Morgunblaðið - 28.04.2000, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 28. APRÍ L 2000 51
:
Tilgangurinn með því að AI-
mættið skuli kalla svo magnaða
konu sem þig til sín, með þinn æðri
kraft sem hjálpaði svo mörgum,
hlýtur að vera mikill og magnaður,
því þú áttir svo margt ógert hér.
Minningin um þig mun lifa að ei-
lífu.
Ég votta Palla, stelpunum þín-
um og fjölskyldu þinni mína
dýpstu samúð.
Þín vinkona,
Magnea.
Mig langar í örfáum og fátæk-
legum orðum að minnast vinkonu
minnar, Kristínar Þorsteinsdóttur,
sem látin er um aldur fram frá eig-
inmanni og fjórum ungum dætrum.
Mann setur hljóðan við svona
harmafregn og hugurinn fer ósjálf-
rátt að reika um liðna tíma.
Fyrstu kynni mín af Kristínu og
fjölskyldu hennar voru fyrir um
það bil þrettán árum er við fluttum
í sama stigagang í Frostafold í
Grafarvogi.
Það var alltaf gott að leita til
Kristínar og vildi hún allt fyrir alla
gera.
Kristín spilaði á píanó og átti
slíkt hljóðfæri heima hjá sér. Mér
er svo minnisstætt að þegar elstu
dóttur mína langaði að fara að
læra á píanó, þá var það ekki flókið
mál, ég þurfti bara að útvega burð-
armenn og hljóðfærið skyldi flutt
niður til mín svo að stelpan gæti
æft sig og komist inn í tónlistar-
skólann, og það gekk eftir.
Það kom að því að fjölskylda
Kristínar fór stækkandi og þurfti
stærra húsnæði. Við vorúm báðar
heimavinnandi með lítil börn á
þessum tíma og sátum oft saman
jrfir kaffibolla og skoðuðum teikn-
ingar af draumahúsinu hennar;
síðar kom að því að við fengum
okkur göngutúra til að skoða hús-
bygginguna og áður en maður vissi
af voru Kristín og Palli ásamt
dætrum sínum flutt inn í húsið sitt
í Viðarrimanum rétt fyrir jólin
1994.
Hálfu ári síðar fluttum við í
Mosarimann þannig að aðeins
Landssímalóðin var á milli okkar.
Við höfðum alltaf reglulega sam-
band, þó aðallega í gegnum síma
svona í seinni tíð enda báðar úti-
vinnandi húsmæður.
Kristín var mjög sterkur pers-
ónuleiki, hæfileikarík með eindæm-
um og leiðbeindi öðrum óspart í líf-
inu, hún var mikil handavinnukona
og saumaði mjög mikið.
Ég heyrði síðast í Kristínu að-
eins tveimur dögum áður en hún
lagði í sína síðustu ferð til Banda-
ríkjanna hinn 7. apríl sl. og mun ég
búa að því samtali um ókomna tíð.
Elsku Palli, Hólmfríður, Sigfríð-
ur, Jóhanna og Ingibjörg, megi
góður Guð styrkja ykkur og
vernda á þessum erfiðu tímum, svo
og foreldra, systkini og aðra aðst-
andendur.
Ég geymi minningarnar í hjarta
mínu.
Hvíl í friði, kæra vinkona.
Sigríður St. Björgvins-
dóttir og fjölskylda.
Kveðja frá Vefdeild
Fjárvangs og VÍS
Það er sárt að kveðja góða vin-
konu en það er huggun harmi gegn
að við vitum að hún mun áfram
vera meðal okkar í anda. Við
kynntumst Kristínu fyrst þegar
Fjárvangur og VÍS hófu samstarf
um rekstur á vefdeild. Kristín var
alltaf glaðlynd og góður vinnufé-
lagi. Hún var hugmyndarík, ákveð-
in, úrræðagóð og mjög tæknilega
sinnuð. Kristín á stóran þátt í því
þróunarstarfi sem félögin hafa
unnið í vefmálum og verður vinna
hennar og metnaður okkur hinum
mikil hvatning til þess að halda
áfram góðu starfi. Kristín var fljót
að falla inn í hópinn og minnumst
við sérstaklega góðs tíma sem við
ásamt öðru starfsfólki Fjárvangs
áttum með Kristínu í lok febrúar
þegar haldin var árshátíð félagsins
í Kaupmannahöfn. Veikindi Krist-
ínar höfðu tekið af henni toll en
hún var alltaf staðráðin í að vinna
sig Uppúr þeim og brosa framan í
lífið. Það var bjart yfir Kristínu
þegar við kvöddum hana áður en
hún fór, örlítið kvíðin, í aðgerð til
Bandaríkjanna. Það var okkur öll-
um reiðarslag að heyra að Kristín
átti ekki afturkvæmt úr þeirri
ferð. Við, sem vorum svo heppin að
kynnast henni og vinna með henni,
vitum að henni er ætlað hlutverk á
öðrum stöðum. Við vitum líka að
hún mun vera með okkur áfram.
Það er góð tilfinning.
Við sendum eiginmanni hennar
og börnum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur. Megi drottinn blessa ykk-
ur.
Valdimar, Björn, Jón
Árni, Trausti, Margrét,
Sverrir, Andrjes og
Haraldur.
Elsku Kristín. Hér sitjum við
saman hljóðar, Iðnaðarbankahóp-
urinn, gamla Armúlagengið, og
reynum að átta okkur á því að þú
ert farin, þú ert ekki lengur á með-
al okkar, dillandi hlátur þinn er
hljóðnaður og allar skemmtilegu
sögurnar þínar sem fengu okkur til
að gráta af hlátri verða ekki sagð-
ar aftur, en nú gráta hjörtu okkar
af sorg og söknuði yfir ótímabærri
ferð þinni inni á þá óráðnu vegu,
sem bíða okkar allra.
Fyrir meira en áratug var sett á
laggirnar í Iðnaðarbanka deild er-
lendra viðskipta. Hjá því unga
fólki sem þar tók höndum saman
skapaðist strax góður starfsandi
og fljótlega mynduðust sterk vin-
áttubönd sem hafa haldist alla tíð
síðan. Þar áttir þú ríkan þátt, í öll-
um samskiptum þínum við starfs-
félagana varst þú opinská og ein-
læg og áttir auðvelt með að koma
auga á björtu og góðu hliðarnar
hverju sinni.
Þrátt fyrir að leiðir okkar lægju
ekki saman er fram liðu stundir
héldum við áfram að hittast reglu-
lega, ýmist heima hjá einhverri
okkar eða á einhverju kaffihúsanna
í borginni. Þá fundum við sem fyrr
að við gátum leitað til þín með
vandamál okkar, þú varst ætíð til-
búin að hjálpa öðrum þrátt fyrir
annir hversdagsins og þann mikla
tíma sem þú gafst í umhyggju
handa þinni stóru fjölskyldu.
Þegar nú leiðir skiljast um sinn
viljum við þakka þér fyrir kynni
sem voru okkur öllum ómetanleg,
það voru vissulega forréttindi að fá
að kynnast þér og eignast þig fyrir
vin. Guð vaki yfir þér og leiði þig á
þeirri vegferð sem þú hefur nú
hafið.
Kæra fjölskylda, Palli, Hólmfríð-
ur Hulda, Sigfríður Arna, Jóhanna
Wium, Ingibjörg Anna, foreldrar
og aðrir aðstandendur. Við vottum
ykkur okkar dýpstu samúð. Megi
Guð vera með ykkur og styrkja
ykkur.
Delia, Guðlaug, Helga
Harðar, Margrét, Matt-
hildur, Salome og
Sigurða.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
systir, mágkona og amma,
GUÐRÚN PÉTURSDÓTTIR,
Naustahlein 30,
Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn
22. apríl.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í dag,
föstudaginn 28. apríl, kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið.
Guðmundur Rafn Guðmundsson,
Ásdís Guðmundsdóttir, Jón Bjarnarson,
Pétur Guðmundsson, Hólmfríður Ómarsdóttir,
Guðmundur Kr. Guðmundsson, Svanlaug Sigurðardóttir,
Magnús Karl Pétursson, Ingibjörg Pétursdóttir
og barnabörn.
Samstarfsfólk hjá Vátrygginga-
félagi íslands og Fjárvangi var
harmi slegið er fréttir bárust af
andláti Kristínar Þorsteinsdóttur.
Kristín hafði kvatt okkur svo glöð í
bragði er hún lagði í stutta ferð
vestur um haf, bjartsýn á framtíð-
ina.
Ég kynntist Kristínu fyrst er við
störfuðum saman um hríð hjá ís-
landsbanka og þegar hún leitaði til
VIS sumarið 1997 tók það skamma
stund að ákveða að ráða hana til
okkar.
Kristín var dugmikill og áreið-
anlegur starfsmaður í hvívetna og
var mjög fljót að tileinka sér nýja
hluti og setja sig inní ný verkefni.
Hún var líka starfsmaður sem sótti
sífellt í ögrandi og krefjandi við-
fangsefni.
Kristín fékkst m.a. við verkefni
á sviði starfsmannamála og endur-
trygginga, en síðustu mánuði vann
hún í sameiginlegu internet-verk-
efni VÍS og Fjárvangs.
Kristínu var mjög umhugað um
fjölskyldu sína og jafnframt áhuga-
söm um líðan fólks í kringum sig.
Hún hafði einstaka hæfileika til að
hjálpa þeim sem áttu um sárt að
binda og þótt hún hafi nú skyndi-
lega horfið frá okkur er víst að
Kristín er ekki fjarri okkur í anda
og tekst nú á við krefjandi og ögr-
andi verkefni á nýjum stað.
Það er mikill söknuður og mikill
missir að starfsmanni eins og
Kristínu.
Hún var ávallt kát og þægileg,
en jafnframt ákveðin í fasi.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
Ur Hávamálum.)
Fyrir hönd samstarfsfólks Krist-
ínar hjá VÍS og Fjárvangi votta ég
aðstandendum öllum, dýpstu sam-
úð okkar.
Sigurður Ólafsson, starfs-
mannastjóri VÍS.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNA KRISTÍN HARALDSDÓTTIR,
Grýtubakka 2,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut, þriðjudaginn 25. april.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskrikju miðvikudaginn 3. maí kl. 15.00.
Kristján Vernharðsson,
Sigríður Gunnarsdóttir, Stefán Hallgrímsson,
Haraldur Gunnarsson, Ingibjörg Gfsladóttir,
og barnabörn.
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og stjúp-
faðir,
HJÖRTUR GUNNAR KARLSSON
loftskeytamaður,
Hvanneyrarbraut 40,
Siglufirði,
lést á Sjúkrahúsi Siglufjarðar miðvikudaginn
26. apríl.
Margrét Björnsdóttir,
Sveinn Hjartarson,
íris Eva Gunnarsdóttir.
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, amma og langamma,
ÓLÖF EINARSDÓTTIR,
Stangarholti 6,
Reykjavfk,
lést á Vífilsstöðum föstudaginn 21. apríl.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðviku-
daginn 3. maí kl. 15.00.
Jarðsett verður í Hafnarfjarðarkirkjugarði.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir.
Jónas M. Lárusson,
Rannveig Jónasdóttir, Tryggve Fageraas,
Lára Jónasdóttir, Birgir Karel Johnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
GRETTIR
JÓHANNESSON
+ Grettir Jóhann-
esson fæddist í
Vestmannaeyjum 11.
febrúar 1927. Hann
lést á Vífilsstaðaspít-
ala 12. apríl sfðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Digranes-
kirkju 19. april.
Já, nú er komið að
kveðjustund. Kvaddur
er ágætur nágranni og
kunningi frá yngri ár-
um. Eg fluttist í
Þykkvabæinn haustið
1957, og skömmu áður
fluttist Grettir þangað, giftist
heimasætunni í Skarði, henni Fann-
eyju Egilsdóttur, og
hóf búskap á móti
tengdaforeldrum sín-
um, Agli Friðrikssyni
og Friðbjörgu Helga-
dóttur. Þau bjuggu
saman í mörg ár,
byggðu myndarlegt
íbúðarhús og undu vel.
Þau voru samhent og
samvinnuþýð. Þegar
svo er, gengur allt vel.
Varla er hægt að hugsa
sér betra heimili en
Skarðsheimilið. Börnin
hans Grettis og Fann-
eyjar uxu úr grasi
hvert af öðru. Þau sóttu Barnaskóla
Djúpahrepps, sem ég stóð þá fyrir,
og voru til fyrirmyndar um hegðun
og nám. Slíks er gott að minnast.
Grettir ólst upp í Vestmannaeyj-
um og var einnig í Húnaþingi sem
sumardrengur. Hann sinnti lög-
gæslustörfum í Eyjum um skeið,
vann hjá símanum við línulagnir og
sinnti störfum hjá ÓPAL h.f., eftir
að flust var til Reykjavíkur. Grettir
var lengi bílstjóri, samhliða
búskapnum í Skarði, hjá Friðrik
Friðrikssyni í Þykkvabæ, og fórst
það vel úr hendi, eins og annað sem
hann lagði hönd að.
Grettir var námsfús maður, og
eitt sinn sótti hann tíma í ensku til
mín. Hann var einn sá besti nem-
andi sem ég hefi haft, áhugasamur
og duglegur.
Gretti kveð ég með þökk fyrir allt
gamalt og gott. Mér fannst hann
enn vera á besta skeiði lífsins. Ætt-
mennum votta ég samúð við fráfall
hans.
Auðunn Bragi Sveinsson.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
vináttu og virðingu við andlát og útför
INGIMUNDAR H. KRISTJÁNSSONAR
frá Svignaskarði.
Vandamenn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
SÓFUSAR PÁLS HELGASONAR,
Ásbyrgi,
Raufarhöfn.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabamabörn.