Morgunblaðið - 16.11.1999, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 16.11.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999 27 t ÚRVERINU Nýtt hafrannsóknaskip kostar 1,6-1,7 milljarða króna Morgunblaðið/Grímur Gíslason Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson er nú í smi'ðum í Chile en gert er ráð fyrir að skipið komi hingað til lands í næsta mánuði. Smíði skipsins er Iangt komin eins og sjá má af þessari mynd af dekki skipsins. Kostnaður ekki farinn fram úr áætlunum Brú skipsins er um 100 fermetrar og hin glæsilegasta eins og sjá má. KOSTNAÐUR við smíði nýs haf- rannsóknaskips verður um 1,6-1,7 milljarðar króna og er samkvæmt áætlunum, að sögn forstjóra Haf- rannsóknastofnunarinnar. Afhend- ingu skipsins hefur seinkað nokk- uð, meðal annars vegna aukahljóða í skrúfubúnaði en sérfræðingar hafa þegar fundið lausn á vandan- um. Nýtt hafrannsóknaskip, Arni Friðriksson, er nú í smíðum í Asm- ar-skipasmíðastöðinni í Chile. Jó- hann Sigurjónsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir kostnað við smíði skipsins á áætlun, en hann verði á bilinu 1,6 til 1,7 millj- arðar króna. Samningurinn við skipasmíðastöðina hafi hljóðað upp á eitthvað lægri upphæð en þá séu eftir samningar við véla- og tækja- framleiðendur. Upphaflega stóð til að afhenda skipið í september sl. en Jóhann gerir ráð fyrir að skipið verði komið hingað til lands í des- ember, þótt endanleg dagsetning hafi ekki verið ákveðin. Kostnaður- inn við þessa töf verði bættur, líkt og smíðasamningur geri ráð fyrir. Vandi vegna aukahljóða í skrúfubúnaði verið leystur Jóhann segir að seinkunina megi meðal annars rekja til aukahljóða í skrúfubúnaði skipsins en gerðar séu mjög strangar kröfur um að búnaðurinn verði sem hljóðlátast- ur. „Skipið er dísel-rafknúið vegna þess að við viljum fá það sérstak- lega hljóðlátt. Það standa yfir próf- anir á búnaðinum og sérfræðingar hafa þegar fundið lausn á málinu. Auðvitað koma alltaf upp einhver atriði í skipasmíði sem menn kannski gerðu ekki ráð fyrir, sér- staklega þegar um flókinn búnað er að ræða eins og í þessu tilfelli. Mestu máli skiptir að við berum ekld fjárhagslegan skaða af þess- um töfum og að við fáum gott skip,“ segir Jó- hann. Samkvæmt lög- um sem sett voru í lok árs 1996 var hlutverki Þróun- arsjóðs sjávarút- vegsins breytt þannig að sjóður- inn skyldi taka lán til kaupa eða smíði á nýju rann- sóknaskipi fyrir Hafrannsóknast- ofnun og var gjaldtaka á úthlutaðar aflaheimild- ir framlengd um tvö ár til að standa undir þessum útgjöldum. Miðað var við að þá yrði lokið styrkjum sjóðsins til úreldingar fiskiskipa og fiskvinnslustöðva. Gjaldið verður lagt á í síðasta sinn 1. september árið 2007. Við undir- ritun smíðasamnings greiddi sjóð- urinn um 250 milljónir króna og gert er ráð fýrir að sjóðurinn greiði samtals um einn milljarð króna af smíðaverði skipsins. SLOPPAR fyrir dömur og herra satín^frotte'A'velúr HVERGI MEiRA ÚRVAL lympia. Kringlunni 8-12, 553 3600 Bjóðum mjög hentuga fataskápa. Aðeins vönduð vara úr gæðastáli. Mjög gott verð! Þjónusta ■ Þekking • ráðgjöf • Aratuga reynsla - gæði fyrir gott verð SUNDABORG 1 • SÍMI568-3300 TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN Nýársnóttin i Þjóðleikhúsinu. ListakLúbbur Leikhúskjallarans kl. 20.30. Nokkrir af elstu leikurum okkar leiklesa verkið. Upplestur félaga í Leikfélagi Akureyrar á þriðjudagskvöldið í samvinnu við Kaffi KaroLínu, Bláu könnuna og Bókval Aó tillögu menntamálaráðherra ákvað rikisstjórn íslands haustið 1995 að 16. nóvember ár hvert yrði dagur íslenskrar tungu. í framhaldi af því hefur menntamálaráðuneytið árlega beitt sér fyrir sérstöku átaki í þágu móðurmálsins og helgað þennan dag rækt við það. Með því móti hefur athygli þjóðarinnar verið beint að stöðu tungunnar, gildi hennar fyrir þjóðarvitund okkar og menningu. íslenskt mál og menntun. Málþing íslenskrar málnefndar í hátiðarsal HáskóLa ísLands Laugardaginn 20. nóvember kl. 11.00. Leiksýning í Borgarleikhúsinu túLkuö á íslenskt táknmáL 20. og 28. nóvember. Sigrúnu Edda Theódórsdóttir túLkar sýninguna „Leitin að vísbendingu um vitsmunaLíf í aLheiminum". DAGUR ISLENSKRAR TUNGU 16* NÓVEMBER
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.