Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI 5,6% hækkun vísitölu neysluverðs á 12 mánuðum Tvö- til þrefalt meiri verðbólga en í helstu viðskiptalöndum SÍÐASTLIÐNA tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,6% og hefur tólf mánaða breyting vísitöl- unnar ekki verið meiri síðan í nóvem- ber 1993. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desemberbyrjun 1999 hækkaði um 0,4% frá fyrra mánuði. Þetta er mun meiri hækkun en markaðsaðilar höfðu spáð, en flestir bjuggust við óbreyttri vísitölu. Verðbólgan í n'kjum EES frá októ- ber 1998 til október 1999, mæld á samræmda vísitölu neysluverðs, var 1,3% að meðaltali. A sama tímabili var verðbólgan 1,7% í helstu við- skiptalöndum íslendinga en 4,2% á Islandi. Bæði seðlabankastjóri og forstjóri Þjóðhagsstofnunar segja verðbólgu- hraðann hér algjörlega óviðunandi og koma verði verðbólgunni hér á svipað stig og í helstu viðskiptalöndum okk- ar. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í desemberbyijun 1999 var 194,0 stig (maí 1988=100) og hækk- aði um 0,4% frá fyrra mánuði. Vísi- tala neysluverðs án húsnæðis var 194,5 stig og hækkaði um 0,2% frá nóvember. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,6% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,3%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,1% sem jafngildir 4,7% verðbólgu á ári. í frétt frá Hagstofu íslands kemur fram að markaðsverð á húsnæði hækkaði um 1,9% sem hafði í för með sér 0,18% hækkun á vísitölunni. Verð á bensíni og olíu hækkaði um 1,1% sem leiddi til 0,05% hækkunar neysluverðsvísitölu. Útlit fyrir að vísitalan verði áfram há í byrjun árs Að sögn Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar, hefði allt að 0,2% hækkun verið eðlileg hækkun vísitölu neysluverð nú og þessi mikla hækkun valdi vonbrigð- um. „Þetta sýnir einfaldlega að þær áhyggjur sem menn hafa haft af þró- un verðlags að undanfömu hafa verið að gefnu tilefni. Við höfum áhyggjur af því að vísitalan í byrjun árs verði einnig frekar há. Það stafar meðal annars af því að ýmsar hækkanir sem eru þegar þekktar sem tengjast gjaldskrám hins opinbera s.s. leik- skólagjöld ofl. Hækkun fasteigna- gjalda kemur væntanlega inn í út- reikninga næst þannig að það er ekki hægt að búast við því að vísitölu- breytingin milli desember og janúar verði lítil." Von á endurskoðaðri þjóðhagsspá í næstu viku Þórður segir að fyrir síðustu um- ræðu fjárlaga fari Þjóðhagsstofnun alltaf í gegnum þjóðhagsspána og endurskoði hana. „Við gerum ráð íyr- ir því að upp úr miðri næstu viku liggi fyrir endurskoðuð þjóðhagsspá þar sem meðal annars verður tekið tillit til þróunar verðlags og annarra upp- lýsinga um framvindu efnahagsmála frá því að þjóðhagsáætlun var lögð fram í byijun október,“ segir Þórður. Birgir ísleifur Gunnarsson, seð- labankastjóri, segir að hækkun vísi- tölu neysluverðs valdi vonbrigðum og hún sé mun meiri heldur en gert var ráð fyrir. „Við höfðum reiknað með að vísjtalan yrði meira og minna óbreytt bæði í nóvember og desem- ST72860 29" Hegatron Nlcam Stereó sjónvarp meðtextavarpl og scart tengi. Súper flatur og svartur örafmagnaður myndlampl trygglr frábær myndgsði UNITEO AKAI VSJ701 ( hausa Nicam Stereó myndbandstæki Ferðatæki með útvarpl, geislaspilara og segulbandi URR9350 AKAI BMW 260wbriggiadiskasamstæða með Dolby Pro-Logic heimabfói og 5 hötölurum AKAI 2ja hausa myndbandstæki með NTSt afspilun og RCA og Scart tengi VSJ200 f Ég er sjúííur í læknasápur. er löcf randi læltnasfemining á sfoí’unni þegar ég spila Svoleic/is af videói fyrir sjúklingana. Yad verdfa allir Svo þaagir og góc/ir. Sjónvarpsmiðstödin ® oq t/ót) kaup! ffllll>IUMáBg»throtrkhfccbártlWIBDI»CaM»WsS*tthtotDflm^ihæ«MviPlá^1>trtlti9^rh^S<ákbiilU>á*löspkætamDNnvitlÉaAttthúrtliilffilHUHDMnéáfa»fllffcrtMAIeU«iMlUwÉth|rtrtEh|V»l^i DIa»tó«tSrtMi( Irtíta.JcrMíIiDlttrjfefiafer.lfctríÍjIrt UlUwno UlLlttlg Ignnftli SilBUIlAIS MupsKúozáDllMntli U«sM.ldta leásialuicSdœiUSdto Itchiládih.irnaetMnaueTlH tiltMS Baftoatoitot IdUtvnuwlSn tatwumar.UJilíMlnHrtelik Breytingar á vísitölu neysluverðs , ___ Tölurísvigumvísatil _ . , ... . , ___ Mars 1997 = 100 vægiseinstakraiiða. Frá nóv. til des. 1999 01 Matur og óáfengar drykkjarvörur (16,8%) 0112 Kjöt (3,2%) 0117 Grænmeti, kartöflur o.fl. (1,3%) -3,3% 0122 Gosdrykkir, safar og vatn (1,6%) 02 Áfengi og tóbak (3,2%) 03 Föt og skór (5,7%) 032 Skór (1,1 %) 04 Húsnæði, hiti og rafmagn (18,3%) 042 Reiknuð húsaleiga (9,5%) 05 Húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. (5,2%) 051 Húsgögn og heimilsbúnaður (2,1%) 06 Heilsugæsla (3,0%) 07 Ferðirog flutningar (17,9%) 08 Póstur og sími (1,6%) 09 Tómstundir og menning (13,0%) 10 Menntun (1,0%) 11 Hótel og veitingastaðir (5,2%) 12 Aðrar vörur og þjónusta (9,2%) 1 +0,3% 1 +0,8% -0,9% [ | 0,0% | +0,3% |+0,1% I 0,0% 1 +0,3% ffl+0,4% VÍSITALA NEYSLUVERÐS í DES.: 108,7 stig +0,4% Verðbólga í nokkrum ríkjum Breyting samræmdrar neysluverðsvísitölu frá okt. 1998 til okt. 1999 BS ísland írland Bandar.*** Danmörk Spánn Noregur Ítalía Lúxemborg Grikkland Holland* Portúgal Finnland Belgía Bretland Sviss Svíþjóð Þýskaland Frakkland* Austurríkl* Japan*** 2,8% 2,6% 2,6% 2,4% 2,4% 1,9% 1,9% 1,9% 1,8% 1,8% 1,6% 1,4% * Bráðabirgðatölur * Samkvæmt gengisvog Seðlabanka íslands Tímabilið frá sept. 1998 tilsept. 1999 Viðskiptalönd** I I 1,7% Meðaltal EMU* I I 1,4% Meðaltal ESB* I-----------1 1,3% Meðaltal EES* | ..| 1,3% í EES rikjum er miðað við samræmda evrópska neysluverðs- vísitölu en í Bandar., Japan og Sviss við neysluverðsvísitölur. ber. Hún breyttist ekki í nóvember en nú kemur hækkun sem er umfram okkar spá. Þar munar mestu um hús- næðisliðinn sem ekki var búist við að myndi hækka meira á árinu. Venju- lega dregur úr fasteignamarkaðnum í lok árs en svo virðist ekki vera í ár. Eins hækkaði bensín sem er eitthvað sem við vonuðumst til að ekki myndi gerast. Þessir tveir liðir skýra ríflega helminginn af hækkun vísitölunnar nú. Jafnframt hækka matvörur en venjulega hafa þær lækkað í þessum mánuði.“ í morgunfréttum íslandsbanka F&M kemur fram að þau samkeppn- isáhrif sem undanfarin ár hafa leitt til verðlækkunar í desembermánuði virðist ekki vera fyrir hendi í sama mæli í ár. „Þessi hækkun vísitölunn- ar er nokkuð umfram spá Seðlabank- ans frá því í október síðastliðnum. Seðlabankinn hefur ítrekað gefið í skyn undanfarið að hann muni ganga hart frm í pví að ná tökum á verð- bólgunni. I því ljósi er líklegt að skammtímavextir verði hækkaðir hér á landi strax í upphafi næsta árs,“ segir í morgunfréttum íslandsbanka F&M. „Meira en við getum sætt okkur við til lengdar" Verðbólgan í ríkjum EES frá októ- ber 1998 til október 1999, mæld á samræmda vísitölu neysluverðs, var 1,3% að meðaltali. Á sama tímabili var verðbólgan 1,7% í helstu við- skiptalöndum íslendinga en 4,2% á íslandi. Sambærilegar verðbólgutöl- ur fyrir ísland eru 3,8% í nóvember og 4,4% í desember. í morgunkorni FBA kemur fram að það sé óviðunandi að verðbólga hér sé 2,5 prósentustigum meiri en í helstu viðskiptalöndum. Að sögn Birgis ísleifs hlýtur að verða eitt meginverkefni efnahags- stjórnunarinnar á næstu mánuðum að reyna að sporna gegn frekari aukningu verðbólgunnar og fá hana niður að nýju á sama stig og í okkar helstu viðskiptalöndum. Síðustu tólf mánuði hefur verðbólgan hækkað um 5,6%. Væntanlega verður hún um 5% fyrir árið 1999. Þetta er meira en við getum sætt pkkur við til lengdar,“ segir Birgir Isleifur. Hann segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort vextir verða hækkaðir en það verði skoðað á næstu vikum. Meira en 1-3% verðbólga óvidunandi Þórður segir að þegar á allt er litið sé verðbólguhraðinn hér tvö til þrefa- ldur á við það sem hann er í helstu samkeppnislöndum. „Ef við tökum Evrópusambandið þá er verðbólg- uhraðinn þar um 1,5% að meðaltali. Ef við tökum tillit til þess að húsnæð- isvísitalan skýi-i töluverðan hluta af þessu og húsnæðisvísitalan sé pínu- lítið gölluð hér þar sem hún tekur einvörðungu tillit til verðhækkana á höfuðborgarsvæðinu er þessi munur engu að síður tvö til þrefaldur. Það er ástand sem er algjörlega óviðunandi til lengdar. Þetta er nokkuð sem við eigum ekki að sætta okkur við og verðum að vinna bráðan bug á. Það er engin leið fyrir okkur, að mínu viti, að hugsa til þess að á næstu misser- um verði verðbólga hér áfram tvö- til þrefalt meiri heldur en í helstu við- skiptalöndum. Það er einfaldlega gnindvallaratriði fyrir okkur að vera með verðbólguna á svipuðu stigi og annars staðar. Að öðrum kosti er hætt við að við fáum upp alls konar vandamál sem tengjast því þegar verðbólga er að grafa um sig og við gætum einfaldlega misst tökin á stöð- ugleikanum. Það er mjög brýnt að koma verðbólgunni niður á sama stig og annars staðar. Ef farið er yfir list- ann yfir lönd sem við berum okkur saman við þá er einfaldlega ekkert land sem við viljum bera okkur sam- an við með verðbólgu yfir 3%. Það er alveg ósættanlegt að vera með verð- bólgu hér sem er meira en 1-3%. Það er rammi sem við eigum að halda okkur innan.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.