Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 35
M(5M0M8ö#jf£>H/
LISTIR
Álafosskórinn kynnir nýja plötu á tónleikum í Varmárskóla.
Utgáfutón-
leikar Ala-
fosskórsins
ÁLAFOSSKÓRINN heldur tónleika
í hátíðarsal Varmárskóla í Mosfells-
bæ, á morgun, sunnudag, kl. 20.30.
Kórinn mun syngja lög af nýútkom-
inni geislaplötu kórsins.
Álafosskórinn var stofnaður 5.
október árið 1980 af starfsmönnum
ullarverksmiðjunnar Álafoss hf. og
voru félagar þá um 25. í dag eru fé-
lagar 43 talsins og koma úr ýmsum
áttum.
Stjórnandi kórsins er Helgi R.
Einarsson og undirleikari er Hrönn
Helgadóttir.
Jólavaka í
Hlégarði
KARLAKÓRINN Stefnir heldur
Jólavöku í samvinnu við Skólakór
Vaimárskóla í Hlégarði á
sunnudagskvöld 12. desember,
klukkan 20:30. Á efnisskránni er
upplestur, hugvekja og söngur þar
sem kórarnir flytja, ýmist hvor í sínu
lagi eða sameiginlega, nokkur lög.
Hlaðborð Stefnanna verður að
vanda. Stjórnandi Karlakórsins
Stefnis er Lárus Sveinsson og undir-
leikari Sigurður Marteinsson,
stjórnandi Skólakórs Varmárskóla
er Guðmundur Ómar Óskarsson. .
Verði aðgöngmiða er kr. 1.200 fyrir
fullorðna og frítt fyrir börn innan
tólf ára aldurs
Vaxtarverkir!
BÆKUR
Inglingabók
VANDAMÁL BERTS
Höfundar: Sören Olsson og Anders
Jacobsson. Myndskreyting: Sonja
Hárdin. Þýðing: Jón Dam'elsson.
Umbrot og frágangur: Skjaldborg
ehf. Prentuð í Singapore. Út-
gefandi: Bókaútgáfan Skjaldborg
1999.165 síður.
HAFI eg talið rétt, þá er þetta
níunda dagbók Berts sem höfundar
stela frá honum og gefa út. Kauði er
orðinn 15 ára, verður jú 16, eftir
viku, í bókarlok, enn kynhungraður
strákhvolpur, sem í vöku og draumi
syndir um í svitakófi. Hræddur við
þennan ólgandi líkama trúir hann
dagbókinn fyrir hugrenningum sín-
um, og til þess að „bókin“ haldi ekki
að hann sé pelabarn, þá kryddar
hann stfl sinn með orðum er hann
hefir heyrt þá sem þykjast miklir
karlar slá um sig með.
Til þess að skýra fyrir guðhrædd-
um ömmum, hvað eg á við, þá er
strákskömmin kjaftfor klámhundur.
En hann er bráðskemmtilegur, og
bæði heimspekingurinn Sigmund
Freud, blessuð sé minning hans, og
táningar, flestir, munu telja bókina
um Bert sannari raunlýsingu en flest
það sem um þann aldurshóp er skrif-
að. Unglingar munu því fagna bók-
inni, kaupa hana og lesa. Hvað varð-
ar þá um það, þó við hin úreltu hróin
teljum bókina einhæfa, innihalds-
rýra? Ekki neitt! Því við verðum að
samþykkja með þeim, að höfundar
eru miklir sögumenn, kunna þá list
að lýsa tilburðum okkar við að sýn-
ast menn betur en flestir aðrir. Það
er líka satt, eg verð að viðurkenna,
að eg hefi ekki hugmynd um, hverja
þeirra er eg hitti á braut eg á að
draga í vizkudilkinn og hverja í
þynnkuskotið.
Bert lýsir dagsins önn eða dagsins
órum sínum í dagbókarstfl. Endar
oftast frásögnina í „Ijóðmáli", eða
svo telur hann, og hafa margir álitið
sig skáld af leirbornara efni.
Þýðing Jóns er á kjarnamáli,
logandi háðsku, auðskildu hverjum
unglingi.
Myndirnar hennar Sonju eru
meistaralegar, - álkulegri pjakka en
Bert og félaga getur vart, og ekki
skulum við gleyma stelpugopunum.
Villur fáar (síðu 51 og 102 man eg
eftir) meinlausar, augljósar.
Þessi bók mun lesin og rædd af
unglingum, - enda að vonum.
Sig. Haukur
Ein englamynda Ellu Möggu á Horninu.
Englasýning á Horninu
ELLA Magg, Elín Magnúsdóttir,
opnar sýningu á olfu- og vatnslita-
myndum á Horninu, Hafnarstræti
15, í dag, laugardag, kl. 15.
Þema sýningarinnar er englar
og eru þetta allt nýjar myndir.
Ella Magg er með diploma frá
Gerrit Rietveld akadcmíunni í
Amsterdam.
Sýningin er opin daglega frá kl.
15-18 og lýkur 23. desember.
LAUGÁRÖÁGÚR' ÍÍ. ÖESIÍÁIBER’ Í999' 1 35:‘
Ekta síðir pelsar á 135.000
Bómullar- og satínrúmföt
Síðir leðurfrakkar #
Handunnir dúkar SIgUTStjaVfia
ogrúmteppi ° Fákafeni (Biáu húsin),
„„ sími 588 4545.
Opið kl. 10-18, lau. kl. 10-15, sun. 13-15.
r
Austur-
lenskur
ævintýra-
heimur í
Kolaportinu
Óróar
Lampar
Púðaver
Tréstyttur
Veggteppi
Gerviblóm
Blævængir
Skartgripir
Tréhúsgögn
Silkifatnaður
Páfuglaf jaðrir
Prinsessukjólar
Gler- og postulín
Geisladiskastandar
Innrömmuð skordýr
Útskorin buffalóhorn
Opið alla daga
°*f*lW 09
likos’
11.-12. Des. kl. 11:00-17:00
13.-17. Des. kl. 12:00-18:00
18.-19. Des. kl. 11:00-21:00
20.-23. Des. kl. 12:00-21:00
Markaðstorg
KOLAPORTIÐ