Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 74
J74 LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Handverks-
markaður á
Garðatorgi
HANDVERKSMARKAÐUR verð-
ur haldinn á Garðatorgi í dag, laug-
ardag, og verður þar til sýnis og sölu
r ýmiss konar íslenskt handverk.
Markaðurinn verður haldinn alla
laugardaga fram til jóla og er opinn
frá 10-18.
-------------
Tíu þúsund
skráð sig
VIÐTÖKUR við boði íslandsbanka
og Íslandssíma á fríum aðgangi að
Netinu hafa verið góðar, samkvæmt
því sem fram kemur í fréttatilkynn-
ingu. „Yfir tíu þúsund manns hafa
þegar skráð sig á isl.is á þeirri viku
sem liðin er frá því að skráning
hófst,“ segir þar orðrétt.
„Þeir sem þegar hafa skráð sig fá
sent bréf innan tíðar með nánari
upplýsingum og sérstöku lykilorði.
Skráning er án skilyrða og stendur
hún yfir áfram. Opnað verður fyrir
tengingar á vefnum 10. janúar næst-
komandi.“
Hollvinafélag
Tækniskólans
stofnað
HOLLVINAFELAG Tækniskóla
Islands var stofnað þann 3. júní sl.
Fyrirmyndin að stofnun Hollvinafé-
lags er fengin bæði héðan frá ís-
landi og einnig erlendis frá. Grunn-
hugmyndin með Hollvinafélagi
byggist á því að um gagnkvæma
hagsmuni skólans, nemenda og at-
vinnulífsins sé að ræða.
Meginmarkmiðið er að efla tengsl
við fyrri nemendur, fyrirtæki og
velunnara skólans.
I hollvinaráði eru: Óli Jón Hert-
ervig, Tæknifræðingafélagi ís-
lands, Edda Sóley Óskarsdóttir,
Meinatæknafélagi íslands, Gunn-
hildur L. Sigurðardóttir, Röntgen-
tæknafélagi Islands, Elísabet Gísla-
dóttir, Félagi rekstrar- og
iðnrekstrarfræðinga, Ragnar
Gunnarsson, fyrir hönd iðnfræð-
inga, Nína K. Hjaltadóttir, nemandi
í iðnrekstrarfræði í TI, Sverrir
Arngrímsson, deildarstjóri í TI,
Björg Birgisdóttir, námsráðgjafi í
TI, Halldóra G. Matthíasdóttir,
gæða- og kynningarstjóri hjá ís-
lenskum sjávarafurðum, Kristján
Karlsson hjá Menntafélagi bygg-
ingariðnaðarins og Þorkell Jónsson,
framkvæmdastjóri hjá Samey.
Á fyrsta hollvinaráðsfundi þann
20. september var framkvæmda-
stjórn kosin og í henni sitja Björg
Birgisdóttir, Halldóra G. Matthías-
dóttir og Ragnar Gunnarsson.
Hafnarfjarðarkirkja 85 ára
Gegnir mikilvægu hlut
verki í samfélaginu
Hafnarfjarðarkirkja er
ein elsta kirkja landsins
byggð úr steini og þótti
nýlunda þá. Hana teikn-
*
aði Rögnvaldur Olafs-
son. Sóknarprestur og
sóknarnefndarformaður
segja starf kirkjunnar
jafnan þurfa að svara
kröfum tímans.
SUNNUDAGINN 12. desember
verður haldið upp á 85 ára afmæli
Hafnarfjarðarkirkju á árlegri jóla-
vöku við kertaljós en hún var vígð
fjórða sunnudag í aðventu, 20. des-
ember, árið 1914. Kirkjuna teiknaði
Rögnvaldur Ólafsson og í fyrra var
nýtt safnaðarheimili við kirkjuna full-
byggt en það er reist eftir verðlauna-
teikningu hjónanna Sigríðar Magn-
úsdóttur og Hans Olav Andersen og
ber nafnið Strandberg.
„Hafnarfjarðarkirkja er ein elsta
w
Landsbanki Islands hf.
Hlutafjárútboð
Seljandi: Ríkissjóður íslands, kt. 540269-6459, Arnarhváli, 150 Reykjavík. Umsjón meö sölu fyrir hönd ríkissjóðs er í höndum framkvæmdanefndar um einkavæðingu i umbcði viöskiptaráðherra. l'rmkvmiémtml
Heildarnafnverö hlutafjár: Heildarnafnverö hlutafjár skiptist í almenna- og tilboðs- sölu. Hlutafé aö nafnverði 550 m.kr. veröur selt í almennri sölu með áskriftarfyrirkomulagi og 275 m.kr. að nafnverði verður selt meö tilboðsfyrirkomulagi. Samanlagt nafnverð hlutafjár til sölu er því 825 m.kr. mn elnkmmUn$H
Sölugengi i almennri söiu: 3,80
Sölugengi í tilboössölu: Lágmarksgengi í tilboössölu er 3,80
Sölutímabil: Áskriftartímabil hefst miðvikudaginn 15. desember og lýkur föstudaginn 17. desember 1999 kl.16:00. Frestur til að skila inn tilboðum I tilboðshluta rennur út föstudaginn 17. desember 1999 kl.16:00.
Greiðsluskilmálar: Greiðsluseölar veröa sendir út innan viku frá lokum áskriftartímabils og er síðasti greiösludagur þriðju- daginn 11. janúar 2000. Greiöslu má inna af hendi í einkabönkum, í gegnum þjónustusima og í útibúum banka og sparisjóða. Berist greiðsla ekki réttilega getur seljandi innheimt skuldina með þeim hætti sem lög heimila. Aö liönum 14 dögum frá gjalddaga er seljenda þó heimilt, í staö þess aö grípa til innheimtu- aðgeröa, að líta einhliöa svo á að kaupandi hafi fallið frá tilboöi sínu.
Þegar áskriftarblaði hefur verið skilað inn er tilboðið bindandi fyrir áskrifanda. Þegar Landsbankinn hefur farið yfir tilboöin og reiknað út þá fjárhæð sem í hlut áskrifenda kemur er sendur út greiösluseöill. Bindandi samningur um kaupin telst kominn á þegar greiöslu- seðill hefur veriö sendur út.
Umsjón með útboði: Landsbanki íslands hf. - Viöskiptastofa og Landsbréf hf.
Skráning: Allt hlutafé Landsbanka íslands hf. var skráð á VÞÍ 27.11. 1998.
Útboðslýsincj og önnur gögn vegna ofangreindra hlutabréfa liggja frammi hjá Viðskiptastofu Landsbanka Islands hf„ Laugavegi 77, 155 Reykjavík, í öllum útibúum bankans og hjá Landsbréfum hf. Útboöslýsinguna má einnig nálgast á heimasíöu Landsbanka íslands hf„ www.landsbanki.is og heimasíðu Landsbréfa hf„ www.landsbref.is.
i
1 .mdsÍLtiikitm
lanainwia'iaaiiaiiaa <■■■ '■> <■' <<• fírffi tjaf’kí
Morgunblaðið/Golli
Séra Gunnþór Ingason sóknar-
prestur (t.v.) og Sigurjón Pét-
ursson sóknarnefnarformaður.
steinsteypukirkja landsins, enda ný-
lunda að byggja úr steinsteypu á
þeim tíma. Akveðið var að reisa
kirkjuna hér í miðju athafnasvæði
bæjarins á sínum tíma og Ijóst er að
kirkjan er áfram miðlæg, hún er
þungamiðja í bæjarmynd og mannh'fi
hér í firði og á alltaf erindi við fólk,
hvort sem er á helgum degi eða virk-
um,“ segir séra Gunnþór Ingason
sóknarprestur í samtali við Morgun-
blaðið. Undir það tekur Sigurjón Pét-
ursson, formaður sóknamefndar,
sem segir að bygging kirkjunnar hafi
á sínum tíma verið mikið átak og bor-
ið vitni um stórhug forráðamanna
hennar. Hann segir kirlquna í góðu
standi, hún hafi verið tekin mikið í
gegn um leið og bygging safnaðar-
heimilisins stóð yfir, máluð að utan
sem innan og 30 radda orgel
kirkjunnar lagfært.
Ymsir merkir munir
Séra Gunnþór segir Hafnarfjarð-
arkirkju eiga ýmsa merka muni, m.a.
altarisgripi sem Leifur Kaldal
gullsmiður teiknaði og smíðaði í til-
efni 20 ára afmælis kirlgunnar 1934
og eru gjöf kvenfélags kirkjunnar.
Voru þeir sýndir á heimssýningunni í
New York árið 1936. „Þá má nefna
messuskrúða og þar með talinn hátíð-
arhökul sem kvenfélagið gaf á 75 ára
afmæli kirkjunnar og það er gaman
að segja frá því að afkomendur Jóels
Ingvarssonar, sem var meðhjálpari
hér í áratugi, gáfu þá páskahökul sem
unninn er af systrunum í Karmel-
klaustri. Samskiptin við kaþólska,
sem unnið hafa merkt starf í Hafnar-
firði, hafa jafnan mótast af virðingu
og trausti," segir séra Gunnþór og
leggur áherslu á þýðingu samkirkju-
legs starfs. Fyrsti prestur hinnar
nýju kirkju var séra Árni Bjömsson
prófastur en áður hafði séra Þor-
steinn Briem reyndar verið kjörinn
en hann vildi ekki taka við embættinu
þar sem í kjölfar kosningar hans
klofnaði söfnuðurinn og var Fríkirkj-
an í Hafnarfirði þá stofnuð.
Hafnarfjarðarkirkja hefur oft ver-
ið nefnd Þjóðkirkjan í Hafnarfirði til
aðgreiningar frá Fríkirkjunni. En
starf þeirra beggja byggist á sama
játningargrunni og þær hafa báðar
mótað mannlíf fjarðarins og samstarf
þeirra eflst með árunum. Séra Garð-
ar Þorsteinsson prófastur tók við
prestsþjónustu við kirkjuna af séra
Bókin
MIKILVÆGUSTU
TUNGUMÁL JARÐAR
svarar:
Hver eru mikilvægustu
tungumál heims?
www.tunga.is
Ama og gegndi henni í heil 45 ár, en
æskulýðsleiðtoginn séra Friðrik
Friðriksson gegndi henni í stuttan
tíma milli prestaskipta. Sóknin var
kennd við hinn forna kirkjustað
Garða á Álftanesi allt til ársins 1966
þegar sérstök sókn var mynduð í
Garðabæ og tvær sóknir í Hafnar-
firði, Hafnarfjarðarsókn og Víði-
staðasókn.
Fjórtán manns á launaskrá
Alls era sóknarbömin nú um 10.800
en á svæði sóknarinnar búa um 14
þúsund manns. Auk sóknarprestsins,
séra Gunnþórs, starfa tveir aðiir
prestar við kirkjuna, þau séra Þór-
hildur Ólafs og séra Þórhallur Heim-
isson. Organisti er Natalía Chow.
Friðrik Bjamason tónskáld var fyrsti
organisti kirlqunnar. Páll Kr. Pálsson
og síðan Helgi Bragason tóku við
þjónustu hans. „Fjórtán manns era á
launaskrá hjá okkur, nokkrir í fullu
starfi og síðan hlutastarfsmenn eftir
því sem verkefnin krefjast hverju
sinni,“ segir Siguijón. Hann segir að
þrátt fyrir miklar framkvæmdir síð-
ustu árin, byggingu safnaðarheimilis-
ins Strandbergs með tilheyrandi lóð
og viðgerð á kirkjunni upp á alls um
230 milijónir króna, sé fjárhagurinn
góður og skuldir ekki nema kringum
20 miHjónir, sem sé vel viðráðanlegt.
Sóknarpresturinn og sóknamefndar-
formaðurinn segja að samstarf við
bæjaryfirv'öld haii jafnan verið mikið,
meðal annars vegna Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar sem er í húsnæði sam-
byggðu við Strandberg, og segja þeir
báða aðila njóta góðs af því.
„Kirkjan og menningarlífið era
samtvinnuð og tengsl trúar og listar
hafa ávallt verið mikil og dýrmætt er
að hlúa jafnan vel að þeim tengslum.
Sóknamefndin, undir traustri for-
ystu Sigurjóns, hefur sýnt góðan
skilning á því og gildi framsækins
kirkju- og safnaðarstarfs," segir séra
Gunnþór og heldur áfram: „Kirkjan
gegnir mikilvægu hlutverki í samfé-
laginu og leitast við að móta það til
heilla. Safnaðarstarfið er fjölbreytt
og snertir alla aldurshópa en helgi-
haldið er ávallt kjami og drifkraftur
kirkjulegrar þjónustu og starfs og
þarf að vera margbreytilegt, draga
fram sígild trúarverðmæti og svara
jafnframt kröfum tímans. Nú þegar
horft er til merkra aldamóta og
kristnitökuhátíðarárs era gerðar
miklar kröfur til forystumanna
kirkjunnar um að veita öragga leið-
sögn og bjóða góða þjónustu. Hún
þarf að veitast og jafnframt það, að
fólkið og fjöldinn finni til ábyrgðar
sinnar, hlúi að kirkju sinni og kristni
og finni til þess og reyni það, að af-
mælisár og hátíðahöld komandi árs
endurnýi trúarheit og tryggð og miðli
Guðs nánd og blessun."
----------------------
Viðurkenning
frá Tóbaks-
varnanefnd
GISTIHEIMILI Akureyrar,
Hafnarstræti 104, fékk viður-
kenningu frá Tóbaksvarna-
nefnd á dögunum fyrir gott
framlag til tóbaksvarna. Gisti-
heimilið, sem býður upp á 19
herbergi með eða án baðher-
bergis, er fyrsta reyklausa
gistiheimilið sem er opið allan
ársins hring.
Margrét Thorarensen veitti
viðurkenningu viðtöku en hún
og eiginmaður hennar, Erling
Ingvason, eiga og reka Gisti-
heimili Akureyrar. Að sögn
Margrétar hafa viðbrögð gesta
við því að eingöngu sé boðið
upp á reyklaus herbergi verið
sérlega jákvæð.