Morgunblaðið - 11.12.1999, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 11.12.1999, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999 53. AGUST JÓNSSON + Ágúst Jónsson, fyn-v. bóndi og hreppstjóri á Siglu- vík í Vestur-Landeyj- um, fæddist 11. des- ember 1910. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Lundi á Hellu 5. desember síðastliðinn. Foreldr- ar hans voru Jón Gíslason, f. 5.9. 1871, d. 27.4. 1956, oddviti, hreppsljóri og sýslu- nefndarmaður í Sleif og síðar í Ey í Vest- __________ ur-Landeyjum, og Þórunn Jónsdóttir, f. 27.7.1876, d. 2.7. 1964, ljósmóðir. Systkini Ágústs: Halldór, f. 1896, látinn; Siguijón, f. 1897, látinn; Guðrún, f. 1899, látin; Guðbjörg, f. 1901, látin; Ingibjörg, f. 1906; Ólafur, f. 1909; Gísli, f. 1912, látinn; Jónína, f. 1913; Ragnar, f. 1914, látinn; Karl, f. 1915, látinn; Jóhann, f. 1917, látinn. Ágúst kvæntist 17. júní 1935 Sigríði Lóu Þorvaldsdóttur, f. 8.12. 1913, d. 29.3. 1985, hús- freyju. Hún var dóttir Þorvalds Jónssonar og Ólafar Jónsdóttur. Börn Ágústs og Sigríðar Lóu eru: 1) Hildur, f. 13.10.1935, húsfreyja á Klauf í Vestur-Landeyjum, gift Rúnari Guðjónssyni og eiga þau níu börn. 2) Jón, f. 18.5. 1942, bú- settur á Sigluvík í Vestur-Land- Höfðingi sannur hné þar einn, höfum þess margan vott, einarður, tiyggur, hugum hreinn, hjartað var einkar gott. eyjum, kvæntur Hrefnu Magnúsdótt- ur húsfreyju og eiga þau fimm börn. 3) Eiríkur, f. 26.5. 1943, bflstjóri á Hvolsvelli, kvæntur Guðríði Andrésdótt- ur húsmóður og eiga þau þrjú börn. Barnabarnabörn eru 17. Ágúst stundaði íþróttanám hjá Jóni Þorsteinssyni í Reykjavík 1925 og útskrifaðist sem fþróttakennari og stundaði nám við Héraðsskólann á Laugarvatni 1928-30, jafnframt því sem hann kenndi þar íþróttir. Að námi loknu stundaði Ágúst bústörf en stundaði jafnframt sjómennsku í Vestmannaeyjum á veturna. Þá var hann nokkrar vertíðir á togaranum Venusi frá Hafnarfirði frá 1932. Ágúst hóf búskap í SigluvíkíVestur-Landeyjum 1935 og stóð þar fyrir búi til 1972 er hann hætti búskap. Hann var hreppstjóri Vestur-Landeyja- hrepps 1958-84, auk þess sem hann gegndi ýmsum öðrum trún- aðarstörfum fyrir sveit sína. Ágúst verður jarðsunginn frá Akureyjarkirkju í Vestur-Land- eyjum í dag og hefst athöfnin klukkan 14. (G.B) Ágúst Jónsson bóndi í Sigluvík var einn af þeim fyrstu, sem ég hitti í Landeyjum, er ég varð sóknarprest- ur þar hinn 1. október 1975. Þá og í allmörg ár til viðbótar, var Ágúst einnig hreppstjóri í Vestur-Landeyj- um. Hann var, eins og segir hér í ljóðinu að framan, sannur höfðingi, einarður og tryggur. En ekki hafði ég verið lengi í Landeyjum, er ég tók vel eftir því að hann var einnig mæt- ur hérðashöfðingi. Þá var Lóa Þor- valdsdóttir eiginkona hans enn á lífi og heimili þeirra rómað fyrir gestr- isni og myndarskap. Þetta sást víðar en í Sigluvík enda höfðu börn Lóu og Ágústar vissulega erft myndarskap og dugnað foreldranna. Ágúst var mikill og góður bóndi. Atorka og verkþekking einkenndu búskapinn og í meira en tvo áratugi fékk ég að fylgjast vel með störfum þessarar íjölskyldu. Störf bóndans létu þessu fólki svo vel, að hrein un- un var á að horfa. Mannlýsing í ljóða- safni G.G. á vel við Ágúst Jónsson: „Þú varst sómi þinnar stéttai', / þú með heiðri skjöldinn barst“. Ágúst kunni að fara vel með dýrin og hann kunni líka að elska og umgangast landið. Margar góðar og ógleyman- legar stundir átti ég á gamla góða Sigluvíkurheimilinu. Þær eru nú blessaðar og þær vil ég geyma í minningunni. Ágúst var mikill drengskaparmaður, traustur og hjálpsamur. Þetta kom ævinlega vel í ljós, þegar ég kom á hans heimili eða hann kom á mitt heimili. Hann var einkar viðræðugóður og víða vel heima. Stundum léðum við hvor öðr- um bækur og ræddum svo um þær á eftir. Eg heyrði hann aldrei lasta aðra, heldur miklu fremur benti hann á það jákvæða í fari annarra. Þegar ég þurfti að semja líkræðu um einhvern, sem ég þekkti lítið eða ekkert, var gott að ræða við Ágúst og heyra traustar upplýsingar hans og jákvæðar persónulýsingar á við- komandi. Ágúst var hreinn og beinn og ákveðinn samvinnumaður af gamla skólanum. Hann fylgdi áhuga- málum sínum vel eftir, hringlaði aldrei til né frá og var hvergi smeyk- ur. Þeim mun aðdáunai-verðara fannst mér það, hve vel honum lét að tala vel og heiðarlega um það fólk, sem hafði allt aðrar skoðanh' en hann. Ágúst setti sannarlega mikinn svip á umhverfi sitt og gat vissulega látið gaminn geisa í meira en einum skilningi. Sannarlega var hann mikill og traustur vinur vina sinna. Og vænst þykir mér um að hafa átt vin- áttu þessa manns, sem aldrei brást. Ég kynntist honum bæði í sorg hans og gleði, en hvernig sem á stóð bar hann ætíð með sér hinn drenglund- aða höfðingsskap. Hann var sá snyrtilegi bóndi, sem naut þess að búa fallega og myndarlega og fór létt með það. Orðum hans mátti svo sannarlega alltaf treysta. Það er þessi góða og órjúfandi vinátta, sem ég og fjölskylda mín minnumst nú og þökkum. Við vottum ástvinum hans öllum einlæga samúð. Það auðgaði líf okk- ai' að kynnast Ágústi í Sigluvík, af því að vinátta hans var heil og það sem hann gerði, gerði hann vel og myndarlega. Drottinn blessi hann og fjölskyldu hans og veiti fjölskyldunni gleði á jólum og velfarnað á nýju ári. Hið eilífa Ijós lýsi honum. Og vinátt- una traustu og góðu þakka ég með orðum Davíðs Stefánssonar: Hverju sem ár og ókomnir dagar aðmérvflq'a, erekkertbetra eneigavini sem aldrei svíkja. Séra Páll Pálsson. Komið er að kveðjustund. Tengda- faðh- minn, Ágúst í Sigluvík, eða afi eins og ég kallaði hann, er látinn. Hugurinn leitar 30 ár 'aftur í tímann. Ég kom á heimili tengdaforeldra minna og á móti mér tekur afi, við horfumst í augu andartak, síðan tek- ur hann þéttingsfast í hönd mína og segir, vertu velkomin. Ætíð síðan hef ég verið velkomin í hans huga. Óðum eru að hverfa þeir einstakl- ingar sem muna tímana tvenna. Ágúst minntist oft á liðna tíma þegar hann ólst upp í Álfhólum. Það var þegar allt heimilisfólk lagðist á eitt og vann hörðum höndum. Hann lærði fljótt að taka til hendinni, enda vantaði ekki viljann. Þegar við keyrðum saman á bílnum hans afa um túnin og mýrina eða hvar sem var um jörðina Sigluvík þá fylgdi því leiftrandi frásögn um hvern blett. Saga frá liðinni tíð þegar hann var að rækta eða flytja hey á hestum. Lífs- baráttan var hörð á þeim tíma, ekki síst hér í votlendinu niðri við sjó. Afi var bóndi af lífi og sál. Það átti hug hans allan að geta tekið til hendinni og fylgst með búskapnum. Á vorin þegai' fyi-stu lömbin fæddust var gleðin alltaf jafn mikil. Þá kom þetta einstaka blik í augun sem aldrei gleymist, ánægjan leyndi sér ekki. Hann átti lengi við mikla fötlun að stríða, kölkun í mjöðmum gerði það að verkum að hann gat ekki notið sín sem skyldi, en samt var ótrúlegt hvað hann gat gert. Bíllinn átti þar stóran þátt í. Á honum gat hann rak- að saman og snúið heyi og farið til kinda eða gáð að skepnum ef þurfti. Þetta var það sem gaf lífinu gildi. Barnabörnin í Sigluvík eiga afa sínum mikið að þakka, umhyggjan var ótakmörkuð. Hann fylgdist með öllum þeirra athöfnum og tók ríkan þátt í lífí þeirra. Síðasta árið var honum erfitt þar sem hann þurfti að dvelja lengi á sjúkrahúsi og síðan á dvalarheimili. Veikindin voru þess eðlis að hann gat ekki verið heima, það voru honum mikil vonbrigði. Hann gat þó aðeins komið í heimsókn. Það voru honum dýi'mætar stundir, því hann þráði það heitast að fá að vera heima. Á dvalarheimilinu Lundi fékk hann bestu umönnun sem völ er á. Þar var einnig Jónína systir hans sem lét sér mjög annt um hann, stytti honum stundir og hjálpaði eins og hún gat. Þetta er allt þakkað af alhug. Elsku afi, nú ert þú kominn til Lóu þinnar sem þú saknaðir svo mjög. Þar veit ég að þér líður vel. Ég bið Guð að geyma ykkur og þakka allar þær dýrmætu stundir sem ég átti með ykkur. Hrefna. Jólaljós í Gufuneskirkjugarði Upplýsingar, varðandi lýsingu á leiðum, eru veittar í garðinum í dag, laugardag. Einnig er hægt að fá upplýsingar daglega í síma 535 1055. Starfsmenn Rafþjónustunnar Ljóss. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og systir, INGIBJÖRG INGIMUNDARDÓTTIR, lést á Hrafnistu Reykjavík aðfaranótt föstu- dagsins 10. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Ragnar Halldórsson, Jóna Guðmunda Helgadóttir, Pálmi Hlöðversson, Aldís E. Gunnlaugsdóttir, Ingólfur Helgason, Halldóra Helgadóttir, Elías Ingjaldur Helgason, Gestur Helgason, Valur Helgason, Elín Kristín Helgadóttir, Stefnir Helgason, Sólveig E. Jónsdóttir, Friðrik E. Hafberg, Freydís S. Magnúsdóttir, Kristjana Ólöf Fannberg, Halldóra Kristín Emilsdóttir, Sveinn S. Gústafsson, Unnur Ólafsdóttir, Gróa Ingimundardóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚS GRÉTAR GUTTORMSSON fyrrv. símritari, Nökkvavogi 24, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju- daginn 14. desember kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega bent á Krabbameinsfélagið eða Landspítalann. Sigurborg S. Gísladóttir, Elín Magnúsdóttir, Kristján M. Gunnarsson, Guttormur Rúnar Magnússon, Ingiríður Lovisa Magnúsdóttir, Margrét Lovísa Magnúsdóttir, Borghildur og Sigurður Grétar Kristjánsbörn. + Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR SKAPTASON tannlæknir, lést á Landspitalanum fimmtudaginn 9. desember. Gunilla Skaptason, Kristján Kristjánsson, Hallgunnur Skaptason, Andrés B. Sigurðsson, Gunnar Skaptason, Gerður Hannesdóttir, Björn Skaptason, Hildur Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, JÓSEFÍNA MARGRÉT ANDREA ÞORLÁKSDÓTTIR (LÓA), lést á Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn 7. desember. Hörður Vestmann Árnason, Jóhanna Kristinsdóttir, Kristinn Harðarson, Sæunn Ingibjörg Brynjarsdóttir, Hallgrímur Harðarson, Lóa Hrönn Harðardóttir, Pétur Harðarson, Guðríður Pétursdóttir og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför JAKOBS H. RICHTER. Stefán J. Richter, Kristjana Richter, Vilhelm H. Lúðvíksson, Guðmundur Richter, Jóhanna Richter, Sigrún Richter, Ólafur Örn Haraldsson, Jakob H. Richter, Helga Jóhannesdóttir og önnur barnabörn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.