Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 16

Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 16
16 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Viðræðunefnd um sameiningu Glæsibæjarhrepps, Öxnadalshrepps og Skriðuhrepps hefur skilað af sér Allar líkur á að hrepparnir sameinist á næsta ári FLEST bendir til þess að hrepparnir þrír norðan Akureyrar, Glæsibæjarhreppur, Öxnadalshrepp- ur og Skriðuhreppur, sameinist á næsta ári og að úr verði um 400 manna sveitarfélag. Viðræðu- nefnd hreppanna þriggja samþykkti samhljóða að leggja til við sveitarstjórnir hreppanna að kos- ið verði um sameiningu þeirra eigi síðar en næsta vor, þannig að sameiningin geti farið fram á miðju ári 2000. Amameshreppur átti áheyrnarfulltrúa á fund- um sameiningarnefndarinnar en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort hreppurinn komi að sam- einingarferlinu. Innan sveitarstjórnar hefur ver- ið meiri áhugi fyrir enn stærri sameiningu sveit- arfélaga í Eyjafirði. Samhliða alþingiskosningum sl. vor, var gerð könnun meðal íbúa hreppanna fjögurra um sam- einingarmál. Flestir vildu sjá sameiningu hrepp- anna fjögurra en einnig var meirihluti fyrir sam- einingu hreppanna þriggja, þ.e. Glæsibæjar-, Öxnadals- og Skriðuhrepps. Fullvíst má telja að sveitarstjómir hreppanna þriggja samþykki til- lögu sameiningarnefndarinnar og samkvæmt áð- urnefndri könnum frá í vor era því yfirgnæfandi líkur á að sameiningin verði samþykkt. Skatttekjur munu aukast um sjö milljónir Oddur Gunnarsson oddviti Glæsibæjarhrepps sagði að ekki hafi komið upp nein ágreiningsefni á fundum sameiningamefndarinnar og að menn hafi verið sammála um að þetta gæti gengið eftir. Leitað var eftir því hjá Sambandi íslenskra sveit- arfélaga hvaða áhrif sameiningin hefði á framlög úr jöfnunarsjóði. „Miðað við forsendur þessa árs varðandi fram- lög úr jöfnunarsjóði, munu skatttekjur samein- aðs sveitarfélags verða sjö milljónum króna hæmi en ef sveitarfélögin væru hvert í sínu lagi. Með sameiningu verður öll stjómsýsla auðveldari og gerir okkm- kleift að ráða mann til að sjá um bókhald og daglega afgreiðslu,“ sagði Oddur. Vilja hafa Arnarneshrepp með Hann sagði að óskastaðan hefði verið sú að sveitarfélögin sem að málinu koma hefðu verið fjögur. „En við ætlum að stefna að þessu og sjá þá til hvort það kemur ósk frá fleiram um að vera með.“ Helgi Steinsson oddviti Öxnadalshrepps sagð- ist hlynntur sameiningu, enda kæmi út úr því þægileg rekstrareining. Hann hefði þó gjarnan viljað sjá Amarneshrepp með. Hins vegar væri ekki áhugi í sinni sveit fyrir enn stærri samein- ingu í firðinum. Ekki náðist í Jóhannes Hermannsson oddvita Arnameshrepps. María sýnir á Karólínu MARÍA Sigríður Jónsdóttir opnar málverkasýningu á Kaffi Karólínu í dag, laugar- daginn 11. desember kl. 14. María fæddist á Akureyri árið 1969. Hún hefur búið á Italíu og stundaði nám við Accademia di Belle Arti í Flórens. Verkin eru öll unnin með olíu á striga. Engin boðskort eru send út vegna opnunarinnar en allir sem áhuga hafa era velkomnir. Sýningin stendur til 31. des- ember næstkomandi. SkjáVarp hefur út- sendingar á Akureyri SKJÁVARP - staðbundið upplýs- ingasjónvarp - tók formlega til starfa á Akureyri í gær og lauk þá jafnframt fyrsta áfanga uppbygg- ingar þess. SkjáVarp nær þar með til 22 bæjarfélaga á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Aust- urlandi og Suðurlandi eða til 56 þúsund manna, fimmtungs þjóðar- innar. Ágúst Ólafsson framkvæmda- stjóri SkjáVarps sagði við form- lega opnun þess í Listasafninu á Akureyri að um væri að ræða staðbundið upplýsingasjónvarp þar sem íbúar geta á hverjum stað gengið að fréttum og fróðleik frá sinni heimabyggð hvenær sem er sólarhringsins. Meðal þeirra upp- lýsinga sem hægt verður að nálg- ast má nefna veður, færð og flugá- ætlanir. „Þetta er ekki afþreying- armiðill, heldur fyrst og fremst upplýsingaveita," sagði Ágúst. Hann sagði reynsluna sýna að mikil þörf væri fyrir staðbundnar upplýsingar af þessu tagi og fólk gæti á auðveldan hátt nálgast þær því öllum væri tamt að nota sjón- varp. Auk þess sem langflestir hafa aðgang að sjónvarpstækjum heima hjá sér er fyrirhugað að Morgunblaðið/Kristj án Ágúst Ólafsson, framkvæmdastjóri SkjáVarps, ræðir við Bjarna Haf- þór Helgason, framkvæmdastjóra títvegsmannafélags Norðurlands, en þeir störfuðu á sínum tíma báðir sem fréttamenn á Stöð 2, Ágúst á Egilsstöðum og Bjarni Hafþór á Akureyri. Blaðbera vantar í eftirtalin hverfi: Huldugil - Vættagil - Eyrina, norðurhluta,- Gerðahverfi. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, ^ Kaupvangsstræti 1, Akureyri, sími 461 1600 koma tækjum fyrir víðs vegar þar sem almenningur á leið um og er stefnt að því að koma upp á fímmta hundrað slíkum tækjum, í afgreiðslusölum ýmiss konar, stöðum tengdum ferðaþjónustu, verslunum, veitingastöðum og heilsugæslustöðvum svo dæmi séu tekin. Uppbygging á suðvesturhorninu næst Næsti áfangi er uppbygging kerfisins í Reykjavík og á Suður- nesjum og_ mun henni ljúka á næsta ári. í kjölfarið mun útsend- ing ná til um 84% þjóðarinnar, eða um 230 þúsund manns. Þriðji áfanginn felst í að þétta netið og koma á útsendingu í smærri byggðum á landsbyggðinni. Þjónustumiðstöðvar SkjáVarps eru á Höfn í Hornafirði, Akureyri og Reykjavík og eru þær sam- tengdar um tölvunet. Álls starfa um 20 manns hjá fyrirtækinu. St- arfsemin á Akureyri verður í Gler- árgötu 30. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsin- gar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á íslandi sem er i upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúm- lega 54.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunní 1 í Reykjavík þar sem eru yfir 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Kirkjustarf AKUREYRARKIRKJA: Sunnu- dagaskóli í Kjaraalundi kl. 11 á morgun, sunnudaginn 12. desember. Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju kl. 17, ath. tímann. Morgunsöngur í kirkjunni kl. 9 á þriðjudag. GLERÁRKIRKJA: Barnasam- vera og guðsþjónusta kl. 11 á morg- un, sameiginlegt upphaf. Kór Menntaskólans á Akureyri syngur. Foreldrar hvattir til að mæta með bömunum. Aðventukvöld verður kl. 20.30 á sunnudagskvöld, Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður flytur hugleiðingu. Að venju verður mikill söngur sem kórar kirkjunnar sjá um sem og einnig ljósaathöfn. Kyrrðar- og tilbeiðslustund í kirkjunni kl. 18.10 á þriðjudag og hádegissam- vera frá kl. 12 til 13 á miðvikudag. GRENIVÍKURKIRKJA: Að- ventukvöld verður í kirkjunni kl. 20.30 á sunnudagskvöld. Kór kirkj- unnar syngur, kveikt verður á að- ventuljósum og börn úr kirkjuskól- anum syngja nokkur lög, nemendur Tónlistarskóla Eyjafjarðar leika nokkur lög, lesin verður jólasaga og flutt jólakvæði. Ræðumaður kvölds- ins er Halldór Blöndal forseti Al- þingis. Unglingar úr Grenivíkur- skóla sýna helgileik og börn fá í lok- in ljós og syngja jólasálminn Heims um ból. HRÍEYJARPRESTAKALL: Helgistund í Kirkjugarði Hríseyjar í dag, laugardaginn 1. desember kl. 18, kveikt verður á leiðalýsingu. Jólatónleikar verða í Stærri-Ár- skógskirkju kl. 20.30 á sunnudags- kvöld. Heimamenn syngja létt jóla- lög ásamt hljómsveit. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Bænastund kl. 20 í kvöld, laugar- dag. Sunnudagaskóli fjölskyldunnar kl. 11.30 á morgun, G. Theódór Birgisson heldur áfram með biblíu- Jólaundir- búningur í Gamla-bæn- um í Laufási ÁRLEG aðventuhátíð verður í Gamla-bænum í Laufási á sunnu- dag, 12. desember, og er þetta í fjórða skiptið sem slík hátíð er haldin á aðventu í Laufási. Þessi hátíðarhöld miða að því að draga upp sem sannasta mynd af jólaundirbúningi eins og hann var fyrir a.m.k. 100 árum. Dagskráin byrjar kl. 13.30 með helgistund í kirkjunni en síðan verður gengið í Gamla-bæinn þar sem setið er í hverri vistarvera við jólaundirbún- ing. I baðstofu verður kertasteypa, tóvinna og laufabrauð skorið. I eld- húsi verður laufabrauð steikt og á hlóðum sýður hangikjötið og gefst gestum færi á að smakka á góð- gætinu. Ymsar gerðir af jólatrjám frá fyrri tíma verða til sýnis og til þess að enginn verði svangur eða kaldur verður hægt að kaupa sér piparkökur og heitt kakó. Gömlu góðu íslensku jólasvein- arnir, sem eru ekki of kátir með hlutskipti sitt þessa dagana þar sem hinir rauðklæddu sveinar hafa nánast komið í þeirra stað, hafa boðað komu sína og verða þeir í Laufási kl. 14.45. Aðgangseyrir að hátíðinni er 250 krónur fyrir 13 ára og eldri. --------------- Lj ósavatnsprestakall Aðventu- kvöld SAMEIGINLEGT aðventukvöld allra sókna í Ljósavatnsprestakalli verður á þriðjudagskvöld, 14. des- ember í Stóratjarnarskóla og hefst það kl. 21. Söngfélagið Sálubót syngur und- ir stjórn Jaan Alavere, börn sýna aðventuleikþátt, lesa jólasögu og leika á hljóðfæri og sóknarprestur- inn flytur hugleiðingu. Boðið verð- ur upp á kaffiveitingar í veitingasal skólans. ----♦-♦-♦-- Jólafundur Aglow OPINN jólafundur hjá Aglow verður haldinn á mánudagskvöld, 13. desember kl. 20 í félagsmiðstöð aldraðra í Víðilundi á Akureyri. G. Theodór Birgisson, forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri, flytur hugvekju. Söngur, lofgjörð og fyrirbænaþjónusta og þá verður kaffihlaðborð. kennslu um bænina. Vakningasam- koma sama dag kl. 16.30. Valdimar Júlíusson predikar. Fyrirbænaþjón- usta og barnapössun. Gospelkvöld unga fólksins næsta föstudagskvöld. Bænastund alla morgna kl. 6.30. LAUGALANDSPRESTAKALL: Aðventukvöld í Saurbæjarkirkju kl. 21. á sunnudagskvöld. ræðumaður Sigurður Steinþórsson fjármála- stjóri. Nemendur Tónlistarskóla Eyjafjarðar sjá um tónlistarflutn- ing. Sunnudagaskóli verður kl. 11 á morgun í Munkaþverárkirkju í um- sjá Skúla Torfasonar. SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í Lundarskóla kl. 13.30, almenn samkoma kl. 17 á Sjónarhæð. Barnafundur kl. 17.30 á mánudag, allir velkomnir, sérstaklega Ástirn- ingar. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í dag, laugardag kl. 18 og á morgun, sunnudag kl. 11 í kirkjunni við Eyr- arlandsveg 26.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.