Morgunblaðið - 16.11.1999, Side 54

Morgunblaðið - 16.11.1999, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓNA SIGRÚN JENSDÓTTIR + Jóna Sigrún Jensdóttir fædd- ist í Þaralátursfirði N-Isafjarðarsýslu 28. febrúar 1916. Hún lést þann 9. nó- vember 1999. For- eldrar hennar voru þau Jóhanna Jóns- dóttir húsmóðir og Jens Jónsson bóndi. Sigrún átti 3 alsyst- ur: Þórunni f. 1915, Maríu f. 1920, d. 1985, og Huldu f. 1925. Einnig átti hún þrjú hálfsystk- in, sammæðra: Hörð f. 1931, Guðbjörgu f. 1933 og Harald f. 1937, Sumarliðabörn. Sigrún fluttist með móður sinni milli staða á Vestfjörðuni en 16 ára fór hún í vist til Olafs- fjarðar og var þar í nokkur ár. Fluttist síðan til SigluQarðar haustið 1938 og var þar í vist eitt ár. Þar kynntist hún eftir- lifandi eiginmanni sínum, Er- lendi G. Þórarinssyni, f.21.júlí 1911, en þau giftust 21. júlí 1940. Foreldrar hans voru þau Sigríður Jónsdóttir húsmóðir og Þórarinn Ágúst Stefánsson smiður. Sigrún og Erlendur fluttust að Hvanneyrarbraut 56 árið 1947 og bjuggu þar alla tíð. Þau eignuðust 11 börn á árunum 1943-1959 og eru öll á lífi. Þau eru: Sigþór Jóhann f. 1943, kennari, m. Ester Bergmann Halldórsdóttir, f. 1943, sérkennari; Haraldur Guðbjar- tur, f. 1945, íþrótta- kennari, m. Pamela Erlendsson, f. 1945, húsmóðir; Sigurjón Jens, f. 1947, raf- virkjameistari, m. Guðrún Kjartans- dóttir, f. 1949, skrifstofumaður; Friðgerður Hulda, f. 1948, húsmóðir, m. Númi Jónsson, f. 1947, bóndi; Erna Sigrún, f. 1949, verkakona, m. Sigurður V. Jónsson, f. 1948, bifreiðastjóri; Arnfríður Guðrún, f. 1951, sjúkraliði, m. Óðinn Traustason, f. 1953, vélfræðingur; Brynja Þórunn, f. 1953, ræstitæknir, m. Ingi Pálsson, f. 1944, verkstjóri; Sigurgeir Óskar, f. 1954, bak- arameistari, m. Annabella Al- bertsdóttir, f. 1952, verkstjóri; Elísabet María, f. 1955, ljósmóð- ir, m. Kristinn J. Gislason, f. 1952, byggingaverkfra'ðingur; Auður Björk, f. 1957, aðstoðar- hótelstjóri, m. Rögnvaldur Gott- skálksson, f. 1955, bankastarfs- maður; Sóley Ingibjörg, f. 1959, hótelstjóri, m. Birgir Kristbjörn Hauksson, f. 1962, fram- kvæmdastjóri. Barnabörn eru alls 35 og barnabarnabörn 19. Utför Sigrúnar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Kg umvefji blessun og bænir, ég bið þess þú sofir rótt Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælteraðvitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þínverölderbjörtáný. (Þ.S.) Hjartkær eiginkona og móðir 11 barna hefur kvatt þennan heim og haldið til nýrra heimkynna sem við viljum trúa að séu til. Hún var okk- ur góð og umhyggjusöm og var ætíð til staðar þegar á þurfti að halda, útsjónarsöm og nægjusöm. Hún vann verk sín í hljóði og þrátt fyrir að fjölskyldan væri stór og heimilið plásslítið neitaði hún aldrei neinum um aðstoð eða gistingu. A “ kveðjustundu er svo ótalmargt að muna og þakka. Hún fylgdist með okkur öllum i námi og starfi. Hún fylgdist með tengdabörnum, barna- bömum og barnabarnabörnum. Hún mundi nánast alla afmælis- daga og hringdi þá gjaman til að heilsa upp á viðkomandi. Hún hafði áhyggjur af veikindum okkar, færð á vegum ef við vomm á ferð, að við ynnum of mikið og svæfum of lítið. Svona var mamma alltaf að hugsa um aðra. Nú á kveðjustundu minn- umst við hennar með ást og þakk- læti. . Blómastofa Friðfinns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. Starfsfólki Sjúkrahúss Siglu- fjarðar þökkum við veitta aðstoð og umhyggju. Við kveðjum þig elskuleg eigin- kona og móðir og biðjum Guð að geyma þig á eilífðarbraut. Erlendur Þórarinsson og börn. Tengdamóðir mín, Sigrún Jens- dóttir, er látin. Minningar streyma fram í hugann. Minningar um konu með stórt hjarta. Minningar um konu sem hafði svo mikið að gefa samferðafólki sínu. Mín fyrstu kynni af Sigrúnu og Ella voru haustið 1963 er ég kom norður á Siglufjörð með eiginmanni mínum, Sigþóri, frumburði þeirra hjóna. Eg kveið því nokkuð að koma inn í svona stóra fjölskyldu, koma úr öryggi fjölskyldu minnar í Kópavogi og norður í fjörðinn djúpa milli fjallanna háu og tignar- legu. Fjöllin skelfdu mig í fyrstu en seinna fór ég að meta fegurð þeiiTa og stórleika. Móttökurnar sem ég fékk við þessi fyrstu kynni hljóta að hafa verið mjög sérstakar því ég man enn hvar ég svaf fyrstu nóttina og hvað ég fékk að borða við fyrstu máltíðina. I byrjun hafði ég mig lít- ið í frammi en brátt fór mér að líða eins og ég væri ein af systkinunum. Þar var þáttur Sigrúnar mikilvæg- ur því hún hélt öllum þráðum heim- ilisins í sínum sterku höndum og virtist finna á sér hvað hver og einn þarfnaðist. Tveimur árum seinna fluttum við ungu hjónin ásamt nýfæddri dóttur norður á Siglufjörð og bjuggum þar í 10 ár. Við vorum alltaf með annan fótinn á Hvanneyrarbrautinni hjá „tengdó“ til að fá góð ráð við ýms- um atvikum sem upp komu. Við Sigrún bökuðum og gerðum slátur saman og hjá henni lærði ég réttu handbrögðin. Hún var mér sem ný móðir þar sem mín eigin móðir var svo langt í burtu. Sigrún var einstaklega góð og göfug manneskja. Hún mátti ekk- ert aumt sjá og hún var málsvari þeirra sem minna máttu sín í þjóð- félaginu. Hún var sérlega gestrisin og hjá henni gistu oft ættingjar og vinir sem komu langt að. Hún hýsti einnig ýmsa aðra sem hún varla þekkti en vissi að vantaði húsaskjól. Hún gekk úr rúmi sínu til að aðrir gætu haft það sem best. Sigrún var trúuð kona og trúði m.a. á það góða í öllum mönnum. Hún hafði sínar skoðanir á hlutun- um og oft var rökrætt sterklega við eldhúsborðið á Hvanneyrarbraut- inni. Oft hefur verið erfitt hjá Sig- rúnu og Ella, það gefur augaleið með 11 börn á sínu framfæri. En aldrei virtist skorta neitt. Allir fengu nóg að borða og hrein föt ut- an á kroppana. Og hvílíkt uppeldi sem þessi börn hafa fengið. Þau eru hvert öðru efnilegra og hafa komist vel áfram í lífinu. Þau hafa erft hið besta frá foreldrum sínum, dugnað í verkum sínum, samheldni, góð- mennsku og gott skap. Sem kona hún lifði í trú og tryggð; það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfír myrkrið kalda. Sem móðir hún býr í bamsins mynd; það ber hennar ættarmerki. Svo streyma skal áfram lífsins lind, þó lokið sé hennar verki. Og víkja skal hel við garðsins grind, því guð vor, hann er sá sterki. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en augað sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Að leiðarlokum vil ég þakka Sigrúnu, tengdamóður minni, allt það góða sem hún hefur kennt mér. Eg þakka þá ást og umhyggju sem hún hefur sýnt mér og börnunum okkar Sigþórs. Eg votta elskuleg- um tengdaföður mínum, Erlendi, börnum þeirra og systkinum Sigr- únar innilegustu samúð. Blessuð sé minning Sigrúnar Jensdóttur. Ester Bergmann Halldórsdóttir. Hún amma á Sigló hefur kvatt hinstu kveðju. Það er margt að þakka og margs að minnast og sakna. Við trúum því að hún muni fylgjast með okkur áfram og gæta okkar eins og hún gerði þegar við vorum börn. Gráttu ekki af því að ég er dáinn, ég er innra með þér alltaf. Þú hefur röddina, hún er í þér, hanageturþúheyrt þegarþúvilt Þú hefur andlitið, hkamann, égeríþér. Þú getur séð mig fyrir þér þegarþúvilt. Alltsemereftir af mér er innra með þér. Þannig erum við alltaf saman. (Barbro Lindgren.) Elsku amma Sigrún, takk fyrir allt og allt. Asthildur, Halldór og Sigþór Orn Sigþórsbörn. Ó, Jesú bróðir besti ogbamavinurmesti, æ breið þú blessun þína ábamæskunamína. (P.Jónsson.) Amma Sigrún er dáin, og við biðjum Jesú að gæta hennar. Góðar bernskuminningar verða um heimsóknir okkar á Hvanneyr- arbraut 56 til afa og ömmu. Elsku amma, þú varst svo kær- leiksrík og mikilvæg í okkar lífi, og við munum sakna þín. Nú er komið að kveðjustund í bili, og við bræðurnir og amma Dóra kveðjum þig og þökkum þér fyrir allt, sem þú gerðir fyrir okkur. Margt er í minninga heimi, mun þá ljósið þitt skína. Englar hjá Guði þig geymi, við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Við biðjum góðan Guð að styrkja og blessa afa okkar. Guðlaugur og Gunnar, Siglufirði. HILMAR ÞOR SIGURÐSSON + Hilmar Þór Sig- urðsson fæddist íReykjavík 12. októ- ber 1937. Hann Iést 9. nóvember síðast- liðinn á heimili sínu. Foreldrar hans voin Sigurður Jónsson, f. 31. október 1900, d. 18. október 1960, og Jóhanna Þorleifs- dóttir, f. 5. október 1903, d. 26. nóvem- ber 1973. Bræður Hilmars voru Þor- leifur Thorlacius og Sveinbjörn og eru þeir báðir látnir. Hinn 5. september 1959 kvæntist Hilmar Þór eftirlifandi eiginkonu sinni, Vilborgu Gunn- arsdóttur, f. 6. apríl 1941. Börn þeirra eru Málfríður Sjöfn, maki Sigurþór Charles Guðmundsson, Jóhanna Björk, maki Karl Olvis- son, og Gunnar, maki Kolbrún Petrea Gunnarsdóttir. Sonur Hilmars er Sigurður Már, sam- býliskona Dóra Þyri Arnardótt- ir. Barnabömin em átta. Hilmar lærði trésmíði og vann við þá iðn um nokkurra ára skeið. Hann hóf akstur hjá Bif- reiðastöðinni Hreyfli árið 1963 og starfaði þar óslitið til æviloka. Utför Hilmars Þórs fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 16. nóv- ember kl. 13.30. Hann Hilmar mágur minn er lát- inn. Alltaf kemur dauðinn á óvart, þó við vissum að veikindi hefðu hrjáð Hilmar síðustu árin. En Hilmar fékk að kveðja á heimili sínu, í faðmi ástvina sinna. Slíkt er vissulega þakkarvert. Eg kynntist Hilmari fyrst árið 1959, þegar ég var 10 ára en Hilmar 22 ára þegar hann varð skotinn í elstu systur minni, Vilborgu. Ég man að ég horfði út í vorkvöldið spenntur að sjá Hilmar og Vilborgu saman á fína bílnum hans Hilmars. Bíll var einmitt dálítið nýtt fyrir mér þá, enda áttu foreldrar mínir aldrei bíl. Hilmar var ekki lengi að ávinna sér virðingu og vináttu okk- ur yngri systkina Vilborgar með sunnudagsbíltúrum til Þingvalla, Krísuvíkur og svo margra annarra staða. Þegar Vilborg flutti að heim- an með Hilmari sínum í næsta ná- grenni við heimili foreldra okkar þá hitti maður Hilmar oft. Að ekki sé talað um í Fellsmúla 22 þar sem Vilborg og Hilmar hafa staðfast- lega búið síðustu 32 árin. Við fórum í sumarbústaðaferðir og þá var tek- ið í spil og spiluð vist af mikilli inn- lifun. Já, ánægjustundirnar hafa verið svo ótal margar og þeim mun- um við aldrei gleyma. Hilmar var góður vinur og við söknum hans mikið. Elsku Vilborg systir og börn. Um leið og ég votta ykkur samúð mína hryggist ég yfir að góður vinur minn Hilmar Þór er fallinn frá. Jóhannes. Elsku Hilmar. Mig langar að kveðja þig og þakka þér samfylgd- ina. Hugurinn reikar allt að fjörutíu ár aftur í tímann. Ég var bara 5 ára, þegar þú giftist elstu systur minni, henni Vilborgu. Vilborg systir mín hefur alltaf verið mér sem önnur móðir, þannig að mér fannst alltaf að þú litir á mig sem eitt af börnun- urnþínum. Þakka þér fyrir það. Árin liðu. Óteljandi útilegur um landið, þú, Vilborg, mamma og pabbi og við stelpumar þínar, ég og Málfríður, elsta dóttir ykkar. Öll þín sumarfrí vildir þú eyða með tengdaforeldrum þínum meðan þau voru á lífi, þú varst þeim sem sonur og þakka ég þér fyrir hvað þú varst þeim góður. Enn liðu árin, ég varð fullorðin og aftur fór ég að fara með ykkur í sumarfrí, en nú var farið utan. Ég var þá búin að eignast son og að sjálfsögðu tókst þú honum sem hluta af þínu lífi. Betri ferðafélaga en þig var ekki hægt að hugsa sér. Alltaf glaður og hlakkaðir alltaf jafn mikið til að fara í fríið. Ég þakka þér, Hilmar, fyrir alla þá hlýju og áhuga sem þú sýndir mér og minni fjölskyldu. Elsku Vilborg, börn, tengdabörn og barnabörn, megi minning ykkar um Hilmar styðja ykkur í framtíðinni. Guð veri með þér, elsku Hilmar. Þóra Gunnarsdóttir. í dag kveð ég elskulegan mág og vin. Þó að andlát Hilmars hafi í raun ekki komið okkur á óvart, þvi að í mörg ár hefur hann átt við van- heilsu að stríða, erum við aldrei við- búin þegar einhver sem er okkur kær hverfur skyndilega. Hilmar minn, hvar á ég að byrja? Fyrstu útileguna okkar Torfa, farin með ykkur Vilborgu og Moffý. Sumar- bústaðaferðirnar okkar ýmist í Laxárdalnum, Eiðum eða Munað- arnesi. Heyri ég fyrir mér dillandi hlátur þinn þegar þið voruð að reyna að kenna mér vist og ég sagði býsna góð með mig: Hálfan nóló. Oft var þetta rifjað upp og þú á þinn hlýlega og skemmtilega hátt sagð- ir: Guðfinna, nú tökum við hálfan nóló. Þýskalandsferðin okkar, þó að við Torfi séum búin að fara þær nokkrar var þessi einstök. Ekki er hægt að hugsa sér betri ferðafélaga en ykkur Vilborgu. Þú varst þeim kostum gæddur að gera alltaf gott úr öllu og naust þess út í æsar að vera í fríi. Mikið glödduð þið Vil- borg mig þegar þið komuð norður um áramótin þegar ég varð fimm- tug. Á svona tímamótum þykir manni ljúft að hafa þá hjá sér sem manni þykir vænt um. Svona get ég lengi talið. Vilborg og Hilmar voru afar samtaka í að gera heimili sitt einstaklega hlýlegt og öllum opið. Eftir að Hagamelurinn var ekki lengur til staðar sem var æsku- heimili okkar systkinanna var Fellsmúlinn Torfa mér og bömum okkar alltaf opinn og þar ævinlega dvalið þegar til Reykjavíkur var komið. Fundum við svo sterklega fyrir því hve velkomin við vorum, því oft hljótum við að hafa raskað ró þinni, Hilmar minn, þar sem vinnu þinni var þannig háttað. Hilmar, þú varst einstaklega dag- farsprúður maður og minnist ég þess ekki að hafa nokkurn tíma heyrt þig hallmæla nokkrum manni. Áf okkur hér fyrir norðan verður þín sárt saknað, ekki síst af Gunnlaugi syni mínum, þið voruð miklir vinir. Vilborg og Hilmar eiga yndisleg börn ogo barnabörn og færam við þeim öllum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Vertu sæll, elsku Hilmar. Guðfinna. Elsku Hilmar minn. Þá er komið að kveðjustund. Mér varst þú góður vinur frá þeirri stundu er við kynntumst fyr- ir rúmlega 40 áram þegar þú og Vil- borg systir mín kynntust. Við náð- um tengslum hvort við annað, og efth- því sem árin liðu dýpkaðist væntumþykja og virðing okkar gagnvart hvort öðru. Við ræddum oftar en einu sinni um hvað það væri sem tengdi okkur á þann hátt sem raun ber vitni, það vissi hvor- ugt okkar. Skemmtilegar og umfram allt ljúfar stundir höfum við átt saman gegnum árin, við Mummi, með þér og Vilborgu, og margt gerðum við okkur til gamans. Á yngri árum hittumst við gjarnan, undum okkur vel og oftar en ekki var tekið í spil og man ég þá tíð að við spiluðum alla nóttina. Utilegur voru okkur öllum hugleiknar um tíma. Þá átt-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.