Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Deilt um skipulagið við Hörðu-
velli íbæjarstjórn Hafnarfjarðar
Samþykkt
að boða til
samkeppni
Ljósmynd Pétur Brynjólfsson
í upphafí þessara aldar var Duusverslun í Aðalstræti 2.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stefnt er að því að breyta Geysishúsinu á næsta ári. Hug-
myndin er að það líti út eins og það gerði árið 1906.
Ráðgert að veita 75 milljónir í endurbætur á sögufrægum húsum
Geysishús-
inu breytt
Miðbær
TIL stendur að á að veita 75
milljón króna í endurbætur á
tveimur sögufrægum timbur-
húsum í miðbæ Reykjavíkur.
Ef fjáriiagsáætlun Reykja-
víkurborgar, sem tekin verð-
ur til afgreiðslu á fimmtu-
daginn, verður samþykkt
liefjasf framkvæmdir á næsta
ári. Meirihlutinn eða 65 millj-
ónir munu fara í endurbætur
á Hafnarstræti 16, en 10
milljónir í endurbætur á Að-
alstræti 2, svokölluðu Geysis-
húsi.
Að sögn Kristínar Einars-
dóttur, framkvæmdastjóra
miðborgarinnar, er hug-
myndin að endurgera Aðal-
stræti 2 f þeirri mynd sem
það var árið 1906, þegar Du-
us kaupmaður átti húsið.
Hún sagði að húsið yrði fyrst
og fremst endurgert að utan,
enda væri tiltölulega stutt
síðan það hefði verið lagfært
að innan, en þar er nú Hitt
húsið með starfsemi.
Elsta tvflyfta húsið í
Reykjavík
Kristín sagði reynt yrði að
gera sem mest fyrir þær 10
milljónir sem veittar yrðu í
húsið. Hún sagðist vonast til
þess að hægt yrði að endur-
gera framhliðina og þá hlið
sem sneri að Vesturgötu.
Að sögn Nikulásar Úlfars
Mássonar, arkitekts á Ár-
bæjarsafni, er húsið við Aðal-
stræti 2 eitt það merkilegasta
í Reykjavík. Hann sagði að
það væri elsta tvflyfta húsið
sem enn stæði á sínum upp-
runalega stað í höfuðborg-
inni og að á sínum tíma hefði
það þótt mjög fburðamikið.
Elsta tvflyfta húsið hefur ver-
ið flutt á Árbæjarsafn, en það
stóð við Lækjargötu 4 og er
þremur árum eldra en húsið
viö Aðalstræti 2.
Á homi Aðalstrætis og
Vesturgötu, þ.e. við Aðal-
stræti 2, var fyrsta verslun-
arhúsið í Reykjavík reist árið
1780.
Hýsti verslanir
Fischers og Duus
og Ingólfs apótek
Margs konar verslun hefur
síðan verið rekin á þessum
stað allt fram á okkar daga.
Árið 1855 var gamla húsið
rifið og í staðinn reist það
hús sem enn stendur, en þar
voru um tfma aðalbækistöðv-
ar Fischersverslunarinnar,
sem var ein helsta verslun í
Reykjavík á ofanverðri 19.
öld.
Árið 1904 seldi W. Fischer
húsið til H.P. Duus kaup-
manns, en hann rak þar
verslun til ársins 1927, er fyr-
irtækið varð gjaldþrota. Þá
hófst rekstur Ingólfs Apót-
eks í húsinu og var apótekið
á staðnum í rúman al-
darfjórðung eða allt þar til
Veiðarfæraverslunin Geysir
hóf starfsemi sína þar árið
1954. Síðustu ár hefur ýmiss
konar verslunarstarfsemi
verið í húsinu m.a. var þar
rek,in ferðaskrifstofa um
tíma, en Reykjavíkurborg
keypti húsið 1992 og árið
1995 flutti Hitt húsið þangað
og er þar enn.
Hafnarstræti 16 endur-
bætt að innan sem utan
Endurbæturnar á húsinu
við Hafnarstræti 16 verða
mun viðameiri en endur-
bæturnar á Aðalstræti 2,
enda er ráðgert að veita um
65 milljónir króna í húsið.
Húsið, sem var reist af
dönskum kaupmönnum frá
Fanö á Jótlandi rétt fyrir
aldamótin 1800, verður end-
urbætt að utan sem innan.
Nikulás Úlfar sagði að húsið
væri næstum í sinni upp-
runalegu mynd þannig að því
yrði lítið sem ekkert breytt.
Húsið, sem var kennt við
dönsku kaupmennina og
jafnan kallað Faneyjarhúsið
eða Jóska húsið var endur-
byggt að miklu leyti f kring-
um 1820. Á næstu árum voru
ýmsir eigendur að húsinu, en
það var bæði notað til íbúðar
og verslunar. Þorsteinn Jóns-
son Kúld rak t.d. bóka- og al-
menna verslun þar um tíma,
sem og Ole Peter Möller, en
Ljósmynd Sigfús Eymundsson
HÓTEL Alexandra var í Hafnarstræti 16 um 1880.
Morgunblaðið/Kristinn
Ráðgert er að veita um 65 milljónum króna í endurbætur á
Hafnarstræti 16.
þá var verslunin kölluð Möl-
lersbúð.
Hótel Alexandra
Um 1880 var versluninni
breytt í hótel, sem bar nafnið
Hótel Alexandra eftir dóttur
Kristjáns IX, síðar Eng-
landsdrottningar. M. Smith
átti húsið á þessum tíma og
breytti hann því nokkuð,
byggði m.a. ofan á það aðra
hæð. Sagan segir að misjafnt
orð hafi farið af hótelrekstr-
inum og stóð hann ekki mjög
Iengi.
Eftir aldamótin 1900 var
Eimskipafélagið m.a. með
skrifstofur í húsinu eða þar
til Eimskipafélagshúsið var
tilbúið árið 1921.
Hafnarstræti 16 hefur ver-
ið lagfært nokkuð á síðari ár-
um, en það hefur að mestu
verið notað undir skrifstofur
og verslanir.
Hafnarfjörður
BÆJARSTJORN Hafnar-
fjarðar samþykkti á fundi sín-
um á þriðjudaginn tillögu um
að boða til samkeppni um
hönnun og skipulag Hörðu-
valla, en samkvæmt tillögunni
er gert ráð fyrir nýjum
grunnskóla, leikskóla, íþrótta-
húsi og kennslusundlaug á
svæðinu. Minnihlutinn í bæj-
arstjórn greiddi atkvæði gegn
tillögunni, en hann hefur
gagnrýnt mjög fyrirhugaðar
framkvæmdir á svæðinu.
„Við viljum takmarka upp-
bygginguna á svæðinu og
horfum fyrst og fremst til um-
hverfisins og umferðarþáttar-
ins í því tilliti," sagði Lúðvík
Geirsson, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingarinnar, sem er í
minnihluta í bæjarstjórn.
Lúðvík sagði að það lægi
fyrir að ef byggður yrði nýr
skóli við Hörðuvelli yrði hann
samnýttur fyrir skólahverfin
norðan og sunnan Reykjanes-
brautarinnar. Nemendur úr
Setbergshverfinu þyrftu þá
að fara yfir Reykjanesbraut-
ina til að komast í skólann og
sagðist hann hafa töluverðar
áhyggjur af því. Hann sagði
að rætt hefði verið um lausn á
þessum vanda, þ.e. úrbætur á
Reykjanesbrautinni, en að
ekki væri búið að ákveða neitt
í þeim efnum og málið því í
alla staði mjög óljóst.
„Við vildum því fresta þess-
ari samkeppni og skoða málið
betur.“
Valgerður Sigurðardóttir,
bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins og forseti bæjar-
stjórnar, sagðist ekki vera
sammála gagnrýni minnihlut-
ans, enda væru andmæli hans
svolítið orðum aukin.
Reykjanesbrautin
lagfærð
Valgerður sagði að á mánu-
daginn hefði bæjarverkfræð-
ingur kynnt bæjarfulltrúum
þær hugmyndir sem uppi
væru um breytingar og lag-
færingar á Reykjanesbraut-
inni norðan við Hörðuvelli.
„Það voru kynntar hug-
myndir sem miða að því að
leysa þennan umferðar-
vanda,“ sagði Valgerður. „Til
dæmis hefur verið rætt um
það að setja Reykjansbraut-
ina í stokk á þessu svæði
þannig að gangandi vegfar-
endur geti gengið yfir hana.“
Að sögn Valgerðar verða
lagfæringar á Reykjanes-
brautinni gerðar samhliða
uppbyggingunni á Hörðuvöll-
um. Hún sagði að börn, sem
byggju norðan megin við göt-
una, ættu því aldrei að þurfa
ganga yfir sjálfa götuna því
þar yrði annaðhvort byggð
göngubrú, gerð undirgöng,
eða Reykjanesbrautin sett í
stokk.
Áhersla á uppbyggingu
öldrunarþjónustu
Að sögn Lúðvíks eru
Hörðuvellir afar viðkvæmt
svæði og því mikilvægt að
skipulagning þeirra sé í sam-
ræmi við það.
Lúðvík sagði að gildandi
deiliskipulag íýrir svæðið,
gerði ráð fyrir enn meiri upp-
byggingu öldrunarþjónustu,
en fyrir er hjúkrunarheimilið
Sólvangur. Hann sagði að
minnihlutinn hefði gert tillögu
um að halda í það skipulag, en
byggja samt grunnskóla líkt
og gert væri ráð fyrir í tillögu
stjórnarflokkanna.
„Tillaga okkai’ var felld og
stóra tOlagan, þar sem allt er
lagt undir, samþykkt og með
því er búið að sópa öldrunar-
þættinum út,“ sagði Lúðvík.
Valgerður var á öðru máli.
„Það er ekki verið að
skerða uppbyggingu á þjón-
ustu aldraðra, með því að fara
út í þessar framkvæmdir því
samkvæmt skipulagi er ráð-
gert að byggja við Sólvang
Alfaskeiðsmegin, en upp-
byggingin við Hörðuvelli
verður Lækjargötumegin,"
sagði Valgerður. „Við viljum
líka leggja á það áherslu að
með því að byggja sundlaug
og íþróttahús erum við líka að
bæta þjónustu aldraðra á
þessu svæði.“
Bessastaðahreppur fer út í 200 milljóna króna framkvæmdir
Álftanesskóli
stækkaður
f - , mmm j ap .. ! ;®?®ssí*s<ais*‘ 4*°°” '«a>\ ! í í. .• < ■■ , ■■ „,..... ■;. ixri 3"i. jTiBÉif[ f i irrnira vjíí~j -
Bessastaðahreppur
ÁLFTANE SSKÓLI verður
stækkaður um 1.270 fermetra
á næsta ári, en í gær var und-
irritaður verksamningur þess
efnis milli Bessastaðahrepps
og Ármannsfells hf. Að sögn
Gunnars Vals Gíslasonar,
sveitarstjóra Bessastaða-
hrepps, nemur heildarskostn-
aður vegna framkvæmdanna
um 200 milljónum króna.
Að sögn Gunnars er ráð-
gert að framkvæmdir hefjist
fljótlega, en þeim á að vera
lokið fyrir næsta skólaár.
Byggingin, sem verður reist
norðvestanmegin við skólann,
milli núverandi skólahúss og
íþróttahúss, mun hýsa nýjar
verknámsstofur, þ.e. smíða-
stofu, raungreinastofu, mynd-
menntastofu, stofur fyi-ir hús-
stjórnarkennslu og hann-
yrðir, hjálparkennslustofu og
fjórar nýjar bóknámsstofur.
Eftii’ forval og aiútboð, þar
sem hönnun og verkið sjálft
vai- boðið út í einum pakka,
skipaði sveitarstjórnin sér-
staka dómnefnd, sem mat til-
lögur bjóðenda. Að því loknu
var ákveðið að fara út í við-
ræður við Armannsfell hf.,
þar sem fyrirtækið átti lægsta
samanburðartilboðið í verkið,
en ístak hf. og ÓG-Bygg hf.
tóku einnig þátt í útboðinu.
Samanburðartilboð er fundið
Morgunblaðið/Þorkell
Undirritaður voru samningar um stækkun Álftanesskóla í
gær. Sitjandi frá vinstri: Ólafur St. Hauksson, fram-
kvæmdastjóri hjá IAV hf. og Gunnar Valur Gíslason, sveit-
arstjóri Bessastaðahrepps. Standandi frá vinstri: Ólafur B.
Gunnarsson, verkefnisstjóri hjá ÍAV hf., Guðmundur G.
Gunnarsson, oddviti Bessastaðahrepps og Sveinbjörn Mar-
kús Njálsson, skólastjóri Álftanesskóla.
út með því að deila einkunn
dómnefndar upp í verðtilboð
bjóðanda.
Að sögn Gunnar Vals er
áætlað að stækka skóiann um
800 fermetra í viðbót einhvern
tíman á næstu árum, en hann
sagði að ekki væri búið að
tímasetja það verk. I þeirri
byggingu verður rými fyrir
félagsaðstöðu og bóknáms-
stofur.
Gunnar Valur sagði að að-
eins ár væri liðið frá því síð-
ustu framkvæmdum lauk en
þær kostuðu um 90 milljónir
ki’óna. Hann sagði að þá hefði
stjórnunarálma skólans verið
endurgerð, bókasafnið stækk-
að og tvær nýja bóknámsstof-
ur verið byggðar.