Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 26
26 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Fæst í öllum betri
leikfanga-
verslunum
FRÁB&{
**»/> ^oF«a*«ög° r;;:r,B
20 í«'^'íÆ ..v"'*»r ■s.ííí.o
\WU«r*'y
TÖFRABRÖGÐ -
...
..--
mssh^ssJ
Stapafell Keflavik laugard. 11. des. kl. 14:00 -17:00
Hagkaup Skeifunni sunnud. 12. des. kl. 15:00-16:00
Hagkaup Kringiunni miðvikud. 15. des. kl. 18:00-19:00
Leikbær Hafnarfirði fimmtud. 16. des. kl. 16:30-17:30
Leikbær Mjódd föstud. 17. des. kl. 16:30-17:30
Hagkaup Smáranum föstud. 17. des. kl. 18:00-19:00
Töfraðu
fram það
besta
með Pétri
Pókus
Dreifing:
2000
SJÓMANNA
ALMANAKIÐ
í 75 ÁR
Fiskifélag íslands kynnir nú
endurbætta útgáfu af Sjómanna-
almanakinu og íslenskri skipa- og
hafnaskrá fyrir áriö 2000.
Tvö bindi - full af fróðleik í máli og myndum:
. Kynning á bakhjörlum Fiskifélags íslands
. Endurbættur kafli um veiðar við ísland
. Öll lög og reglugerðir um sjávarútveginn
. Kort af öllum höfnum landsins
. 300 nýjar skipamyndir hafa bæst við!
• Upplýsingar um úthlutaðan aflakvóta
. Auglýsingar fleiri en nokkru sinni fyrr!
Málið er einfalt: Sá sem þarf á upplýsingum
að halda um íslenskan sjávarútveg finnur
þær í tvískiptu riti Fiskifélags íslands:
Sjómannaalmanakinu 2000 og íslenskri
skipa- og hafnaskrá.
FISKIFÉLAG ISt.ANÐS
Fiskifélagsútgáfan ehf Pöntunar- og áskriftarsími: 551 0500
ÚRVERINU
Sáttur við sekt
en ekki sakaskrá
Gleymdi að endurnýja skipstjórnar-
og“ vélstj órnarréttindin á trilluna
GUÐLAUGUR Gunnarsson, trillu-
karl í Grundarfirði, gleymdi að end-
urnýja skipstjómar- og vélstjórnar-
réttindi sín í byrjun árs og fékk að
gjalda fyrir það. „Brjóti ég af mér er
eðlilegt að ég gjaldi fyrir það og ég
sætti mig við að fá sekt fyrir þessa
gleymsku en mér finnst í meira lagi
óeðlilegt og harkalegt að brotið
skuli skráð í sakavottorð,“ segir
hann.
Birt ákæra
Umrædd skírteini á að endurnýja
á fimm ára fresti en Guðlaugur er
með vélstjórapróf frá 1980 og skip-
stjórnarréttindi frá 1990. Trillan er
4,33 tonn og 7,5 metrar að lengd en
hann var að veiðum að morgni 19.
ágúst sl. þegar tveir varðskipsmenn
komu um borð. „Þeir fundu út að at-
vinnuskírteini mín voru útrunnin, en
klöppuðu á öxlina á mér og sögðu:
„Þú lagar þetta þegar þú kemur í
land.“ Eftir að ég hafði fengið lækn-
isvottorð og ljósmyndir endurnýjaði
ég skírteinin en 5. nóvember birtist
hér við dyrnar lögregluþjónn í full-
um skrúða og birti mér ákæru. Mér
var gert að mæta fyrir Héraðsdóm
Vesturlands í Stykkishólmi 8. des-
ember og þar gat ég valið um dóm-
sátt upp á 20 þúsund króna sekt og
að brotið yrði skráð í sakavottorð
eða til vara sex daga vist í grjótinu.
Dómurinn var samkvæmt bókstafn-
um og ég valdi fyrri kostinn. Hins
vegar finnst mér það skjóta skökku
við að á sama tíma og embættis-
menn komast ekki yfir að ná í menn
sem fremja alvarlega glæpi skuli
þessi karlagrey, lögfræðingar, hér-
aðsdómarar og aðrir, vera í svona
smámálum, sem ætti að vera hægt
að ljúka með lögreglusekt eins og
farið er að við umferðarbrot, ölvun-
armál og jafnvel smá fíkniefnamál."
Guðlaugur segist hafa spurt dóm-
arann hvort hann liti ekki svo á að
réttindin væru í gildi en hann hefði
svarað að þetta væri eins og með
ökuskírteini, ef það væri ekki í gildi
væru réttindin ekki fyrir hendi.
„Mér finnst löggjöfin ekki rétt,“
segir Guðlaugur, „og ekki sann-
gjarnt að menn þurfi að vinna eftir
svona lögum. Atvinnubílstjóri sem
gleymir að endumýja ökuskírteini
sitt fær þrjú þúsund króna sekt en
trillukarl fimm sinnum hæiri sekt.
Eg átti því að fá 30 þúsund króna
sekt þar sem skírteinin voru tvö en
slapp með 20 þúsund krónur. Eg var
14 tíma á sjó eftir að gæslumennirn-
ir komu klukkan 10 að morgni og
fyrst brot mitt var svona alvarlegt
að það varð að fara á sakaskrá sagði
ég við dómarann að hann ætti að
átelja gæsluna fyrir slæleg vinnu-
brögð, að hafa ekki fært mig tafar-
laust í land. Eins hefðu þeir komið á
báti með tvo 50 hestafla mótora án
þess að vera með vélstjórnarrétt-
indi. Dómarinn, sem var hinn al-
mennilegasti, sagðist ekki geta
ákært gæsluna eftir sama bókstaf.“
Virðingin
brostin
Hann segir furðulegt að svona
harkalega skuli tekið á atvinnurétt-
indunum og virðing sín gagnvart
lögunum sé ekki söm.
„Ég hef reynt að vinna með lög-
unum og vann meðal annars sem
löggæslumaður í nokkur ár en að
þetta brot skuli fara á sakaskrá er
vægast sagt hai-kalegt. Það hefur
verið brotið á mér siðferðilega, mér
finnst ég ekki sitja við sama borð og
aðrir og virðing mín fyrir lögunum
er minni en áður.“
Morgunblaðið/Garðar Páll
Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar hf., og Omar Einarsson,
skipsljóri, um borð í Hrafni GK 111.
Hrafn GK með
sína fyrstu löndun
í Grindavík
ÞAÐ var boðið upp á kökur og
með því þegar Hrafn GK 111
landaði í fyrsta skipti í nýrri
heimahöfn í Grindavík. Hrafn er
þriðji frystitogarinn hjá Þor-
birni h/f í Grindavík og bar áður
nafnið Sléttanes ÍS 808. Hrafn-
inn er smíðaður á Akureyri 1983
en var breytt í frystitogara 1993
í Póllandi. Að sögn Eiríks Tó-
massonar, framkvæmdastjóra,
er Þorbjörn h/f aðallega í saltf-
iskinum og þá eru frystitogarar
alltaf að verða stærri og stærri
þáttur í rekstrinum. Skipstjór-
inn um borð er Ómar Einarsson
sem er ekki ókunnugur þessari
höfn, var m.a. með Skúminn í
ein 12 ár. „Við vorum að koma
úr 3 vikna túr, uppistaðan
þorskur, karfi, ýsa og gulllax.
Verðmætið er um 50 milljónir.
Annars líst mér vel á þetta, ég
er búinn að vera með báta í yfir
30 ár,“ sagði Ómar. Þegar skip-
stjórinn var inntur eftir því
hvaðan áhöfnin væri sagði Óm-
ar: „Þeir eru að nokkru leyti að
vestan, sennilega tæplega helm-
ingur.“