Morgunblaðið - 11.12.1999, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 31
ERLENT
Ashcroft áfram
gjaldkeri Ihalds-
flokksins
tengsl við íhaldsflokkinn. Vitað er að
margir af æðstu mönnum flokksins
óttuðust mjög að langvarandi og
harðvítug málaferli Ashcrofts og
Tirnes gætu valdið flokknum tjóni
sem yrði enn óheppilegra en ella
vegna þeirra vandamála sem komið
hafa upp í tengslum við Jeffrey
Archer. Hann er auðkýfingur eins og
Ashcroft en varð nýlega að hætta við
framboð til embættis borgarstjóra í
London vegna ásakana um að hann
hefði fengið vin sinn til að bera ljúg-
vitni fyrir um áratug. Eitt af því sem
notað hefur verið gegn Ashcroft er að
hann hefur verið skráður í Mið-Am-
eríkuríkinu Belize þar sem hann er
með atvinnurekstur. Hann hyggst nú
flytja búferlum til Bretlands og kom-
ast þannig hjá því að ný lög, sem nú
eru í undirbúningi, geri honum ók-
leift að styðja flokk sinn með fé.
Peter Stothard hefur beitt sér
mjög sjálfur í baráttu blaðsins við-
Ashcroft en sagt var í gær að hans af-
skipti af sáttargerðinni hefðu ein-
göngu verið að samþykkja texta
yfirlýsingar um hana sem birt var á
forsíðu The Times í gær. Hann sagð-
ist þó vera fyllilega sáttur við niður-
stöðuna og vísaði eindregið á bug frá-
sögnum The Guardian og Stephens
Glovers í tímaritinu The Spectator
um að starf hans væri í hættu. Full-
yrt er að Murdoch hafi sjálfur annast
samninga við Ashcroft ásamt rit-
stjóra viðskiptablaðsins Sunday
Business. Stothard hefur ávallt sagt
að blað sitt hafi aldrei fullyrt að
Ashcroft hafi verið viðriðinn fíkni-
efnasölu, aðeins að nafn hans væri á
skrá fíkniefnayfirvalda í Bandaríkj-
unum.
ÞÝZKI Jafnaðarmanna-
flokkurinn (SPD), undir for-
ystu Gerhards Schröders
kanzlara, tók kipp upp á við í
nýrri skoðanakönnun, sem
niðurstöður voru birtar úr í
gær. Lýstu 36% aðspurðra
stuðningi við SPD, en 40% við
stjórnarandstöðuflokk Kristi-
legra demókrata, CDU. SPD
hefur þar með bætt sig um
þrjú prósentustig frá því í síð-
ustu könnun en CDU tapað
4%. SPD hélt vel heppnað
flokksþing í vikunni og CDU á
í vandræðum vegna fjármála-
hneykslis.
Nýtt ríkis-
olíufyrirtæki
NORSKA ríkisstjórnin hef-
ur að öllum líkindum í hyggju
að koma á fót nýju ríkisreknu
olíufyrirtæki. Að sögn Aíten-
posten ganga áformin út á að
hið nýja fyrirtæki yfirtaki að
minnsta kosti helminginn af
eignarhlut norska ríkisins í ol-
íu- og gasvinnslu á landgrunni
Noregs, sem Statoil fer með
eins og er.
Holbrooke
leitar sátta
í Kongó
RICHARD Holbrooke,
sendiherra Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, var í
Úganda í gær í því skyni að
reyna að hraða friðarumleit-
unum í borgarastríðinu í Lýð-
veldinu Kongó. Museveni, for-
seti Úganda, sagðist í
viðræðum sínum við Holbroo-
ke ætla að virða vopnahlé sem
samið var um í ágúst sl. milli
skæruliða, sem Úgandamenn
styðja, og stjórnarhermanna
Laurents Kabilas Kongóleið-
toga.
Má neita
að blása í
blöðru
HÆSTIRÉTTUR Spánar
hefur úrskurðað, að akstur
undir áhrifum áfengis sé ekki
glæpur nema að drykkjan hafi
sýnileg áhrif á andlegt og
líkamlegt ástand ökumann-
sins. Því teljist það heldur
ekki glæpur að neita að blása
í mælitæki lögreglu, ef ekki
sézt á ökumanni að hann sé
ölvaður. Þessi röksemda-
færsla kom fram í dómi sem
birtur var í gær í máli
spænsks þingmanns, sem fyr-
ir þremur árum var stöðvaður
í bíl sínum og beðinn að blása,
en neitaði. Honum var leyft að
halda áfram för en kærður.
Páfí ekki
til Iraks
JÓHANNES Páll II páfi
hefur fallið frá áformum um
heimsókn til Iraks á næsta
ári, eftir að stjórnvöld í Bag-
dad tjáðu fulltrúum Páfagarðs
að þær aðstæður sem ríktu í
landinu vegna viðskiptabanns
Sameinuðu þjóðanna leyfðu
ekki viðeigandi skipulag til að
af heimsókninni gæti orðið.
Joaquin Navarro Valls, tals-
maður Páfagarðs, greindi frá
þessu í gær.
SPD
vinsælli
London. The Daily Telegraph.
DAGBLAÐIÐ The Tirnes hefur
dregið til baka ummæli um fíkniefna-
sölu sem á sínum tíma ollu því að
Miehael Ashcroft, gjaldkeri Ihalds-
flokksins, höfðaði mál gegn blaðinu
fyrir meiðyrði. Sáttir hafa nú tekist
og verður málið látið niður falla. AJlt
bendir til þess að Ashcroft haldi
gjaldkerastöðunni en bollaleggingar
eru í breskum blöðum um að eigandi
The Times, Rupert Murdoch, hyggist
víkja ritstjóranum, Peter Stothard.
I ljós hefur komið að Ashcroft hef-
m' gefið milljónir punda í sjóði
Ihaldsflokksins og margir hafa sett
spumingamerki við réttmæti þess að
hann gegni einnig svo mikilvægri
stöðu i fjármálum flokksins. Flokks-
leiðtoginn William Hague lýsti yfir
trausti sínu á honum í gær.
The Times hefur lengi haft náin
Ótal símar á
• •
Utborgu.T) við 'þitt hæfi
...og aðerns 1000 kr.s
afborgu.n á má-nuði!
tricsson Tio
veró 19.900 kr.
Utborgun
7.900 kr.
Fyrir létta útborgun auk 1000 kr.
greiðslu á mánuði í 12 mánuði
getur þú eignast nýjan og glæsilegan
GSM sima frá Símanum GSM.
Upphæðin færist á símreikninginn þinn.
Hjá okkur nærðu því besta
úr símanum þínum:
Dreifikerfið
Gott GSM samband
hjá yfir 95% þjóðarinnar.
Reikisamningar
við yfir 120 farsímafyrirtæki
i rúmlega 60 löndum.
Sekúndumæling
Þú borgar aðeins fyrir
timann sem þú talar.
Lægra verð
á simtölum úr almenna kerfinu
í Símann GSM á dagtaxta.
VIT - gerir meira fyrir þig.
Komdu í verslanir Símans
og skoðaðu úrvalið
SÍMINhKSSM