Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 42
Ný lyf
Tilraunir með
lyf gegn hvítblæði
vekja vonir
Börn
AUt að tíunda
hvert barn glímir við
geðvanda
Veikindi
Of láfpjr blóð-
þrýstingur ekki síður
hættulegur
42 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Reykingar
Konur sýnast
frekar fá lungnakrabba
en karlar
Reuters
Mæður sem reykja verða að
sýna sérstaka aðgát.
Aukin
hætta a
vöggu-
dauða
MÆÐUR sem reykja ættu ekki að
deila rúmi með börnum sínum, að
því er prófessor Ed Mitchell við Há-
skólann í Auckland á Nýja-Sjálandi
segir. Hann hefur rannsakað
vöggudauðatilfelli og komist að því,
að í 23% tilvika höfðu börnin sem
dóu deilt rúmi með móður sem
reykti.
Mitchell greindi frá niðurstöðum
sínum í British Medical Joumal, og
sagt var frá þeim í breska ríkisút-
varpinu, BBC. Hann vakti ennfrem-
ur athygli á rannsóknum sem hafa
sýnt fram á að vöggudauði er allt að
fimm sinnum líklegri meðal bama
kvenna sem reyktu á meðgöngu-
tíma, samanborið við böm kvenna
sem ekki reyktu. Hættan á vöggu-
dauða reyndist ennfremur vera 40%
meiri ef faðir reykti en móðir ekki.
Mitchell sagði að þar eð fá börn
væm nú látin sofa á maganum væra
reykingar móður „stærsti áhættu-
þátturinn í vöggudauða". Hann
sagði að tóbak hefði meðal annars
þau áhrif að gera fólki erfiðara með
að vakna. Granur léki á að þegar
böm deildu rúmi kynnu þau að vera
undir álagi, t.d.vegna öndunar-
hindrunar eða hita.
„Bam sem ekki á í erfiðleikum
með að vakna á auðveldara með að
forða sér úr aðstæðum þar sem það
er undir álagi, en barn sem á í erfið-
leikum bregst ekki við,“ sagði
Mitchell. Niðurstöður annarrar
rannsóknar, sem greint var frá í
sama tölublaði, benda til þess að
ekki sé í sjálfu sér hættulegt að
böm deili rúmi með foreldram sín-
um. Vísindamenn telja aðstæður
skipta miklu máli
Hættan er mest ef bam deilir
rúmi með foreldri sem reykir. Þá
virðist hættan ennfremur vera
meiri ef foreldrið hefur neytt áfeng-
is eða er mjög þreytt. Þá reyndust
böm, sem vora látin vera undir
sæng, einnig vera í meiri hættu.
Reykingar
KONUM
HÆTTARA VIÐ
LUNGNA-
KRABBA
The Daily Telegraph. AP.
MUN meiri líkur eru á því að kon-
ur fái lungnakrabbamein en karl-
ar. í Bretlandi er þessi vitneskja
talin til marks um að heilbrigðis-
kerfið standi frammi fyrir stór-
auknu álagi þar eð kannanir sýna
að reykingar kvenna eru að færast
í vöxt þrátt fyrir þann áróður sem
haldið er uppi gegn því athæfi.
Niðurstaða könnunar banda-
rískra vísindamanna við Kaliforn-
íu-háskóla og Harvard var birt á
dögunum í tímariti bresku
Krabbameinsstofnunarinnar.
Leiddu þær rannsóknir í ljós að
þrefalt meiri líkur eru á því að
konur sem reykja fái lungna-
krabbamein en karlar sem nota
reyktóbak. Þessi tegund lungna-
krabbameins hefur verið rakin til
stökkbreytingar, sem kallast „K-
ras“ og telja vísindamenn líklegt
að hún tengist með einhverjum
hætti östrogen-kvenhormóninu.
Sömu niðurstöður hafa fengist
við rannsóknir á öldruðum reyk-
ingakonum. Aldraðar konur sem
reykja eru rúmlega tvöfalt líklegri
til að fá lungnakrabbamein en
aldraðir karlar sem reykja, ef
marka má rannsókn vísindamanna
í New York.
Vísindamennirnir rannsökuðu
1.000 manns yfir sextugt - 459
konur og 541 karl. 29 þeirra
reyndust hafa fengið lungna-
krabbamein, nítján konur og tíu
karlar. Niðurstaðan var því sú að
konum væri 2,3 sinnum hættara
við sjúkdómnum en körlum.
Einn vísindamannanna, Natasha
Buckshee, sagði að rannsóknin
benti til þess að konur væru ber-
skjaldaðri íyrir krabbameinsvald-
andi efnum en karlar. Claudia
Henschke, vísindamaður við Com-
ell-háskóla, sem stjómaði rann-
sókninni, sagði að nokkrar nýlegar
rannsóknir hefðu einnig bent til
þess að konum væri hættara við
lungnakrabbameini en körlum. Hún
bætti þó við að frekari rannsókna
væri þörf til að grafast fyrir um
ástæðumar. „Ef til vill kemur í ljós
að konur reyki meira en karlar."
Lewis Smith, prófessor við
Northwestern-háskóla, sagði að
skýringin gæti verið sú að konur
reyktu meira eða fengju ekki jafn
góða læknisþjónustu og karlar.
„Læknar töldu áður fyrr að körl-
um væri hættara við krabbameini.
Þeir gætu því rannsakað þá oftar
en konur.“
AP
Reykingar kvenna færast í vöxt víða um heim.
Lágur blóðþrýstingur
hættulegur eldri mönnum I
New York. Reuters.
HÆTTULEGIR fylgifískar of
hás blóðþrýstings eru vel kunn-
ir og oft um þá ijallað. En jap-
anskir vfsindamenn greindu ný-
verið frá því að meðal karl-
manna eldri en 65 ára sé of lág-
ur blóðþrýsingur allt eins
hættulegur og auki líkur á ban-
vænu krabbameini eða lungna-
sjúkdómum.
Samkvæmt niðurstöðum
rannsóknarinnar kann lág-
þrýstingur að ljórfalda hættuna
á dauða af völdum öndunar-
færasjúkdóma og krabbameins,
en háþrýstingur er talinn fjór-
falda hættuna á dauða af völd-
um hjartasjúkdóma og heilaá-
falls.
Rannsakaðir voru 1.186 eldri
íbúar x japönskum bæ. A Ijög-
urra ára tímabili létust 134 þátt-
takendanna. Þegar tekið hafði
verið tillit til áhættuþátta á borð
við aldur, sjúkrasögu, reykingar
og hreyfíngarleysi kom í ljós að
meðal karlmanna voru þeir sem
Presslink
höfðu hæstan blóðþrýsting og
þeir sem höfðu lægstan þrýsting
líklegastir til að deyja, en ekki
af sömu orsökum.
Tengslin milli blóðþrýst-
ings og dauða af völdum
hjartasjúkdóma voru augljós:
Því hærri sem þrýstingurinn
var því meiri voru dauðalík-
urnar. En menn með lágan
blóðþrýsing áttu á hættu að
deyja af völdum annarra sjúk-
dóma. Greint var frá niðui’-
stöðum rannsóknarinnar i
desemberhefti Journal of the
American Geriatrics Society.
I leiðara tímaritsins segja
bandarískir vísindamenn að
rannsókn Japananna sé „nýtt
og ef til vill mikilvægt framlag
til skilnings á blóðþrýstingi
meðal eldra fólks“. Þeir nefna
að á meðal yngra fólks sé lágur
blóðþrýstingur af hinu góða, en
ekki sé fyllilega ljóst hver sé
eðlilegasti blóðþrystingurinn
hjá eldra fólki.