Morgunblaðið - 28.04.2000, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Stórhýsi í Borgartúni
Á RÚMLEGA einu ári hafa tvö stór-
hýsi risið í Bogartúninu í Reykjavík.
Ánnað eru höfuðstöðvar Nýherja hf.
en í hinu verða 7 ríkisstofnanir. Hús-
in vekja athygli vegfarenda því í báð-
um tilvikum hefur verið lagt mikið
upp úr vandaðri hönnun. Pótt húsin
séu ólík að sjá eiga þau það þó sam-
eiginlegt, að svipuð sjónarmið virð-
ast hafa átt við um hönnun þeirra
beggja, a.m.k. varðandi hið sérstæða
útsýni frá Borgartúni annars vegar
og hins vegar því að skapa væntan-
legum startsmönnum þeirra fyrir-
tækja og stofnana, sem þarna munu
starfa, sem besta starfsaðstöðu.
Flutt í Nýherjahúsið i dag
Guðni Pálsson, arkitekt, er hönn-
uður Nýherjahússins, en húsið er
um 6.400 fermetrar að stærð. Að
sögn Þorkels Ágústssonar, verkefn-
isstjóra yflr flutningunum af hálfu
Nýherja hf., var m.a. haft að leiðar-
ljósi að hið sérstæða útsýni, sem er á
þessum stað yfir sundin og út á
Faxaflóann, fái notið sín. Þá var jafn-
framt tekið tillit til þess að sólskin og
vinna við tölvuskjá þykir ekki fara
vel saman. Þess vegna er húsið
mjórra sunnanmegin, gegnt sólinni,
en breiðara á þeirri hlið sem snýr í
norður, þar sem útsýnið er sem
mest. Gert er ráð fyrir að húsið loft-
ræsti sig sjálft, en mikið er um opn-
anlega glugga. Að innan er rýmið að
miklu leyti opið en lágir og léttir
veggir skilja starfsmenn að.
Hafist var handa við undirbúning
að byggingu hússins í lok febrúar
1999 en flutt verður inn í dag, 28.
apríl. Við flutning Nýherja hf. í hið
nýja stórhýsi er starfsemi fyrirtæk-
isins sameinuð á einn stað eftir að
hafa verið tvískipt áður. Fram-
kvæmdir voru í höndum ÁHÁ Bygg-
inga hf.
Ríkisstofnanahúsið
Hitt nýja stórhýsið í Borgartúni
er í eigu Höfðaborgar ehf., en eig-
endur þess eru þeir sömu og bygg-
ingaverktakafyrirtækisins EYKT
ehf., sem sá um byggingafram-
kvæmdir. Ríkissjóður hefur gert
samning um leigu á húsinu til 20 ára
fyrir sjö ríkisstofnanir, sem þar
verða til húsa. Þær eru: Barnavemd-
arstofa, Fasteignamat ríkisins,
íbúðalánasjóður, Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna, Löggildingar-
stofa, Ríkissáttasemjari og Yflr-
skattanefnd.
Ásgeir Ásgeirsson, byggingafræð-
ingur, og Ivon Stefán Cilia, arkitekt,
á Teiknistofunni Armúla, sáu um
hönnun hússins. Að sögn Ásgeirs var
við hönnunina lögð áhersla á að sem
flestir þeirra sem kæmu til með að
starfa í húsinu gætu notið þess út-
sýnis sem staðsetningin býður upp á.
Þá vildu hönnuðirnir einnig draga
eins og frekast er unnt úr álagi frá
sólu.
Nokkuð er um að opið rými setji
mark sitt á þær stofnanir sem í hús-
inu eru. Mikil glerbygging myndar
burst milli tveggja meginhluta húss-
Notar fyrirtækið
8oo 4000 er gjaidfrjálst númer
www.siminn.is fyrírtækjaþjónustu Símans.
Þar er opið vírka daga milli kl. 8 og 17.
S í M I N N
Morgunblaöiö/Sverrir
Stórhýsi Nýheija hf.
ins og er hún einkennandi fyrir það.
Byggingaframkvæmdir hófust i
desember 1998. Fimm af stofnunun-
um sjö hafa flutt í nýja húsið, allar
nema íbúðalánasjóður og Lánasjóð-
ur íslenskra námsmanna.
Húsið er um 9.000 fermetrar að
stærð.
Framboð og flutningar Flugleiða
Sætanýting 3,8
prosentustigum
lakari en í fyrra
SÆTANYTING í millilandafarþega-
flugi Flugleiða fyrstu þijá mánuði
ársins var 56,2%, sem er 3,3 prósent-
ustigum lakari sætanýting en 1999.
Framboðnir sætiskílómetrar í áætl-
unarflugi milli landa á þessu tímabili,
þ.e. sætafjöldi í hverri ferð margfald-
aður með heildarvegalengd ferðar,
voru 19% fleiri en í sömu mánuðum
1999. Sala mæld í seldum sætiskíló-
metrum, þ.e. fjölda farþega í hverri
ferð margfölduðum með heildarvega-
lengd ferðar, var 12% meiri en á sama
tíma í fyrra. Sætanýting fæst með því
að deila framboðnum sætiskílómetr-
um í selda sætiskílómetra.
Flugleiðir hófu í gær birtingu upp-
lýsinga um framboð og flutninga fé-
lagsins í millilandafarþegaflugi, en
framvegis verða birtar mánaðarlega
upplýsingar um framboð og nýtingu í
farþegaflugi og þróun sölu í mildl-
vægustu markaðshlutum fyrirtækis-
ins. Að auki mun félagið geta um þró-
un helstu ytri áhrifaþátta og
stefnumótandi ákvarðanir.
Gengi hlutabréfa Flugleiða lækk-
aði um 5,6% á Verðbréfaþingi íslands
í gær, en alls voru 17 viðskipti með
bréf félagsins fyrir 42 milljónii' króna.
Tekið er fram í tilkynningu Flug-
leiða að við skoðun þeirra talna sem
nú eru birtar sé rétt að hafa í huga að
félagið er að gera ákveðnar breyting-
ar á samsetningu flugflotans. Það
leiði til þess að á fyrsta ársfjórðungi
aukist framboð töluvert miðað við
sama tímabil í fyrra og þótt salan hafi
ekki aukist í sama mæli á þessum
tíma sé það í samræmi við forsendur í
rekstraráætlun ársins 2000. Fram-
boðsaukning á árinu í heild mæld í
sætiskílómetrum er áætluð um 7%.
Fram kemur að lakari sætanýting
fyrstu þrjá mánuði þessa árs endur-
spegli að hluta þá miklu framboð-
saukningu sem er í leiðakerfi Flug-
leiða í þessum þremur mánuðum, en
einnig erfiðar aðstæður á Norður-
Atlantshafsmarkaði. Á móti þessu
vegur að félagið hefur aukið hlutfall
farþega á leiðum til og frá landinu á
kostnað þeirra sem fara yfir Norður-
Atlantshaf.
I heild fjölgaði farþegum um 6%,
en þegar undan eru skilin áhrif þess
að félagið hætti að fljúga milli Kaup-
mannahafnar og Hamborgar síðast-
liðið haust fjölgaði farþegum á öðrum
leiðum um 14%. Farþegum á leiðum
til og frá landinu fjölgaði um 16% en
farþegum á leið yfir Norður-Atlants-
haf um ísland fjölgaði um 10%. Far-
þegum á viðskiptamannafarrými
fjölgaði um 13% ef undan eru skilin
áhrif af því að leggja niður flug á leið-
inni Kaupmannahöfn/Hamborg síð-
astliðið haust.
Hagnaður Sólar-
Víkings hf. 79
milljónir króna
HAGNAÐUR Sólar-Víkings hf. á
síðasta ári var 79,2 milljónir króna
eftir reiknaða skatta, en hagnaður af
reglulegri starfsemi fyrir skatta nam
116,4 milljónum króna. Sambærileg
tala árið á undan var 87,3 milljónir
króna. Rekstrartekjur félagsins á
síðasta ári námu samtals 1,4 millj-
örðum króna sem er 8,4% aukning
frá árinu áður.
Aukning sölu var helst á sviði
drykkjarvara, en félagið rekur tvær
verksmiðjur, í Reykjavík, safa- og
smjörlíkisgerð, og ölgerð á Akureyri.
Umtalsverð aukning varð á sölu
ávaxtastafa, mest í Trópí, Brazza og
Svala. Sala bjórtegundanna Víking,
Carlsberg og Thule jókst verulega
svo og sala á íþróttadrykknum Gato-
rate.
Á aðalfundi Sólar-Víkings hf., sem
nýlega var haldinn, kom fram að fjár-
hagsleg staða félagsins hefur styrkst
verulega á síðustu árum og var eigin-
fjárhlutfallið 21,5% um síðustu ára-
mót. Fyrirhugaðar eru miklar fjár-
festingar á vegum félagsins, og eru
stærstu verkefnin bygging nýrrar
drykkjarvöruverksmiðju í Reykjavík
og mikil endurnýjun ölgerðarinnar á
Akureyri. í ljósi þess hve mikil upp-
bygging er fyrirhuguð samþykktu
hluthafar tillögu um að ekki yrði
greiddur út arður. Um eitthundrað
manns starfa hjá félaginu, sjötíu í
Reykjavík og þrjátíu á Akureyri.