Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Þingmaðurinn McCain sækir f sig veðrið í baráttunni við George W. Bush
Vinnur á með
því að láta
móðan mása
John McCain hefur beitt þeirri aðferð í
baráttunni við George W. Bush, sem etur
kappi við hann í forkosningum repúblikana,
að láta móðan mása í stað þess að neita að
svara spurningum fréttamanna. Þessi
aðferð hefur borið árangur því McCain
virðist nú vera í mikilli sókn.
John McCain, öldungadeildarþingniaður frá Arizona, ræðir við tvo
fyrrverandi hermenn á kosningafundi íNew Hampshire.
Washington. AFP, Washington Post.
GEORGE W. Bush, ríkisstjóri Tex-
as, á nú í vök að verjast í baráttunni
við John McCain, öldungadeildar-
þingmann frá Arizona, og fleiri fram-
bjóðendur í forkosningum repúblik-
ana fyrir forsetakosningarnar í
Bandaríkjunum á næsta ári. Bush
hefur haft mikið forskot á keppi-
nauta sína í skoðanakönnunum sem
hafa verið gerðar út um allt landið en
McCain hefur sótt í sig veðrið að
undanförnu. Hann hefur jafnvel náð
forskoti á Bush í New Hampshire,
þar sem forkosningamar hefjast eft-
ir tvo mánuði, samkvæmt tveimur
skoðanakönnunum sem birtar voru í
gær.
I annarri könnuninni sögðust 37%
ætla að kjósa McCain og 30% Bush,
en í hinni var munurinn um helmingi
meiri, 43% á móti 28%. í síðasta
mánuði var fylgi Bush í New
Hampshire 44% en McCains aðeins
27%.
Beita ólíkum aðferðum
Talið er að ein af ástæðum þess að
McCain hefur færst í aukana í bar-
áttunni við Bush sé að þeir hagi
kosningabaráttunni með mjög ólík-
um hætti, auk þess sem menn hafa
ýmsar efasemdir um Bush, draga
meðal annars í efa að hann hafi næga
reynslu af stjórnmálunum.
Bush hefur einnig verið gagnrýnd-
ur fyrir að veigra sér við að svara
spumingum fréttamanna en McCain
er hins vegar þekktur fyrir að vaða
elginn og spjalla klukkustundum
saman við fréttamenn sem ferðast
með honum í kosningabaráttunni.
Þeir spurðu hann nýlega hvernig
baráttan gengi og hann svaraði: „Við
eigum eftir að verða fyrir nokkrum
áföllum, einkum vegna þeirrar til-
hneigingar minnar að verða mér til
skammar með blaðri".
Enginn andmælti þessu, enda hef-
ur McCain beitt þeirri aðferð í kosn-
ingabaráttunni að láta dæluna ganga
meðan aðrir frambjóðendur leggja
kapp á að koma skilaboðum sínum á
framfæri með stuttum, hnitmiðuðum
og þaulæfðum setningum sem eru
líklegar til að vekja athygli
sjónvarpsáhorfenda.
Veður úr einu í annað
McCain veður úr einu í annað á
blaðamannafundum sínum, spjallar
um stjómmál, herinn, skatta,
reynslu sína sem stríðsfanga í Víet-
nam, fyrrverandi kærasta eiginkonu
sinnar og sögusagnir um að hann sé
ekki heill á geði. Hann lætur gamm-
inn geisa og gantast við íréttamenn-
ina, kallaði til að mynda fréttaritara
AP „skíthæl" á einum fundanna.
„Það er auðveldara að fá aðgang
að McCain en vændiskonu í Hong
Kong,“ sagði í grein um frambjóð-
andann í Time, sem lýsti kosninga-
baráttu hans sem „djarfri glæfra-
ferð“ frambjóðanda sem er
„algjörlega berskjalda og aðeins
hann sjálfur“.
„Ég hata Frakka“
Þessi aðferð hefur reynst vel, enn
sem komið er að minnsta kosti, og
hann hefur náð mjög nánu sambandi
við blaðamennina, sem kunna vel að
meta einlægni hans og hispursleysi.
Ráðgjafi McCains, Mike Murphy,
viðurkennir að hann hafi þurft að
beita þessari aðferð þar sem hann
hafi ekki úr jafn miklum fjármunum
að spila og Bush. „Við þurfum á at-
hygli fjölmiðlanna að halda.“
Ráðgjöfum McCains hefur stund-
um þótt nóg um hreinskilni og óvar-
færni hans. „Þetta er ein af mörgum
ástæðum þess að ég hata Frakka,“
sagði hann t.a.m. þegar minniháttar
milliríkjadeila barst í tal. A öðrum
blaðamannafundi lýsti hann Víet-
nömum sem „aulum“ þegar hann
spjallaði um dvöl sína í fangabúðum í
Hanoi.
„Fjölmiðlarnir vernda hann“
Slík ummæli hafa þó sjaldan kom-
ið honum í vanda. „Fjölmiðlarnir
vernda hann á þessu stigi,“ segir
Jacob Weisberg, blaðamaður tíma-
ritsins Slate. „Hann er alltaf með
svona heimskulegar setningar. Við-
brögð blaðamannanna eru yfirleitt
þau að þeir skýra ekki frá þeim eða
hrósa honum fyrir hreinskilnina í
stað þess að fjalla um þær sem
glappaskot. Ef Bush hefði rætt um
aðra þjóð sem „aula“ hefðu allir talað
um hversu óþroskaður hann væri og
vanhæfur til að framfylgja utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna."
„Ég hef aldrei kynnst frambjóð-
anda sem hefur þorað að láta taka
svo langt viðtal við sig, án þess að að-
stoðarmenn fylgist með, hlusti, skrifi
niður minnispunkta eða krefjist þess
að ákveðnum ummælum verði
sleppt," sagði Linda Douglas, frétta-
kona ABC-sjónvarpsins, sem tók
viðtal við hann í rútu hans á kosn-
ingaferðalagi. „Hann hefur greini-
lega heillað okkur öll og við verðum
að vara okkur á þessu.“
Fréttamenn, sem hafa fylgst með
kosningaferðum Bush og Als Gores
varaforseta, hafa kvartað yfir því að í
þau fái skipti sem þeir veita viðtöl
endurtaki þeir alltaf það sem þeir
tönnlast á þegar þeii' flytja
kosningaræðurnar.
„Með því að virðast svo opinskár,
heiðarlegur, einlægur og óvarkár
losnar hann við þá gremju sem
blaðamenn fyllast þegar þeir fá ekk-
ert út úr frambjóðandanum," sagði
Douglas. „Hann er gæddur þeim
hæfileika að geta gert blaðamenn að
vinum sínum.“
Gagnrýnir Kaliforníu -
en ekki Bush
McCain hefur jafnvel gengið svo
langt að veitast að fjölmennasta ríki
Bandaríkjanna. „Við hötum Kali-
fomíubúa, þeir eru alltaf að stela
vatninu okkar,“ sagði hann eitt sinn
við blaðamenn. Hann hefur hins veg-
ar neitað að gagnrýna Bush þótt
blaðamennirnir hafi margsinnis
eggjað hann til þess.
±ÖÖJ»
Canon Prima Zoom Shot í gjafakassa
•Alsjálfvirk 35mm myndavél með sjálfvirkum fókus
• 38-60mm rafdrifin aðdráttarlinsa með Ijósopi
4,5-6,7 »Prjár mismunandi NJS1I33XSH
flassstillingar •Lágmarksfjarlægð ZjmE
frá myndefni er aðeins 0,45m jHKs
•Taska, ól og rafhlöður fylgja f \ f
Canon IXUS M-1 í gjafakassa
•TMsjálfvifkAPS myndavél •Móguleikiáþremurmynda-
stærðum »23mm rafdrifin linsa með jjósopi 4,8 «Vegur
aðeins 115g •Sjálfvirkurfökus og auðveld filmuísetning
•Móguleiki á dagsetningu og texta aftan á mynd
•Sjálfvirkt innbyggt flass •Taska, ól og
rafhlöðurfyfgja