Morgunblaðið - 16.09.2000, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 16. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Talið að mörg hundruð manns í Reykjavík hafí fengið salmonellu-smit
Stöðugt fleiri
leita læknis
Flugstöðin
Um 20
umsóknir
UMSÓKNARFRESTUR um stöðu
nýs forstjóra yfir Flugstöð Leifs
Eiríkssonar og Fríhöfninni á Kefla-
víkurflugvelli rann út í gær.
Að sögn Gísla Guðmundssonar,
stjórnarformanns Flugstöðvarinnar,
bárust um 20 umsóknir. I auglýsingu
um starfið var tekið fram að nöfn
umsækjenda yi’ðu trúnaðarmál og
því sagðist Gísli ekki ætla að gefa
neitt upp um umsækjendur.
Gísli sagði að stjórn flugstöðvar-
innar væri þegar búin að fjalla um
nokkrar umsóknir og þeirri vinnu
yrði haldið áfram eftir helgi. Til-
kynnt yrði um nýjan forstjóra fyrir
lok mánaðarins en 1. október mun
nýja stjórnin yfir hlutafélagi um
rekstur flugstöðvarinnar og fríhafn-
arinnar taka formlega til starfa.
EKKI er búið að finna orsök salm-
onellusýkingarinnar sem valdið hef-
ur faraldri á höfuðborgarsvæðinu, en
að sögn Haraldar Briem sóttvarnar-
læknis er vitað að meira en 50 manns
hafa sýkst og segir hann æ fleiri vera
að bætast í þann hóp.
„Pað eiga eftir að koma fleiri til-
felli um helgina, en það er spurning
hve mörg. Svona faraldur rís og svo
fellur hann hægt. Spurningin er
hvort hann sé búinn að ná toppnum,
eða hvort hann sé ennþá á leiðinni
upp,“ segir Haraldur.
Hann segir að þessir 50 sem hafi
verið greindir séu líklega bara topp-
urinn á ísjakanum, því líklegt sé að
fjöldi fólks til viðbótar hafi smitast,
en ekki fengið svo slæm einkenni að
það þyrfti að leita læknis. Til að
áætla fjölda smitaðra megi að
minnsta kosti tífalda tölu þeirra sem
greinast og því er ljóst að mörg
hundruð manns hafa sýkst.
Haraldur segir að þar sem þetta
afbrigði salmonellubakteríunnar sé
áður óþekkt hérlendis, sé ólíklegt að
sýkingin eigi upptök sín hér innan-
lands og því séu þau væntanlega í
innfluttum matvælum eða fóðri.
Orsökina líklega
að finna í hráefni
Hann segir að unnið sé út frá ýms-
um tilgátum við rannsóknina, en
ekki sé tímabært að nefna nein mat-
væli umfram önnur sem líklegan or-
sakavald og mælist hann til þess að
fólk borði vel steiktan og vel soðinn
mat og hreinsi allt hráefni vandlega.
Haraldur segir það kunna að segja
ákveðna sögu að langflestir þeirra
smituðu séu á aldrinum 20 til 30 ára,
en fólk á þessum aldri borði gjarnan
á skyndibitastöðum. Margir þeirra
sem sýkst hafa borðuðu á
skyndibitastöðum, en þó ekki allir og
segir Haraldur að ekki sé hægt að
bendla sýkinguna við ákveðinn veit-
ingastað eða staði. Að öllum líkind-
um komi hún frá einhverju hráefni
sem hafi farið í umferð í byrjun sept-
ember og náð talsverðri útbreiðslu á
höfuðborgarsvæðinu.
Haraldur segir að þar sem upp-
runi sýkingarinnar virðist ekki
bundinn við ákveðinn stað, sé hún
sennilega ekki til komin vegna
óhreinlætis eða vanrækslu og því
megi draga þá ályktun að það hrá-
efni sem valdi henni sé líklega eitt-
hvað sem ekki sé steikt, soðið eða
gegnumhitað.
Hann ítrekar að lítið sé enn vitað
og að allar hugmyndir sem upp séu
komnar séu einungis tilgátur. Unnið
er út frá matvælasýnum og upplýs-
ingum frá sjúklingum og segir hann
það geta tekið nokkurn tíma að kom-
ast að niðurstöðu og að stundum tak-
ist jafnvel ekki að finna orsök sýk-
inga sem þessarar.
Haraldur segir afar einkennilegt
að þetta afbrigði salmonellu hafi
komið upp hér á iandi. Hún sé brynj-
uð fyrir mörgum sýklalyfjum, en til
séu tvö lyf sem vinni á henni.
„Einkenni hennar eru samt í sjálfu
sér ekkert öðruvísi en hjá salmonellu
yfirleitt, en salmonella er alltaf al-
varlegur sjúkdómur," segir Har-
aldur að lokum.
Sýknaður af ákæru um að
raska arnarvarpi með sinueldi
3.600 tonn
af járnitil
Spánar
SKIPAÐ var út 3.600 tonnum af
brotajárni í Hafnarfjarðarhöfn í
gær, í norska flutningaskipið
Northem Linanes, á vegum Furu
hf. Haraldur Þdr Ólason, eigandi
Fum, segir að farmurinn fari til
Sevilla á Spáni. Þetta er fimmti
farmurinn á þessu ári og samtals
hafa verið flutt út um 17 þúsund
tonn af brotajárni á vegum fyrir-
tækisins það sem af er árinu.
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða sýkn-
aði í gær mann af að hafa með sinu-
bruna raskað hreiðurstað arna i
hólma í Miðhúsaeyjum í Reykhóla-
hreppi. Maðurinn var fundinn sekur
um að hafa stundað minkaveiðar án
veiðikorts með eldfærum og dísil-
menguðu bensíni og um að kveikja
sinuelda án leyfis. Ákvörðun um
refsingu var hins vegar frestað í tvö
ár og fellur hún niður að þeim lokn-
um haldi maðurinn almennt skilorð.
Það var Fuglaverndarfélag ís-
lands sem kærði manninn í maí í
fyrra. Tveir liðsmenn félagsins höfðu
þá orðið þess varir að sina hafði verið
brennd í Arnarstapa í Miðhúsaeyj-
um og ráða hafði mátt af ummerkj-
um að sinan hefði sennilega verið
brennd í síðari hluta apríl. Gekkst
maðurinn við því síðar að hafa
brennt sinu í Hrúthólmunum í þeim
tilgangi að auka æðarvarp. í kæru
Fuglavemdarfélagsins er það hins
vegar ekki talið neinum vafa undir-
orpið að maðurinn hafi brennt sin-
una til að koma í veg fyrir að ernir
hreiðruðu þar uni sig og til að fæla
þá burtu af svæðinu.
í dómnum kemur fram að lög-
reglurannsókn í málinu hafi lokið í
júlí 1999 en ákæra var ekki gefin út
fyrr en í júlí árið 2000. Þessi dráttur
á ákæru sé andstæður lögum um
meðferð opinberra mála og ákvæð-
um Mannréttindasáttmála Evrópu.
Fagnaði
100 ára
afmæli
í Gimli
VESTUR-Islendingurinn Þór-
unn Traustadóttir Vigfússon
varð í gær hundrað ára gömul
og var haldið
upp á afmæli
hennar á
Dvalar- og
clliheimilinu
Betel í Gimli
í Manitoba.
Þórunn
talaði lýta-
lausa ís-
lensku er náðist í liana
skömmu fyrir afmælishófið í
gær og kvaðst hún hugsa til
vina og vandamanna á þessum
degi. Þórunn er fædd í Mani-
toba í Kanada, en foreldrar
hennar voru báðir íslenskir.
I afmæli Þórunnar komu
meðal annarra Svavar Gests-
son, aðalræðismaður Islands í
Kanada, Neil Bardal, ræðis-
maður í Gimli, og vinir Þór-
unnar frá Árborgarsvæðinu,
sem er í kringum Gimli. í Bet-
el hafði verið komið fyrir
blómaskreytingum í tilefni
dagsins.
F’oreldrar Þórunnar voru
Trausti, sonur Vigfúsar Guð-
mundssonar, sem um skeið var
bóndi í Syðra-Langholti í Ár-
nessýslu, og Rósa, dóttir séra
Odds Gíslasonar frá Kirkju-
vogi í Höfnum og prests við ís-
lendingafljót.
I bókinni Islendingar í Vest-
urheimi kemur fram að Þór-
unn sé draumspök kona og viti
oft lengra inn í framtíðina en
almenningi sé Ijóst á líðandi
stund. I gær fagnaði hún hins
vegar 100 ára farsælli ævi í
vesturheimi.
í dag
•••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••
lÍjaDun
ÁLAUGARDÖGUM
—
———;—Tj|
Með Morgun-
bladinu í dag
fylgir blað frá
versluninní
Epal.
Sjö möguleikar í spennandi
fallbaráttu ■ efstu deild/Bll
Þróttarar björguðu sér frá falli
með sigri á Höf n/BlO
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is