Morgunblaðið - 16.11.1999, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 16.11.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Ný tískuverslun sem starfar eingöngu á Netinu Býður lægra verð á tískufatnaði Morgunblaðið/Jim Smart Heimasíða tískuverslunarinnar tiska.is á Netinu. Afhending hlutabréfa í FBA Morgunblaðið/Sverrir Sig'urður Þorkelsson, ríkisféhirðir, afhendir Gesti Jónssyni, hæstarétt- arlögmanni og umboðsmanni Ijárfestanna 26, hlutabréf ríkisins í FBA. Afskiptum ríkisins lokið NÝ tískuverslun hefur verið opnuð á Netinu, tiska.is, á slóðinni www.tiska.is. Eva Dögg Sigurgeirs- dóttir er eigandi og framkvæmda- stjóri. Að hennar sögn mun tiska.is geta boðið mun lægra verð á tísku- fatnaði en gerist og gengur. „Það er ódýrara að reka netversl- un og þar af leiðandi er hægt að bjóða lægra verð,“ segir Eva Dögg en tekur undir að stofnkostnaður sé töluverður. Hún segir tisku.is fylla upp í ákveðið tómarúm en verslunin er eingöngu á Netinu og fyrsta slíka tískuverslunin á íslenskum mark- aði. Eva Dögg segir aðdragandann að opnuninni um 6-8 mánuði en hug- myndin hafí vaknað mun fyn-. „Það er staðreynd að margir vilja frekar eyða frítíma sínum með fjölskyld- unni en að ganga á milli verslana. Eins það að karlmenn virðast hafa minni áhuga á að versla en konur. Við ætlum að höfða til hóps sem vill fylgjast með þeim tískustraumum sem eru í gangi í heiminum. Netið er nú sístækkandi vettvangur til þess, ekki síst á meðal ungs fólks. Þetta er verslun fyrir ungt fólk á öllum aldri, bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu," segir Eva Dögg. í boði er dömu- og herrafatnaður frá breskum, dönskum og ítölskum tískuvörumerkjum og sér Eva Dögg sjálf um innkaup. Meðal merkja sem boðið er upp á eru Blend of America, Pepe, Vila og Virus. „Eg heflanga reynslu afinn- kaupum fyrir íslenskar tískuversl- anir og hef komið mér upp sam- böndum erlendis." Ótímabundinn skilafrestur Eva Dögg segist bjartsýn á fram- haldið. „Eg nota netverslanir sjálf mikið en þetta er það sem koma skal,“ segir Eva Dögg. Hún bjó í Bandaríkjunum um fjögurra ára Morgunblaöiö/Jim Smart Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, framkvæmdastjóri tisku.is. skeið og kynntist Netinu þar vel. tiska.is hefur þegar verið opnuð á Netinu og fólki gefinn kostur á að skrá sig á póstlista. „Nú fer í hönd reynslutími þar sem við sjáum hvernig markaðurinn tekur þessu. Við leggjum áherslu á ótímabund- inn skilafrest og að hafa umgjörðina eins notendavæna og hægt er,“ seg- ir Eva Dögg. Vefsíðan og verslunarkerfið er sérhannað af SALT. „Allar upplýs- ingar sem fara um kerfið eru rugl- aðar með 40 bita SSL-öryggislykli frá VeriSign. Þetta tryggir notand- anum að vefsvæðið tilheyri löggild- um aðOa og að allar upplýsingar séu 100% öruggar," segir Eva Dögg. Aðspurð segir hún að allri sam- keppni verði tekið fagnandi. „Netið er það sem koma skal og fleiri net- verslanir munu áreiðanlega skjóta upp kollinum í framtíðinni. Við höf- um þó ákveðið forskot þar sem við sérhæfum okkur í sölu á Netinu en rekum ekki hefðbundna verslun líka. Þegar verslanir eru reknar bæði á Netinu og á hefðbundinn hátt, geta þær átt undir högg að sækja í samkeppni við hreinar net- verslanir vegna þess að verðið er hærra,“ segir Eva Dögg. AFHENDING á 51% hlut ríkisins í Fjárfestingarbanka atvinnulífs- ins, sem 26 fjárfestar keyptu í kjölfar útboðs á vegum fram- kvæmdanefndar um einkavæð- ingu, fór fram í gær. Það var Sig- urður Þorkelsson, ríkisféhirðir, sem afhenti Gesti Jónssyni, hæsta- réttarlögmanni og umboðsmanni fjárfestanna 26, hlutabréf ríkisins í FBA eftir að greiðslur höfðu bor- ist ríkisféhirði frá öllum kaupend- um, alls rúmar 9.710 milljónir króna en nafnverð bréfanna er um 3.468 milljónir króna. Er afskipt- um ríkisins af FBA þar með lokið. Stærsti hluthafi í FBA eftir sölu á hlut ríkisins er Lífeyrissjóðurinn Framsýn, sem á alls 7,13% hlut. Næststærstir eru, með 7% hlut hver, Óháði fjárfestingasjóðurinn hf., sem er í eigu Sveins R. Eyj- ólfssonar og Eyjólfs Sveinssonar, Jón Ólafsson & co sf., í eigu Jóns Ólafssonar, Oddeyri ehf., í eigu Þorsteins Más Baldvinssonar og Gaumur ehf., í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Þá eignaðist Lífeyrissjóður verslunarmanna 6,00% hlut, Þró- unarfélag íslands hf. 5,50% og Fjárfestingarbanki atvinnulífsins hf. á sjálfur 5,39%. í kjölfarið af þátttöku bankans sjálfs í kaupunum bauð hann starfsmönnum sínum að eignast hlutabréf fyrir allt að 50 milljónir króna á genginu 2,8. Alls 73 starfs- menn óskuðu eftir að kaupa hluta- bréf samkvæmt þessu. „Þetta er mjög ánægjulegur dagur fyrir Fjárfestingarbanka at- vinnulífsins. Fjárfestar hafa nú tekið öllum hlutabréfum í bankan- um og hafa mjög spennandi fjár- festingu í höndunum. Á þessum um það bil tveimur árum frá því að bankinn var stofnaður hefur ríkið fengið tæpa fimmtán milljarða fyr- ir söluna á bankanum," segir Bjai'ni Ármannsson, forstjóri FBA í samtali við Morgunblaðið. Það var FBA sem kom greiðsl- um fjárfesta til ríkisféhirðis. Að- spurður segir Bjarni að greiðslan hafi farið fram með rafrænum hætti. „Það er enda ekki hægt að skrifa stærri ávísun en einn millj- arð, og því hefðu þær þurft að vera tíu talsins," segir Bjarni. Þess í stað var notast við svo- nefnda SWIFT greiðslu, og af- henti Bjarni Sigurði Þorkelssyni, ríkisféhirði, staðfestingarkvittanir fyrir því að peningafærslan hefði farið fram. „Jú, þetta hefur líklega verið með hærri SWIFT greiðsl- um sem fram hafa farið hér á landi,“ samsinnir Bjarni aðspurð- ur. HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJÓNUSTA = HÉÐINN = á Stórás 6 »210 Garðabæ sími 569 2100 • fax 569 2101 1 # Media II lánar Gagarín ehf. Margmiðlunarfyrirtækið Gagarín ehf. hefur fengið úthlutað 18,6 mil- ljóna króna víkjandi láni til að standa að framleiðslu á tölvuleik- num „The Worid of Yggdrasil", úr Media II áætlun Evrópusamban- dsins. í fréttatilkynningu frá Gagarín segir að þetta sé eitt hæsta framlag sem íslenskt fyrirtæki hefur fengið frá Media, sem einnig styrkir fram- leiðslu kvikmynda og sjón- varpsefnis. Jafnframt er þetta í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki fær úthlutað úr margmiðlunarsjóði Media. tilkynningunni segir einnig að lánveitingin sé einnig ákveðinn gæðastimpill, en verkið var eitt ör- fárra sem valið var úr stórum hópi. „Við munum byrja á því að gefa leikinn út á Islandi. Strax í kjölfar þess verður hann gefinn út á öðrum norðurlöndum, og síðar í öðrum Evrópulöndum og vestan hafs,“ segir Geir Borg, framkvæmdá- stjóri Gagarín ehf. í samtali við Morgunblaðið. Hann segir að Gag- arín sé búið að taka þátt í tveimur erlendum sýningum. „Það eru kom- in á sambönd við mögulega dreif- ingaraðila í þessum löndum. Það er því verkefni næstu mánaða að ganga frá samningum um það.“ Söguþráður leiksins mun byggj- ast á sögunni af því þegar jötuninn Þrymur stal hamri Þórs, Mjölni, og mun henta einstaklingum frá 10 ára aldri. þigalltaf langað til að heyra hvað hann er að segja Við biðjumst velvirðingar á því að flest hljómtæki okkar hljóma svo skýrt að þú heyrir gjarnan eitthvað sem þú áttir ekki von á. < Conrad-Johnson CAVS0 lampamagnari REYNISSON & BLÖNDAL WWW.ROGB.IS SÉRVERSLUN MEÐ HLJÓMTÆKI • SKIPHOLTI 25 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 511 6333 • INFO@ROGB.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.