Morgunblaðið - 28.04.2000, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 28.04.2000, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Atkvæði greidd um samnins við KE MJÓLKURFRAMLEIÐENDUR í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, á sam- lagssvæðum Kaupfélags Eyfirðinga, hafa fengið í hendur atkvæðaseðfi vegna atkvæðagreiðslu um fyrirliggj- andi samning mUli KEA og framleið- enda. Verði samningurinn samþykkt- ur af meirihluta framleiðenda verður stofnað framleiðendasamvinnufélag mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Atkvæðagreiðslunni skal lokið íyr- ir 8. maí en að henni standa Búgreina- ráð Búnaðarsambands Eyjafjarðar og Félag þingeyskra kúabænda. I samningum kemur m.a. fram að sam- vinnufélag bænda verður eignaraðili að nýju hlutafélagi sem vinnur mjólk úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og á samlögin á Akureyri og Húsavík. Ef gerður verður bindandi viðskipta- samningur um 99% af greiðslumarki á svæðinu við nýja mjólkurvinnslu- fyrirtækið til 5 ára eignast samvinnu- félag bænda 34% af fyrirtækinu. Verði af samkomulaginu tryggja bændur sér helmings aðild að stjóm rpjólkurvinnslunnar.Þá fellst hlutafé- lagið á að greiða bændum samkeppn- isfært verð íyrir mjólk og hefur það markmið forgang, fram yfir greiðslu arðs til eigenda og greiðslu af víkj- andi láni. Náist ekki viðskiptasamn- ingar um 85% af greiðslumarki bænda verður ekkert af samkomu- laginu og fyrirtækið verður þá alfarið í eigu og stjóm KEA. Eins og komið hefur fram hefðu margir mjólkur- framieiðendur viljað ná lengra í samningum við KEA. Samninga- nefnd framleiðenda taldi hins vegar ekki lengra komist og hvetur bændur tíi að styðja samninginn. Á aðalfúndi KEA nýlega var sam- þykkt heimild til handa stjóm félags- ins að ganga frá samningi við félag mjólkurframleiðenda á grundvelli samkomulags um stofnun nýs mjólk- urfélags á Norðurlandi. Áður hafði stjóm KEA falið kaupfélagsstjóra að ganga frá umframgreiðslu vegna mjólkurframleiðslu síðasta árs. Gert er ráð fyrir að umframverð verði um 3 krónur pr. innlagðan mjólkurlítra og það greitt út í næsta mánuði. Gallerfið í sveitinni Teigi Eyjafjarðarsveit Sýning veróur á postulínsmunum frá hóp kvenna sem komió hafa saman sl. vetur. Sýningin veróur laugardag og sunnudag 29.-30. apríl frá kl. 2-6. Verió velkomin í sveitina. Postulínshópurinn. Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn SS Byggis voru í steypuvinnu í blíðunni í gær í grunni bílakjallarans sem þeir eru að byggja. Bygging verslunarmiðstöðvar á Gleráreyrum Eitt tilboð í stærsta útboðsverk ársins AÐEINS eitt tilboð barst í bygg- ingu tæplega 9.000 fermetra versl- unarmiðstöðvar á Gleráreymm á Akureyri en tilboðið var opnað í gær. Það kom frá SS Byggir á Ak- ureyri og hljóðaði upp á rúmar 368 milljónir króna. Þetta er stærsta einstaka verk í byggingariðnaði sem boðið er út í bænum á þessu ári. Um er að ræða breytingu á eldra húsnæði, 4.000 fermetra aðal- verksmiðjuhúsi Skinnaiðnaðar hf., nýbyggingar austan og vestan við það hús, samtals um 4.700 fermetr- ar, frágang innanhúss á sameigin- legu rými og uppsetningu veggja milli rýma. Verktíminn er mjög stuttur eða frá maí til október en gert er ráð fyrir að framkvæmdum við verslunarmiðstöðina verðj að fullu lokið þann 1. nóvember. Áætl- að er að heildarkostnaður við fram- kvæmdina verði um einn milljarður króna. Ekki kom fram við opnun tilboðs- ins í gær hver kostnaðaráætlun verkkaupa er en þar kom þó fram að tilboð SS Byggis væri í hærri kantinum miðað við heildarkostnað- aráætlun framkvæmda á Gleráreyr- um, sem fékkst þó heldur ekki upp- gefin. Það er einkahlutafélagið Smáratorg sem stendur að bygg- ingu verslunarmiðstöðvarinnar, sem fengið hefur nafnið Glerártorg. Sigurður Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri SS Byggis, sagðist hafa átt von á tveimur tilboðum frá verktökum á höfúðborgarsvæðinu en það kom honum hins vegar ekki á óvart að ekki komu fleiri tilboð frá fyrirtækjum á Akureyri, vegna góðrar verkefnastöðu í bænum. Hann sagði að það kæmi sér mjög vel fengi hann verkið. Fyrirtækið er að ljúka við byggingu þjónustu- húss Toyota á Akureyri, uppsteypu húss Hita- og vatnsveitu Akureyrar er að ljúka og þá eru framkvæmdir við nýbygginguna og bílakjallarann í miðbæ Akureyrar langt komnar. Sigurður sagði að Tréverk á Dal- vík kæmi að þessu tilboði með fyr- irtæki hans og að auki fjölmargir aðrir undirverktakar. Þarna gæti því verið um 80 manns að vinna við þetta verk. Alls verða 26 rými í verslunar- miðstöðinni og þar af nokkrir veit- ingastaðir. Nettó, Byko og Rúm- fatalagerinn verða með langstærstu rýmin eða í kringum 2.000 fermetra hvert fyrirtæki. Fyrirtækin sem verða í verslunarmiðstöðinni frá lými sín afhent nánast tilbúin undir tréverk og standa sjálf að innrétt- ingu þeirra. Tónleikar í dag Skátakór- ar að sunn- an í söng- ferðalag í TILEFNI af sumarkomu hafa Skátakórarnir í Reykja- vík og Hafnarfirði ruglað saman reitum sínum og leggja upp í sameiginlega tónleikaferð föstudaginn 28. apríl nk. Ekið verður sem leið liggur norður í land og er ætlunin að skemmta Norðlendingum með söng og hljóðfæraslætti. Fyrstu tónleikarnir verða hjá Skátafélaginu Landvættum á Dalvík. Tónleikarnir hefjast kl. 14:30 í skátaheimilinu. Að þeim loknum verður haldið til Akureyrar en þar hefjast tón- leikar kl. 17:00 í Deiglunni. Aðgangseyrir á þá tónleika eru kr. 300. Fyrir unga sem aldna Allir skátar, ungir sem gamlir, eru hvattir til að mæta með fjölskyldum sínum og fagna sumarkomu með hressilegum söng. Stjórnendur kóranna eru þau Kristjana Grímsdóttir og Órn Arnarson. Kirkjustarf LOKAHÁTÍÐ kirkjuskólans fyrir krakka í Laufásprestakalli verður í Laufási sunnudaginn 30. apríl kl. 11. Þar verður farið í leiki og grillað. Hafið með ykkur pylsur og drykk. Kyrrðarstund verður í Grenivíkur- kirkju á sunnudagskvöld kl. 21. Jörð til sölu Jörðin Ytri-Bægisá í Glæsibæjarhreppi er til sölu Á jöröinni er íbúöarhús, 171 fm, ásamt bílskúr, 42 fm, byggt 1979, fjós byggt 1971, 20 básar, fjárhús byggö 1971 fyrir 130 kindur, hesthús byggt 1950 fyrir 6 hross, hlöður byggöar 1971 og 1987, samtals 2.223 fm, og vélageymsla byggö 1978,184 fm. Ræktun er um 34 ha. Greiðslumark jaröarinnar er 99.214 lítrar í mjólk og 140,8 ærgildi í sauöfé. Tilboö í jöröina ásamt bústofni og vélum skulu hafa borist Búnaöarsambandi Eyjafjarðar, Óseyri 2, 603 Akureyri, fyrir 15. maí 2000 en þar eru nánari upplýsingar veittar í síma 462 4477 á skrifstofutíma. Skátakór- ar á tón- leikaferð í TILEFNI af sumarkomu hafa skátakóranir í Reykjavík og Hafn- arfirði ákveðið að leggja upp í sameiginlega tónleikaferð í dag, föstudaginn 28. apríl. Ekið verður sem leið liggur norður í land og er ætlunin að skemmta Norðlending- um með söng og hljóðfæraslætti. Fyrri tónleikarnir verða hjá Skátafélaginu Landvættum á Dal- vík í dag, föstudag, þeir fara fram í skátaheimilinu og hefjast kl. 14.30. Að þeim loknum verður haldið til Akureyrar en þar hefjast tónleikar í Deiglunni kl. 17.00. Að- gangseyrir á þá tónleika er 300 krónur. Allir skátar, ungir sem gamlir, eru hvattir til að mæta með fjölskyldum sínum og fagna sumarkomu með hressilegum söng. Stjórnendur kóranna eru þau Kristjana Grímsdóttir og Örn Arnarson. Morgunblaðið/Kristján Veðrið lék við bæjarbúa VEÐRIÐ lék við Akureyringa í gær eftir frekar kalda en sólríka daga. Hitinn fór í 10 stig um miðj- an dag f gær, samkvæmt hitamæli veðurstofunnar við lögreglustöð- ina, en hitamælirinn á Ráðhús- torgi sýndi enn hærri tölu. Félag- arnir Arnar og Auðunn voru mættir með hjólabretti sín á Ráð- hústorgið og léku þar Iistir sínar fyrir gesti og gangandi. Snæfinn- ur snjókarl, sem byggður var fyr- ir páskana, er hins vegar orðinn að snjóskafli á miðju torginu. Minningarsjóður Þorgerðar S. Eiríksdóttur auglýsir styrki fyrir tónlistarnema Efnilegir nemendur styrktir NEMENDUR sem stundað hafa nám við Tónlistarskólann á Akureyri °g hyggja á eða hafa þegar hafið há- skólanám í tónlist geta sótt um styrk úr Minningarsjóði Þorgerðar S. Eir- íksdóttur. Umsóknarfrestur er til 15. maí og þurfa umsækjendur að greina frá námsferli og námsáformum i um- sókn sinni. Þorgerður S. Eiríksdóttir fæddist 20. janúar 1954 og lauk burtfarar- prófi frá Tónlistarskólanum á Akur- eyri vorið 1971. Hún þótti mjög efni- legur píanóleikari og var nýkomin til Lundúnaborgar til að hefja fram- haldsnám þegar hún lést af slysför- um þann 2. febrúar 1972. Ári síðar stofnuðu aðstandendur Þorgerðar minningarsjóð ásamt Tónlistarfélagi Akureyrar, Tónlistarskólanum og kennurum við skólann. Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega nemendur sem lokið hafa burtfararprófi frá Tónlistarskólan- um á Akureyri til framhaldsnáms. Megintekjulind sjóðsins er að jafnaði vextir af höfuðstól ásamt tekjum af styrktartónleikum sem nemendur og kennarar Tónlistarskólans halda árlega. Sjóðurinn hefur einnig tekjur af minningarframlögum en minning- arkort eru seld í Tónlistarskólanum, Bókabúð Jónasar og Bókvali.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.