður um
misnotkun valds
Kútsjma hlaut mikinn meiri-
hluta atkvæða í vesturhéruðum
Úkraínu, þar sem þjóðernis-
kennd er sterk. Symonenko
hafði hins vegar meira fylgi í
austurhéruðunum, þar sem
íbúarnir eru hlynntir nánari
tengslum við Rússa. Þar eru
mikil iðnaðarsvæði, sem hafa
orðið illa úti í þrengingunum.
Helstu kosningamál Symon-
enkos, sem var embættismaður í
Kommúnistaflokknum á Sovét-
tímanum, voru að enduraeisa
sósíalískt stjórnkerfi í landinu og
taka upp nánari tengsl við Rúss-
land. Hann sakaði
Kútsjma á sunnudag
um að hafa misnotað
vald sitt í kosninga-
baráttunni og gaf i
skyn að brögðum
hefði verið beitt.
Yfirmaður alþjóð-
legrar nefndar, er
hafði eftirlit með
framkvæmd kosning-
anna, lýsti því yfir að
ríkisfj ölmiðlarnir
hefðu leikið vafasamt
hlutverk síðustu vik-
urnar fyrir kosning-
ar, en þeir hefðu
t.a.m. sýnt mikið efni
um hörmungar og
kúgun á þeim tímum
er Úkraína tilheyrði Sovétríkj-
unum.
Erfíð verkefni bíða
Gjaldmiðill Úkraínu, er nefn-
ist hryvnai, styrktist eftir að úr-
slitin urðu ljós, en gengi hans
hafði lækkað fyrir kosningamar,
af ótta við að Symonenko færi
með sigur af hólmi. Það ber þó
ekki að túlka sem traust fjár-
málaheimsins á Kútsjma, því
efnahagur landsins hefur síður
en svo blómstrað undir hans
stjórn. Þó var óumdeilt að
Kútsjma væri skásti kosturinn í
stöðunni, frá efnahagslegu sjón-
arhomi.
Ljóst er að Kútsjmas bíða afar
krefjandi verkefni, og framtíð
landsins veltur á því að stjóm
hans takist að koma efnahagnum
á réttan kjöl. Á ríkissjóði Úkra-
ínu hvíla kröfur um ógoldnar
launa- og lífeyrisgreiðslur að
andvirði tugmilljarða króna, auk
erlendra lána að jafnvirði um 200
milljarða króna, sem gjaldfalla á
næsta ári. Gjaldeyrisforðinn
nemur aðeins helmingi af erlend-
um skuldum og landið nýtur ekki
lánstrausts á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum.
Leóníd
Kútsjma
HoncJca Clvicz =3 dyrö
( 3d Civic 1.4 Si
1 an haetn" •-
Ótrúlegur kraftur, eðallínur, formfegurð og
glæsilegar innréttingar, allt gerir þetta Cívic
að lúxusbíl sem veitir ökumanni og farþegum
Ijúfa ánægjustund I hvert einasta sinn sem
upp I hann er sest. Komdu og skoðaðu á
vefnum www.honda.is eða littu inn og fáðu
að prófa.
90 hestöfl, 16 ventla. ssmlæsingar, rafdrífnar rúöur og speglar.
Lengd: 4,19 m. Hjóthaf: 2,62 m.
3dCivic 1.4 Si
90 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúöar, samlæsingar, rafdrífnar
rúöur og speglar. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
3d Civic 1.6 LSi - VTEC
115 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúöar, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drífnar rúður og speglar, hiti f speglum. Lengd: 4,19 m. Hjóihaf: 2,62 m.
3d Civic 1.6 VTi - VTEC
160hestöfl, 16 ventle, ABS, tveir loftpúöar, 15‘álfelgtir, rafdrífin sóllúga,
leöurstýri, sportinnrétting, fiarstýröar samlæsingar, rafdrifnar rúöur og
speglar, hiti f speglum, 6 hétalarar, samiitaöur. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf:
Vatnagörðum 24 ■ Sími 520 1100 ■ www.honda.is
Akranes: Bilversf, siml 4311995. Akureyri: Hötdur ht.. sími 4613000. EgllsstMðlr: BOa- og búvélasalm ht, siml 4712011.
Ketlavik: Bílasaltm Bílavlk, slmi 421 7800. Vestmannasyjan Blkverkslæðið Braggínn, slmi 481 1535.