Morgunblaðið - 28.04.2000, Page 46

Morgunblaðið - 28.04.2000, Page 46
46 FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ Fj ölnota refsihýsi Færi ekki vel á því að dœmdurn glæpa- mönnum yrði gert að sækja reglulega sýningar í „Þjóðmenningarhúsi"? að er af sem áður var. Ekkert virðist lengur hannað til að endast. Flestu er hent enda ekkert talið nokkurs virði. Heimurinn er einnota, rétt eins og lífið. En í miðju myrkviði neyslu- hyggjunnar, sem dugað hefur svo ágætlega sem óánægju-, þung- lyndis- og fordæmingarvaki, hef- ur nú kviknað ljós. Og það ánægjulega er að opinberir aðilar hafa tekið forustuna og blásið til sóknar gegn bruðli, prjáli, tildri og smekklausu óhófi nútímans. Dómsmálaráðherra lýðveldis- ins, Sólveig Pétursdóttir, hefur gert heyrinkunnugt að loksins . skuli nýtt fangelsi rísa í Reykja- vík. Athygli vakti að ráðherra tók fram að fyllstu hagkvæmni yrði gætt í hvívetna við byggingu nýju dýflissunnar. VIÐHORF Nýjafang- __________ elsið á að vera Eftlr Ásgelr „fjölnota“. Sverrisson Sérstök ástæða er til að fagna þessu framtaki dóms- málaráðherra eins og öllum „framtökum" allra í þessu landi bæði fyrr og síðar. Við blasir að „fjölnota" fangelsi (sem hlýtur að nefnast „Betrun- arstofa") veitir algjörlega ný tækifæri á sviði refsivistar í lýð- veldinu. I „fjölnota" fangelsi verður hugsunin frá upphafi sú að unnt verði að taka við sömu glæpamönnunum allt þeirra ævi- skeið og veita þeim viðeigandi þjónustu með tilliti til m.a. menntunar, aldurs, fjölskyldu- stærðar og heilsufars. Þannig mun t.d. verða kleift að halda barnungum ódæðismönnum á sérdeildum til að tryggja að per- sónuleg kynni takist og að reynsla hinna eldri verði ekki til þess að fæla byrjendurfrá því að - feta áfram glæpabrautina. Þar með gefst einnig tækifæri til að leggja drög að grunnmenntun sakamanna og verður sá undir- búningur ómetanlegur þegar við- komandi illvirkjar eru komnir á réttan aldur til að hefja háskóla- nám í betrunarhúsinu. I „fjölnota" fangelsi verður síð- an unnt að halda uppi fyrirtækja- rekstri og færi sérlega vel á því að dæmdum sakamönnum yrði gert kleift að nýta tölvur og Net til að bjóða fram fjármálaþjón- ustu og ráðgjöf að framhaldsnámi loknu. Sérstaka ánægju vekur að loks verði unnt að halda uppi viðeig- andi þjónustustigi við gamla glæpahunda, ofbeldismenn og ill- virkja á íslandi. Aldraðir eru af- skiptur hópur í samfélaginu. í ,4jölnota“ dýflissu verður loksins gerlegt að búa gömlum afbrota- mönnum áhyggjulaust ævikvöld og koma í veg fyrir þá félagslegu einangrun sem svo oft verður hlutskipti aldraðra. Enda eiga allir rétt á því á ís- landi að finna kröftum sínum við- nám í leik og starfi. í „fjölnota" fangelsi verður aukinheldur unnt að starfrækja 11 göngu- og dagdeildir fyrir glæpa- menn til að tryggja að þeim gefist tækifæri til að skaða meðbræður sína á ný þegar þeir svo kjósa. í ljósi þessa ber að fagna þeirri áherslu sem ráðfrú dómsmála leggur á að tukthúsið nýja liggi vel við helstu samgönguæðum á Reykjavíkursvæðinu til þess að sakamenn eigi greiða leið að og frá stofnuninni. Athyglisvert er að bera saman þetta frumkvæði ráðfrúarinnar ogvígslu „Þjóðmenningarhúss", sem svo er nefnt líkt og sambæri- legar stofnanir forðum í Austur- Evrópu. „Þjóðmenningarhús" er nefnilega ekki „fjölnota". Ungir hugsjónamenn innan Sjálfstæðisflokksins hafa blásið til herferðar gegn stofnun þess- ari. Það ágæta fólk virðist ein- faldlega ekki geta skilið að stjórn- málamenn fá ekki haldið uppi ríkismenningu án þess að þeir geti óhindrað seilst í vasa skattborgaranna. Því verður með engu móti haldið fram að bruðlað hafi verið með opinbert fé við endurgerð „Þjóðmenningarhúss“, sem getur tæpast borið ákveðinn greini frekar en „Barnahús“. Endurgerð „Þjóðmenningar- húss“ kostaði skattborgarana að- eins um 330 milljónir króna eða 40 ráðherrasalemi svo notuð sé mælieining, sem nú er viðtekin í stjórnkerfinu. (Til fróðleiks skal þess getið að eftir því sem næst verður komist munu slíkar „einkasnyrtingar" ráðherra vera skilgreindar sem ,,fjölnota“.) A hinn bóginn kemur á óvart að „Þjóðmenningarhús“ sé ekki „fjölnota“ og hlýtur að teljast gagnrýnivert að einnota byggingu sé ætlað að halda til skila al- gjörlega einstakri menningu ís- lendinga. Ekki getur verið viðun- andi og því síður „ásættanlegt" að gengið sé út frá því að hver Is- lendingur muni aðeins stíga fæti sínum inn í menningarstofnun þessa einu sinni á lífsleiðinni. Því hlýtur sú spuming að vakna hvort ekki megi tengja saman fyrirhugað fangelsi í Reykjavík og „Þjóðmenningar- hús“ með gerð marghliða, gagn- virks, árangurstengds og við- skiptahvetjandi samstarfssamn- ings forsætis- og dómsmálaráðu- neytis. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra vék að því við vígslu „Þjóðmenningarhúss“ að sú bygging hefði einstaklega „góða samvisku". Er ekki við hæfi að liður í betmnarvist þeirra, sem brotið hafa gegn eigin samvisku og landsins lögum, felist í því að þeim verði gert að afplána hluta refsingar sinnar innan veggja þessarar merku byggingar? Færi ekki vel á því að dæmdum glæpa- mönnum yrði gert að sækja reglulega menningarsýningar í „Þjóðmenningarhúsi"? Er þátt- taka sakamanna í íslensku menn- ingarlífi ekki líkleg til að reynast áhrifaríkari en hefðbundin „refsi- og forvamaúrræði"? íslendingar þekkja gjörla „refs- ingu menningarinnar" en „menn- ing refsingarinnar" væri nýlunda sem vekja myndi mikla athygli og kalla á umfangsmikið kynningar- starf erlendis. Hugmyndin er í raun einföld; að „refsivist“ verði „menningarvist11 líkt og „menn- ingarvist" er „refsivist" með „fjölsnærðri" samnýtingaráætlun áðumefndra stofnana. Þannig má tryggja að „Þjóð- menningarhús“ verði jafnframt „fjölnota refsihýsi" líkt og nýja Reykjavíkur-dýflissan um leið og óþokkar og gálgafuglar fá opin- bera og löngu tímabæra viður- kenningu sem óaðskiljanlegur hluti íslenskrar þjóðmenningar. ÞORÐUR JÓNSSON + Þórður Jónsson fæddist í Vorsa- bæ, Ölfusi, 22. aprfl 1901. Hann lést á Sjúkrahúsi Suður- lands 17. aprfl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru: Jón Ög- mundarsson, f. 19.7. 1874, d. 15.1.1964 og Sólveig Diðrika Nik- urlásdóttir, f. 13.6. 1875, d. 13.3. 1958. Þórður var næst- yngstur af 12 systk- inum. Systkini Þórð- ar sem látin eru: Ragnheiður, f. 1898, d. 1975, bjó í Reykjavík; Nikulás, f. 1903, d. 1973, bjó í Hafnarfirði; Kristín, f. 1906, d. 1977, bjó í Reykjavík; Þu- ríður, f. 1903, d. 1909, dó korn- ung; Benedikt, f. 1911, d. 1982, bjó í Kanada; Guðmunda, f. 1913, d. 1951, bjó á Friðarstöðum; Sæ- mundur, f. 1914, d. 1995, bjó á Friðarstöðum; Sigríður, f. 1915, d. 1997, bjó í Reykjavík; Ögmundur, f. 1917, d. 1989, bjó í Hafnarfirði. Eftirlifandi systkini Þórðar eru: Guðrún, f. 1904, bjó langt af á Lágfelli í Hveragerði; Ögmundur, f. 1907, bjó í Vorsabæ, Ölfusi í um 50 ár. Hinn 23. nóvember kvæntist Þórður Þór- hildi Vigfúsdóttur frá Þorleifskoti Flóa, f. 19.3. 1903, d. 4.4. 1989. Foreldrar henn- ar voru Vigfús Jóns- son, f. 27.3. 1862, d. 21.1. 1932 og Sólveig Snorradóttir, f. 10.4. 1873, d. 12.2. 1957. Þórði og Þórhildi varð þriggja barna auðið, þau eru: 1) Sólveig Vigdís, f. 18.2. 1935, maki Sigfús Kristins- son, byggingarmeistari, f. 1932, þeirra börn: a) Aldis, verkfræð- ingur, f. 18.3.1960. b) Guðjón Þór- ir, verkfræðingur, f. 2.1. 1962, maki Guðrún Guðbjartsdóttir, efnafræðingur f. 17.6 1959 og eiga þau tvö börn. c) Kristinn Hafliði húsasmíðameistari, f. 21.9. 1963. d) Þórður, verkfræðingur, f. 2.8. 1972. e) Sigríður, skrifstofumað- ur, f. 31.3. 1974. 2) Vilborg Guð- rún, hjúkrunarfræðingur, f. 3.2. 1937, maki Hjörleifur Tryggva- son, bóndi Ytra-Laugalandi, Eyja- firði, f. 1932, þeirra börn eru: a) Þóra, kennari, f. 31.12.1959, maki Ivar Ragnarsson, tæknifræðing- ur, f. 26.7. 1956, eiga þau þrjú börn. b) Grettir, bifreiðavirki og bóndi, f. 29.3. 1961, maki Kristín Kolbeinsdóttir, kennari, f. 31.5. 1963, eiga þau þijú börn. c) Þórð- ur, bifreiðavirki, f. 30.6. 1962, maki Hildur Larsen, klinikdama, f. 18.2. 1964, eiga þau tvö börn. d) Hugrún, hjúkrunarfræðingur, f. 29.1. 1967, maki Einar Gíslason, myndlistarkennari, f. 23.6. 1960, eiga þau tvö börn. e) Jóhannes Helgi, garðyrkjufræðingur, f. 18.8. 1974, maki Sigurbjörg, bú- fræðingur, f. 16.12. 1975, sambýl- iskona Kolbrún Rafnsdóttir, f. 10.12. 1975. 3) Jón, bóndi Sölva- holti, Hraungerðishrepp, f. 1.10. 1940. Fóstursynir Þórðar og Þór- hildar eru: 4) Bergur Ketilsson, vélvirki, f. 27.10. 1951, maki Gunnur Gunnarsdóttir, f. 4.5. 1954, þeirra börn a) Svandis, f. 19.6. 1972, maki Ragnar Hólm Gíslason, f. 15.12. 1966, eiga þau þijú börn. b) Heiðrún, f. 18.6. 1975. 5) Jón Oli Vignisson, f. 8.2. 1959, á eitt barn. títför Þórðar fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett verður í Laugardælum. Nú er hann afi okkar látinn. Við systkinin eigum óteljandi minningar tengdar honum. Öll áttum við það sameiginlegt ung að árum að hafa verið í sveitinni hjá honum á sumrin og aðstoðað við bústörfin, en um leið og skóla lauk var farið í sveitina og tekið til við vorverkin. En sú dvöl er okkur ofarlega í huga og minnumst við hennar með miklum hlýhug. Fyr- ir okkur var dvölin góður skóli og afi okkar góður kennari, en í sveitinni lærðum við margt sem við njótum góðs af enn þann dag í dag. Það var til dæmis mikil upplifun íyrir krakka á okkar aldri að fá að keyra jeppana hans afa, eins og gamla gráa Willisinn frá 1952 og seinna Bronkóinn um vegslóða og túnin í sveitinni, undir góðri leiðsögn hans. Þarna fengum við okkar fyrstu ökukennslu. Þetta sýnir einnig hvað við krakkamir nutum mikils trausts í sveitinni. Traust elur af sér traust. Hann lét ekki aftra sér að keyra bíl, þótt fóturinn væri stirður. Þannig þurfti hann að sitja mjög aftarlega í sætinu og með púða undir sér til að geta keyrt með stirðan hægri fót. Þannig leit út fyrir, á stundum, fyrir ókunnuga, að enginn sæti í bílstjóra- sætinu, þegar bíllinn fór fram hjá viðkomandi. Engu að síður keyrði hann bíl fram að níræðisaldri. A vorin var yfirleitt farið í girðing- arvinnu með traktor og járnvagn, sem afi sat oftast á. Við þessa vinnu var notaður járnkarl, sem var notað- ur af mikilli leikni, og ekki síst af afa, sem beitti honum af mikilli fimi, en hann var mjög handsterkur. Það má segja að hann hafi verið jámkarl þegar litið er til eljusemi hans og dugnaðar. Oft var unnið langt fram eftir kvöldi til að ná inn heyjum eða hey sett í galta. Allir lögðust á eitt. Allir unnu sem einn maður að sama markmiði. Það var mikil ánægja fólgin í því að taka þátt í þessari vinnu og sjá árangurinn af samvinnu allra, þótt þreytan hafi verið mikil, sem kom fyrst í ljós eftir að inn var komið. Ein af hans sterkustu hliðum var samræðulist. Oft sagði hann okkur sögur, á kvöldin, sem höfðu djúpa merkingu og lærdóm, sagðar af inn- lifun og með miklu innsæi. Þar kom fram næmur skilningur á lífinu og tilverunni. Þannig bentu sögumar á samhengi milli orsaka og afleiðingar, vom með djúpa heimspeki og visku. Eitt af séreinkennum afa var mikil vinnusemi. Til gamans þá má segja frá því að einstaka sinnum kom það fyrir að einhver snúningurinn svaf yfir sig og hafði afi það þá á orði og vísaði þar í annan mann að ekki yrði mikið úr þeim manni sem lægi í rúm- inu allan daginn. Ekki þarf að spyrja hvemig viðbrögðin vom. Afi og amma, Þórhildur Vigfús- dóttir, en hún lést 1989, vom mjög samrýnd og var gaman að sjá virð- ingu þeirra hvors fyrir öðm og þeirra mikla kærleika hvors til ann- ars. Eftir sveitavem okkar höfum við farið reglulega í heimsókn þar sem allt milli himins og jarðar var rætt svo sem búskapur, heimspeki, stjómmál og trúmál. Einnig fylgdist afi okkar vel með því sem við voram að sýsla við eftir okkar sveitavem og gaf okkur góð ráð ef eftir því var leit- að. Kveðjum við þig afi og viljum við þakka fyrir allt. Þinn styrkur var og er okkar styrkur. Aldís, Guðjón Þórir, Krist- inn, Þórður og Sigríður. Engin kynslóð Islendinga mun nokkurn tíma upplifa þvílíka umbylt- ingu í lífsháttum og lífskjöram og sú sem fæddist um og uppúr aldamót- um og er nú að kveðja. Hún ólst upp í fátækt, matur var af skornum skammti, skómir héldu ekki vatni, þegar gengið var yfir mýrlendi, yfir- hafnir veittu lítið skjól, húsakynni lé- leg, frístundir fáar, möguleiki til menntunar nánast engir, skemmtun varð hver og einn að sækja til sjálfs sín og nánasta umhverfis. Þessi kynslóð lagði gmndvöllinn að þeirri velmegun sem við búum við í dag. Hún opnaði öllum leið til mennta og kom á því velferðarkerfi sem við bú- um við í dag. Tengdafaðir minn, Þórður Jónsson sem nú er kvaddur, upplifði allt þetta. Hann lifði mestar breytingar sem hafa átt sér stað hér á landi til sjávar og sveita. 15 ára fór Þórður á vertíð í Þor- lákshöfn og var í skipsrúmi hjá Jóni Ólafssyni (föðurbróður Magnúsar ráðherra). Vertíðarhluturinn var 1 króna auk matfisks, sem menn fengu og sendu heim til sín. Þórður minnt- ist þess að hann hefði verið of ungur þá, réð ekki við árina. Þórður var þá ráðinn upp á 'h hlut en fékk fullan. Veturinn 1919 reri Þórður frá Her- dísarvík, síðan reri hann nokkrar vertíðir með Sigurði á Hjalla, Hall- dóri á Litla-Landi, Þorkeli í Óseyra- nesi og Gísla á Mundakoti, þá var fiskurinn saltaður og sólþurrkaður. Þá vom 6 ræðarar á hvort borð. Hugur Þórðar stóð alltaf til þess að komast á togara, því þar vom helstu tekjumöguleikarnir. Fyrst fór hann á Sviða sem Hafsteinn Bergþórsson gerði út frá Hafnarfirði, síðan á Sæljónið sem gerður var út frá Vest- mannaeyjum, þá næst á Eljuna frá ísafirði. Þá var Halldór Þorsteinsson nýbúinn að kaupa togara Max Pem- berton. Þórður gekk á fund Halidórs með kunningja mínum og falaðist eftir skipsrúmi. Halldór sagði ekki orð og kunningi minn sagði mér að það þýddi jáyrði, sem reyndist rétt. Halldór Þorsteinsson var fyrst með Max Pemberton og síðar tók Pétur Maack við. Þórður var alls 9 ár á Max Pemberton. Árið 1938 um vorið slasaðist Þórður um borð og hætti sjómennsku þá. Þetta slys háði Þórði alla tíð síðan og ágerðist með aldrin- um með fötlun. Þórður gekk af 4 skipum sem áttu eftir að farast, þau vom: Sæljónið, Eljan, Sviði og Max Pemberton. Þar til hann eignaðist jörðina Sölvholt árið 1938 og hóf bú- skap þar sama ár og bjó þar samfellt í um 50 ár. Einn vetur var Þórður á Hólum hjá Sigurði og Valgerði. Sá um búið og fór í sendiferðir til Reykjavíkur og notaði Þórður þá dagsbirtuna hvora leið. Einu sinni um hávetur bilaði síminn austur, yfir Hellisheið- ina. Viðgerðarmaður kom frá Reykjavík, ungur maður og vildi Sig- urður ekki hleypa honum einum upp á fjallið og bað Þórð um að fara með honum, þar sem veður fór versnandi. Þegar komið var upp á heiðina, brotnaði skíðið hjá viðgerðarmann- inum og tapaði hann frakkanum út í óveðrið og gekk hann síðan. Hann örmagnaðist, lagðist oft niður og grátbað Þórð að skilja sig eftir í snjónum. Þórði tókst að koma hon- um niður af fjallinu og mætti þá Sig- urði þar sem hann var lagður af stað til leitar þeim. Nokkrum ámm seinna hitti Þórður þennan mann og hann sagði: „Þórður, ég veit að ég á þér að þakka að ég er á lífi í dag.“ Æskuheimili Þórðar var að Vorsa- bæ sem var í þjóðbraut. Þegar menn höfðu farið yfir fjallið var oft komið í heimsókn. Halldór Þorsteinsson í Háteigi og Benedikt Sveinsson komu oft til viðræðna við föður Þórð- ar, Jón Ögmundsson. Jón var oddviti og sýslunefndarmaður til margra ára og skarpgreindur. Þórður var af sterkum ættum kominn, skyldur í föðurætt Halldóri Kiljan Laxness og í móðurætt Einari Benediktssyni skáldi. Þórður var hávaxinn, þrekinn og gerðist haltur með ámnum. Þórð- ur minntist þess sem unglingur þeg- ar hann bar rjómann frá Vorsabæ yf- ir í rjómabúið, sem var við lækinn á milli Vorsabæjar og Öxnalækjar. Þar var einnig kommylla sem malaði kornið. Sem unglingur valdist Þórð- ur oft til forystu í sínum stóra systk- inahópi. Vetur einn upp úr áramót- um kom sýsluskrifari tÚ Vorsabæjar og vantaði fylgdarmann til Eyrar- bakka, þar sem sýsluskrifstofan var. Móðir Þórðar, Sólveig, treysti hon- um best og sagði honum að gista á Eyrarbakka og koma daginn eftir með birtingu. Þórði fannst sér ekki vera nógu vel tekið á Eyrarbakka og því lagði hann af stað heim, þá var komin stórhríð á norðan og sá hann rétt til jarðar fyrir framan sig. Ölf- usá var í vökum þar og áttaði Þórður sig ekki á því fyrr en hann náði Arn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.