Morgunblaðið - 11.12.1999, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
►
Klapparstíg 40, sími 552 7977.
Falleg jólagjöf
Handgerðir grískir
íkonar
Verð frá 1.990-28.00« kr.
LUXOR
Bæjarlind 3, Kóp., sími 564 6880.
111 'l!
uwnrxmr-w iuméh
i n 'i ■■■■■■■
W’\ \ I I
Siórhöfða 17, við Gullinhrú, s. 567 4844.
www.flis^flis.is • nclfang: flisC' itn.is
Lífeyrissjóður verslunarmanna o g eignarhaldsfélagið Gaumur
ásamt 8 minni fjárfestum kaupa hlut Compagnie Financiere i Baugi
Eigendur
Gaums með rúm
35% í Baugi
LÍFEYRISSJÓÐUR verslunar-
manna og eignarhaldsfélagið Gaum-
ur ehf. hafa ásamt átta minni fjár-
festum keypt öll hlutabréf
Compagnie Financiere SA í Baugi
hf., fyrir milligöngu Kaupthing Lux-
embourg SA. Alls er um að ræða 200
milljónir króna að nafnverði eða
17,82% af útgefnu hlutafé. Kaupin
fóru fram á genginu 9,4 og er sölu-
verð því 1.880 milljónir.
Gaumur ehf. á eftir fjárfestinguna
um 30% í Baugi og er stærsti hlut-
hafinn eftir sem áður. Aðstandendur
Gaums ehf. eru Jóhannes Jónsson og
fjölskylda. Jóhannes á 2,6% hlut í
Skartgripaverslun
FYRST og FREMST
Gullsmiðja Helgu
Laugavegi 45 • Sfmi 581 6660
eigin nafni og Jón Ásgeir einnig.
Samtals á fjölskyldan því rúmlega
35% hlut. Eignarhlutur Lífeyris-
sjóðs verslunarmanna verður eftir
kaupin 4,4% eða 50 milljónir að nafn-
verði.
Mikilvægt að ekki hvíli
leynd yfir hluthöfum
Að sögn Jóns Ásgeirs Jóhannes-
sonar, forstjóra Baugs og stjórnar-
manns í Gaumi, er það mikilvægt að
ekki hvíli leynd yfir hluthöfum
Baugs. „Ég held að það sé mjög gott
að nú er Ijóst hverjir hluthafar eru
en ekki að félag sem óljóst er hverjir
standa á bak við ráði yfir svo stórum
hlut eins og Compagnie Financiere
gerði,“ segir Jón Ásgeir.
„Fagfjárfestar virðast hafa sett
þetta atriði fyrir sig hingað til en við
erum mjög ánægð með að Lífeyris-
sjóður verslunarmanna er kominn til
liðs við hluthafahóp Baugs,“ segir
Jón Ásgeir og segir útlitið bjart hjá
Baugi. Hann nefnir í því sambandi
þá staðreynd að Reitangruppen hef-
ur ekki nýtt sér sölurétt á hlutabréf-
um í Baugi eins og fram kom í til-
kynningu til Verðbréfaþings í gær.
„Við teljum að fjárfestingin muni
skila Lífeyrissjóðnum góðri ávöxt-
un,“ segir Þorgeir Eyjólfsson, for-
stjóri Lífeyrissjóðs verslunarmanna.
„Miðað við þá þekkingu sem við höf-
um á félaginu og miðað við það gengi
sem viðskiptin fóru fram á, er þetta
góður tími til fjárfestingar í Baugi.“
Hann segir ástæðu fyrir fjárfesting-
unni m.a. að Baugur sé öflug versl-
anakeðja með mikla vaxtar- og hagn-
aðarmöguleika.
Þorgeir segir aðspurður að það
skipti máli að með kaupunum liggi
Ijóst fyrii’ hverjir eiga félagið.
„Baugur hefur gengið í gegnum mik-
ið breytingaskeið og margt liggur
ljósar fyrir um framtíð félagsins nú
en fyrii’ nokkrum mánuðum."
Reitangruppen nýtir
ekki sölurétt sinn
I október 1998 var gerður samn-
ingur milli FBA og Kaupþings hf.
annars vegar og Reitangruppen A/S
hins vegar sem fól í sér heimild Reit-
angruppen til að selja FBA og Kaup-
þingi hf. 10% af hlutafé í Baugi hf. ef
fram kæmu verulegar neikvæðar
breytingar (Major Negative Devel-
opment) í rekstri Baugs hf. fram til
8. desember 1999, eins og fram kom í
útboðs- og skráningarlýsingu Baugs
hf. í apríl 1998. Reitangruppen nýtti
sér ekki ofangreindan sölurétt á
hlutabréfunum og hefur hann því
fallið niður. Þetta kom fram í til-
kynningu til VÞI í gær.
Lokagengi á hlutabréfum Baugs á
Verðbréfaþingi íslands í gær var
9,95. Heildarviðskipti voru fyrir 31,8
milljónir og hækkaði gengi bréfanna
um 5,9%.
Baugur kaupir 50% í
Bonus dollar stores
Stjórn Baugs hf. hefur staðfest
kaup á 50% hlut í Bonus dollar stores
keðjunni í Bandaiíkjunum. Félagið
rekur nú 7 verslanir undir nafninu
Bonus dollar stores og hefur verið
gengið frá húsaleigusamningum fyr-
ir 2 aðrar verslanir. Kaupverð hlut-
arins er um 21 milljón króna. Reikn-
að er með að verslanir félagsins
verði orðnar um 20 í árslok ársins
2000 og hagnaður verði á næsta
rekstrarári.
Samstarf við Debenhams
á Norðurlöndum
Debenhams og Baugur hf. skoða
nú möguleika á því að opna verslanir
á Norðurlöndunum. Debenhams hef-
ur leitað eftir samstarfi við Baug um
uppsetningu á verslunum undir
nafninu Debenhams á Norðurlönd-
um, en félögin hafa sl. 10 mánuði
unnið við undirbúning á opnun versl-
unar á Islandi og mun sú verslun
opna árið 2001 í Smáralind, nýrri
verslunarmiðstöð í Kópavogi. „Það
er ánægjulegt að þessir stóru er-
lendu aðilar skuli leita eftir auknu
samstarfi við Baug og felur það í sér
mikið traust á starfsemi og stjórn-
endum fyrirtækisins," segir í til-
kynningunni. Reiknað er með, ef allt
gengur að óskum, að Debenhams
opni verslun í Stokkhólmi árið 2002
eða 2003. Rekstur þeirrar verslunar
verður undir stjórn Baugs en inn-
kaup og lagerhald undir stjórn
Debenhams.