Morgunblaðið - 11.12.1999, Side 86
LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
>risajólapakkar<
FOLKI FRETTUM
Morgunblaðið/Jim Smart
Borgardætur voru komnar í stuð á æfingu með undirleikurunum.
Dásemdarjóla-
stemmning
I KVOLD halda Borgardætur tón-
leika í Kaffileikhúsinu sem hefjast
kl. 21. Söngtríóið skipa Berglind
Björk Jónasdóttir, Ellen Kristjáns-
dóttir og Andrea Gylfadóttir. Með
þeim spila Eyþór Gunnarsson píanó-
leikari og raddþjálfari stúlknanna
frá upphafi, Þórður Högnason
bassaleikari og Björgvin Ploder á
trommur.
Gömul og ný jólalög
„Við ætlum að syngja lög af eldri
plötum okkar, og svo jólalög sem við
höfum látið þýða fyrir plötu sem
kemur út fyrir næstu jól,“ segir
Berglind Björk. „Við höfum verið að
æfa í desember og forum svo í hljóð-
ver milli jóla og nýárs til að taka upp
jólaplötu mitt í jólastemmningu en
ekki í ágúst einsog oftast. Friðrik
Erlingsson hefur þýtt og samið fyrir
okkur texta við lög sem Andrews
systur sungu, Bing Crosby og fleiri
söngvarar frá þessu tímabili sem við
höfum verið að vinna með. Þetta eru
þekkt og óþekkt jólalög, og einnig
falleg lög sem við höfum breytt í jóla-
lög með nýjum texta.“
Geggjað að syngja
fyrir Hillary
„Borgardætur tóku sér þriggja
ára frí, en svo komumst við aftur í
stuð þegar við sungum fyrir Hillai-y
um daginn. Það var geggjað og varð
kveikjan að því að drífa í jólaplöt-
unni.“
- Hvað sunguð þið fyrir hana ?
„Við sungum þrjú lög; Frelsi ég
finn, sem hún raulaði með okkur á
ensku, Ég man hana mömmu og Svo
sannarlega."
- Hverju mega góðir gestir búast
við í Kaffileikhúsinu?
„Þeir mega búast við dásemdar
jólastemmningu og öðrum dásam-
legheitum eins og okkar er von og
vísa,“ segir Berglind Björk hlæjandi
að lokum.
Eagles slá
Jackson við
HLJÓMSVEITIN Eagles virðist
ætla að sigla öruggri siglingu inn í
næsta árþúsund með söluhæstu
breiðskífu aldarinnar í Banda-
ríkjunum. Er það safnskífa sveitar-
innar „The Eagles, Their Greatest
Hits 1971-1975“ sem gefin var út
árið 1976. Hljómsveitin var heiðruð
í vikunni fyrir að eiga mest seldu
breiðskífa aldarinnar. Meðlimir
sveitarinnar Glenn Frey, Don Hen-
ley, Don Felder, Joe Walsh og
Timothy B. Schmit tóku við viður-
kenningunni og fluttu óvænt lagið
„Tequila Sunrise". Frey sagði sveit-
ina hafa selt 26,6 milljónir eintaka
af breiðski'funni í Bandaríkjunum á
meðan Michael Jackson hefði selt
25,2 milljónir. „Þegar Michael
Jackson sér þetta í sjónvarpinu á
hann vísast eftir að gera sér ferð og
kaupa eina og hálfa milljón eintaka
af Thriller," sagði Frey.
Borgardætur syngja jólalög
Torfærubretti
Ný tegund bretta fyrir þá sem vilja komast lengra
ÍWI
Æfingapúöar í úrvali
Mity Goose
16”bamahjól
Jólaverð
kr. 10.396,-
Lil’Goose
12”bamahjól
Jólaverö
kr. 7.993,-
Endalaust úrval jólagjafa
Cá?
fyrir þá sem vilja hreyfa sig!
FITNlESS
likamsrœkt og fjallcthjól
0 A PJT;TtJRSSÖN «*!11 l'axitft’tii / Sítni !>700 20(1 www.gnp.it
FIÖRÐUR
- tnióbæ Hafnatjjardar
Jólasveinar spila í dag kl 14-15:30
H ER R A
HAFNARFJÖRÐUR
“S 565 0073
AnaS
•B 565 7100
»